Morgunblaðið - 18.08.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 18.08.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2020 Viðskipta Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi. Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is VIÐSKIPTAPÚLSINN VIÐSKIPTAPÚLSINN NÝTTU TÍMANN OG FYLGSTU MEÐ Las grein í Mogg- anum um daginn sem fjallaði um sam- félagsmiðla. Og hversu slæm áhrif notkun þeirra getur haft á heilsu okkar. Dópamín er tauga- boðefni heilans og það losnar þegar okkur líður vel, borð- um góðan mat og svo framvegis. En auk þess að láta okkur líða vel getur losun þess leitt okkur í ákveðna fíkn, eiturlyf eða fjárhættuspil. En einnig far- símanotkun. Það að birta mynd af sér og skilaboð á Facebook og vænta svo jákvæðra viðbragða frá vinum okkar í netheimum, er eitt dæmi um það þegar farsímanotkunin er að fara úr böndunum. Og svo fáum við kannski ekki eins mörg læk og við bjuggumst við og þá verðum við döpur. Fáum nokkurs konar fráhvörf. Kíkjum í símann í tíma og ótíma í þeirri veiku von að lækunum fjölgi og að okkur líði þar með aðeins betur. Allt þetta ferli veldur miklu stressi sem aft- ur getur leitt af sér alvarlega og lífshættulega sjúkdóma eins og þunglyndi, offitu, sykursýki, háan blóðþrýsting, hjartasjúkdóma, heilablóðfall og vitglöp. Að vera stöðugt í snjallsímanum getur ver- ið lífshættulegt. Ég sé sjálfur daglega allnokkra dópamínfíkla í snjallsímanum sín- um. Í vinnunni, á biðstofum lækna, á veitingastöðum og í raun um allt samfélagið. Skrolla fram og til baka, lesa ummæli á sam- félagsmiðlum og greinar, pósta myndum, kommenta á færslur annarra og svo framvegis. Skoða hvað helstu „áhrifavaldar“ lands- ins eru að gera, hvaða fötum þeir klæðast (stelpurnar oftar en ekki frekar knöppum), hvaða veit- ingastaði þeir sækja og svo fram- vegis. Líta ekki upp til að bjóða góðan daginn, eru algjörlega fastir í fíkninni, vesalings fólkið. Finn til með þeim en vona jafnframt að þau losi sig úr þessum vondu viðjum áður en skaði hlýst af. Ég og eiginkona mín erum með sam- eiginlega Facebook- síðu sem við notum mest til samskipta við börnin okkar, ættingja og vini. Setjum senni- lega um það bil eina mynd á mánuði inn á síðuna okkar, oftast montmyndir af börnum og barna- börnum. Og svo bara líka til að leyfa áhugasömum að vita að okk- ur gengur og líður vel. Hvort við fáum 10 eða 100 læk skiptir mig engu máli, en mér þykir vænt um að sjá falleg ummæli um það sem við setjum inn, viðurkenni það. Sjálfur er ég fíkill. Sem hefur meðal annars leitt til þess að mér dettur ekki í hug að fá mér svona snjallsíma, nota Nokia-takkasíma, 7.900 krónur í fríhöfninni. Get tal- að í hann, sent og fengið smáskila- boð og sett í hann minnismiða um það sem ég þarf að muna síðar. Algjört draumatæki. Hleð hann á sunnudögum. Mér finnst líklegt að fengi ég mér svona fínan snjall- síma þá myndi ég ánetjast. Ef af slíkum kaupum verður hjá mér síðar á lífsleiðinni, þá mun ég í það minnsta reyna að muna hvaða áhrif slíkt tæki getur haft á heilsu mína. Lífshættuleg. Dópamínfíklar í snjallsímanum Eftir Gísla Pál Pálsson Gísli Páll Pálsson »Ég sé sjálfur dag- lega all nokkra dópamínfíkla í snjallsímanum sínum. Í vinnunni, á biðstofum lækna, á veitingastöðum og í raun um allt sam- félagið. Höfundur er takkafarsímanotandi gisli@grund.is Ég held að nú sé ekki rétti tíminn til flokkadrátta. Til að finna sökudólga. Til að kenna einhverju eða einhverjum um eitthvað. Til að leita uppi meint fífl og hálfvita eða leita uppi meint mistök. Hvað hefði mátt fara betur og hvað hefði verið hægt að gera öðruvísi. Eðlilegt er að velta upp möguleikum og hvað sé skást að gera á hverjum tíma í erfiðum aðstæðum. En málið er að standa saman sem aldrei fyrr með því að taka utan um hvert annað í raunverulegum kærleika, umvefj- andi nærveru þótt hún kunni að vera í meiri tímabundinni fjarveru í bili en við hefðum kannski kosið. Grátum saman Það er svo þungt að missa. Til- veran er skekin á yfirþyrmandi hátt. Angist fyllir hugann. Örvænt- ingin, tómarúmið, tilgangsleysið og umkomuleysið virðist blasa við og verða algjört. Það er svo sárt að sakna. En það er gott að gráta. Tárin eru dýrmætar daggir. Perlur úr lind minninganna. Minninga sem tjá kærleika og ást, væntumþykju og þakklæti fyrir liðna tíma. Minn- inga sem þú einn átt og enginn getur afmáð eða frá þér tekið. Tárin mýkja og tárin styrkja. Í þeim speglast fegurð minninganna. Hlæjum saman Hlæjum saman, því hláturinn losar um streitu og spennu. Hlæj- um saman því það styrkir vinátt- una. Hlæjum saman, því það stælir líkamann, nærir sálina og gleður andann. Hlæjum saman því það styrkir lungu og hjarta og eflir ónæmiskerfið. Hlæjum saman, því það styrkir magavöðvana, læknar kvilla og eykur orku. Hlæjum sam- an, því það styrkir bæði þína and- legu og líkamlegu vöðva. Hlæjum saman, því það gerir okkur jákvæðari og bjartsýnni. Hlæjum saman, því það gerir lífið svo miklu skemmtilegra. Hlæj- um saman, því þá líð- ur okkur svo miklu betur. Og betra er að deyja úr hlátri en leið- indum. Syngjum og biðjum Hvort sem þú ert sorgbitinn eða glaður, dapur eða kátur, þá skaltu syngja og biðja. Söngurinn mýkir hjartað, styrk- ir andann, gleður geðið og nærir sálina. Og með bæninni kemst jafnvægi á hugann og friður flæðir í hjartað. Í bæninni nýturðu kyrrðar, hlustar á sjálfan þig, umhverfið og Guð. Þú metur stöðuna, hleður batteríin og fyllir á tankinn. Bænin er kvíðastillandi og streitulosandi. Hún skerpir ein- beitingu og færir huganum ró. Söngurinn og bænin eru gömul og góð sívirk meðul af Guði gefin. Lækninum og lyfjafræðingnum sem megnar að græða sár. Hlúa að, uppörva og styrkja, líkna og lækna. Heilræði Fyrirgefðu og þér mun fyrir- gefið verða. Brostu og til þín verð- ur brosað. „Faðmaðu“ og þú munt „faðmaður“ verða. Uppörvaðu og þú munt uppörvaður verða. Gefðu og þér mun gefið verða. Elskaðu og þú munt elskaður verða. Syngdu og það verður tekið undir með þér. Farðu með bænirnar þín- ar og finndu friðinn flæða um þig. Leitastu við að lifa í kærleika, friði og sátt við Guð og alla menn og þér mun líða svo miklu, miklu bet- ur. Með samstöðu-, friðar- og kær- leikskveðju. - Lifi lífið! Syngjum, hlæjum, grátum og biðjum, saman Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Bænin er kvíðastill- andi og streitulos- andi, skerpir einbeit- ingu, færir frið og ró. Njótum kyrrðarinnar, hlustum á okkur sjálf, umhverfið og Guð. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Menn eru að fæðast og deyja á þessari jörð á hverjum degi og kannski spyrja sig flestir menn einhvern tíma á lífsleiðinni, hvers vegna þeir fæddust og hvernig dauðann muni að bera. „Ein kynslóðin fer og önnur kemur.“ (Pré- dikarinn 1:4.) Fyrir skömmu var ég að lesa merkilega frásögn í aldagamalli ritn- ingu sem tilheyrir hinum apókrýfu ritum Gamla testamentisins. Þar segir af heilögum Sedrak, þegar hann spurði Guð að því hvernig hann tæki við sál sinni er hann dæi. „Guð sagði við hann: Veistu ekki, að sál þín er staðsett í lungum þínum og hjarta og kvíslast þaðan út til allra útlima þinna? Hún er tekin upp í gegnum hálsinn, barkann og munn- inn. Þegar tími hennar kemur að koma út er henni safnað saman úr öllum útlimum og síðan er hún skilin frá líkamanum og hjartanu.“ (The Apocalypse of Sedrach 10:2-5.) Þar sem sagt er að hún komi upp barkann gæti átt samlíkingu með göngunum sem þeir ferðast um sem upplifað hafa dauða sinn en snúið til baka (Near Death Experience). Er það mín tilgáta. Samkvæmt útskýringu Skaparans og reynslu þeirra sem verið hafa við dauðans dyr bíður einhver áfram- haldandi tilvera mannsins eftir líf hans í dauðlegum líkama hér á jörðu. Þar sem margir bera ugg í brjósti fyrir þess- um umskiptum sem all- ir menn munu upplifa og velta fyrir sér langar mig til að deila þessari hugleiðingu með öðrum lesendum. Þeim kynni að finnast fróðlegt að lesa orð Guðs, sem hann beindi til Esdras: „Mannkynið hefur enga ástæðu til að hræðast dauðann, því að sá part- ur, sem er af mér, það er sálin, fer til himna. Sá hluti sem er af jörðu, þ.e. líkaminn, hverfur aftur til jarðarinnar, en af henni var hann tekinn.“ (The Apocalypse of Esdras 7:2-3.) Dauðinn er því umskipti, um- breyting og vistaskipti sem lífgjaf- inn býður okkur að hræðast ekki. Skaparinn, sem vill okkur mönn- unum allt hið besta, hefur búið svo í haginn fyrir okkur mennina. Lífið og tilveran er meistaraverk sem gjört er af hönnuði heima og geima. Eftir Einar Ingva Magnússon Einar Ingvi Magnússon » Samkvæmt útskýr- ingu Skaparans og reynslu þeirra sem verið hafa við dauðans dyr bíður einhver áfram- haldandi tilvera manns- ins. Höfundur er áhugamaður um samfélagsmál. einar_ingvi@hotmail.com Af lífi og sál ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.