Morgunblaðið - 09.09.2020, Síða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020
„EFTIR KVARTANIR VORU
YFIRHEYRSLUAÐFERÐIR MILDAÐAR –
KANNSKI FULLMIKIÐ.”
„VIÐ HÖFUM VERIÐ HAMINGJUSAMLEGA
GIFT Í TVÖ ÁR — 2007 OG 2009.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann sendir
þér réttu lyndistáknin.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞÚ ERT HEPPIN AÐ VIÐ
EIGUM EKKI KÖTT!
EKKI SATT,
GRETTIR?
ÆTLUM VIÐ AÐ
FÁ OKKUR
KÖTT?
FÉLAGAR, ÞIÐ ERUÐ HUGRÖKKUSTU
VÍKINGAR Í ÖLLUM HEIMINUM!
ÞURFTIR ÞÚ AÐ SEGJA ÞETTA ÞEGAR ÞEIR
STÓÐU OG BIÐU Í RÖÐ EFTIR KVÖLDMATNUM?
ERU EKKI ALLIR
BARA HRESSIR?
sem margir þekkja úr aðalhlutverk-
inu í Rocky Horror Picture Show
bar Lindu mjög vel söguna þegar
hann sagði að „Guð er til og hún
klæðir mig daglega“.
Þegar Linda er spurð hver hafi nú
verið mesti sjarmörinn af þessum
kvikmyndaleikurum nefnir hún
George Clooney og eins Brad Pitt
sem hafi báðir verið skemmtilegir og
ekki með neina stjörnustæla.
Linda var að vinna við sjónvarps-
þættina Castle Rock fyrir sjón-
varpsveituna Hulu, en þættirnir
voru teknir upp í Boston síðustu tvö
árin. „Núna er ég að fara til Boston
að vinna við þætti fyrir AMC-
sjónvarpsstöðina.“ Hún segir að hún
hafi saknað Íslands meira síðustu
árin. „Mamma dó árið 2012 og þá
ákvað ég að kaupa íbúð á Íslandi því
ég vildi vera meira með pabba og
fjölskyldunni. Þá er bara spurningin
hvort ekki sé hægt að fá vinnu hér-
lendis.“
Fjölskylda
Linda var gift Steinþóri Stef-
ánssyni tónlistarmanni, f. 10.11.
1961, d. 28.2. 1988. Þau skildu.
Seinni eiginmaður hennar var Jeff-
rey Sanford Krones, f. 26.2. 1967,
listamaður. Þau skildu. Systkini
Lindu eru Björk, f. 28.2. 1962,
fulltrúi (License Operations) hjá LS
Retail, og hún býr í Garðabæ. Bróðir
Lindu er Jón Páll, f. 10.7. 1963,
framkvæmdastjóri í Noregi. Móðir
Lindu var Guðlaug Jónsdóttir, f.
3.11. 1937, d. 5.12. 2012. Seinni mað-
ur hennar var Tómas Einarsson, f.
10.11. 1929, d. 12.2. 2006. Faðir
Lindu er Garðar Svavar Hannesson,
f. 15.2. 1934, fv. pípulagningameist-
ari í Hafnarfirði. Seinni kona hans er
Jóhanna Gísladóttir, f. 24.2. 1940.
Linda Garðar
Anna Jónasdóttir
húsfreyja í Skjaldarbjarnarvík
Guðjón Kristjánsson
bóndi í Skjaldabjarnarvík
á Ströndum
Pálína Sigurrós Guðjónsdóttir
húsfreyja í Munaðarnesi á Ströndum
Guðlaug Jónsdóttir
póststarfsmaður í Hafnarfi rði og Reykjavík.
Jón Jens Guðmundsson
bóndi í Munaðarnesi á Ströndum
Guðlaug Jónsdóttir
húsfreyja á Munaðarnesi
Guðmundur Gísli Jónsson
bóndi á Munaðarnesi
Ástríður Sigríður Brandsdóttir
húsfreyja í Reykhólasókn
Björn Björnsson
bóndi og járnsmiður
í Reykhólasókn
Valgerður Björnsdóttir
húsfreyja í Hnífsdal
Hannes Ólason
verkamaður í Hnífsdal
Guðrún Þórðardóttir
húsfreyja á Ísafi rði
Óli Hannesson
sjómaður á Ísafi rði við Skutulsfjörð
Úr frændgarði Lindu Garðar
Garðar Svavar Hannesson
pípulagningameistari í Hafnarfi rði
Páll Jónasson í Hlíð á Langanesirekur „Sólskríkjuraunir á
Súlubar“:
Hann kráku frá Kráká þar hitti
hún var kolsvört með gullspöng um
mitti,
svo hann breiddi út sitt stél,
og bauð henni vel,
en hún vildi ekki snjótittlingstitti.
Helgi R. Einarsson sendi póst og
lét þess getið, að landlæknir í Kan-
ada hefði varað við of miklu sam-
neyti kynjanna vegna veirunnar.
Sem ógnvald sumir sjá ’ða.
Sig menn spyrja. Má ’ða?
Í veiruvá
er vert að spá.
Því frestum því að fá ’ða.
Rétt er að sýna „Tillitssemi“:
Trygglynda stúlkan hún Tara
tók sér Pétur til vara,
sem ku stafa af því,
að komist í frí,
karlinn hægt væri’ að spara.
Pétur Stefánsson sendi mér
gamlar vísur, sagðist hafa fundið
þær í gamalli stílabók og gefur
þessar skýringar: „Úr síðustu ferð
minni í Sléttuhlíð í Skagafirði fyrir
nokkrum árum þá stóð ég við
gamla ættaróðalið að Keldum.
Þessar vísur urðu til er ég leit yfir
sviðið:
Hlíðin er fögur og himneskt er svið
með haustlegu litamynstri.
Blasir mér Heiðarhyrnan við
horfi ég ögn til vinstri.
Til hægri blasir margt við mér,
– magnast sveita skjallið –
afar fagurt augað sér
Arnarstaðafjallið.
Hér gefur Pétur þá skýringu, að
á milli þessara fjalla séu Miðhóls-
fjall, Breiðafjall og Tungufjall.
Lengra til hægri frá Keldum séð
sést í Róðhólshnjúk og Skálahnjúk.
Næstu stöku skýrir Pétur svo, að
„vatnið með veiði afar góða“ sé
Sléttuhlíðarfjall.
Svo er þarna vatnið vænt,
með veiði afar góða.
Lækir, þúfur, grasið grænt
sem gleðja skáldið fróða.
Á Boðnarmiði yrkir Hallmundur
Guðmundsson fallegt „Kvöldverð-
arljóð“:
Á hungri varð að lokum lát,
ligg að fullu mettur.
Í kvöld ég linnulítið át;
lambakótelettur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Samneyti kynjanna
og fjöllin í Sléttuhlíð