Morgunblaðið - 09.09.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Undirbúningur er nú að hefjast við
skipulag nýs grafreits á Akureyri.
Fyrr á þessu ári úthlutuðu bæjar-
yfirvöld um 20
hektara svæði
fyrir greftr-
unarstað í
Naustaborgum,
sem eru sunnan
við bæinn nærri
Kjarnaskógi.
Skógurinn er úti-
vistarsvæði rétt
eins og hugsunin
er að garðurinn
nýi verði. „Kirkjugarðar eiga líka að
vera fyrir lifandi fólk,“ segir Smári
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Kirkjugarða Akureyrar, í samtali
við Morgunblaðið.
Annar tveggja kirkjugarða á
Akureyri er á Naustahöfða, sem er á
brekkubrún sunnarlega í bænum.
Þar var fyrst jarðsett árið 1863 og
alls eru um 9.000 grafir í garðinum,
sem senn er fullnýttur. Kirkjugarð-
urinn í Lögmannshlíð í Glerárhverfi
er mun minni og grafir þar færri.
Aðlagist landslagi
Um hálfur annar áratugur er síð-
an farið var að svipast um eftir svæði
fyrir nýjan grafreit á Akureyri.
Smári Sigurðsson segir að augu
fólks hafi fljótt beinst að Nausta-
borgum, sem eru ekki langt frá nú-
verandi aðalkirkjugarði
„Í Naustaborgum eru móar, mýr-
ar, klettar og skógarrjóður. Hug-
myndin er að greftrunarsvæðin að-
lagist þessu landslagi og tengist með
göngustígum, reiðvegum og öðru
sem fyrir er á svæðinu,“ segir
Smári. „Við gerð greftrunarstaða í
dag þarf líka að taka tillit til breyt-
inga á samfélaginu. Dauðinn er ef til
vill ekki sama feimnismál í dag og
sömuleiðis eru æ fleiri í dag utan
þjóðkirkjunnar, Ísland er orðið fjöl-
menningarsamfélag og margir hafa
aðra lífsskoðun en kristna trú.“
Útfarir fjórðungi færri
Í kirkjugarðinum á Naustahöfða
eru útfarir um 140 á ári, en hefur
fjölgað lítið eitt yfir lengra tímabil,
sbr. mannfjöldaþróun á svæðinu. Í
ár bregður hins vegar svo við að
greftrarnir eru um fjórðungi færri
en í meðalári. Spurður um skýringar
bendir Smári á að meðan fyrsta
bylgja kórónuveirufaraldursins
gekk yfir á útmánuðum hafi við-
kvæmustu hópar samfélagsins verið
í skjóli. Vetrarflensan hafi ekki vitj-
að gamla fólksins, sem er sérstak-
lega berskjaldað fyrir umgangpest-
um sem leiði oft til andláts. Þá hafi
umsvif í samfélaginu verið mun
minni á veirutímanum en við eðlileg-
ar aðstæður og því banaslys hugsan-
lega færri af þeim sökum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kirkjugarður Á Naustahöfða á Akureyri hvíla um 9.000 manns og nú er horft til þess að útbúa nýjan greftrunarstað.
Kirkjugarðar verði
líka fyrir lifandi fólk
Unnið að undirbúningi nýs greftrunarstaðar á Akureyri
Smári Sigurðsson
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Verulegar tafir hafa að undanförnu
orðið á sendingum á pökkum til og
frá landinu. Morgunblaðið hefur
dæmi um sendingar sem áttu að
fara til Noregs og voru innskráðar
á pósthúsi, önnur fyrir þremur vik-
um og hin nokkrum dögum síðar.
Sendendur hafa svo fylgst með
framvindunni á netinu og séð að
pakkarnir eru enn á Íslandi. Á
meðan bíður viðtakandinn eftir
bögglunum og er orðinn langeygur
því sendingar milli Íslands og Nor-
egs eru yfirleitt innan við vikutíma
að berast.
Birgir Jónsson, forstjóri Pósts-
ins, segir í samtali við Morgunblað-
ið að vegna kór-
ónuveirunnar og
ráðstafana til
varnar henni hafi
póst- og pakka-
sendingar til og
frá landinu verið
í ólagi síðustu
mánuði. Í vor
hafi þær nánast
stöðvast, þegar
aðeins voru
flognar örfáar ferðir til og frá land-
inu í viku. Þá hafi verið reynt að
koma sendingum í flutningaskip –
en alltaf taki nokkurn tíma að slípa
málin svo gagnvegir verði greiðir.
„Þegar sjóflutningarnir, sem taka
kannski 4-5 daga frá Evrópu, voru
komnir í lag opnaðist smuga aftur
með fluginu, en boðleiðirnar þar
reyndust stirðar og hlekkirnir í
keðjunni veikir. Satt að segja eru
alls konar tappar í þessu æðakerfi
flutninga í heiminum. Hér hjá Póst-
inum er á hverjum degi leitað leiða
til að koma pósti áfram, sem geng-
ur mjög misjafnlega,“ segir Birgir.
Fraktin bíður í Frankfurt
Netverslun færist sífellt í vöxt og
Vesturlandabúar eiga þar mikil við-
skipti við Kína. Vörur þaðan hafa
eftir pöntun verið fluttar til Evrópu
– en eru þar stopp. Gríðarmikið
magn af fraktsendingum að austan
bíður nú til dæmis í dreifingar-
miðstöð á flugvellinum í Frankfurt,
vörur sem eiga að fara áfram vítt
og breitt um veröldina. „Við verð-
um bara að vona að rætist úr, það
tekur tíma að vinna sig út úr svona
vandamálum og slíkt gerist hægt
meðan veiruástand varir,“ segir for-
stjóri Íslandspósts.
Pakkar í pósti lengi að skila sér
Vikur að berast frá Íslandi til Noregs
Tappar eru í æðakerfi flutninganna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Færiband Flutningakerfi heimsins eru seinvirk um þessar mundir en allt er
gert hjá Póstinum til þess að finna möguleika svo að sendingarnar skili sér.
Birgir
Jónsson
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Skjal sem Sjúkratryggingar Íslands
(SÍ) fundu er varðar mælingar og
markmið þjónustusamnings við
Krabbameinsfélagið (KÍ) var ófullbú-
ið vinnugagn. Í því er að finna mis-
skilning og ranga hugtakanotkun.
Embætti landlæknis, Sjúkratrygg-
ingar og Krabbameinsfélagið segja
óábyrgt að birta skjalið.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
embætti landlæknis, Sjúkratrygging-
um og Krabbameinsfélaginu.
Skimun flókið viðfangsefni
Fulltrúar þeirra funduðu sameigin-
lega í gær til að fara yfir skjalið sem
er níu blaðsíður. Það var unnið í des-
ember árið 2017 á greiningardeild
Sjúkratrygginga.
„Augljóst er að umrætt skjal er
ófullbúið vinnugagn sem byggist á
gögnum frá KÍ og samskiptum starfs-
manna KÍ og SÍ. Í skjalinu má finna
misskilning og ranga hugtakanotkun
enda er krabbameinsskimun flókið
viðfangsefni og túlkun efnisins krefst
sérfræðiþekkingar,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Umrætt skjal var sent velferðar-
ráðuneytinu í febrúar árið 2018 án
þess að fram kæmi að um vinnugagn
væri að ræða en skjalið hafði ekki ver-
ið sent Krabbameinsfélaginu til yfir-
lestrar áður en því var komið til ráðu-
neytisins.
„Aðilar eru sammála um að
óábyrgt væri að birta skjalið án nán-
ari skýringa og athugasemda af hálfu
KÍ,“ segir í tilkynningunni.
„Það er mat landlæknis eftir sam-
eiginlega yfirferð með SÍ og KÍ að
það séu engar upplýsingar í skjalinu
sem kalla á viðbrögð heilbrigðis-
yfirvalda umfram þá skoðun sem þeg-
ar er hafin hjá embætti landlæknis.“
Misskilningur
í gagni um KÍ
Um ófullbúið vinnugagn að ræða
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KÍ Félagið hefur sætt gagnrýni
vegna mistaka í leghálsskimun.