Morgunblaðið - 09.09.2020, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2020
Handknattleikssamband Íslands
hleypti af stokkunum átakinu
„Breytum leiknum“ í gær þar sem
markmiðið er að fjölga stúlkum í
íþróttinni og þá sérstaklega að fá
ungar stúlkur til að hefja æfingar.
Á vef HSÍ segir að markmiðið með
átakinu sé að bæta ímynd kvenna-
handboltans og landsliðsins og fá
fleiri ungar stelpur til að byrja að
æfa handbolta og stunda íþróttina
lengur. Bent er á að fjórtán ára
stúlkur séu tvisvar sinnum líklegri
til að hætta í íþróttum en strákar.
Nánar um átakið á hsi.is.
Átak til að
fjölga stúlkum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brottfall HSÍ freistar þess að halda
stúlkum lengur í handboltanum.
Helgi Kolviðsson fagnaði í gær-
kvöld sínum fyrsta sigri sem lands-
liðsþjálfari Liechtenstein í knatt-
spyrnu. Liechtenstein sótti San
Marínó heim í D-deild Þjóðadeildar
UEFA og sigraði 2:0. Þetta var
fyrsti leikur Liechtenstein í keppn-
inni en þriðja lið riðilsins er Gíbr-
altar sem vann San Marínó 1:0 í
fyrsta leiknum. Þetta var ellefti
leikur liðsins undir stjórn Helga en
það fékk tvö stig í undankeppni EM
á síðasta ári. Þetta var jafnframt
fyrsti sigur Liechtenstein í mótsleik
á útivelli í sex ár.
Helgi fagnaði
fyrsta sigrinum
Morgunblaðið/Eggert
Áfangi Tímamót urðu hjá Helga
Kolviðssyni í gærkvöldi.
Afturelding er með fína breidd, frá-
bæra varnarmenn, öflugan mark-
mann og mörg ólík sóknarvopn. Sé
varla hvernig þetta á að klikka,
nema þeir nái ekki einfaldlega ekki
takti sem lið. Þetta er jú liðssport.
ÍBV
Þrátt fyrir að vera hálfskyttulaus-
ir og ekki alveg jafn vel mannaðir
og áður reikna ég með ÍBV mjög
sterkum enda með besta heimavöll-
inn í deildinni og fullt af frábærum
leikmönnum. Ég er sérstaklega
spenntur að sjá hvernig frábærir
þjálfarar liðsins eiga eftir að leysa
varnarleikinn í vetur, þar sem bæði
Magnús Stefánsson og Elliði Snær
Viðarsson eru horfnir á braut en
þeir félagar hafa verið algjörir lyk-
ilmenn í þessari ótrúlegu ÍBV-vörn.
Selfoss
Selfoss er eitt af mínum uppá-
haldsliðum í deildinni. Klúbburinn
vinnur eftir frábærum gildum og
leikmennirnir í liðinu eru svo heilir í
því sem þeir eru að gera að það er
ekki hægt annað en hrífast með. Ég
sé þá verða í hálfgerðu miðjumoði í
vetur og á ekki von á að þeir geti
strítt toppliðunum en það má hins-
vegar aldrei afskrifa Selfyssinga.
Það hafa þeir sýnt okkur ítrekað.
Stjarnan
Stjörnumenn mæta til leiks með
son Garðabæjar, Patrek Jóhann-
esson, við stýrið og svakalega öfl-
ugan og spennandi leikmannahóp.
Þeir eiga svo sannarlega séns í að
eiga gott mót, sérstaklega ef þeir fá
góða markvörslu. Ég vona hins-
vegar fyrst og fremst að þeir nái
upp stemningu og gleði í sínu
bæjarfélagi og rífi handboltann al-
mennilega upp í Garðabænum.
Fram
Það verður spennandi að sjá liðið
í vetur undir stjórn Sebastians Al-
exanderssonar. Mér fannst Guð-
mundur Pálsson ná frábærum
árangri með liðið síðastliðin ár, þar
sem hann bjó til svakalegt stemn-
ingslið sem var rosalegt erfitt við að
eiga. Það hafa orðið töluverðar
breytingar á liðinu og því er það
smá spurningarmerki. En það kæmi
mér á óvart ef Framliðið yrði í ein-
hverri fallbaráttu og vonandi ná
þeir að berjast um úrslitakeppn-
issæti.
KA
Eftir frekar erfiðan vetur í fyrra
hafa mínir menn fyrir norðan spýtt
aðeins í lófana og mæta með feiki-
sterkt lið til leiks. Með þennan leik-
mannahóp og frábært stuðningsfólk
á pöllunum kæmi mér ekki á óvart
ef þeir myndu narta í hælana á
toppliðunum. Það sem ég óttast
mest fyrir þeirra hönd er breiddin
og svo væri ég til í að sjá þá lækka
aðeins spennustigið hjá sér og halda
betur haus í gegnum leikina.
Þór
Ég reikna með Þórsurunum í
svipuðum pakka og ÍR og Gróttu.
Það sem Þór hefur hinsvegar fram
yfir þau tvö lið er erfiður heimavöll-
ur og ef þeim tekst að búa til öfluga
stemningu í Höllinni gætu þeir
kannski haldið sér uppi.
ÍR
Mínir menn í ÍR mæta með alveg
glænýtt lið til leiks og ljóst að vet-
urinn verður þeim erfiður. Það verð-
ur algjört lykilatriði hjá þeim að ná
góðum úrslitum til að byrja með og
ná í stig á móti liðum eins og Gróttu
og Þór, til þess að sleppa við fall.
Grótta
Gróttumenn eru búnir að sækja
ansi mikið af leikmönnum, eina níu
talsins, marga hverja ansi góða. Nú
er pressa á þjálfaranum, Arnari
Daða Arnarssyni, að slökkva á
hljóðnemanum í Handkastinu og
sýna úr hverju hann er gerður. Það
væri gaman að sjá Gróttu eiga gott
tímabil og halda sér uppi, nokkuð
sem ég sé alveg gerast.
Ógnarsterkir Haukarnir
gætu rúllað deildinni upp
Bjarni Fritzson telur Val, FH og Aftureldingu líka tilbúin í toppslaginn í vetur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Líklegir Atli Már Báruson úr Haukum og Anton Rúnarsson úr Val verða í
toppbaráttunni með sínum liðum í vetur ef að líkum lætur.
HANDBOLTINN
Bjarni Helgason
Víðir Sigurðsson
Bjarni Fritzson, fyrrverandi lands-
liðsmaður í handknattleik og þjálf-
ari ÍR undanfarin ár, telur Hauka
afar sigurstranglega á Íslandsmóti
karla í handknattleik í vetur en
keppni í Olísdeild karla hefst annað
kvöld.
Valur, FH og Afturelding geti þó
öll veitt Haukum harða keppni og
ljóst sé að þau stefni öll á toppinn á
komandi keppnistímabili.
Grótta, ÍR og Þór séu hinsvegar
þau þrjú lið sem líklegast sé að
verði í erfiðri fallbaráttu, þar sem
heimavöllur Þórsara geti gert gæfu-
muninn.
Hér á eftir eru umsagnir Bjarna
um liðin tólf í deildinni og þeim er
raðað upp samkvæmt spánni fyrir
deildina sem birt var í fyrradag.
Valur
Valsarar mæta líkt og áður afar
öflugir til leiks og stefna pottþétt á
að vinna titilinn sem þeir ætluðu sér
að ná í í fyrra. Mér sýnist líka fullt
af hrikalega ungum og efnilegum
leikmönnum fá tækifæri hjá þeim í
vetur, sem mér finnst afar ánægju-
legt. Ég hef hinsvegar áhyggjur af
markvörslunni hjá þeim og það
kæmi mér reyndar ekkert á óvart
að sjá Hreiðar Levý á parketinu
þegar líður á tímabilið.
Haukar
Haukarnir eru ógnarsterkir og
sagan segir okkur það að þeir eigi
eftir að rúlla upp þessari deild.
Enda man ég varla eftir því að Aron
Kristjánsson hafi þjálfað liðið án
þess að hafa orðið Íslandsmeistari.
Ekki veikan blett að finna á þessu
liði og það þyrfti bara eitthvað ótrú-
legt að gerast til þess að Haukarnir
muni ekki gera alvörutilkall til að
vinna þetta allt saman.
FH
FH-ingar skarta nánast sama liði
og í fyrra, sem vinnur klárlega með
þeim í byrjun móts. Þeir ættu að
geta byggt ofan á það sem þeir voru
að gera í fyrra og mætt í góðum
takti inn í mótið. Ég reikna með
þeim við toppinn og FH-ingar ættu
klárlega að geta orðið Íslandsmeist-
arar. Það eina sem ég sé að gæti
skemmt möguleika þeirra er ef lyk-
ilmenn liðsins fara að meiðast.
Afturelding
Mosfellingar fóru mikinn á leik-
mannamarkaðinum fyrir þetta tíma-
bil og ljóst að þeir ætla sér harða at-
lögu að titlinum. Ef allt er eðlilegt
verða þeir í hópi fjögurra efstu liða
og gætu að mínu mati unnið mótið.
Sjö íslenskir handboltamenn sem hafa leikið erlendis undanfarin ár spila
með liðum í Olísdeild karla á komandi tímabili og fjórir þeirra koma frá
Danmörku. Haukar fengu landsliðsmarkvörðinn Björgvin Pál Gústafsson
frá Skjern og línumanninn Þráin Orra Jónsson frá Bjerringbro-
Silkeborg. KA fékk skyttuna og varnartröllið Ólaf Gústafsson og horna-
manninn Árna Braga Eyjólfsson frá Kolding. ÍBV fékk miðjumanninn
Sigtrygg Daða Rúnarsson frá Lübeck-Schwartau í Þýskalandi, Geir Guð-
mundsson er kominn til Hauka frá Cesson-Rennes í Frakklandi og Guð-
mundur Hólmar Helgason er kominn til Selfyssinga frá West Wien í
Austurríki.
Sjö eru komnir frá útlöndum
Þjóðadeild UEFA
A-deild, 2. riðill:
Belgía – Ísland.......................................... 5:1
Danmörk – England................................. 0:0
Staðan:
Belgía 2 2 0 0 7:1 6
England 2 1 1 0 1:0 4
Danmörk 2 0 1 1 0:1 1
Ísland 2 0 0 2 1:6 0
A-deild, 3. riðill:
Frakkland – Króatía ................................ 4:2
Svíþjóð – Portúgal .................................... 0:2
Portúgal 6 stig, Frakkland 6, Svíþjóð 0,
Króatía 0.
C-deild, 1. riðill:
Kýpur – Aserbaídsjan.............................. 0:1
Lúxemborg – Svartfjallaland.................. 0:1
Svartfjallaland 6 stig, Lúxemborg 3,
Aserbaídsjan 3, Kýpur 0.
C-deild, 2. riðill:
Armenía – Eistland .................................. 2:0
Georgía – Norður Makedónía ................. 1.1
Norður-Makedónía 4 stig, Georgía 4, Ar-
menía 3, Eistland 0.
D-deild, 2. riðill:
San Marínó – Liechtenstein ................... 0:2
Helgi Kolviðsson þjálfar lið Liechten-
stein.
Liechtenstein 3 stig, Gíbraltar 3, San
Marínó 0.
EM U21 karla
1. riðill:
Lúxemborg – Armenía............................. 2:1
Svíþjóð – Ítalía.......................................... 3:0
Staðan:
Írland 7 5 1 1 12:3 16
Ítalía 6 4 1 1 15:3 13
Ísland 6 4 0 2 11:9 12
Svíþjóð 6 3 0 3 13:8 9
Armenía 7 1 0 6 4:17 3
Lúxemborg 6 1 0 5 2:17 3
Katar
Al Ahli Doha – Al-Arabi.......................... 2:0
Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Al-
Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið
sem er með eitt stig eftir tvær umferðir.
Noregur
B-deild:
Lilleström – Ranheim ............................. 3:1
Björn Bergmann Sigurðarson fór af velli
á 61. mínútu hjá Lilleström sem er í 5. sæti
en Arnór Smárason lék ekki með.
KFUM Ósló – Tromsö ............................. 1:1
Adam Örn Arnarson lék ekki með
Tromsö sem er efst í deildinni.
Svíþjóð
Bikarkeppnin, 2. umferð:
Norrstrand – Mallbacken ....................... 4:0
Kristrún Rut Antonsdóttir var í byrjun-
arliði Mallbacken.
Danmörk
Skjern – Skanderborg ........................ 28:31
Elvar Örn Jónsson skoraði 7 mörk fyrir
Skjern og átti 3 stoðsendingar.
Ringsted – SönderjyskE..................... 26:28
Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir
SönderjyskE.
Evrópudeild karla
Dregið til 2. umferðar:
Holstebro – Rhein-Neckar Löwen
Azoty Pulawy – Kristianstad
GOG – Pfadi Winterthur
Skjern – Montpellier
Dobrogea Constanta – Sporting Lissabon
Benidorm – AON Fivers
Bjerringbro-Silkeborg – CSKA Moskva
Potaissa Turda – Toulouse
Bidasoa Irun – Nexe
Metalurg Skopje – Kriens-Luzern
Gyöngyösi – Füchse Berlín
Trimo Trebnje – Balatonfüredi
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Toronto – Boston................................ 89:111
Staðan er 3:2 fyrir Boston.
Vesturdeild, undanúrslit:
Denver – LA Clippers...................... 107:113
Staðan er 2:1 fyrir Clippers.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Meistaravellir: KR – ÍBV ......................... 17
Jáverksvöllur: Selfoss – Valur ................. 17
Kaplakriki: FH – Fylkir ........................... 17
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Þór/KA ..... 18
Kópavogsv.: Breiðablik – Stjarnan..... 19.15
2. deild karla:
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Kórdrengir ...... 17
Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir – Völsungur .. 17
Rafholtsv.: Njarðvík – Fjarðabyggð .. 17.15
Nesfiskvöllur: Víðir – Selfoss .............. 17.15
Hertz-völlur: ÍR – Þróttur V ............... 17.15
Akraneshöll: Kári – Haukar..................... 20
Í KVÖLD!