Morgunblaðið - 09.09.2020, Side 9

Morgunblaðið - 09.09.2020, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020 Jóhann Ólafsson johann@mbl.is „Fyrir tæpum áratug settu stjórn- völd sér það markmið að ná 10 pró- senta hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa í samgöngum á landi fyrir árið 2020. Á þeim tíma var hlutfallið nálægt núlli og okkur þótti árið 2020 vera dálítið langt í burtu,“ sagði Þór- dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra, á ársfundi Samorku í gær- morgun. Á fundinum var fjallað um orku- skipti í samgöngum; hvað þyrfti til svo Ísland stæðist Parísarsamning um minnkun útblásturs frá sam- göngum og fleira. Þórdís sagði vel til fundið hjá Samorku að tileinka dag- skrána orkuskiptum. „Orkuskipti eru algjör forsenda í vegferð okkar að kolefnishlutlausu Íslandi. Við erum á fleygiferð, margt er búið að gera og margt spennandi er fram undan á þeirri vegferð,“ sagði Þórdís. „Frábær árangur“ Ráðherra bætti því við að þótt árið 2020 væri kannski ekki besta ár mannkynssögunnar í ýmsu tilliti gætum við þó glaðst yfir því að spár gæfu til kynna að markmiðið um orkuskipti í samgöngum á landi myndi nást. „Það eitt og sér er frábær árangur og betri en menn sáu fyrir og spár gáfu til kynna á tímabili. Fyrir ári var hlutfallið í kringum 9,5 prósent og allar líkur eru á því að niðurstaða þessa árs verði mjög nálægt 10 pró- sentum,“ sagði Þórdís. Hún benti á að fyrir áratug hefðu Íslendingar verið á eftir öðrum þjóð- um Evrópu og hinum Norðurlanda- þjóðunum en í dag værum við fremst í flokki. Einn mælikvarði sem við höfum miðað okkur við í þessu sam- hengi er hlutfall vistvænna bifreiða í nýskráningum þar sem við höfum undanfarin ár vermt annað sætið á heimsvísu á eftir frændum okkar Norðmönnum. „Stjórnvöld hafa stutt við þessi markmið um framgang orkuskipta með ýmsum hætti. Til dæmis í formi skattalegra hvata og ívilnana, styrkja til innviðauppbyggingar víða um land og almenns stuðnings við nýsköpun og rannsóknir á þessu sviði,“ sagði Þórdís. Þórdís sagði markmið orkuskipta þau að Ísland verði óháð jarðefna- eldsneyti og að öll starfsemi, hvort sem er á landi, í lofti eða á legi verði knúin endurnýjanlegum orkugjöf- um. Markmið um orkuskipti náist  Eru forsenda kolefnishlutleysis Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Samorka Þórdís Kolbrún snerti meðal annars á orkuskiptum í ræðu sinni. Samspil margra þátta » Orkuskiptin munu aldrei vera borin af opinberum að- ilum eingöngu, sagði Þórdís. » Orkufyrirtæki, sprotafyrir- tæki, bílaumboð, bílaleigur og fleiri hafa lagt sín lóð á vogar- skálarnar. » Almenningur hefur einnig tekið vel við sér og er opinn fyrir því að kaupa rafbíla og tengiltvinnbíla. Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla Háspegill 143.000.- / Hringspegill 63.000.- SPEGLAR Matarbúðin Nándin hlaut í gær Bláskelina, viðurkenningu um- hverfis- og auðlindaráðuneytisins, fyrir framúrskarandi plastlausa lausn og prýðilegt fordæmi, eins og það er orðað í tilkynningu um af- hendinguna. Kolbeinn Lárus Sigurðsson hjá Matarbúðinni tók við viðurkenning- unni úr hendi Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- ráðherra. Var athöfninni streymt beint á vef Umhverfisstofnunar. Matarbúðin Nándin er fjölskyldu- fyrirtæki staðsett við Austurgötu í Hafnarfirði og í Kolaportinu í Reykjavík. Markmið fjölskyldunnar er að skapa sjálfbært matvælakerfi þar sem sett er upp hringrás fyrir gler, ásamt því að selja matvöru í niðurbrjótanlegum og moltuhæfum umbúðum. Fjölskyldan leggur áherslu á að hvetja viðskiptavini og samstarfsaðila til að vinna að plast- lausum heimi með sér og um leið að vekja fólk til umhugsunar um áhrif umbúða á náttúruna og framtíðina. „Í því vandasama verkefni að setja upp plastlausa matarbúð, finna og flytja inn umbúðir, þróa ferla og pakka nánast öllum vörum er það ómetanleg hvatning að fá opinbera viðurkenningu sem þessa,“ sagði Kolbeinn Lárus við athöfnina. Í úrslitahóp dómnefndar komust einnig fyrirtækin Bioplastic skin, Krónan og Plastplan. Matarbúðin Nándin fékk Bláskelina fyrir plastlausnir sínar Viðurkenning Kolbeinn Lárus tekur við Bláskelinni frá umhverfisráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.