Morgunblaðið - 09.09.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fulltrúar Samgöngustofu og Isavia
undirrituðu í gær viljayfirlýsingu
um tilraunaverkefni um íblöndun ís-
lenskrar repjuolíu á olíutanka stór-
virkra tækja á Keflavíkurflugvelli.
Er verkefnið liður í viðleitni til orku-
skipta á stórum tækjum og skipum
sem Samgöngustofa vinnur að.
Fáeinir bændur rækta repju,
meðal annars á Þorvaldseyri og
Sandhóli. Jón Bernódusson, verk-
fræðingur hjá Samgöngustofu, sem
lengi hefur unnið að athugunum á
möguleikum orkuskipta á fiskiskipa-
flotanum og staðið fyrir tilraunum
um notkun lífdísils úr repjuolíu, seg-
ir að ræktunin hafi gengið þokka-
lega í sumar og uppskeran verið
sæmileg það sem af er, en þó lakari
en oft áður. Telur að kalt vor ráði
því. Notuð eru tvö afbrigði af repju
eða nepju, vornepja og haustnepja.
Þarf að stíga næsta skref
Haustnepjan er fyrri til endað sáð
haustið áður. „Við erum búnir að
uppskera haustafbrigðið. Það var
fallegt og þokkalegt magn,“ segir
Ólafur Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri. Nepjan sem sáð var í vor
er ekki hæf til uppskeru fyrr en
seinna í haust. „Við erum búin að
vera í þessari tilraunaræktun í tíu
ár. Það er spurning hvort ekki þurfi
að koma þessu á næsta stig, kanna
hvort áhugi er á að nýta þessa jurt
og gera verðmæti fyrir bændur og
spara gjaldeyri fyrir þjóðarbúið,“
segir Ólafur.
Jón Bernódusson er í starfshópi
sérfræðinga sem samgöngu-
ráðherra skipaði til að fjalla um
þessi mál. Jón segir að verið sé að
setja upp aðgerðaáætlun um upp-
setningu innviða þannig að hægt
verði að auka ræktunina og koma
framleiðslunni í verð. Bændur geti
aukið ræktun og sá sem tekur við
fræjunum geti pressað úr þeim olí-
una og einnig átt markað fyrir fóð-
urmjölið sem til verður við fram-
leiðsluna.
Ólafur Eggertsson segir að tölu-
verð fjárfesting sé í afkastamikilli
pressu. Telur hann að slíkt tæki
þurfi að vera á félagslegum grund-
velli því verksmiðjan geti þjónað
mörgum bændum, sérstaklega ef
hún væri færanleg á milli lands-
hluta. Síðan þurfi innviði til að koma
olíunni á markað og gera mjölið að
söluvöru.
Gerðar hafa verið tilraunir með
notkun repjuolíu á vélar. Þannig
hefur Skinney-Þinganes á Höfn gert
tilraunir með íblöndun repjuolíu frá
búi sínu í Flatey á Mýrum í dísilolíu
til notkunar á vélar skipa fyrir-
tækisins og bændurnir á Þorvalds-
eyri nota repjuolíu á dráttarvél.
Jóni Bernódussyni líst vel á sam-
starfið við Isavia um notkun ís-
lenskrar repjuolíu til íblöndunar á
stórvirk tæki á Keflavíkurflugvelli. Í
upphafi verður 5% repjuolía notuð á
móti dísilolíu, á eitt tæki. Hann segir
að gerðar verði mælingar á áhrifum
blöndunarinnar, ekki síst á út-
blástur vélarinnar en markmið
Isavia er að minnka notkun jarð-
efnaeldsneytis og draga úr útblæstri
gróðurhúsalofttegunda. Meginhluti
notkunar jarðefnaeldsneytis er á
stórvirku tækin sem notuð eru til að
þjónusta flugbrautir og athafna-
svæði flugvalla og viðhalda þeim,
tæki sem ekki eru fáanleg rafknúin.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri
Isavia, og Jón Gunnar Jónsson, for-
stjóri Samgöngustofu, undirrituðu
yfirlýsinguna.
Íslensk repjuolía á tæki á Vellinum
Tilraunaverkefni hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli Áhrif á útblástur vélanna könnuð Ræktunin
gekk þokkalega í ár Unnið að aðgerðaáætlun um innviði til að gera meiri verðmæti úr hráefninu
Ljósmynd/Isavia
Íblöndun Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra setur fyrstu repjuolíuna frá Þorvaldseyri á olíutank gröfunnar í skýli Isavia á Keflavíkurflugvelli.
Á fundi skóla- og frístundaráðs
Reykjavíkurborgar í gær var
ákveðið að framlengja skertan
þjónustutíma leikskóla borgarinnar
til 31. október til þess að starfsfólk
hafi tíma í lok hvers dags til að
sinna sóttvörnum á leikskólunum.
Almennur þjónustutími leikskóla
borgarinnar verður þannig frá
klukkan 7:30-16:30. Breytingar-
tillaga Sjálfstæðisflokksins var
felld, en hún kvað á um að þjón-
ustutíminn yrði ekki skertur og
starfsmenn leikskóla sæju um sótt-
varnir að vinnudegi loknum. Um er
að ræða tímabundna ráðstöfun og
því taldi Sjálfstæðisflokkurinn að
kostnaðurinn við það ætti ekki að
vera hár.
Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks
sem lögð var fram við afgreiðslu
málsins segir að skertur þjónustu-
tími komi einkar illa niður á við-
kvæmum hópum. Frekar eigi að
verja fjármunum í að halda leik-
skólum opnum til klukkan 17:00 í
stað þess að eyða þeim í gæluverk-
efni. oddurth@mbl.is
Framlengja skert-
an þjónustutíma
Leikskólar áfram opnir til 16:30
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stytting Opið verður til 16:30.