Morgunblaðið - 27.08.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 27.08.2020, Síða 24
Morgunblaðið/Hari Sýn Auglýsinga- og reikitekjur minnkuðu vegna kórónuveirunnar. Sýn tapaði 410 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, sam- anborið við 455 milljóna króna tap yf- ir sama tímabil árið áður. Það ár var bókfærður söluhagnaður að fjárhæð 817 milljónir króna vegna sölu á fær- eyska dótturfélaginu Hey. Afkoma félagsins batnaði talsvert á öðrum fjórðungi, miðað við fyrsta fjórðung og nam tapið á fyrrnefnda fjórð- ungnum 60 milljónum króna en tap félagsins á þeim fjórðungi í fyrra nam 215 milljónum króna í fyrra.Tekjur Sýnar jukust um 349 milljónir á fyrri árshelmingi miðað við fyrra ár sem jafngildir 3% vexti. EBITDA á tíma- bilinu nam 2.719 milljónum og hækk- aði um 243 milljónir miðað við fyrra ár. Eiginfjárhlutfall Sýnar var um mitt ár 26,8%. Heiðar Guðjónsson, forstjóri félagsins, segir fyrri árs- helming sýna batnandi rekstur og ef kórónuveirufaraldurinn hefði ekki sett strik í reikninginn hefði hann reynst arðbær. Sýn tapar 410 millj- ónum  Dró úr tapi á öðr- um ársfjórðungi Verðbólguvæntingar og verðbólguspá Verðbólguvæntingar, 1. ársfj. 2014 - 3. ársfj. 2020 Verðbólguspá og óvissumat, 1. ársfj. 2014 - 3. ársfj. 2023 5% 4% 3% 2% 1% 0% 6% 5% 4% 3% 2% 1% 0% -1% '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 '22 '23 Breyting frá fyrra ári (%) PM 2020/3 PM 2020/2 Verðbólgumarkmið 50% líkindabil 75% líkindabil 90% líkindabil Væntingar til 1 árs Væntingar til 5 ára Fyrirtæki Heimili Markaðsaðilar Verðbólguálag* Verðbólgumarkmið * Nýjasta gildið er meðaltal daglegra gilda frá 1. júlí til 21. ágúst 2020. Heimild: Peningamál Seðlabanka Íslands ágúst 2020 Heimild: Peningamál Seðlabanka Íslands ágúst 2020 BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Veruleg lækkun gengis krónunnar hefur haft mest áhrif á að verð- bólgudraugurinn lætur nú á sér kræla með meira áberandi hætti en á undanförnum misserum. Þetta kemur fram í ný- birtum Peninga- málum Seðla- bankans sem gefin voru út í gær, samhliða vaxtaákvörðun peningastefnu- nefndar bank- ans. Ákvörðun nefndarinnar, sem kynnt var í gærmorgun, fel- ur í sér að meginvöxtum bankans verður haldið óbreyttum, þ.e. að sjö daga bundin innlán muni bera 1% vexti. Frá því kórónuveiran gerði sig heimakomna hér á landi hefur gengi krónunnar lækkað um 12% frá því í febrúar og 14% frá sama tímabili í fyrra. Á sama tíma hefur verðbólga risið úr 2,5% á öðrum fjórðungi ársins í 3% í júlí síðast- liðnum. Líkt og bankinn nefnir hefur gengissigið haft þau áhrif að verð- hækkanir á innfluttri matvöru, fatnaði, húsgögum og heimilisbún- aði urðu nokkrar. Frá fyrra ári hefur verð innfluttrar vöru hækkað um 5%. Innlendar vörur hafa held- ur ekki farið varhluta af verðþrýst- ingi og hafa þær að meðaltali hækkað um 4,4%. Bendir bankinn sérstaklega á að verðbólgumælingar hafi sýnt að sumarútsölur hafi haft talsvert minni áhrif til lækkunar á vísitöl- una en þær höfðu á sama tíma- punkti í fyrra. Horfa þurfi lengra fram Í máli Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabankans, kom fram að bankinn telji að verð- bólguskotið sem nú mælist sé ekki líklegt til að vara lengi, jafnvel þótt horfur á verðbólgu á næstunni séu nokkuð meiri en í maí síðastliðnum þegar Peningamál voru síðast gef- in út. Þrátt fyrir fyrrnefnda veik- ingu krónunnar þurfi að horfa lengra fram í tímann til að sjá hversu langvarandi áhrif gengis- sigsins verði. „Lykilatriði er að velta fyrir sér hversu viðvarandi það er, hvaða áhrif það hefur á verðbólguvænt- ingar. Sem betur fer erum við ekki að sjá merki um að verðbólguvænt- ingar séu að þokast upp,“ sagði Þórarinn en dró þó í land og við- urkenndi að væntingarnar hefðu, líkt og verðbólgan sjálf, hækkað nokkuð frá því í maí. Könnun á væntingunum sýndi hins vegar að þar væri um skammtímaáhrif að ræða. Líkt og sjá má á meðfylgj- andi grafi, gera heimili og fyrir- tæki ráð fyrir að verðbólgan muni liggja á bilinu 3-3,5% eftir eitt ár og hafa þær væntingar þokast upp um 0,5 prósentur frá því þær voru síðast mældar. Hins vegar hafa verðbólguvæntingar til lengri tíma, þ.e. fimm ára, annaðhvort haldist óbreyttar eða hreinlega lækkað. Þróunin í afstöðu markaðsaðila er nokkuð á aðra lund, þ.e. þær hafa bæði til skemmri og lengri tíma haldist óbreyttar og við 2,5% verð- bólgumarkmið Seðlabankans. „Athygli vekur að allir mæli- kvarðar á verðbólguvæntingar eru ýmist óbreyttir eða lægri en á sama tíma fyrir ári þrátt fyrir nokkru lægra gengi krónunnar,“ segir í Peningamálum. Mun færast nær markmiði Í yfirlýsingu peningastefnu- nefndar er bent á að fram undan sé mikill slaki í þjóðarbúinu og að lítil alþjóðleg verðbólga sé í spilunum. Það geri það að verkum að þrátt fyrir hið afgerandi gengissig og vöruverðshækkanir bendi flest til þess að „kjölfesta verðbólguvænt- inga“ sé traustari en áður og að það hafi gert peningastefnunefnd- inni kleift að bregðast við versn- andi efnahagshorfum með afger- andi hætti. Er nefndin þar vísast að benda á að vextir bankans hafa nú verið lækkaðir um 1,75 prósent- ur frá því að áhrifa af kórónuveir- unni fór að gæta hér á landi. Þessi staða gefur nefndinni ástæðu til þess að segja að verð- bólgan taki að hjaðna á næsta ári og að hún verði „um 2% að með- altali á seinni hluta spátímans“ sem nær fram á þriðja fjórðung ársins 2023. Bendir Seðlabankinn þó á að mikil óvissa sé uppi um horfurnar. Þannig eru taldar helm- ingslíkur á að verðbólgan verði á bilinu 1 til 3,25% að ári liðnu og á bilinu 1 til 3,5% við lok spátímans. Telja að um stutt verð- bólguskot sé að ræða Miklar sviptingar » Horfur eru á að landsfram- leiðsla dragist saman um 7% í ár. » Útlit er fyrir að atvinnuleysi verði komið í 10% undir lok árs. » Samdrátturinn þó talinn minni en síðast þegar Peninga- mál komu út. » Einkaneysla reyndist kröft- ugri í vor og sumar en Seðla- bankinn hafði spáð. » Óvissan „óvenjumikil“ og þróun efnahagsmála mun ráð- ast af „framvindu“ farsótt- arinnar.  Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum og óvissa mikil í kortunum 24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 27. ágúst 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 137.53 Sterlingspund 180.57 Kanadadalur 104.17 Dönsk króna 21.87 Norsk króna 15.401 Sænsk króna 15.741 Svissn. franki 151.32 Japanskt jen 1.292 SDR 194.19 Evra 162.77 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 192.6466 Hrávöruverð Gull 1925.45 ($/únsa) Ál 1735.5 ($/tonn) LME Hráolía 45.12 ($/fatið) Brent Þórarinn G. Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.