Morgunblaðið - 18.08.2020, Side 13
BAKSVIÐ
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Landsfundur bandaríska Demó-
krataflokksins hófst í gær, en þar
mun Joe Biden, fyrrverandi varafor-
seti, taka formlega við útnefningu
flokksins til forsetaframboðs í haust.
Landsfundurinn átti að þessu sinni
að fara fram í Wisconsin-ríki, en
vegna samkomubanns og annarra
afleiðinga kórónuveirufaraldursins,
verður hann nær alfarið haldinn á
netinu.
Skortur á sjónarspili til trafala?
Landsfundir stóru flokkanna
tveggja fyrir forsetakosningar eru
jafnan mikið sjónarspil, þar sem lit-
ríkar blöðrur, lifandi tónlist og eld-
messur frá helstu flokksmönnum
hafa búið til gríðarlega stemningu. Í
ár var til að mynda gert ráð fyrir að
um 50.000 manns myndu sækja ráð-
stefnuna áður en faraldurinn setti
strik í reikninginn.
Meðal ræðumanna að þessu sinni
verða fyrrverandi forsetahjónin Bill
og Hillary Clinton og Barack og Mic-
helle Obama, sem og þingmennirnir
Bernie Sanders, Elizabeth Warren
og Alexandria Ocasio-Cortez, en þau
þrjú eru öll talin til róttækari arms
Demókrataflokksins. Biden sjálfur
flytur svo lokaávarp fundarins á
fimmtudagskvöldið og tekur við út-
nefningu flokksins. Landsfundur
repúblikana hefst svo í næstu viku
og verður með svipuðu sniði, en hefð
er fyrir því að sá flokkur sem hefur
forsetaembættið fái að halda sinn
fund nær kosningunum.
Áhrif landsfundanna hafa oftar en
ekki mælst í skoðanakönnunum, þar
sem hin mikla athygli sem fellur á
frambjóðendurna verður til þess að
auka fylgi þeirra tímabundið. Stjórn-
málaskýrendur vestanhafs telja hins
vegar að hið „rafræna“ form lands-
fundarins gæti orðið til þess að
draga úr áhrifum hans á fylgi fram-
bjóðendanna, þar sem víst er að báð-
ir fundirnir verða minna í sviðsljós-
inu en ella.
Spurning er hvort minni „lands-
fundaráhrif“ geti haft áhrif á kosn-
ingabaráttuna, en ný skoðana-
könnun sem CNN birti í gær benti
til þess að nokkuð hefði dregið sam-
an með Biden og Trump í þeim fylkj-
um sem munu ráða úrslitum í barátt-
unni um Hvíta húsið, og munar nú
einungis um fjórum prósentustigum
á frambjóðendunum, en Biden leiddi
með 14 prósentustigum í júní. Ræð-
ur þar mestu að þeir stuðningsmenn
repúblikana sem áður sögðust ætla
að styðja Biden virðast vera að snúa
aftur í „heimahagana“, auk þess sem
ungir karlmenn eru nú líklegri til að
styðja Trump en Biden.
Tekist á um póstþjónustuna
Umræðan vestanhafs um helgina
sneri hins vegar ekki að skoðana-
könnunum eða komandi lands-
fundum, heldur hafa deilur um op-
inbera póstþjónustu verið í
brennidepli. Demókratar saka nú-
verandi yfirmann bandarísku póst-
þjónustunnar, repúblikanann Louis
Dejoy, um að draga vísvitandi úr
getu hennar til þess að bera út póst í
aðdraganda kosninganna, en bæði
póstkassar og flokkunarvélar hafa
verið teknar úr umferð, en fyrir-
sjáanlegt er að fleiri vilji greiða at-
kvæði utankjörfundar að þessu sinni
vegna kórónuveirufaraldursins.
Dejoy heldur því hins vegar fram
að einungis sé um eðlilegar aðhalds-
aðgerðir að ræða. Nancy Pelosi, for-
seti fulltrúadeildarinnar, hefur kall-
að deildina aftur úr sumarfríi, en
ætlunin er að hún afgreiði lagasetn-
ingu sem muni tryggja það að utan-
kjörfundaratkvæðin komist til skila.
AFP
Landsfundur Útlitið var annað þegar Barack Obama og Joe Biden tóku við útnefningu Demókrataflokksins árið
2012. Biden er nú aftur teflt fram sem forsetaefni, en landsfundurinn verður á netinu vegna kórónuveirunnar.
Óhefðbundinn landsfundur
í skugga kórónuveirunnar
Fulltrúadeildin kölluð úr fríi vegna tafa á póstþjónustu
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2020
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Mótmælendur í Hvíta-Rússlandi
héldu áfram andófi sínu gegn úrslit-
um forsetakosninganna 9. ágúst síð-
astliðinn í gær, eftir að mikil átök
urðu milli lögreglu og mótmælenda
um helgina. Um 6.700 manns hafa nú
verið handteknir fyrir þátt sinn í mót-
mælunum, og að minnsta kosti tveir
hafa látið lífið. Leiðtogar Evrópusam-
bandsins íhuga nú refsiaðgerðir á
hendur hvítrússneskum stjórnvöld-
um vegna aðgerða helgarinnar.
Alexander Lúkasjenkó, forseti
landsins, mætir nú miklum þrýstingi
bæði utanlands sem innan um að
segja af sér embætti, en opinberir
starfsmenn bauluðu á forsetann og
sögðu honum að hafa sig á brott þeg-
ar Lúkasjenkó heimsótti dráttarvéla-
verksmiðju í eigu ríkisins.
Myndskeið af heimsókn Lúka-
sjenkós í verksmiðjuna í gær fór í al-
menna dreifingu á samfélagsmiðlum,
en þar mátti sjá starfsmennina hrópa
forsetann niður er hann reyndi að
flytja ræðu. Var Lúkasjenkó sýnilega
reiður er hann hvarf af vettvangi, en
forsetinn hét því að ekki yrði boðað til
nýrra kosninga, nema ef hann yrði
ráðinn af dögum.
Hin hörðu viðbrögð lögregluyfir-
valda gegn mótmælunum um helgina
virðast ætla að draga dilk á eftir sér,
en ríkisstarfsmenn við ýmsar verk-
smiðjur, sem taldir hafa verið meðal
helstu stuðningsmanna forsetans,
lögðu niður störf í gær.
Þá voru stjórnvöld í Bretlandi og
Þýskalandi í gær sögð íhuga frekari
refsiaðgerðir á hendur Hvítrússum
vegna viðleitni stjórnvalda til þess að
berja mótmælin niður. Sögðu Bretar
ljóst að niðurstaða kosninganna hefði
verið fölsuð, og hvöttu til óháðrar
rannsóknar á þeim.
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna hyggjast halda neyðarfund á
morgun, miðvikudag, til þess að ræða
ástandið í landinu, en talið er líklegt
að þeir muni samþykkja refsiaðgerðir
gegn Hvítrússum á þeim fundi. Don-
ald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því
einnig yfir í gær að hann fylgdist
grannt með hinu hræðilega ástandi í
Hvíta-Rússlandi, en bandarísk
stjórnvöld hafa hvatt Lúkasjenkó til
að hefja viðræður við forsprakka
stjórnarandstöðunnar.
Segist tilbúin að taka við
Svetlana Tikhanovskaya, mótfram-
bjóðandi Lúkasjenkós í forsetakjör-
inu umdeilda, lýsti því yfir í gær að
hún væri reiðubúin til þess að taka við
stjórnartaumunum í Hvíta-Rúss-
landi, en hún heldur því fram að fram-
boð sitt hafi fengið meirihluta at-
kvæða í kosningunum.
Tikhanovskaya er nú í sjálfskipaðri
útlegð í nágrannaríkinu Litháen, en
hún krefst þess að stjórnvöld sleppi
öllum þeim sem hafa verið handteknir
í mótmælunum og í aðdraganda kosn-
inganna, og að öryggissveitir landsins
dragi sig í hlé. Þá vill Tikhanovskaya
að þeir sem beri ábyrgð á ofbeldi
gegn mótmælendum verði sóttir til
saka.
Herinn kominn á stjá
Stjórnvöld í Litháen lýstu því yfir í
gær að hvítrússneski herinn væri nú
við heræfingar við landamæri
ríkjanna, en Lúkasjenkó hefur sakað
Atlantshafsbandalagið um að hafa
aukið herafla sinn við landamærin.
Forsprakkar bandalagsins segja hins
vegar engar breytingar hafi verið
gerðar á varnarstöðu bandalagsríkj-
anna. Þá munu Rússar einnig vera til-
búnir til að grípa inn í ástandið í land-
inu, sé þörf á.
Lúkasjenkó undir miklum þrýstingi
Fjölmenn mótmæli helgarinnar héldu áfram í gær Leiðtogar Evrópusambandsins íhuga frekari
refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Hvíta-Rússlandi Bandarísk stjórnvöld fylgjast grannt með
AFP
Mótmæli Lúkasjenkó (t.h.) rökræðir hér við starfsmann dráttarvélaverk-
smiðju í Minsk, en forsetinn varð frá að hverfa eftir að baulað var á hann.
Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi ákváðu í
gær að fresta almennum þingkosn-
ingum í landinu, en þær áttu að fara
fram 19. september næstkomandi.
Er nú stefnt að því að kosningarnar
fari fram 17. október.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, sagði í gær að frest-
unin kæmi til
vegna nýrra hóp-
sýkinga af kórón-
uveirunni sem
blossaði upp í síð-
ustu viku. Sagði
hún að allir flokk-
ar fengju nú tæki-
færi til þess að
sinna kosninga-
baráttu sinni
næstu níu vikurn-
ar, á sama tíma
og yfirkjörstjórn réð ráðum sínum
um framkvæmd þeirra í ljósi kórónu-
veirunnar.
Rúmlega 21,5 milljónir manna
hafa nú smitast af kórónuveirunni
um allan heim og rúmlega 766.000
dáið af völdum hennar. Stjórnvöld í
mörgum ríkjum hafa neyðst til þess
að grípa til nýrra sóttvarnaaðgerða,
þar sem faraldurinn virðist aftur
vera í uppgangi. Þannig settu stjórn-
völd í Suður-Kóreu meðlimi kristinn-
ar mótmælendakirkju í sóttkví í gær
eftir að nýtt hópsmit kom upp sem
tengdist bænahaldi hennar.
Grímuskylda á nóttunni
Þá tilkynntu nokkur Evrópuríki
um helgina og í gær um frekari að-
gerðir til þess að stemma stigu við
faraldrinum. Einna lengst gengu
yfirvöld í ellefu héruðum á Spáni, en
þar var ákveðið að loka öllum
skemmtistöðum og næturklúbbum,
en veitingastaðir og barir þurfa að
loka dyrum sínum klukkan 1 eftir
miðnætti.
Á Ítalíu hefur öllum dansstöðum
verið lokað næstu þrjár vikurnar, en
aukinn fjöldi smita þar er nú rakinn
til ungs fólks og skemmtunar þess.
Þar hefur verið kveðið á um að öllum
beri skylda til þess að hylja vit sín á
almannafæri frá kl. 18 á kvöldin og
fram til kl. 6 um morguninn.
Þá hafa bresk stjórnvöld skipað
öllum sem koma frá nokkrum Evr-
ópuríkjum, m.a. Frakklandi, að fara í
tveggja vikna sóttkví.
Takast á við
seinni bylgjuna
Kosningum frestað á Nýja-Sjálandi
Jacinda
Ardern