Morgunblaðið - 09.09.2020, Page 14
14 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Heimili&
hönnun
fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 25. september
Skoðuð verða húsgögn og innréttingar,
skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið,
litir og lýsing ásamt mörgu öðru.
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 21. sept.
Hópur kvenna hefur
sakað Jón Baldvin
Hannibalsson um gróf
kynferðisleg brot.
Sami hópur hefur sak-
að eiginkonu hans,
Bryndísi Schram, um
yfirhylmingu – að hún
hafi vitandi vits ekki
bara þagað um brotin
heldur jafnframt logið
til í því skyni að leyna
alvarlegum brotum
hans gegn öðrum konum. Meðal
þess, sem hann er sakaður um, er að
níðast kynferðislega á dætrum sín-
um og dótturdóttur. Þær ásakanir
eru fram settar af einni dóttur hans,
en gegn hörðum mótmælum hinna
dætranna, sem segja allar þær ásak-
anir uppspunnar lygisögur búnar til
af sjúkum huga í ætluðu hefndar-
skyni sem engar ástæður séu fyrir.
Þau hjónin hafi þvert á móti sýnt
sjúkri dóttur allan sinn stuðning í
hvívetna, en hafi af sjúkum huga ver-
ið talin bera ábyrgð á öllum sjúk-
dómnum og afleiðingum hans. Þess-
ar ásakanir hafa m.a. orðið til þess,
að margir vinir og kunningjar þeirra
hjóna hafa ekki talið á annað hætt-
andi en að slíta gömlum vinskap við
þau, margir samferðamenn snúið við
þeim baki, margir samtíðarmenn
gert ásakanirnar annarra að sínum.
Tekið undir. Þessi saga er um afleið-
ingar hatursherferðar og óttans,
sem hún vekur hjá samferðamönn-
um um að taki þeir ekki undir þurfi
þeir að sæta þess hins sama. Ofsókn-
ar sama hóps, níðs hans og illmælgi.
Ákæra – loksins!
Tvisvar sinnum hafa allar þessar
ásakanir verið sendar ákæruvaldinu
í viðkomandi landi. Niðurstaðan hef-
ur verið sú hin sama. Að mati ákæru-
valdsins engin ástæða til málshöfð-
unar. Slíkri kæru var líka vísað frá af
ákæruvaldinu á Íslandi. Engin
ástæða fannst fyrir ákæru. Eitt
þessara mála hefur verið sent
ákæruvaldinu í tveimur löndum.
Ákæruvaldinu á Spáni. Þar var mál-
inu vísað frá. Engin ástæða talin til
ákæru. Það sama mál var líka sent
ákæruvaldinu á Íslandi. Ákæruefnið:
Að Jón Baldvin Hannibalsson hafi
strokið konu um rassinn – utan
klæða.
Sigur unninn?
Fjórar konur hafa haft beina að-
komu að rannsókn og meðferð máls-
ins. Ólöf Heiða Guðmundsdóttir, lög-
fræðingur ákærandans, Carmenar
Jóhannesdóttur, sem bar fram hinar
alvarlegu sakir um strok um rass, ut-
anklæða. Kolbrún Benediktsdóttir,
yfirmaður rannsóknardeildar kyn-
ferðisafbrota, sem hefur nú rann-
sakað þetta alvarlega mál í tvö ár.
Anna B. Andradóttir, varasaksókn-
ari, sem ákvað svo að stefna Jóni
Baldvin fyrir rétt fyrir þessar alvar-
legu sakir. Í viðtali við
fjölmiðla í dag segir sú,
sem sakirnar ber, Car-
men Jóhannesdóttir, að
með ákærunni, sem
þessir framansögðu
fjórir hafa saman staðið
að, hafi ákærendur
Jóns Baldvins Hanni-
balssonar unnið stór-
sigur. Ákæruna, máls-
meðferðina, álítur sá,
sem kærði, stórsigur
fyrir alla þá, sem borið
hafa þau hjón þungum
sökum – þ.á m. þá, sem sakað hafa
þau hjónin um kynferðislega mis-
notkun á dætrum sínum og dótt-
urdóttur. Niðurstaða réttarhaldanna
skipti ekki máli. Sigurinn sé unninn.
Alveg eins og ákærendur hafa talið
að sigurinn sé að vinnast þegar aðrir;
vinir, samstarfsmenn og samferða-
menn, lúta ákærunni, illnælginni og
níðinu og apa það jafnvel eftir.
Loksins, loksins
Þessi ákæra þar sem engin slík
hefur áður fram komið af öllum þeim
ásökunum, sem á þeim hjónum hefur
dunið, gefur okkur áhorfendum hins
vegar tækifæri, sem við höfum ekki
áður haft. Málið verður lagt fyrir
dómstóla. Þar verða sakargiftir ann-
aðhvort sannaðar – eða ef þær verða
ekki sannaðar þá verða þær hraktar.
Löngu er kominn tími til þess, að ill-
mælgi og níð af því tagi, sem á þau
hjónin hefur verið borið og fjalla um
verstu hliðar mannlegrar sálar fái þá
umfjöllun sem þeim ber í réttarríki.
Að slíkt níð sé lagt fyrir dómstóla og
sannað – sé það satt – en hrakið ella.
Sigurinn er ekki unnin, Carmen Jó-
hannesdóttir og Aldís Schram. Sig-
urinn verður ekki unninn í svona
máli nema fyrir dómstólum þar sem
ykkur gefst kostur á að færa heim
sannir um grófar ásakanir ykkar.
Því myndi ég ekki fagna ákærunni
sem sigri heldur bíða úrslitanna.
Aftur og enn
Það hefur svo sem áður gerst, að
samtakamáttur um illmælgi, ósann-
ar ákærur, níð og rangsleitni hafi
orðið þess valdandi, að saklaust fólk
hafi orðið fyrir ofsóknum, vinslitum,
afneitun samborgara og hörmung-
um, jafnvel af ákæruvaldinu í eigin
landi. Þær ásakanir voru aldrei lagð-
ar fyrir neina dómstóla. Aldrei nein-
ar sönnur færðar. En kristalsnóttin
er enn í minningu minnar kynlóðar.
Eru það þau örlög, sem þið, ásak-
endur, vilduð að biði þeirra hjóna,
Bryndísar og Jóns Baldvins? Önnur
kristalsnótt – í öðru landi og á haust-
dögum mörgum áratugum síðar?
Kristalsnóttin
endurvakin?
Eftir Sighvat
Björgvinsson
Sighvatur
Björgvinsson
» Ásakanirnar
gegn Bryndísi
og Jóni Baldvin.
Höfundur er fv. ráðherra.
Nú eru undarlegir
tímar og ýmsar blikur
á lofti. Umhverfisvá
sem síðasta misserið
hefur kristallast í
COVID, ofurvald stór-
fyrirtækja sem eiga
fátt skylt við það sem
einu sinni var kallað
kapítalismi, vaxandi
völd popúlískra ein-
ræðisdólga sem níðast
á minnihlutahópum og ýmissa lukk-
uriddara sem ala á sundrungu og
jafnvel mannhatri en klæða það
stundum í sauðargærur hugmynda
með fræðilegt yfirbragð.
Um leið hefur lýðræðið staðnað í
kapphlaupi lukkuriddara, hags-
munapotara og velmeinandi hug-
sjónafólks sem á það til að leiðast
afvega. Þegar beita þarf valdi og
greiða hagnaði og hagsmunum og
valdakerfum leið eru lagabókstafir
túlkaðir jafnbókstaflega og hjá
sótsvörtustu bókstafstrúarsöfn-
uðum enda auðvelt að kaupa til
þess lögfræðinga og kunnáttusamt
PR-lið. Lýðræði er, eins og hug-
takið gefur til kynna, annað og
meira en atkvæðavægi á fjögurra
ára fresti. Það ætti kannski fyrst
og fremst að vera viðleitni til að
nálgast almannavilja og verja fólk
gegn misbeitingu valds, og leiðir til
samkomulags um hvernig ná megi
þeim markmiðum.
Lýðræði verður að þróast og
breytast með sam-
félaginu, í átt að al-
mannaheillum, með
því að efla og virkja
breiðari hópa sam-
félagsins. Og ljós-
glætur leynast víða.
Drjúgur hluti verka-
lýðshreyfingarinnar er
farinn að brýna klærn-
ar með glæsilegum
hætti, öflugri og oft
ögrandi baráttu sem
byggist á víðtækari
þátttöku, ekki síst
hópa sem varla hafa átt raddir fyrr
svo alvöruþrungið ramakvein valda-
stéttanna og þjóna hennar kveður
nú við. Greta Thunberg er eitt
merkilegasta kraftaverk okkar
tíma, litla mjóslegna stelpan sem
berst gegn loftslagsvánni af þvílíku
afli að hriktir í valdastoðum. Sjálfs-
prottin almannasamtök af ýmsu
tagi eru mikilvægari en nokkru
sinni fyrr. Og fyrir nærri áratug
var blásið til þjóðfundar 6. nóvem-
ber árið 2010 þar sem stórt úrtak
almennings, 950 manns, tók þátt og
mótaði í sameiningu mikilvægustu
gildi samfélagsins sem reyndust
allt önnur en þau sem valdakerfin
hafa haldið á lofti. Á þeim grunni
var blásið til stjórnlagaþings þar
sem kjörnir fulltrúar úr hópi al-
mennings smíðuðu tillögur að nýrri
stjórnarskrá sem afhent var forseta
alþingis 27. júlí árið 2011 og lands-
menn samþykktu í þjóðaratkvæða-
greiðslu 20. október árið 2012.
Þessi leið vakti athygli víða um
heim. Þá risu upp þjónar valdsins,
vopnaðir lagabókstöfum og með
hjálp bókstafstúlkunar á lögum
frekar en umhyggju fyrir almanna-
heillum tókst að stöðva þennan fer-
il nýrrar og framsækinnar stjórn-
arskrár.
Síðan hafa sömu valdakerfi
flækst fyrir nýrri stjórnarskrá á al-
þingi með aðstoð nytsamra sakleys-
ingja og nú er verið að sulla saman
einhverri útvötnun sem landsfeður
mæra með jólalegum svip.
Það gengur ekki.
Við eigum drög að stjórnarskrá
sem verður að ljúka við. Hún mun
ekki sjálfkrafa breyta samfélaginu
en þó er stöðugt verið að benda á
ýmsa óhæfu sem hún hefði getað
komið í veg fyrir. En nýja stjórn-
arskráin er lykilatriði í því að þróa
lýðræði þar sem æ fleiri fá rödd,
þar sem lifna á blaði þær hug-
myndir sem hversdagsfólk hefur
mótað um fagurt mannlíf og sam-
band við náttúru. Hún er, ásamt
endurlífgaðri verkalýðsbaráttu,
vaxandi umhverfishreyfingu og fjöl-
breyttum grasrótarsamtökum, öfl-
ugt og óhemju mikilvægt viðnám
við þeirri óheillaþróun popúlisma,
valdníðslu, veldis stórkapítals og
mistæks ríkisvalds sem drepið var
á í upphafi.
Það er lífsspursmál að ljúka því
verki sem hafið var með þjóðfund-
inum og koma í veg fyrir þá út-
vötnun sem nú er í gangi. Fyrir því
þarf að berjast og fólk getur stutt
við þá baráttu með því að skrifa
hér undir:
https://nystjornarskra.is/
Stjórnarskrá og
undarlegir tímar
Eftir Viðar
Hreinsson »Ný stjórnarskrá er
öflugt og mikilvægt
viðnám við óheillaþróun
popúlisma, valdníðslu,
veldis stórkapítals og
mistæks ríkisvalds.
Viðar Hreinsson
Höfundur er bókmenntafræðingur
og rithöfundur.
vidar@akademia.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Þegar hringt er í Landsbankann býður karl-
mannsrödd mann velkominn, en ryður síðan út úr
sér upplýsingum um bankann og þjónustu hans
fyrst á íslensku, síðan á ensku. Svo kemur tónlist,
en þá kemur röddin aftur með nýjar tilkynningar
og nú um netbankann, netspjallið og netpóstinn,
en segir síðan, að maður geti skilið eftir nafn og
símanúmer, og þjónustufulltrúarnir muni hringja
til manns eins fljótt og auðið er. En til hvers er
verið að segja fólki þetta, þar sem þetta gefur enga raun? Ég ákvað að prófa
þetta einu sinni, og beið heilan dag, án þess að væri nokkurn tíma hringt til mín,
og aldrei var netspjalli ansað heldur, og var þetta þó á þeim tíma, sem full starf-
semi var í gangi í bankanum andstætt því, sem nú er á þessum síðustu og verstu
tímum. Nú veit ég ekki, hvort útlendingum er frekar ansað en okkur íslensku
fastakúnnunum, en ég skil ekki, hvað verið er að auglýsa svona þjónustu, þegar
hún virkar greinilega ekki. Ég vildi því beina þeim vinsamlegu tilmælum um að
losa okkur við þetta raus og mas, meðan beðið er.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Óþarfa raus og mas meðan beðið er
Bið „Þú ert númer 17 í röðinni.“