Morgunblaðið - 09.09.2020, Qupperneq 10
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps
hefur ekki áhuga á að taka yfir
rekstur Vopnafjarðarflugvallar af
Isavia og leggur áherslu á að það sé
ekki hlutverk sveitarfélagsins.
Isavia rekur flugvöllinn. Starfs-
maður vallarins fer á eftirlaun á
næsta ári og vörpuðu stjórnendur
Isasvia fram þeirri hugmynd hvort
Vopnafjarðarhreppur myndi vilja
taka reksturinn að sér, á svipuðum
forsendum og Langanesbyggð sem
rekur flugvöllinn á Þórshöfn sam-
kvæmt samningum við Isavia og
fær greitt fyrir. Hefur sá rekstur
gengið vel, samkvæmt upplýsingum
Isavia.
Hreppsráð hafnaði þessu, sér
ekki hag í því fyrir sveitarfélagið að
taka yfir rekstur flugvallarins, mið-
að við þær upplýsingar sem liggja
fyrir. Bendir hreppsráð á að rekst-
ur flugvalla sé ekki hlutverk sveit-
arfélaga. Ráðið hvetur ríkið jafn-
framt til að standa vörð um opinber
störf á landsbyggðinni.
Sara Elísabet Svansdóttir, sveit-
arstjóri Vopnafjarðarhrepps, segir
mikilvægt að allar upplýsingar liggi
fyrir áður en slík ákvörðun er tekin.
Hún nefnir að hreppsráðið vilji ekki
lenda í aukakostnaði. Hún bendir á
að styttri afgreiðslutími sé á flug-
vellinum á Þórshöfn en Vopnafirði.
Auglýst eftir starfsmanni
Vopnafjarðarflugvöllur er á
bakka Hofsár, fyrir miðjum botni
Vopnafjarðar, um fjóra kílómetra
frá þéttbýlinu. Þangað er áætlunar-
flug Norlandair frá Akureyri en
einnig koma þangað einkaflugvélar
með laxveiðimenn og hann nýtist til
sjúkraflugs.
Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, segir að málið nái
ekki lengra. Niðurstaða sé fengin
með samþykkt hreppsráðs. Kveðst
hann gera ráð fyrir að auglýst verði
eftir nýjum starfsmanni.
Þórshafnarflugvöllur er rekinn af
Langanesbyggð, eins og fyrr segir.
Norðfjarðarflugvöllur sem raunar
er aðeins fyrir sjúkraflug er rekinn
af Fjarðabyggð. Guðjón neitar því
að Isavia sé að reyna að koma inn-
anlandsflugvöllum almennt yfir á
sveitarfélögin. Breyting á rekstri
Vopnafjarðarflugvallar hafi aðeins
verið hugmynd til umræðu.
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Vopnafjörður Flugvöllurinn er á bökkum hinnar gjöfulu laxveiðiár, Hofsár í Vopnafirði, skammt frá þorpinu.
Vilja ekki taka yfir
rekstur flugvallarins
Isavia bauð Vopnafjarðarhreppi að annast flugvöllinn
Unnið er að því að skylda flokkun á
úrgangi og samræma flokkunar-
merkingar skv. frumvarpi sem lagt
verður fram á Alþingi í vetur. Þá á
að auka endurvinnslu á plasti með
hagrænum hvötum. Aðgerðir í þessa
veru voru reif-
aðar á ríkis-
stjórnarfundi í
gærmorgun af
Guðmundi Inga
Guðbrandssyni
umhverfis-
ráðherra þegar
hann kynnti áætl-
unina Úr viðjum
plastsins. Hún
samanstendur af
18 aðgerðum sem
miða að því að draga úr plastnotkun
í samfélaginu, auka endurvinnslu
plasts og sporna við plastmengun í
hafi.
Meira en helmingur aðgerðanna
er þegar kominn til framkvæmda, til
að mynda bann við afhendingu
burðarpoka án gjaldtöku. Í sumar
samþykkti Alþingi frumvarp um-
hverfis- og auðlindaráðherra þar
sem bann var lagt við markaðs-
setningu ýmissa einnota plastvara,
svo sem bómullarpinna, hnífapara
og blöðruprika.
Á næsta áratug mun ríkið aðstoða
sveitarfélög á landinu fjárhagslega
svo hægt sé að ráðast í frekari end-
urbætur á fráveitukerfum og hefta
þannig losun örplasts í hafið, til að
mynda með grænum ofanvatns-
lausnum. Auglýst verður eftir verk-
efnum á heimasíðu ráðuneytisins í
haust. Um allar þessar aðgerðir er
nánar fjallað í áætluninni.
Aðgerðirnar byggjast á tillögum
samráðsvettvangs um aðgerðaáætl-
un í plastmálefnum sem ráðherra
skipaði árið 2018 og í sátu fulltrúar
stjórnvalda, atvinnulífs, félaga-
samtaka og þingflokka.
„Að ráðast gegn plastmengun er
áskorun sem allar þjóðir heimsins
standa frammi fyrir og hafa óæski-
leg áhrif plastmengunar á lífríki
komið æ betur í ljós á síðustu árum.
Mikilvægt er fyrir íslenskt samfélag
að grípa til aðgerða til að draga úr
óábyrgri og óþarfri notkun plasts,“
segir í tilkynningu, haft eftir Guð-
mundi Inga umhverfisráðherra.
Skylt að flokka úrgang
Ráðherrann ætlar að setja reglur Ýmsar einnota vörur
eru bannaðar Úr viðjum plastsins Áskorun þjóðanna
Morgunblaðið/Stefán Einar
Úrgangur Gríðarlegt magn af plasti fellur til á hverju ári sem búa má til
verðmætar vörur úr eins og vilji og viðleitni stjórnvalda stendur til.
Guðmundur Ingi
Guðbrandsson
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR