Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Blaðsíða 13
Hún víkur næst að blessuðum þingmönnunum okkar. „Hvað heldur þú að margir þeirra hafi dottið út af þingi út af röddinni? Það yrði fróð- legt að kynna sér það. Þegar manni leiðist rödd- in gefst maður bara upp á því að hlusta. Þing- maður sem misbeitir röddinni í málþófi er eins og óþjálfaður maður í maraþonhlaupi. Það getur ekki farið vel. Röddin er söluvara hjá þingmönn- um og þeir ættu að meðhöndla hana sem slíka.“ Þetta á líka við um hljóðmiðlamenn. „Tökum einn vinsælan þáttastjórnanda sem dæmi,“ segir Valdís. „Hann er bráðskemmtilegur og eldhress sjónvarpsmaður en samt sem áður á ég erfitt með að hlusta á hann. Hann er alltaf að öskra á mig; liggur svo ofboðslega hátt rómur og mis- beitir röddinni. Röddin er ekkert annað en lag og ef mér líkar ekki lagið þá hætti ég að hlusta. Það dugar skammt að þreyta hlustandann.“ Spurð á móti um hljóðmiðlamann sem kann að beita röddinni rétt nefnir hún Illuga Jökulsson. „Bæði er röddin góð og henni rétt beitt. Þá er hann alltaf yfirvegaður í útvarpinu og fram- sögnin skýr. Það fangar mann.“ Valdís bendir á að röddin sé ekki bara at- vinnutæki, í henni séu líka fólgin mikil lífsgæði. Lífsgæðin eru farin þegar við getum ekki lengur talað. Þrálát hæsi án kvefs sé ekkert annað en yfirkeyrð raddbönd sem leiðir af misbeitingu. „Það misbjóða allt of margir röddinni. Það verð- um við að laga,“ segir hún. Alltaf með óværu í hálsinum Að sögn Valdísar nær þekkingarleysið einnig til þeirrar stéttar sem síst skyldi, lækna. „Þegar fólk verður hást eða missir röddina eru til læknar sem segja því bara að fara heim og hvíla raddböndin. Það nær auðvitað engri átt. Fólk gegnir því en fer svo bara beint í sama farið aft- ur. Misbeitir raddfærum og er fyrr en varir orð- ið hást á ný. Það er alltaf með einhverja óværu í hálsinum sem það losnar ekki við vegna þess að ekki er hugsað um að kenna þessu fólki að beita radd- og talfærum rétt. Raddböndin sem slík eru tilfinningalaus og því er hætt við að fólk mis- beiti þeim. Annað sem er athyglisvert er að þeg- ar við tölum notum við útöndunarloftið til að mynda röddina og ef við gætum okkar ekki og tölum án þess að draga inn loft þá sveltum við líkamann af súrefni og afleiðingin verður þreyta.“ Hún tekur samlíkingu við þarfasta þjóninn, einkabílinn. Okkur finnist sjálfsagt og nauðsyn- legt að smyrja bílvélina reglulega og missum frekar úr slag en tíma á smurstöð. Þá gætum við þess af kostgæfni að inngjöfin sé passleg á veg- um landsins og rétt gíraskipting. „Það dytti ekki nokkrum manni í hug að misbjóða bílnum sínum með því að þjösnast í fyrsta gír á Vesturlands- veginum. En við sjáum ekkert athugavert við það að þjösnast sýknt og heilagt á röddinni.“ – Hvers vegna sækist þessi slagur svona hægt? „Vegna þess að það er enginn skilningur á þessu og skilningsleysi er alltaf byggt á þekking- arleysi,“ segir Valdís og slær létt í borðið til að leggja áherslu á mál sitt. „Við verðum að koma þessu vandamáli inn í lýðheilsuna, þannig að leita megi heildstæðra lausna. Það þarf að taka þetta fyrir á þingi.“ Skal fara í gegn! – Finnst þér þú enn þá tala fyrir daufum eyrum? „Það er aðeins að rofa til eftir tuttugu ár. Skárra væri það nú. En betur má ef duga skal. Það þarf auðvitað sæmilega geggjaða hugsjóna- manneskju til að standa í þessu en mér rennur einfaldlega blóðið til skyldunnar sem raddfræð- ingi. Mér finnst oft eins og sé sú eina sem geri mér fullkomlega grein fyrir því hversu alvarlegt ástandið er. Það fer að vísu að koma tími á mig en ég vil helst ekki yfirgefa þetta líf fyrr en ég er búin að koma fólki í skilning um þetta. Þetta mál skal fara í gegn!“ Valdís hvetur þingmenn til að beita röddinni rétt. Ella gætu þeir átt á hættu að falla út af þingi. Morgunblaðið/Eggert 23.8. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Dr. Valdís sendi árið 2018 frá sér bókina Talandinn, er hann í lagi? Vísindi á mannamáli. Grípum aðeins niður í bókina, þar sem höfundur ræðir um kringumstæður sem bjóða upp á misbeitingu raddar í tali eða söng.  Þegar höfuð situr ekki rétt á hálsi (hallar til hliðar, fram eða reigist aftur).  Röng líkamsstaða (t.d. bogra yfir einhverju).  Talað í tilfinningaróti eins og streitu, reiði eða með miklum sannfæringarkrafti.  Talað eða sungið í rangri raddhæð t.d. sungið í annarri tónhæð en manni er eðlislægt.  Talað eða sungið í of mikilli fjarlægð frá hlustanda.  Talað eða sungið yfir stórum hópi.  Öskrað eða gólað, t.d. á kappleikjum, íþróttum eða í erobik.  Talað eða sungið þar sem hljómburður er lélegur, eins og í of miklu bergmáli eða þegar hljóð berst illa um húsakynni.  Talað eða sungið í bakgrunnshávaða (stöðugur hávaði t.d. eins og frá tækjum).  Talað eða sungið í erilshávaða (hávaði sem lifandi verur mynda, t.d. raddbeiting, athafnir).  Talað eða sungið í þurru, köldu eða menguðu andrúmslofti. ÞEGAR HÖFUÐ SITUR EKKI RÉTT Á HÁLSI Fáðu tilboð Íslenska gámafélagið igf@igf.is www.gamafelagid.is s: 577 5757 GÖTUSÓPUN ÞVOTTUR MÁLUN ER PLANIÐ SKÍTUGT?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.