Morgunblaðið - 27.08.2020, Síða 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2020
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ
„ERTU EKKI ALLTAF AÐ KVARTA YFIR
ÞVÍ AÐ ÞÚ SÉRT KOMINN MEÐ SVO HÁ
KOLLVIK?”
„MAMMA SENDI HVORU OKKAR
JÓLAKORT.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... getur verið
taugatrekkjandi!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÚTSALA KOLL-
HÚFUR
FINNST ÞÉR NOKKURN
TÍMANN EINS OG ENGUM
ÞYKI VÆNT UM ÞIG?
JÁ …
HVÍ ER ÉG AÐ
SPYRJA ÞIG?
SPURÐU
HVORT MÉR
SÉ SAMA
ÉG ER MEÐ
GÓÐAR FRÉTTIR
OG SLÆMAR …
SLÆMU FRÉTTRNAR
ERU ÞÆR AÐ VIÐ
GRÓFUM GÖNGIN ÚR
DÝFLISSUNNI Í RANGA
ÁTT!
GÓÐU FRÉTTIRNAR ERU
ÞÆR AÐ VERÐINA VANTAR
TVO SPILAFÉLAGA TIL
AÐ SPILA VIST!
oddsson, f. 21.2. 2008, nemi við
Brekkuskóla; Anna Kristín Þór-
oddsdóttir, f. 3.11. 2009, nemi við
Brekkuskóla. Stjúpbörn Brynhildar
eru Valgerður Þóroddsdóttir, útgef-
andi, f. 31.3. 1989. Maki Luke Allan
skáld; Bjarni Þóroddsson, stjórn-
málafræðingur, f. 5.12. 1990. Maki
Erna Rut Vilhjálmsdóttir, versl-
unarstjóri.
Systkini Brynhildar eru Þórður
Heiðar Þórarinsson, fjármálastjóri
hjá Handpoint, f. 17.8. 1976; Jón
Sigurður Þórarinsson, sérfræðingur
hjá Creditinfo, f. 30.12. 1979; Krist-
inn Hrafn Þórarinsson, sérfræð-
ingur í eignastýringu, f. 11.2. 1991.
Foreldrar Brynhildar eru hjónin
Þórarinn Jónsson lögmaður og fast-
eignasali, f. 19.4. 1947 og Anna
Kristín Þórðardóttir kennari, f. 14.3.
1947, búsett í Reykjavík.
Brynhildur
Þórarinsdóttir
Anna Kristín Jóhannesdóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Magnús Bjarnason
bryggjuvörður í
Hafnarfirði
Elínborg E.
Magnúsdóttir (Bíbí)
verkakona í Hafnarfirði
Þórður Heiðar
Guðjónsson
loftskeytamaður í
Hafnarfirði
Anna Kristín
Þórðardóttir
kennari í Reykjavík
Guðrún Einarsdóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Guðjón Magnússon
skósmiður í Hafnarfirði
(Gaui skó)
Þorgrímur
Þráinsson
rithöfundur
Þorvaldur Þórarinsson
skrifstofum. á Blönduósi
og bókari í Rvík
Erla Guðlaug
Sigurðardóttir
kennari í
Hafnarfirði
Ingibjörg
Jónsdóttir ritari
í Reykjavík
Þráinn Þorvaldsson
múrarameistari
í Kópavogi
Kristín
Loftsdóttir
prófessor og
rithöfundur
Jón L. Árnason
stórmeistari í
skák
Sigurður Kristinn Magnússon
vaktmaður í Hafnarfirði
Sigríður Þorvaldsdóttir
húsmóðir á Hjaltabakka
Þórarinn Jónsson
bóndi og alþm. á Hjaltabakka á
Ásum,A-Hún.
Brynhildur Þórarinsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Jón S. Loftsson
forstjóri í Reykjavík
Ingibjörg K. Þóroddsdóttir
húsmóðir á Miðhóli
Loftur Jónsson
trésmiður og b. á Miðhóli
í Sléttuhlíð í Skagafirði
Úr frændgarði Brynhildar Þórarinsdóttur
Þórarinn Jónsson
lögmaður og
fasteignasali í Rvík
Á Boðnarmiði segir Jón AtliJátvarðarson að þetta séu
ekki skilaboð frá Landlækni, - „en
hvað vitum við svo sem hvað hann
er að pæla?“:
Fráleitt að gægjast um glugganna
tjöld
og gagnslaust að láta sig dreyma.
Munum því bjóð’ upp á beyglur í kvöld
og bjór, sem er lagaður heima.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
um „Ríkisstjórnarfundinn“:
Á Hótel Rangá var ráðherragengi
að ryðja í sig matnum af bestu lyst,
þau höfðu samt ekki setið lengi,
er sagt var frá einum sem smitaðist.
Nú situr það gengi súpunni í,
og situr vonandi lengi í kví.
Þrenningin stjórnar þá á meðan,
og þá verða allir af smiti frí.
Á föstudag orti Guðmundur og
kallaði „Sólarlag við Snæfells-
jökul“:
Er hnígur gullin sól í sjó
og sveipar jökul eldi
þá öðlast sál mín frið og fró
á fögru sumarkveldi.
Og hér er lítil limra eftir hann
um „spunakerlinguna“:
Á spunarokk spann hún Una
spunakerling í Hruna
„Aldrei fann
hún unnustann“
hún var alltaf svo stutt í spuna.
Pétur Stefánsson segir frá því,
að hann hafi átt „bara svona klass-
ískt og gott í kvöld“ og birtir
mynd af réttunum:
Hér er best að hefja skraf,
helst er það í fréttum
að borðaði ég býsnin af
Bónus-kótelettum.
Hákon í Brokey Hákonarson
orti:
Nú er fjaran orðin auð,
öll í þara gróin.
Ég vil fara að reyna ’ann Rauð
og ríða ’onum bara í sjóinn.
Páll Vídalín kvað við hund sinn
Biram 1724:
Svívirðilega svangur ertu, og svei þér
lengi;
hundurinn minn er kominn í kengi;
kvikindinu bjargar engi.
Páll orti um bágleika af veð-
urlagi á reisum:
Illt er að þola ísinn blá,
sem andlit skeður;
nú er gola nefjum á
og norðanveður.
Og enn eftir Pál:
Allur fugl úr eggi skríðr
ungur í fyrsta sinni,
fær sitt eigi flug að síðr,
fer svo ætlan minni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af góðu fólki og spunakerlingum