Morgunblaðið - 18.08.2020, Side 22

Morgunblaðið - 18.08.2020, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bílar Nýr 2020 Renault Master L2H2. Sjálfskiptur. 150 hestöfl. 2 x hliðarhurð. Kæddur innan. Dráttarkrókur. 923.000 undir listaverði. Okkar verð: 4.990.000,- án vsk. www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti á þökum og tek að mér ýmis smærri verk. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíði, útskurður, tálgun, pappamódel með leiðbeindanda kl. 9-16. Opinn handavinnuhópur kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.30–13. Kaffisala kl. 14.45–15.30. Allir velkomnir í Félagsstarfið, sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall kl. 8.50. Frjálst í Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhópur- inn Kríur kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum áfram eftir sam- félagssáttmálanum, þvo og spritta hendur, virða 2 metra regluna. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Jónshúsi, félags- og íþróttastarf, s. 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónus- rúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30. Útvarpsleik- fimi kl. 9.45. Útsala Logy kl. 11-13. Gönguferð kl. 13.30. Korpúlfar Helgistund Grafarvogskirkju kl 10.30 í dag í Borgum. Spjallhópur listasmiðju kl. 13 og botsía kl. 14 í Borgum. Minnum á að halda tveimur metrum á milli og spritta sig reglulega. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag verður hópþjálfun kl. 10.30 þar sem við tökum góðar styrktaræfingar og teygjur. Bókband verður á sínum stað milli kl. 13-17. Eftir hádegi, kl. 13.30, hlustum við saman á hlaðvarpsþátt í handverksstofu. Dagskrá fer fram með þeim hætti að hægt sé að tryggja fjarlægð. Verið velkomin til okkar á Lindargötu 59. Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ Gísli SímonPálsson fædd- ist þann 18. apríl 1932 á Siglufirði. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri þann 5. ágúst 2020. Foreldrar hans voru hjónin Sigríð- ur Kristín Gunn- arsdóttir, f. 21. september 1892, d. 7. maí 1935, og Páll Guðmundur Pétursson, f. 27. júní 1876, d. 31. janúar 1950. Systkini Gísla voru Gunnar Helgi, f. 1925, d. 2013, Pétur Arnar, f. 1926, d. 2004, Páll, f. 1927, d. 2005, Halldór Guðmundur, f. 1929, d. 2002, Jóhannes, f. 1933, óskírð Pálsdóttir, f. 1934, d. 1934. Auk þess átti Gísli 8 hálfsystkin. Þegar Gísli var þriggja ára var hann tekinn í fóst- ur af Soffíu Gísla- dóttur frá Hofi í Svarfaðardal, f. 15. mars 1906, d. 18. júlí 2003, og gekk hún honum í móðurstað. Í des- ember 1973 giftist Gísli Svanbjörgu Svanbergsdóttur, f. 9. ágúst 1930 í Hrísey, d. 9. júlí 2001. Gísli vann lengi vel sem vinnumaður í sveit, en eftir að hann flutti til Akureyrar vann hann sem verkamaður m.a. hjá Nið- ursuðuverksmiðju K. Jóns- sonar, Plasteinangrun, Möl og sandi og Akureyrarbæ. Útför Gísla fór fram frá Akureyrarkirkju þann 17. ágúst í kyrrþey. Það hrannast upp ótal minn- ingar í huga okkar þegar við minnumst Lalla frænda. Hann var með notalega nærveru, ró- lyndur, var aldrei að flýta sér og hann hafði alltaf tíma fyrir okkur. Það gilti einu hvort við báðum hann að keyra okkur upp í Hlíðarfjall á skíði, fara með okkur í bíltúr, keyra Svarfaðardalshringinn eða sækja okkur niður í bæ. Það var einhvern veginn alltaf hægt að treysta á Lalla. Fyrstu minningarnar um Lalla eru frá Hofi þar sem allt- af var tekið vel á móti okkur, barnaskaranum, sem ekki alltaf var auðveldur að eiga við og allir þurftu að hafa eitthvað fyrir stafni. Þar þreyttist Lalli seint á að leyfa okkur að hanga í skottinu á honum og stússast með honum í hvers kyns sveita- verkum. Hann nennti líka að spila við okkur endalaust, ól- sen, marías og manna. Willys-jeppinn hans blái var hluti af honum og í honum sát- um við oft í bíltúrum og hrist- umst um malarvegi landsins þótt okkur fyndist hann keyra fullhægt. En Lalli flýtti sér hægt og fór aldrei glannalega með okkur í bílnum og kom öll- um heilum heim. Barngæska hans og velvild í garð annarra lýsir honum ef til vill best og hann passaði upp á okkur systkinin ef á þurfti að halda. Hann og eiginkona hans Svana voru eins og amma okk- ar og afi. Hjá þeim, eins og á Hofi, vorum við alltaf velkomin með börn og maka og þar var ekkert til sparað í umhyggju og viðgjörningi. Elsku Lalli, það er gott að þú ert kominn til Svönu þinnar, við kveðjum þig úr þessu lífi. Soffía Gísladóttir (Sossa), Guðrún Gísladóttir (Gunna), Ingibjörg Gísladóttir (Imba). Þegar ég var barnungur drengur var mér gefinn falleg- ur gúmmíkarl, sem varð mér strax mjög hjartfólginn og ég átti lengi. Ég var spurður hvað hann ætti að heita og ekki stóð á svarinu. „Hann á að heita Lalli.“ Það var í höfuðið á Lalla sem ég varði miklum tíma með sumurin sem ég var í sveit á Hofi og síðar, þótt aldursmun- urinn væri um 30 ár. Nú er hann Lalli látinn sadd- ur lífdaga, tæplega níræður að aldri. Gísli Símon Pálsson hét hann fullu nafni, þegar hann kom barnungur í fóstur frá Siglufirði að Hofi í Svarfaðar- dal upp úr 1930. Þar voru fyrir tveir Gíslar, Gísli Jónsson, langafi minn, og Gísli Jónsson, faðir minn. Því varð að greina einhvern veginn á milli Gísl- anna og festist gælunafnið Lalli við þann nýkomna. Ég byrjaði mjög ungur að fara í sveit hjá Jóni afa og Sossu stóru (aðgreining frá Sossu litlu) systur hans sem bjuggu félagsbúi að Hofi. Og þar var Lalli auðvitað. Hann reyndist mér mjög vel eins og Jón afi og Sossa stóra. Til að byrja með var ég honum ákveð- in byrði en með aldrinum jókst getan til að geta orðið að gagni við bústörfin. Hann sýndi mér mikla þolinmæði og gæsku og sagði margar skemmtilegar sögur, eins konar dæmisögur. Lalli hafði gaman af því að rifja upp samskipti okkar og sagði mér seinna meir frá því, þegar við fórum eitt vorið að brjóta niður skafla, sem lágu yfir bæjarlæknum svo ærnar færu sér þar ekki að voða. Í eitt skiptið hrundum við niður í lækinn með skaflinum og Lalli leit á mig og spurði hvort ekki væri allt í lagi og fékk svarið: „Djöfull varð ég hræddur.“ Ég var hvert sumar til 12 ára aldurs í góðu yfirlæti á Hofi hjá Jóni afa og Sossu stóru og allan tímann hafði Lalli tíma til að sinna mér og kenna mér til verka, meðal annars að keyra dráttarvél, þegar ég náði niður á kúplingu og bremsu. Hann kenndi mér að veiða, fyrst lækjarlontur í bæjarlæknum með boginn títu- prjón á fíngerðu girni og síðan bleikju í Svarfaðardalsá með heldur betri græjur. Þá gleymist það seint, þegar við Fríða systir, við höfum lík- lega verið 10 og 12 ára, fórum í hjólatúr einn góðan veðurdag. Hann varð í lengra lagi því við hjóluðum út í Hof nærri 40 kílómetra leið, án þess að láta nokkurn vita. Þangað komum við um kvöldmatarleytið, nokk- uð þreytt og svöng. Það var umsvifalaust hringt heim í Þór- unnarstrætið til að láta vita af okkur, við fengum mat og síðan festi Lalli hjólin okkar á topp- grindina á gamla Willy‘s-jepp- anum og keyrði okkur inn til Akureyrar. Ekki minnist ég þess að einhver hafi skammað okkur fyrir uppátækið, en lík- lega höfum við fengið vinsam- legar ábendingar um, að skyn- samlegt væri að láta vita fyrir fram ef við hygðumst leggjast í slíkar langferðir. Síðar, eftir að Lalli flutti til Akureyrar, var hann ætíð boð- inn og búinn til að aðstoða okk- ur systkinin og stuðningur hans og Svönu, eiginkonu hans, eftir að mamma dó frá stórum systkinahópi 1971 var ómetan- legur. Hann var vakinn og sof- inn yfir velferð okkar og svo reyndist hann Nonna bróður okkar einstaklega vel á erfið- leikatímabili hans. Blessuð sé minning þessa góða manns. Hjörtur Gíslason. Gísli Símon Pálsson eða Lalli var fæddur á Siglufirði 1932, einn af mörgum bræðrum. Hann kom í fóstur að Hofi í Svarfaðardal til afasystur minnar, Soffíu Gísladóttur, barn að aldri. Þar ólst hann upp undir verndarvæng hennar en flutti seinna til Akureyrar þar sem hann bjó síðan, fyrst með Soffíu en seinna með eigin- konu sinni Svanbjörgu sem lést árið 2001. Ein af mínum fyrstu minn- ingum um Lalla er að hann átti forláta vindlakassa fullan af tú- köllum eða annarri smámynt sem mér fannst mikill fjársjóð- ur og taldi fyrir víst að Lalli væri með ríkari mönnum. Seinna varð mér ljóst að Lalli var ekki ríkur í þeim skilningi en ríkur var hann af annars konar verðmætum ekki síst í Svönu eftir að þau giftust. Þeim Svönu varð ekki barna auðið en umhyggja þeirra í garð okkar systkina var ótæm- andi, ekki síst gagnvart Nonna bróður í hans erfiðleikum og seinna í garð minna barna, Eik- ar og Ásgríms, en þar gegndu þau hlutverki afa og ömmu með sóma. Þær voru ófáar næturnar sem Eik dóttir okkar fékk að gista hjá Lalla og Svönu. Okk- ur líða seint úr minni allar lönguvitleysurnar, maríasarnir, kasínurnar og olsenarnir sem Lalli hefur spilað við okkur öll gegnum árin að ekki sé talað um bíltúrana í Svarfaðardalinn, berjamóana og ísinn með blönduðu ávöxtunum. Lalli átti lengi Willys-jeppa, A 293, og seinna hvíta Mözdu með sama númeri. Einhver okkar systra, ég man ekki hver, saumaði handa honum forláta púða með númerinu útsaumuðu í kross-saumi. Eftir að ég ásamt manni og börnum flutti aftur í Eyjafjörðinn (Hrísey og Akureyri) eftir langa fjarveru keypti ég af honum Mözduna sem reyndist einkar vel enda hafði verið vel um hana hugsað frá upphafi. Á þessu tímabili vann ég á Bókasafni Háskólans á Akureyri sem þá var á horni Þórunnarstrætis og Þingvalla- strætis en Lalli og Svana bjuggu þá í Þórunnarstræti og komum við okkur upp þeim sið að hittast heima hjá þeim í há- deginu á hverjum þriðjudegi og borða saman siginn fisk með hamsatólg sem okkur þótti ákaflega góður en var ekki vin- sæll á mínu heimili. Lalli og Svana reyndust stóru Sossu ómetanleg stoð og stytta eftir að hún fór að eldast og efast ég um að nokkur sonur hefði reynst henni betur. Lalli lét ekki mikið eftir sér í lífinu en þó naut hann þess að fara að veiða en hann og Ari, minn maður, fóru stundum saman í stutta veiðitúra. Lalli og Svana áttu lengi gjöfulan kartöflugarð upp með Glerá og nutum við góðs af uppskerunni, dásamlega góðum rauðum ís- lenskum af bestu gerð. Lalli eyddi síðustu ævidög- um sínum á Hjúkrunarheim- ilinu á Grenivík við gott atlæti. Við fjölskyldan minnumst Lalla með söknuði og þakklæti. María Gísladóttir, Ari Þorsteinsson, Eik Aradóttir og Ásgrímur Arason. Mamma og Svana frænka bjuggu saman lengst af og því var meiri samgangur á milli okkar en gengur og gerist. Þegar við fluttum í Hamragerð- ið fékk Svana litla íbúð á neðri hæðinni. Ég var ekki hár í loft- inu þegar ég fór að taka eftir því að maður einn var orðinn tíður gestur hjá frænku og þótti það nokkrum tíðindum sæta. Mér leist strax vel á þennan mann og varð fljótlega mjög hændur að honum. Þetta var hann Lalli, sem síðan hefur verið órjúfanlegur hluti af fjöl- skyldunni og okkur mjög kær. Ég kíkti daglega til þeirra og stundum nokkrum sinnum á dag þar sem ekki var nú langt að fara, einungis 15 tröppur eða svo. Oftar en ekki var tekið í spil en Lalli kenndi mér flest þau spil sem ég lærði sem lítill pjakkur. Þar sem Svana og Lalli eignuðust ekki börn vor- um við bræðurnir sem synir þeirra. Alla tíð var þeim um- hugað um velferð okkar og reyndust þau okkur vel í alla staði. Fyrir það verð ég æv- inlega þakklátur. Lalli var tek- inn í fóstur hjá Soffíu Gísla- dóttur frá Hofi í Svarfaðardal og ósjaldan fórum við í bíltúr út í Svarfaðardal þar sem þau þuldu upp nánast í hvert sinn öll bæjarnöfnin og fræddu mig um dalinn sem var Lalla af- skaplega kær. Fastir liðir voru síðan kartöflurækt og berjamór þótt ekki hafi það fyrrnefnda verið ofarlega á vinsældarlist- anum hjá mér, alla vega ekki þegar kom að því að reyta arf- ann. Mun skemmtilegra var þó að taka upp og stússast í því með Lalla og fleirum. Svana og Lalli voru mjög samrýnd alla tíð og varð það Lalla því mikið áfall þegar Svana féll frá, tæp- lega 71 árs gömul árið 2001. Tíminn læknar víst öll sár segir einhvers staðar en eftir fráfall Svönu fannst mér eins og Lalli væri einungis skugginn af sjálf- um sér, svo sárt saknaði hann Svönu sinnar og oftar en ekki varð hann mjög meyr ef nafn hennar bar á góma. Fyrir rúmu ári síðan þegar heilsu Lalla fór að hraka, fékk hann inni á Dvalarheimilinu á Grenivík þar sem honum leið ágætlega. Ég sá Lalla síðast um miðjan júní sl. og ekki grunaði mig að það yrði í síðasta sinn. Í byrjun ágúst lagðist Lalli inn á Sjúkra- húsið á Akureyri og lést þar þann 5. ágúst, örfáum dögum áður en Svana hefði orðið 90 ára. Nú er hann kominn til Svönu sinnar, alsæll. Takk fyrir allt Lalli minn. Ottó. Gísli S. Pálsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.