Morgunblaðið - 18.08.2020, Blaðsíða 27
Eitt
ogannað
NBA
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Deildakeppninni í NBA lauk um helgina og hófust
fyrstu leikir úrslitakeppninnar í nótt. Undir-
ritaður var efins um réttlæti þess að bjóða sex lið-
um til viðbótar inn í „kúluna“ svokölluðu eftir að
forráðamenn deildarinnar ákváðu að láta 22 lið
spila átta deildarleiki til að gefa liðum tækifæri til
að komast í 16-liða úrslitakeppnina. Keppnin und-
anfarnar tvær vikur hefur hinsvegar gefið öllum
liðunum ákjósanlegt tækifæri til að komast í gott
leikform fyrir úrslitakeppnina og keppnin um að
komast inn í úrslitin hefur bætt við nauðsynlegri
spennu. Fyrir liðin sem voru þegar örugg um að
komast í úrslitakeppnina skipti það mun minna
máli hvaða sæti liðin skipuðu í stöðunni. Það eru
engir „heimavallayfirburðir“ að hugsa um í
Disney-heimi.
Austurdeild:
Ekkert hefur breyst undanfarnar tvær vikur í
deildakeppninni til að breyta matinu á stöðu lið-
anna austanmegin síðan við spáðum í gengi lið-
anna fyrir þremur vikum í þessum dálkum. Mil-
waukee er enn toppliðið. Boston og Toronto ættu
að veita þeim erfiðustu keppnina.
Þessi lið leika annars í fyrstu umferðinni.
Fjóra sigra þarf til að komast áfram.
Milwaukee Bucks – Orlando Magic
Toronto Raptors – Brooklyn Nets
Boston Celtics – Philadelphia 76ers
Indiana Pacers – Miami Heat
Fyrrnefndu liðin ættu öll að vinna þessar leik-
seríur. Toronto og Boston „sópa“ eflaust Brook-
lyn og Philadelphia út án erfiðleika, þótt Brooklyn
hafi staðið sig þokkalega í kúlunni. Leiksería Ind-
iana og Miami lítur út fyrir að verða mest spenn-
andi af þessum fjórum. Pacers hefur glímt við
ótrúlega mikil meiðsl lykilleikmanna allt keppnis-
tímabilið og næsta víst er að Litháinn Domantas
Sabonis muni verða frá keppni vegna fótmeiðsla.
„Þetta verður eflaust jöfn leiksería,“ sagði þjálfari
Miami, Eric Spoelstra. „Það er alltaf hörkubar-
átta þegar við mætum þeim.“
Þessi leiksería gæti farið í oddaleikinn og hann
ætti Miami að vinna. Munurinn? Jimmy Butler.
Austanmegin verður lítil spenna annars þar til í
annarri umferðinni.
Vesturdeild:
Undirritaður hefur verið að skrifa um NBA-
boltann á þessum síðum í langan tíma og erfitt er
að muna hvað langt er síðan Vesturdeildin var
ekki mun sterkari. Í Vesturdeildinni getur allt
gerst í öllum leikseríunum í fyrstu umferðinni, því
þar eru toppliðin mun jafnari.
Við spáðum að Los Angeles-liðin væru sigur-
stranglegust í upphafi keppnistímabilsins og þeg-
ar keppnin hófst að nýju eftir að hún var flutt til
Disneyheims. Ekkert hefur gerst til að breyta
þeirri spá nú.
Annars leika þessi lið saman í fyrstu umferð-
inni vestanmegin:
Los Angeles Lakers – Portland TrailBlazers
Los Angeles Clippers – Dallas Mavericks
Denver Nuggets – Utah Jazz
Houston Rockets – Oklahoma City Thunder
Laun LA Lakers fyrir að ná toppsætinu í
Vesturdeildinni voru þau að fá Portland TrailBla-
zers sem mótherja í fyrstu umferðinni, eftir að
Blazers rétt skreið inn í úrslitakeppnina í síðasta
deildarleiknum. Þessi lið hafa oft áður átt í
grimmum leikseríum í úrslitakeppninni í gegnum
áratugina og hefur Lakers unnið þær flestar. Hér
halda flestir sérfræðingar að mesta fjörið verði í
fyrstu umferðinni.
Portland er með mun betra lið en áttunda sæt-
ið gefur til kynna. Liðið átti í miklum erfiðleikum
með meiðsl leikmanna í upphafi keppnistímabils-
ins, en þegar í kúluna kom small þetta allt saman
hjá liðinu. Damian Lillard og CJ McCollum í bak-
varðarstöðunum eru lykilleikmenn hjá Blazers og
stigaskorun hjá liðinu verður ekki vandamál gegn
Lakers. Varnarleikurinn er annað mál. Lakers
hefur átt í vandræðum með skothittnina síðan
keppnin hófst að nýju, en það ætti að batna gegn
Portland. Lakers er einnig með reyndan leik-
mannahóp sem mun eflaust gera gæfumuninn
hér. Lakers vinnur þetta í sex leikjum.
Houston hefði verið talið mun sigurstranglegra
gegn Oklahoma City fyrir viku, en Russell
Westbrook á nú í erfiðum meiðslum í lærvöðva og
hann mun missa af fyrstu leikjum leikseríunnar –
jafnvel allri leikseríunni. Án hans verður þetta
erfitt fyrir Rockets, því Thunder hefur leikið
firnavel undanfarið og þar er Chris Paul allt í
öllu. Þetta átti að vera lið í endurbyggingu eftir
að liðin skiptust á Westbrook og Paul fyrir
keppnistímabilið, en það gleymdi víst einhver að
láta Paul vita að við litlu væri búist af liðinu. Hou-
ston gæti unnið oddaleikinn, en þetta verður jöfn
leiksería.
LA Clippers hefur stílað allt keppnistímabilið á
úrslitakeppnina og liðið er nú loks orðið heilt aft-
ur eftir ýmsa erfiðleika leikmanna. Sterkur varna-
leikur Clippers verður of mikið fyrir Luka Doncic
og Kristaps Porzingis. 4:1 fyrir Clippers.
Loks ætti Denver að vinna gegn Utah Jazz, en
síðarnefnda liðið mun veita Nuggets harða
keppni.
Að venju hefst alvörufjörið í úrslitakeppninni
ekki fyrr en í annarri umferðinni.
AFP
Lykilmenn Kawhi Leonard (t.v.) og LeBron James (t.h.) þykja báðir líklegir til afreka í úrslitakeppni NBA-deildarinnar með LA Clippers og LA Lakers.
Fátt hefur breyst í kúlunni
Toppliðin komin í gott form fyrir úrslitakeppnina Ekkert lið hefur heima-
vallayfirburði í ár Stjörnuliðin frá Los Angeles-borg þykja sigurstranglegust
Ljósmynd/GSÍ
EM Heiðrún A. Hlynsdóttir og Dag-
bjartur Sigurbrandsson eru í liðinu.
Landsliðsþjálfararnir Gregor Bro-
die og Ólafur B. Loftsson tilkynntu í
gær hvaða átta kylfingar taka þátt á
EM í liðakeppni í golfi sem fram fer
9.-12. september næstkomandi.
Eru landsliðin skipuð áhuga-
mönnum en bæði karla- og kvenna-
liðið leika í efstu deild.
EM karla fer fram í Hollandi og
EM kvenna í Svíþjóð en Hákon Örn
Magnússon og Kristófer Karl Karls-
son eru í fyrsta skipti í karlaliðin.
Landsliðshópana má sjá í heild
sinni inn á mbl.is/sport/golf.
Tveir nýliðar í
landsliðinu
Morgunblaðið/Hari
Endurkoma Pétur Ingvarsson er
nýr þjálfari Breiðabliks.
Pétur Ingvarsson hefur verið ráð-
inn þjálfari karlaliðs Breiðabliks í
körfuknattleik og mun stýra liðinu
á komandi keppnistímabili, en þetta
kom fram í fréttatilkynningu sem
félagið sendi frá sér í gærdag.
Pétur þekkir vel til í Kópavog-
inum en hann þjálfaði liðið á síðustu
leiktíð en lét af störfum þegar tíma-
bilinu var aflýst vegna kórónuveir-
unnar. Breiðablik var í toppbaráttu
fyrstu deildarinnar og endaði í 3.
sæti, fjórum stigum á eftir toppliði
Hattar.
Snýr aftur í
Kópavoginn
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2020
Knattspyrnumaðurinn Rúrik Gísla-
son hefur hafnað nokkrum álitlegum
tilboðum frá liðum í norsku og
dönsku úrvalsdeildunum á síðustu
dögum. Rúrik fékk sig lausan frá
þýska félaginu Sandhausen í sumar
en Ólafur Garðarsson umboðsmaður
staðfesti við mbl.is að mörg félög
hefðu sýnt áhuga á að fá hann til liðs
við sig.
„Tilboðin sem Rúrik hefur fengið og
hafnað voru mjög góð en hann er að
leita að rétta félaginu og rétta staðn-
um þar sem hann finnur gleðina í fót-
boltanum á nýjan leik,“ sagði Ólafur í
samtali við mbl.is.
Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur
gengið frá samningi við Claudia
Cagnina, landsliðskonu frá Perú. Er
hún einnig með ítalskt ríkisfang og
lék hún síðast á Ítalíu. Cagnina, sem
er 22 ára gömul, er fædd í New York
en móðir hennar er frá Perú og faðir
hennar Ítalíu. Lék hún með St.
John’s-háskólanum í New York áður
en hún hélt til Evrópu á síðasta ári.
Þar lék hún fyrst með Lugano í Sviss,
áður en leiðin lá til Ítalíu til Tavag-
nacco. Þar lék hún aðeins einn leik í
A-deildinni, áður en síðasta tímabili
var aflýst vegna kórónuveirunnar.
Keflavík, sem féll úr úrvalsdeildinni
síðasta sumar, er í toppsæti Lengju-
deildarinnar með 20 stig eftir átta
umferðir, einu stigi meira en Tinda-
stóll.
Kvennalið Tindastóls í 1. deild
kvenna í knattspyrnu, Lengjudeild-
inni, hefur fengið mikinn liðsstyrk
fyrir seinni hluta deildarkeppninnar.
Tindastóll er sem stendur í öðru sæti
deildarinnar með 19 stig, einu stigi
minna en Keflavík, og í harðri baráttu
um sæti í úrvalsdeildinni á næstu
leiktíð. Agnes Birta Stefánsdóttir og
Rakel Sjöfn Stefánsdóttir hafa báðir
gengið til liðs við Tindastól á láni frá
Þór/KA og munu þær klára tímabilið
á Sauðárkróki. Agnes Birta er fædd
árið 1997 en hún á að baki 14 leiki í
efstu deild með Þór/KA þar sem hún
hefur skorað eitt mark. Rakel Sjöfn
er fædd árið 2000 og hefur leikið 4
leiki í efstu deild. Þá er Lára Mist
Baldursdóttir, 18 ára, einnig gengin
til liðs við Tindastól á láni frá Stjörn-
unni en hún á að baki 4 leiki í efstu
deild.
Viðar Örn Kjartansson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er laus allra
mála frá tyrkneska félaginu Yeni
Malaytaspor, sem hann hefur leikið
með frá áramótum en þetta staðfesti
Ólafur Garðarsson, umboðsmaður
leikmannsins, í samtali við mbl.is í
gær. Til stóð að Viðar myndi leika
með liðinu á næstu leiktíð en vegna
kórónuveirufaraldursins var ljóst að
félagið hefði ekki getað staðið við
samning sinn við leikmanninn en Yeni
Malatyaspor er í miklum
fjárhagserfiðleikum
þessa dagana.
Viðar Örn lék
fimmtán leiki
með Yeni Mala-
ytaspor í
tyrknesku
úrvals-
deildinni
og skor-
aði í
þeim
tvö
mörk en
byrjaði að-
eins inn á í
þremur
þeirra.