Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Page 12
D r. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, talmeina- og raddfræðingur, er að koma beint að norðan þegar fundum okkar ber saman á skrifstofu Morgunblaðsins í Há- degismóum. „Ég hlakkaði mikið til að sjá þessa köflóttu byggingu sem þú talaðir um. Hún er sannarlega köflótt,“ segir hún brosandi en mað- ur lýsir skrifstofuhúsnæðinu gjarnan með þeim hætti til að greina það frá prentsmiðjunni. Það fer vel á því að spjall okkar fari fram í köflóttri byggingu enda hefur baráttan sem Valdís er komin til að gera mér grein fyrir, fagbarátta lífs hennar, verið býsna köflótt. „Í markaðsherferðinni, þar sem útlendingum er boðið upp á að öskra sig hása á Íslandi, og stjórnvöld leggja nafn sitt við, kristallast þekkingarleysið og vandinn sem við stöndum frammi fyrir,“ byrjar Valdís þegar hún er búin að fá kaffi og við sest nið- ur í afdrepi inn af móttöku Ár- vakurs. „Auðvitað getur það að öskra verið streitulosandi en á móti kemur að það hefur mjög slæm áhrif á röddina. Þess vegna er ég, sem menntaður raddfræðingur, lögð af stað í enn eina herferðina til að vekja at- hygli á mikilvægi þess að verja og vernda rödd- ina. Ég er búin að berjast í þessu í tuttugu ár en er hvergi af baki dottin; er svona eins manns her eins og Don Kíkóti á sinni tíð.“ Hún hlær. Talið er að um þriðjungur vinnuafls þjóðar framfleyti sér á því að leigja röddina út í at- vinnuskyni. Raddveilur eins og langvarandi hæsi, ræma, raddbrestir, lítið raddþol, kökktil- finning í hálsi, raddþreyta við lestur, söng eða samræður hafa reynst vera algengar meðal þeirra sem nota röddina sem atvinnutæki. Ástæðan fyrir raddveilum hefur fram til þessa fyrst og fremst verið rakin til vanþekkingar á líf- færafræði raddar, raddheilsu og raddvernd. Þú sérð hvernig fortíðin leikur mig Valdís er grunnskólakennari að mennt og ætlaði aldrei í frekara nám, hvorki meistara- né dokt- ors. Það fór á annan veg. „Allt breyttist þegar ég eignaðist heyrnarlaust barn sem mér var gert að senda í Heyrnleysingjaskólann samkvæmt grimmum lögum sem voru í gildi á þeim tíma. Þessu vildi ég ekki hlýta og fór utan og náði mér í þetta nám, heyrnar- og talmeinafræði, og fór í framhaldinu að vinna við það fag í grunnskólum landsins. Eigandi heyrnarlaust barn þá fór ég að meta eiginleika málsins og radd- arinnar betur. Sjálf er ég mús- íkölsk og hef gaman af tónlist, eins og allir sem þvælast inn í þennan vísindageira. Þú sérð hvernig for- tíðin leikur mig.“ Valdísi rann blóðið til skyld- unnar og fór að kynna sér almenna raddheilsu kennarastéttarinnar. Niðurstaðan var sú að hún væri alls ekki nógu góð, ekkert frekar en annars staðar. „Þetta er al- þekkt vandamál um allan heim, raddvandræði kennara,“ segir Valdís og bætir við að það eigi ekki síst við um leikskóla- og grunnskólakennara enda starfi þeir í mun háværara umhverfi en framhalds- og háskólakennarar og þurfi fyrir vikið oftar að brýna raustina. Eitt af því fyrsta sem Valdís gerði var að taka orðið rödd sem slíka út úr jöfnunni enda er það ekki hún sem bilar, ekkert frekar en gangurinn, heldur eru það líffærin sem gera okkur kleift að tjá okkur – raddfærin og talfærin. Röddin er ein- faldlega afurð. Skoðum þetta aðeins betur. Ef við förum út að ganga eða hlaupa og erum alltaf að drepast í ökklunum á eftir þá er það ekki gangurinn eða hlaupið sem slíkt sem er vandamálið, heldur hvernig við beitum líkamanum, óheppilegir skór eða annar búnaður. Sama máli gegnir um rödd- ina, það er beitingin sem veldur vandanum. Enginn leitar sér hjálpar með „bilaðan gang“ frekar en „bilaða rödd“. „Þess vegna segi ég: Að nota orðið rödd eins og er gert er villandi.“ Röddin bara jafnar sig Að hennar sögn er aðalmeinið hvernig líffær- unum sem búa til röddina er misbeitt. Og eng- inn sjái neitt athugavert við það. „Fólk öskrar úr sér röddina og finnst það bara sjálfsagður hlutur. Hún jafnar sig, hugsar það bara. En það er ekkert sjálfgefið. Langvarandi misbeiting raddarinnar getur haft alvarlegar og var- anlegar afleiðingar. Finnst okkur eðlilegt að sparka án afláts í vegg, þangað til við erum búin að fótbrjóta okkur? Varla. Sjálfsagt er ein skýr- ingin sú að raddböndin eru sársaukalaus en það er fóturinn svo sannarlega ekki.“ – Hvað veldur þessu tómlæti í garð raddheils- unnar? „Það er ósköp einfalt. Fólk fær ekki fræðsluna sem það þarf. Hvað veist þú til dæmis um tal- og raddfærin?“ – Sáralítið. „Einmitt það sem ég hélt. Þessi fræðsla er ekki til staðar á neinu kennslustigi á Íslandi en ætti auðvitað að byrja strax í leik- og grunn- skóla. Kenna þarf börnum muninn á tali, hrópi, kalli og öskri, svo dæmi sé tekið. Þau halda að þetta sé allt það sama.“ Valdís vekur í þessu samhengi athygli á fjöl- skúðugri hljóðflórunni; meðalmanneskjan er að hreyfa talfærin í tali um 800 til 1.000 sinnum á mínútu. „Raddbönd kvenna sveiflast að meðal- tali um 250 sinnum á sekúndu, þú athugar, á sekúndu. Þumalfingurreglan er sem sagt helm- ingi oftar en raddbönd karla og helmingi sjaldn- ar en raddbönd barna sem skýrir raddmuninn. Þegar raddböndin þreytast fara hljóð að detta út og við hættum að nema öll talhljóðin sem við- komandi gefur frá sér. Þar með erum við orðin óskýrmælt. Þetta eru stórmerkileg vísindi.“ Í sömu tóntegund og börnin Valdís segir fólk sem hefur atvinnu af söng og leiklist líklegast til að gefa þessum málum gaum; kennarar sinni þessu öllu jafna ekki, ekk- ert frekar en hljóðmiðlafólk og stjórn- málamenn, svo dæmi sé tekið. „Samt ættu allar þessar stéttir að láta þetta sig varða; ekki síst kennararnir sem boðnar eru þannig aðstæður að það hlýtur að fara illa. Hvaða vitleysa er það til dæmis að láta leik- skólakennara syngja í sömu tóntegund og börn- in sem þeir eru að kenna? Líffræðilega geta þeir það ekki af því að raddbönd barna eru miklu styttri en raddbönd fullorðinna. Radd- bönd þola ekki að vera yfirspennt oft á dag frek- ar en aðrir vöðvar í líkamanum. Myndir þú vilja yfirspenna þína vöðva? Varla. Þingmenn og prestar hafa aðgang að hljóðnemum til að koma máli sínu á framfæri en hvorki grunnskóla- né leikskólakennarar búa við þau forréttindi – og þurfa þeir þó mest á þessu að halda vegna að- stæðna.“ Hún segir þetta ekki síst eiga við um íþrótta- kennara sem þurfi að beita röddinni mikið. „Þeim er mörgum hverjum boðið upp á að- stæður, þar sem útilokað er að skaða ekki rödd- ina.“ Hún bendir á að leikskóla- og grunn- skólanemar séu alla jafna sundurlaus hópur, gjarnan af mörgu þjóðerni, þannig að kenn- arinn endi oft á því að þurfa að yfirkeyra radd- færin til að ná athygli bekkjarins. Að dómi Valdísar nær þetta engri átt enda tjónið ekki bara einstaklingsbundið heldur líka samfélagslegt. Þannig sýndi ein bandarísk rannsókn að kostnaður Bandaríkjamanna vegna bilaðra kennararadda samsvari tveimur milljörðum króna á ári. Talandi um rannsóknir þá vitnar Valdís næst í franska rannsókn, þar sem fram kemur að sterk fylgni er milli þess að nemendum finnist rödd kennara síns leiðinleg og kennarinn sjálfur leiðinlegur. Það er því til mikils að vinna. Hinn íslenski Don Kíkóti Dr. Valdís Ingibjörg Jónsdóttir, talmeina- og raddfræðingur, er í eins manns herferð, eins og Don Kíkóti forðum daga. Fyrir hverju? Jú, bættri raddheilsu þjóðarinnar. Og mun ekki unna sér hvíldar fyrr en hún hefur náð eyrum ráðamanna og röddin verður skilgreind sem lýðheilsa. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Valdísi varð um og ó þegar ruðst var af stað með öskur- herferðina í vor. Segir slíkan gjörning afleitan fyrir röddina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Dr. Valdís Ingibjörg Jóns- dóttir vill gera raddheilsu að lýðheilsumáli. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.8. 2020

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.