Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 2020
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
L 244 cm Leður ct. 10 Verð 479.000,-
Hljómsveitin Albatross lýkur hringferð sinni undir yfirskriftinni
Tónaflóð um landið með beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu úr
Gamla bíói í Reykjavík í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.20. Þar
verður flutt tónlist frá höfuðborgarsvæðinu. Söngvarar Alba-
tross eru sem fyrr Sverrir Bergmann og Elísabet Ormslev en
gestasöngvarar verða Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Jón Jónsson,
KK og Bríet. Hljómsveitarstjóri er Halldór Gunnar Pálsson
gjarnan kenndur við Fjallabræður.
Albatross lætur raunar ekki þar við sitja heldur hleður strax á
eftir í Menningarnæturdansleik í Gamla bíói í beinni kl. 22.
Þar með lýkur hringferðinni Tónaflóð um landið en Albatross
og gestir hafa nú drepið niður fæti í hverjum landshluta og yljað
sjónvarpsgestum í því undarlega ástandi sem ríkt hefur í sam-
félaginu undanfarna mánuði og hefur komið hart niður á tón-
leikahaldi og hvers konar skemmtunum.
Sverrir Bergmann og
Elísabet Ormslev syngja
með Albatross.
RÚV
Tónar flæða um borgina
Jóhanna Guðrún verður í hópi góðra gesta sem
líta við í Gamla bíói á tónleikunum í kvöld.
Morgunblaðið/Golli
Tónleikaröðin Tónaflóð um landið lokar
hringnum í Reykjavík um helgina.
„Blaðrið í Steingrími Her-
mannssyni er á góðri leið með
að verða efnahagsvandamál.
Sífellt gengisfellingatal hans er
úr takt við þá tillögugerð í efna-
hagsaðgerðum sem unnið var
að á vegum stjórnarflokkanna,“
sagði Ólafur Ragnar Grímsson,
alþingismaður Alþýðu-
bandalagsins, í samtali við Dag-
blaðið í ágústmánuði 1980. Til-
efnið var ummæli Steingríms,
sem þá var sjávarútvegs-
ráðherra, um vandamál fisk-
vinnslunnar.
Alþýðubandalagið og Fram-
sóknarflokkurinn, flokkur
Steingríms, sátu þarna saman í
ríkisstjórn undir forystu Gunn-
ars Thoroddsens, varaformanns
Sjálfstæðisflokksins.
Svavar Gestsson, félags- og
heilbrigðismálaráðherra og
flokksbróðir Ólafs Ragnars,
hafði þetta um ummæli
Steingríms að segja við Vísi:
„Stjórnin á líf sitt undir mörgum
þáttum og meðal annars þeim
að menn fari hóflega í yfirlýs-
ingar.“
Þegar Morgunblaðið spurði
Steingrím hvort hann hefði
hlaupið á sig svaraði hann: „Nei.
Ég get ekki setið fundi með
frystihúsamönnum og tjáð skoð-
anir mínar þar og síðan komið
fram í fjölmiðlum og sagt eitt-
hvað allt annað.“
Um ummæli Ólafs Ragnars
sagði Steingrímur: „Margur
heldur mig sig.“
GAMLA FRÉTTIN
Blaðrið að
verða efna-
hagsvandamál
Steingrímur Hermannsson og Svavar Gestsson á leið á ríkisstjórnarfund.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Phil Neville
knattspyrnumaður og -þjálfari
Geir Þorsteinsson
knattspyrnufrömuður
Mikhail Murashko
heilbrigðisráðherra Rússlands