Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Page 14
Í MYNDUM 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.8. 2020 E nsk vinkona mín, sem hefur búið hérna í fjög- ur ár, hafði aldrei komið á Vestfirði og þess vegna tók ég að mér að skipuleggja sex daga ferð þangað núna um miðjan ágúst til að kynna fyrir henni dýrðina. Hún hefur farið hringinn kringum landið og þótti mikið til koma en sleppti þá Vestfjörðunum,“ segir Árni Sæberg, ljós- myndari Morgunblaðsins, um ferðalag sem hann er ný- kominn úr. „Hún heitir Katherine Sherlock, skrifað eins og Sherlock Holmes,“ upp- lýsir Árni. – Varst þú þá dr. Wat- son þarna fyrir vestan? „Já, það má eiginlega segja það,“ svarar Árni og skellir upp úr. Sherlock fól dr. Watson að gera viðeigandi ráðstaf- anir. „Það var smá vesen og stress, þar sem ég er víð- fægur fyrir minn athyglisbrest og þegar ég er einn á ferð um landið sef ég vanalega bara í bílnum,“ segir Árni sposkur. „En ég var í skóla á Núpi í tvö ár í gamla daga og þekki Vestfirðina mjög vel, þannig að þetta slapp allt saman til; við fengum þessa fínu gistingu á leiðinni.“ Og það í uppábúnum rúmum en ekki bílsætum. Blautt hefur verið vestra seinni hluta sumars og Árni segir heimildarmenn sína á svæðinu hafa fullyrt að rignt hefði í heilar sex vikur samfellt áður en þau Katherine lögðu í’ann. „Spáin var heldur ekki góð en við ákváðum samt að láta slag standa enda eftirvæntingin mikil.“ Þau hófu leikinn raunar í sól á Patreksfirði en eftir það var að mestu skýjað á leiðinni, enda þótt hann hafi lengst af hangið þurr. „Það kom ekki að sök. Það er ekkert að því að ferðast við þessi skilyrði; þá sleppur maður við rykið, tíbránna og hitauppstreymið. Allt er hreint og tært þegar skýin eru búin að losa sig við væt- una. Við fengum alls konar birtu og nutum í botn.“ Raunar gott betur en að sögn Árna féll Katherine í stafi þar vestra. „Hún sagði „vá“ á fimm mínútna fresti og bað mig um að stoppa bílinn. Rauk svo út til að taka myndir á nýja símann sinn og sendi síðan foreldrum sín- um á Englandi. Þau fylgdust stjörf með þessari undra- veröld allan tímann.“ Auk ljósmyndaáhugans er Katherine í myndlist og segir Árni ferðalagið hafa farið langt fram úr hennar væntingum. „Vestfirðir eru það fallegasta sem hún hef- ur séð á Íslandi. Engin spurning. Það var ekki bara birt- an og náttúran, heldur ekki síður kyrrðin og róin. Mað- ur losar um leið um allt stress og streitu þegar maður keyrir inn á þessa einstöku firði.“ Mæltu manna heilastur, minn kæri Watson. Mæltu manna heilastur. Watson á Vestfjörðum Vestfirðir voru í sínu allra besta pússi þegar Árni Sæberg ljósmyndari kom þar við fyrr í mánuðinum ásamt enskri vinkonu sinni, Katherine Sherlock, sem féll ítrekað í stafi yfir fegurðinni í sinni fyrstu heimsókn í þessa undraveröld. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Ljósmyndir ÁRNI SÆBERG Foss við Rauðasand í veðurham.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.