Morgunblaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 12
Gengi fasteigna félaganna Eikar, Regins og Reita frá áramótum til 17. ágúst janúar febrúar mars maí júlí ágústapríl júní 40 35 30 25 20 15 10 5 0 80 70 60 50 40 30 20 10 0 Eik & Regin Reitir 27. FEBRÚAR Fyrsti blaðamannafundur „þríeykis- ins“ haldinn. Degi síðar er greint frá fyrsta staðfesta smitinu hér á landi. 22. MARS Bann við samkomum þar sem fl eiri en 20 koma saman 4. MAÍ Tilkynnt um tilslakanir og fjölda- takmörkun færð úr 20 í 50 manns. Unnt að opna framhalds- og háskóla og ýmis starfsemi hefst að nýju. 25. MAÍ Fjöldatakmörkun rýmkuð úr 50 í 200 manns. Líkamsræktarstöðvar fá að hafa opið undir ströngum skilyrðum. 14. JÚLÍ Fleiri lönd skilgreind þannig að ferðamenn þaðan eru undan- þegnir skimun og sóttkví. 30. JÚLÍ Samkomubann hert og aftur miðað við færri en 100. Ferðamenn sem koma frá áhættusvæðum og dvelja lengur en 10 daga verða að fara í tvær skimanir. 14. ÁGÚST Allir komufarþegar til landsins skikkaðir í tvær skimanir og 5-6 daga sóttkví. 19. MARS Öll lönd skilgreind sem áhættusvæði. Allir íslenskir ríkisborgarar og fólk með búsetu á landinu skikkað í 14 daga sóttkví eftir dvöl erlendis. 13. MARS Samkomur takmarkaðar og ekki mega fl eiri en 100 koma saman. EIK Eik Reginn Reitir Heimild: Nasdaq OMX Nordic og www.covid.is BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Fasteignafélögin þrjú í Kauphöll Ís- lands, Reitir, Reginn og Eik, hafa ekki átt sjö dagana sæla það sem af er ári. Staðan virtist kristallast í við- skiptum gær- dagsins þar sem lækkun félaganna varð talsvert meiri en flestra annarra félaga og nam lækkun þeirra á bilinu 2,9-3,5%. Það sem af er ári hefur mark- aðsvirði félaganna rýrnað verulega, samanlagt um rúma 36 milljarða. Reitir, sem er stærsta félagið, hefur lækkað um ríf- lega 35% og rúma 17 milljarða króna, Reginn um rúmt 31% og ríf- lega 12 milljarða og Eik hefur lækk- að um tæp 23,5% og rétt um 6,5 milljarða króna. Samtals hefur markaðsvirði þeirra rýrnað um ríflega 36 milljarða króna. Lækkun Reita nemur rúmum 35% Ekkert eitt virðist skýra lánleysi fé- laganna þótt meðfylgjandi tafla sýni að eftir því sem syrt hefur í álinn í baráttunni við kórónuveiruna hefur gengi félaganna daprast. Snorri Jak- obsson, hjá Jakobsson Capital, segir félögin mjög undirverðlögð og að þótt fasteignafélögin þurfi nú að gera grein fyrir talsverðum neikvæðum virðisbreytingum á fjárfestingar- eignum sínum þá sé einkennilegt að upplausnarvirði þeirra (eigið fé) sé milljarðatugum hærra en markaðs- virðið. „Áhrif þessara virðisbreytinga eru mun takmarkaðri en margir virðast halda. Þær hafa lítil sem engin áhrif á sjóðstreymið. Vissulega getur fjár- mögnun þessara fyrirtækja orðið dýrari ef eiginfjár- og skuldahlutföll versna en þessi þrjú félög standa vel að vígi í þeim efnum.“ Sem dæmi má nefna að eigið fé Regins var um mitt þetta ár rúmir 45 milljarðar króna en markaðsvirði félagsins var í lok dags í gær 27 milljarðar eða 40% lægra en eigið féð. Vaxtalækkanir skila sér ekki Snorri bendir einnig á að þótt nú gefi á bátinn í íslensku við- skiptalífi þá muni neikvæðra áhrifa af því gæta hægar hjá fast- eignafélögunum en mörgum öðr- um enda leigusamningar yfirleitt gerðir til nokkurra ára. „Þessi félög ættu einnig að vera næmari en önnur félög þegar kem- ur að vaxtalækkunum. Miklar lækkanir vaxta ættu að þrýsta verðinu upp en það hefur alls ekki gerst í þeirra tilviki,“ segir Snorri. Hann segir að félögin hafi í raun ekki notið þeirra vinsælda sem ætla hefði mátt og stemningin í kringum þau fremur lítil. „Það kann að hafa áhrif að líf- eyrissjóðirnir, sem eru mjög um- svifamiklir á markaðnum, hafa frekar lítið keypt í þessum fé- lögum og lagt meiri áherslu á að kaupa skuldabréfin sem þau gefa út. Þá er ekki útilokað að einhver skortsala hafi átt sér stað á árinu en ég hef þó ekki upplýsingar um það.“ Hafa skilað góðri afkomu Segir hann í raun illskiljanlegt að gengið hafi þokast svo hratt niður á við þrátt fyrir ágætan rekstur þeirra. „Afkoman hefur auðvitað versnað nokkuð. En það verður að hafa í huga að leiguarðsemi þessara fyrir- tækja hefur verið með því móti að ef þau hefðu greitt allan hagnað út í formi arðs þá hefði það samsvarað 5-6% verðtryggðum vöxtum. Nú er þetta komið niður í 4-5% en það er mjög góður fjárfestingarkostur í núverandi ástandi. Rýrnað um 36 milljarða í ár  Fasteignarisarnir í Kauphöllinni ganga kaupum og sölum langt undir eigin fé  Sérfræðingur segir félögin mjög vanmetin  Lægri vextir ættu að hækka verð Snorri Jakobsson 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2020 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg 18. ágúst 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 136.46 Sterlingspund 178.74 Kanadadalur 103.12 Dönsk króna 21.634 Norsk króna 15.281 Sænsk króna 15.657 Svissn. franki 149.81 Japanskt jen 1.2787 SDR 192.34 Evra 161.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 190.9365 Hrávöruverð Gull 1948.3 ($/únsa) Ál 1730.0 ($/tonn) LME Hráolía 45.29 ($/fatið) Brent Fjárfestingarfélagið Fredensborg Ice ehf., sem á mikinn meirihluta í fasteignafélaginu Heimavöllum, hef- ur ákveðið að aðrir hluthafar sæti innlausn á hlutum sínum. Lögum samkvæmt má hluthafi sem fer með meira en 90% hlutafjár í félagi fara fram á slíka innlausn að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Að teknu til- liti til eigin hluta Heimavalla er eignarhlutur Fredensborg Ice ríf- lega 99,45%. Aðkoma Fredensborg Ice, sem er í eigu Fredensborg Bolig í Noregi, hófst með kaupum á 810,1 milljón hluta í Heimavöllum í janúar síðast- liðnum. Jafngilti það ríflega 7% hlut í fasteignafélaginu. Skömmu síðar jók félagið enn við hlut sinn og í marsmánuði tilkynnti félagið, sem þá átti orðið 74% af hlutabréfunum í Heimavöllum, að það hygðist gera yfirtökutilboð í aðra hluti í félaginu. Fáir eftir í hópnum Yfirtökutilboðinu var vel tekið og tóku hluthafar sem áttu 24,32% hlutafjár þátt í því og voru þeir 242 talsins. Fól tilboðið í sér að gengi í viðskiptunum var 1,5 krónur á hvern hlut sem var umtalsvert yfir skráðu gengi félagsins þegar til- kynnt var um yfirvofandi yfirtöku- tilboð. Kaupverð hlutanna nam því ríflega 4,1 milljarði króna. Innlausn- in sem nú hefur verið tilkynnt fer einnig fram á genginu 1,5 en dags- lokagengi bréfa félagsins hefur haldist rétt undir því gengi að mestu síðustu mánuði og hafa við- skipti með bréf félagsins verið mjög takmörkuð á tímabilinu. Fredens- borg Ice hyggst afskrá Heimavelli úr Kauphöll Íslands en fyrirtækið var skráð á markað 24. maí 2018. ses@mbl.is Heimavell- ir innleysa bréfin Morgunblaðið/Eggert Afskráning Arnar Gauti Reynisson er framkvæmdastjóri Heimavalla.  Félagið er á leið úr Kauphöll Íslands Bandaríska tæknifyrirtækið Rob- inhood, sem hefur það að markmiði að veita fólki fría miðlun hluta- bréfa, er nú metið á yfir 11 millj- arða dollara, jafnvirði ríflega 1.500 milljarða íslenskra króna. Hið nýja verðmat fékkst staðfest með fjár- festingu vogunarsjóðsins D1 Capi- tal Partners sem lagði því til 200 milljónir dollara í gær. Financial Times greinir frá. Svo virðist sem fyrirtækið sé á mikilli siglingu þessa dagana því ekki er liðinn nema mánuður síðan greining- arfyrirtækið PitchBook mat heild- arvirði fyrirtækisins á 8,6 milljarða dollara. Nýjasta hlutafjáraukningin hefur gefið vangaveltum um að í bí- gerð sé að selja almenningi hluti í „Hrói höttur“ met- inn á 1.500 milljarða  Færir hlutabréfaviðskipti nær fólki AFP Vöxtur Robinhood fer með him- inskautum og verðmæti þess hefur aukist ævintýralega að undanförnu. fyrirtækinu með hlutafjárútboði. Robinhood er hins vegar ekki spá- nýtt fyrirtæki. Það hefur sótt fjár- magn til fjárfesta frá árinu 2013 og tveimur árum síðar, 2015 hóf það að veita almenningi þjónustu sína. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.