Morgunblaðið - 27.08.2020, Side 38

Morgunblaðið - 27.08.2020, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020 ✝ Eva BjörgSkúladóttir var fædd á Akureyri 27. apríl 1976. Hún lést á heimili sínu í faðmi fjölskyld- unnar að Hólatúni 13 Akureyri þann 15. ágúst 2020. Foreldrar Evu Bjargar eru Guð- rún Hólmfríður Þorkelsdóttir leik- skólakennari, fædd 1949 og Skúli Viðar Lórenzson rafvirki, fæddur 1947. Systur Evu Bjarg- ar eru: 1) Sigurlaug Skúladóttir, f. 1968, gift Finnbirni Vigni Agnarssyni, börn þeirra eru Lovísa Anna, f. 1987, gift Run- ólfi Þór Sanders og barn þeirra er Sara Björg, Arnór Ingi, f. 1989, Axel Arnar, f. 1996, Mar- grét Ásta, f. 2001 og Gunnar Skúli, f. 2009. 2) Aðalheiður Skúladóttir, f. 1972, gift Þórði Friðrikssyni, f. 1966, þeirra börn eru Friðrik Ingi, f. 1991, sambýliskona hans er Þóra Siguróladóttir, synir þeirra eru Bastían Logi og Jökull Moli. Steinar Logi, f. 1993, sambýlis- kona hans er Þorbjörg Eva arskóla og Gagnfræðaskólann. Hún lauk stúdentsprófi frá VMA. Þaðan lá leiðin í Háskól- ann á Akureyri en þaðan lauk hún leikskólakennarafræðum og sérkennslufræðum. Hún fór síðan í Háskóla Íslands þar sem hún kláraði nám í náms- og starfsráðgjöf en því starfi sinnti hún síðustu ár í Naustaskóla á Akureyri. Eva Björg gekk til liðs við Ladies Circle og gegndi þar margvíslegum störfum. Hún var landsforseti 2018- 2019. Eva og Gunnlaugur voru dugleg að ferðast bæði tvö og með börnin því það skipti Evu miklu máli að bæta stöðugt í minningasafnið og njóta sam- vista við sitt uppáhaldsfólk. Hún setti ætíð fjölskylduna í fyrsta sæti og var dugleg að finna til- efni til samverustunda. Evu var mjög umhugað um samferðafólk sitt og að það væri að nýta styrkleika sína og hefði trú á sjálfu sér. Útför hennar fer fram í dag, 27. ágúst 2020, frá Ak- ureyrarkirkju kl. 13:30. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verður einungis nánustu fjölskyldu og vinum boðið í kirkjuna. Athöfn- inni verður streymt á: fb síðu (jarðarfarir í Akureyrar- kirkju-beinar útsendingar). Stytt slóð á streymi: https:// tinyurl.com/y37qr6ay. Hægt er að nálgast virkan hlekk á streymið á https://www.mbl.is/ andlat. Magnúsdóttir, Guð- rún Mist, f. 2000, Ragnheiður Katrín, f. 2003 og Sigríður María, f. 2009. 3) Hólmfríður Guðrún Skúladóttir, f. 1973, gift Tryggva Krist- jánssyni, f. 1970, þeirra börn eru Skúli Lórenz, f. 1996, sambýliskona hans er Harpa Dögg Jónsdóttir, þeirra synir eru Atli Lórenz og Daði Lórenz, Valgerður Fríður, f. 2010. Eft- irlifandi eiginmaður Evu Bjarg- ar er Gunnlaugur Þorgeirsson leigubílstjóri, f. 1968, börn þeirra eru Þorgeir Viðar, f. 2006 og Þrúður Júlía, f. 2008. Þau giftu sig 30. júní 2007. For- eldrar Gunnlaugs eru Þorgeir J. Andrésson, f. 1947 og Þrúður Gunnlaugsdóttir, f. 1945. Þau slitu samvistum, sambýliskona Þorgeirs er Guðrún Erla Sig- urðardóttir. Systkini Gunnlaugs eru: 1) Andrés Kristinn, f. 1974. 2) Viðar, f. 1976. 3) Guðrún Ingi- björg, f. 1993. 4) Hjörtur, f. 1993. Eva Björg gekk í Lund- Sunnan yfir sæinn breiða sumarylinn vindar leiða draumalandið himinheiða hlær og opnar skautið sitt. Vorið kemur, heimur hlýnar hjartað mitt! Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin. mundu að það er stutt hver - stundin, stopult jarðneskt yndið þitt. Vorið kemur heimur hlýnar, hjartað mitt! Allt hið liðna er ljúft að geyma, láta sig í vöku dreyma. Sólskinsdögum síst má gleyma, segðu engum mann hitt! vorið kemur heimur hlýnar, hjartað mitt! (Jóhannes úr Kötlum) Við sem trúum á líf eftir dauðann munum hittast aftur. Við sjáumst síðar, ástin mín. Þinn Gunnlaugur. Til þín, elsku besta mamma: Ég minnist þín, ó móðir, þó mér nú sértu fjær. Þig annast englar góðir og ungi vorsins blær. Ég man þær mætu stundir, er mig þú kysstir hlýtt, sem vorsól grænar grundir, og gerðir lífið blítt. Í faðmi þínum fann ég, þann frið, er bestan veit, því það var allt, sem ann ég þín ástin móður heit. Þar huggun fann ég hæsta frá hjarta’ er aldrei brást, því konu gerir glæsta hin göfga móðurást. (Eva Hjálmarsdóttir) Elsku mamma, þú varst best, við munum alltaf elska þig. Þorgeir Viðar og Þrúður Júlía. Eva okkar Indæll var fæðingardagurinn þinn minning um uppfylltar óskir míns hjarta ertu og verður dagstjarnan bjarta Á lífsins himni svo ljómandi skær stúlkan mömmu og pabba svo kær (Sigurlaug Pálsdóttir, amma) Elsku hjartans stelpan okk- ar, nú er komið að kveðjustund. Minningarnar flögra um hug- ann en það er erfitt að koma einhverju á blað. Minningin sem leitar á hug- ann þegar þú varst í æfinga- búðum hjá systrum þínum, þar sem þeim var svo í mun að þú lærðir að ganga fyrir eins árs afmælið þitt. Þær mynduðu þríhyrning um þig og svo gekkstu á milli þeirra og alltaf einhver til að grípa þig og þú skellihlæjandi með bústnu kinnarnar þínar, spékoppana og krullurnar og þú varst farin að ganga fyrir af- mælið. Þú sýndir svo mikið æðru- leysi í veikindunum þínum og varst gædd svo miklum krafti, ást, umhyggju, svo við tölum nú ekki um húmorinn. Sem barn sýndir þú strax þessa yndislegu eiginleika, þú ert yngst af fjórum stelpum og hinar þrjár pössuðu sko vel upp á yngsta gullið og sýndu það einnig í veikindum þínum. Það hefur hjálpað okkur á þessum erfiða tíma að sjá hvernig þið systur komið fram hver við aðra, þessi einstaka samheldni sem ríkir á milli ykk- ar allra systranna og maka. Við erum svo óendanlega þakklát fyrir allar yndislegu minningarnar sem eru svo vel studdar myndum, þar varst þú í fararbroddi. Minningar um ferðalögin innanlands sem utan sem við fórum með ykkur Gulla og börnunum og allar stund- irnar í Nunnukoti eru ómetan- legar. Við erum svo óendanlega stolt af þér því allt sem þú gerðir, gerðir þú vel þú varst fyrirmyndarmamma og –eigin- kona og var gaman að sjá hvað þú eltist við drauma þína. Þú varst svo dugleg að tjá tilfinningar þínar og sagðir okkur svo oft hversu mikið þú elskaðir okkur. Þú ert og verður alltaf litla stelpan okkar, við elskum þig endalaust. Við pössum upp á litlu fjölskylduna þína. Þar til við hittumst á ný. Mamma og pabbi. Elsku Eva litla systir og kæra mágkona, það sem okkur þykir lífið ósanngjarnt og erum reið og full af sorg og eins og þú svo viss um að þú myndir sigra í þessari baráttu. Þegar þú greindist með krabbamein í lok nóvember sl. tókst þú á við það með svo miklu æðruleysi og styrkur þinn kom svo sterkt í ljós og þú sagðir ég mun sigra þetta. Það var því mikið reið- arslag þegar allt var að verða betra og þú veiktist aftur, en þá kom í ljós annað krabbamein. Þú ert 8 árum yngri en ég og það var dásamlegt að fá að vera stóra systir þín og labba með þig í kerrunni þegar þú varst lítil. Skemmtilegar ferðir fórum við saman til Spánar og Ítalíu sem þú naust í botn enda elsk- aðir þú að ferðast og voruð þið Gulli og börnin ykkar alveg ein- staklega dugleg að ferðast og skoða ykkur um, njóta og skapa minningar. Styrkur þinn og æðruleysi þegar þú umvafðir fólkið þitt og sagðir við okkur: Þið megið vera reið og sár í smátíma en ekki dvelja of lengi þar, munið að njóta lífsins eins vel og þið getið og njóta hvers augnabliks og munið sólargeislann. Þú varst skipuleggjandinn í fjöl- skyldunni, hafðir allt upp á tíu og það var best að ferðast með þér til útlanda því þú gerðir ávallt gott skipulag. Þegar við systur og mamma fórum í okk- ar góðu mæðgnaferðir þá af- hentir þú okkur plastað blað með helstu upplýsingum um hótelið og helstu staði. Hver á nú að sjá um það? Við þökkum fyrir að hafa fengið þessa síðustu daga með þér og að þú hafir komist heim eins og þú óskaðir er ómetan- legt. Við þökkum Friðbirni lækni, sem er yndislegur maður, fyrir að koma þér heim, eins heima- hlynningu á Akureyri sem var okkur mikill styrkur á þessum erfiðu tímum. Við munum alltaf, Eva, vera til staðar fyrir Gulla þinn, Þor- geir Viðar og Þrúði Júlíu eins og við sögðum þér. Þú sem elskaðir að dansa og hafa nóg af glimmeri, þá setti Katrín Ösp gamli nágranni okk- ar saman svo fallegt ljóð um þig sem við látum fylgja hér með. Þú ert stjarnan okkar sem skín skærust á himninum og við söknum þín sárt og höfum ein- kunnarorð þín ávallt í fartesk- inu: „Be magical, be you.“ Dansaðu sólargeisli Dansinn þinn, ó, dansinn þinn diskóglimmer fyllir huga minn. Dag sem nótt ég hugsa til þín dansandi glimmerdrottningin mín. Þar syngur þú systir og dansar böðuð sólargeislum, þú glansar. Við vitum að þú vildir dansa hér svo við dönsum, sporin ætluð þér. Dansaðu bjarti sólargeislinn minn og birtu beindu hingað inn. Svo við finnum fyrir þínum varma við erum umvafin í þína arma. Kvöldsólin sest á bak við ský söknuður leggst yfir eins og blý. Ljúfa, káta, litla systir mín ó, hve sárt allir sakna þín. Líkt og sólin er fjarri, ósnertanleg sál þín skín, hún er óendanleg líkt og sólargeislarnir björtu, elsku systir, þú snertir ótal hjörtu. (Katrín Ösp Jónsdóttir) Elsku Gulli, Þorgeir Viðar og Þrúður Júlía, missir ykkar er mikill að horfa á eftir eiginkonu og móður í blóma lífsins. Megi almáttugur guð umvefja ykkur og styrkja á þessum erfiðu tím- um. Góða ferð í sumarlandið, elsku litla systir og mágkona. Ást að eilífu, þín Sigurlaug (Silla) systir og Finnbjörn. Elsku hjartans gull. Það er óendanlega erfitt að skilja og sætta sig við að þú sért ekki lengur hjá okkur en tíminn sem við fengum saman er ómetan- legur og mun ég aldrei geta fullþakkað það. Vá hvað ég er rík að geta kallað þig litlu syst- ur. Þú kenndir mér svo ótrú- lega margt. Þú kenndir mér að meta lífið og sagðir svo oft: „Alla mín, ekki ofhugsa hlutina, njóttu augnabliksins.“ Ég var svo heppin að vinna með þér, eyddi því ótrúlega miklum tíma með þér og eftir vinnu voru símtölin oft tvö. Við fórum sam- an í Háskóla Ísland og lærðum náms- og starfsráðgjöf og ræddum því oft um fagleg mál- efni. Þú varst svo fagleg og náðir mjög vel til barna og veit ég að margir nemendur munu sakna þín sárt. Það var ynd- islegt að fylgjast með þér og Gulla þínum en þið voruð svo dugleg að skapa minningar, voruð svo góðir vinir og óend- anlega ástfangin. Hans missir er svo mikill en við munum halda eins vel utan um hann og við getum. Elsku gullmolarnir þínir, Þorgeir Viðar og Þrúður Júlía, gætu ekki verið heppnari með foreldra. Þau skiptu þig mestu máli í heiminum og mun- um við öll hjálpast að við að halda minningu þinni á lofti. Þau eru svo heppin með pabba sem við vitum að mun standa sig vel ásamt okkur. Þú varst ofurfrænka og syrgja börnin mín dásamlega frænku. Þú varst svo mikill gleðigjafi að þegar ég rifja upp þá eru minn- ingarnar gleðilegar og kalla fram bros, hlátur og grát. Þú fékkst erfitt verkefni í lok nóvember síðastliðins þegar þú greindist með krabbamein. Það var aldrei vafi hjá þér um að þú myndir sigra og við héldum það líka. Í gegnum veikindi þín varstu svo hugrökk að það var okkur hinum drifkraftur til að vera það líka og missa aldrei von. Í júlí fengum við síðan góðar fréttir þar sem allt virtist vera að ganga upp en svo kom bakslag sem reyndist okkur erfitt að sætta okkur við. Þegar sú greining kom fengum við ekki nema tíu daga með þér. Þessa daga mun ég aldrei geta fullþakkað og að Friðbjörn læknir hafi komið þér heim þar sem þú vildir fá að vera, um- kringd þínu uppáhaldsfólki. Þessa daga nýttir þú vel til að undirbúa okkur fyrir það sem væri framundan, gafst okkur óendanlega ást, hrósaðir okkur, við gáfum þér loforð og þú und- irbjóst svo ótrúlega margt fyr- irfram fyrir okkur sem eftir er- um. Þú skilur svo ótrúlega marg- ar og góðar minningar eftir þig og myndirnar sem við eigum eru ómetanlegar og hlýja okkur þessa dagana. Þú varst svo sannarlega „selfie-drottning“ og varst endalaust að reyna að kenna okkur systrum þínum að finna betri hliðina. Þér tókst ekki að klára þá kennslu, sem samt stóð yfir í nokkur ár, en við munum ekki gefast upp. Elsku Eva mín, ég gæti skrifað endalaust en þú veist, eins og þú sagðir sjálf, hvað ég elska þig mikið og þegar við hittumst á ný lofa ég að vera betri í að taka selfie. Ég mun alltaf vera til staðar fyrir uppá- haldsfólkið þitt eins og ég lofaði þér og mun vera dugleg að tala um þig og skapa minningar. Ég ætla ekki að vera reið því það vildir þú ekki. Ég mun lifa eftir einkunnarorðum þínum: „Be magical - be you.“ Þín systir, Aðalheiður (Alla). Elsku litla systir, það er sagt að „þeir deyja ungir sem guð- irnir elska“. Oft hef ég velt þessum orð- um fyrir mér og hugsað, er eitt- hvað til í þessu? Já, nú hefur það sannast. Þú, ung kona, tekin frá Gulla þín- um, Þorgeiri Viðari og Þrúði Júlíu. Og okkur öllum í stórfjöl- skyldunni. Hún Ebbos hefur alltaf verið ofboðslega dugleg og langsterk- ust af okkur systrunum. Ég sagði við hana þegar hún greindist með krabbameinið síðastliðinn desember: „Ooo Eva, ég vildi að ég gæti tekið eitthvað af þessu fyrir þig“ og svar hjá henni var: „Elsku Hófý mín, þið systurnar eruð ekki nógu sterkar í þetta verkefni og engin getur leyst þetta nema ég.“ Enda held ég oft að Eva hafi skrifað æðruleysisbænina. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) En eftir harða baráttu við krabbamein varð hún að láta undan. En var búin að setja á okkur verkefni til að vinna úr næstu árin. Sem er svo ekta Eva, skipuleggjandi nr. 1. Í dag er ég svo þakklát fyrir að hafa átt hana sem systur og hvað fjölskyldusamstaðan er 100%. Og það þökkum við fyrir því við vitum að það er ekki sjálfgefið. En þegar Eva var lít- il var hún ofboðslega feimin stelpa, fór lítið fyrir henni. Enda sagði mamma að hún gæti alið Evu 10 sinnum upp en mig bara 1 sinni. Fyrir nokkrum árum kynnt- ist Eva dásamlegum samtökum, Ladies Circle. Og varð hún landsforseti 2018-2019. Þarna blómstraði Eva og eignaðist fullt af flottum vinkonum um allan heim. Eva ferðaðist mikið með fjölskyld- unni og LC, og talaði ætíð um að lífið væri til að njóta og skapa minningar. Og það var alltaf svo gaman að fylgjast með Gulla og Evu, því virðing og ást skein alltaf úr augum þeirra. Ebbos var sú allra besta í að taka „selfie“, og reyndi mikið og oft að kenna okkur systrum að taka selfie og nota betri hliðina í myndatökum. Eva var fyndin og alltaf til í gott partí, enda geta ekki allir verið gordjöss eins og hún. Ég gæti haldið endalaust áfram að skrifa um hana Evu okkar, en geymi það í hjarta mínu. Ég er stolt og glöð að hafa verið systir þín, elsku Eva. Takk fyrir allt, elsku systir, við hittumst síðar. Nú söknuðurinn mikill er því þú ert ei lengur hér. Og alltaf okkar hugur dvelur hjá þér. En ég veit að einn dag við hittumst á ný Og að móttaka þín verður hlý. (Júlía A.) Elsku Gulli, Þorgeir Viðar og Þrúður Júlía. Megi góður guð gefa ykkur allan þann styrk sem hugsast getur við fráfall elsku Evu. Ég kveð hana með hennar einkunnarorðum: „Be magical, be you.“ Þín systir, Hólmfríður (Hófý). Það er sárt að setjast niður og skrifa minningarorð um elskulega tengdadóttur sem fallin er frá langt um aldur fram. Eva kom inn í líf okkar fyrir rétt um tuttugu árum þegar þau Gunnlaugur okkar felldu hugi saman. Það var mikið gæfuspor. Lífið blasti við bjart og fagurt. Þau gengu í heilagt hjónaband, eignuðust fallegt heimili á Akureyri þar sem Eva á sínar rætur og tvö yndisleg börn, Þorgeir Viðar og Þrúði Júlíu. Svo skyggði skyndilega yfir. Eva okkar greindist fyrir tæpu ári með þann sjúkdóm sem engu eirir. Sjúkdóm sem leggur jafnvel ungt fólk í blóma lífsins að velli og ræðst oftar en ekki á garðinn þar sem fegurstu blóm- in vaxa. Þrotin að kröftum lauk hennar lífshlaupi. Eva var einstaklega glæsileg kona, vel gefin og það sem mestu skiptir vel gerð. Hún hafði hlýja nærveru. Hamingj- an skein frá þeim hjónum, gagnkvæm ást og virðing. Það leyndi sér aldrei hve þeim þótti vænt hvoru um annað. Um- hyggja fyrir börnunum var allt- af í fyrirrúmi. Eva var náms- og starfsráð- gjafi. Vinnustaður hennar var Naustaskóli þar sem hún undi hag sínum vel. Þar gaf hún góð ráð við að auka árangur og vel- líðan nemenda. Þar lá hennar styrkur. Eva gekk í raðir félagsins „Ladies Circle“ (LC) sem eru samtök ungra kvenna sem vilja efla tengsl sín og kynni þvert á lönd og álfur. Einkunnarorð þeirra eru „vinátta og hjálp- semi“. Eva heillaðist af starfinu innan samtakanna. Það kom því ekki á óvart þegar hún var val- in til forystu á landsvísu. Hún gegndi starfi landsforseta um skeið og var verðugur fulltrúi LC, innanlands sem utan. Eva Björg Skúladóttir HINSTA KVEÐJA Inn í herbergið gekkst þú, þá ljómaði allt. Hlátur og húmor þér fylgdu. Herbergið virðist nú tómlegt og kalt. Kveðja þig, þau ekki vildu. En herbergið fyllist af styrkleika og ást og þung eru sérhver fótspor. Minning þín birtist og að þér þau dást. Þeim fylgir þinn hlátur og húmor. (Þorbjörg Eva) Minning þín lengi lifi. Þorbjörg og Steinar. Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.