Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Þetta kemur nú bara til af æv-intýraþrá og löngun eftirnýjum áskorunum, en égfór fyrir fjórum árum
ásamt hópi af frábæru fólki í hesta-
ferð hringinn í kringum Vatnajökul.
Sennilega var það ein lengsta hesta-
ferð sem farin hefur verið með skipu-
lagðan hóp af erlendum ferðamönn-
um, þúsund kílómetra reið á 24
dögum. Í þeirri ferð fórum við
austurhlutann af Íslandi og þar sem
mig hefur alltaf langað til að ríða um
Vesturland og Vestfirði, þá ákvað ég
að teikna upp þessa nýju risaferð í
vor ekki síst til að hressa við and-
rúmsloftið og sína smá lífsmark og
bjartsýni í allri þokunni sem umlukti
ferðaþjónustuna í vor. Við ætlum að
fara þessa mögnuðu ferð sumarið
2021 og loka þannig hringnum í
kringum landið,“ segir Bjarni Páll
Vilhjálmsson sem ásamt fjölskyldu
sinni er með mikla hestaferðaútgerð
á bænum Saltvík í S-Þingeyjarsýslu.
„Við gefum okkur um 50 daga til
að ríða þessa leið sem er um 1.500
kílómetrar og mikil útgerð og skipu-
lag sem fylgir framkvæmdinni. Þetta
verður ákveðin prófraun á bæði hesta
og fólk. Ég er nokkuð viss um að ekki
hefur áður verið farinn svona mikill
leiðangur á Íslandi með ferðamenn á
hestum. Við verðum með 60 til 70
hesta og þeir verða allir sérvaldir og
þrautþjálfaðir og mjög reyndir í lang-
ferðum. Það er mikið atriði í svona
ferð að vera með öfluga fullorðna
hesta sem hafa margra ára reynslu af
hestaferðum. Þessi íslenski ferða-
hestur er í raun sérstök gerð af hesti,
þegar hann er kominn í sitt besta
stand, tíu til tólf vetra og búinn að
hlaupa um hálendið og kynnast alls-
kyns torfærum, veðráttu og að-
stæðum. Slíkir hestar þurfa að vera
fótvissir, sterkir, traustir og kjark-
aðir í fjölbreyttu landslagi og slíkt
kemur fyrst og fremst með reynslu
og aldri hestanna.“
Spenntur fyrir Vestfjörðum
Bjarni segir að þau skipti ferð-
inni upp í sex hluta og fólk geti þá
keypt sig inn í ferðina í staka áfanga.
„Við gerum í raun ráð fyrir að
það sé að mestu nýtt fólk í hverjum
hluta ferðarinnar. Við verðum með
tólf til fimmtán manns í einu í hverj-
um legg. Í heildina munu því um 100
reiðmenn taka þátt í ævintýrinu að
leiðsögumönnum meðtöldum,“ segir
Bjarni og bætir við að reynslan úr
fyrri langferðum komi sér vel við
skipulagninguna og ekki síst
reynslan af stóru ferðinni um
Vatnajökul þar sem sumar
dagleiðir urðu mun
lengri en til stóð af
ýmsum ástæðum, og
álagið varð þvi mikið á
hesta og menn þó að allt hafi
gengið vel og allir komið
heilir heim.
„Í þessari ferð förum
við heldur hægar yfir og gefum hest-
unum góðan hvíldartíma milli
leggja. Fyrsti áfanginn er 9 daga
ferð frá Saltvík yfir hálendið um
Sprengisand. Að því loknu hvíl-
um við hestana í uppsveitum Árnes-
sýslu. Leggur tvö er léttari sveitaferð
í byggð, riðið um Laugardalinn og
Þingvöll og við endum í uppsveitum
Borgarfjarðar. Næst kemur Vestur-
landið þar sem við ríðum m.a. um
Snæfellsnesið og Löngufjörur og
endum í Búðardal. Þar á eftir tekur
við heljarinnar leiðangur á Vestfirð-
ina sem ég er mjög spenntur fyrir
enda aldrei riðið þar um áður og
reyndar ekki heldur Vesturlandið.
Svo þetta svæði er nýtt fyrir mér og
ákveðin áskorun. Vestfjarðaleggur-
inn verður tólf daga ferð, lengsta
ferðin innan þessarar hringferðar og
nú þegar uppselt í þann hluta,“ segir
Bjarni og bætir við að allt séu það er-
lendir ferðamenn sem hafi bókað sig í
þá ferð.
„Allnokkrir góðir félagar sem
hafa riðið með mér í gegnum tíðina á
hestaferðum ætla að slást í hópinn
einhverja daga og hjálpa til og hugs-
anlega kemur íslenskur kvennahópur
inn í lokaáfangann.“
Ákveðin pílagrímsför
Bjarni segist hafa verið í sam-
bandi við heimamenn og félaga sína á
nýjum slóðum, til að velja reiðleiðir.
„Sérstaklega vil ég nefna Páll
Svansson vin minn sem hefur verið
mér innanhandar við að skipuleggja
ferðina og alveg lagt upp Vestfjarða-
legginn sem hann þekkir vel. Ég
hlakka mikið til að ríða um þetta stór-
brotna landslag, við förum til dæmis
um Ísafjarðardjúp, Skjaldfannardal
og yfir sporðinn á Drangajökli. Síðan
ríðum við suður eftir Ströndum og
endum á Hólmavík. Að því loknu tek-
ur við áfangi sem endar í Skagafirði
og þaðan kemur svo lokaspretturinn
heim.“
Bjarni leggur mikið upp úr því
að vera sögufróður um þær slóðir
sem riðið er um, hann kynnir sér sög-
una og kryddar sínar hestaferðir
með því að segja frá.
„Ég hef gaman að því að eltast
við slóðir sem eru sögulegar, bæði
frá landnámstíð og sem Íslendingar
hafa ferðast eftir í gegnum aldirnar.
Það er hægt að finna sögur í kringum
flestar leiðir og ýmis ævintýri gerast
á slíkum ferðalögum sem gaman er
að segja meðreiðarfólki frá. Ég
leggst í töluvert grúsk, til dæmis reið
ég með hóp um Flateyjardal um dag-
inn en þar gerist m.a. saga Finnboga
ramma, sem var allra manna hraust-
astur og helsti víkingur og hetja okk-
ar Þingeyinga á söguöld. Hann
hraktist norður á Strandir og endaði
á Finnbogastöðum í Trékyllisvík.
Fyrir mig er það ákveðin pílagríms-
för að ríða hans leið að hluta til næsta
sumar í þessari vesturferð. Ég hef
mjög gaman af því segja sögur sem
hugsanlega hafa gerst á þeim slóðum
sem við förum um, og hleypa þannig
meira lífi í umhverfið.“
Sumarið slapp vel
Bjarni segir að þau í
Saltvík hafi vissulega
fundið fyrir samdrætti
í covid-ástandinu.
„Bandaríkja-
menn sem voru búnir
að bóka sig töluvert
margir hjá okkur í
ferðir, afbókuðu eðlilega
allir , en samt sem áður
náðum við að keyra á ótrú-
lega flott sumar. Við fórum í 11
lengri hestaferðir í júlí og ágúst og
náðum að halda nánast öllum bók-
unum frá Norður Evrópu, Þýska-
landi, Hollandi og löndum þar í
kring. Íslendingar komu töluvert í
dagsferðir hjá okkur og svo fór ég
með nokkra Íslendingahópa í lengri
ferðir í lok sumars, til dæmis frábær-
an kvennahóp sem kallar sig Drottn-
ingarnar sem komu í sína sjöundu
ferð með okkur og söngelska sunn-
anmenn og gleðigjafa sem riðu með
mér áðurnefnda ferð á Flateyjardal,“
segir Bjarni sem fer ekki á fjall í
haust að smala saman sauðfé, því
engar heldur hann kindurnar, en
Saltvíkurfjölskyldan lánar hins vegar
bændum fjölda hesta ár hvert til
smalamennsku í Þingeyjarsýslu
enda þrautþjálfaðir ferðahestar eft-
irsóttir til slíkra starfa.
Eltist við slóðir sem eru sögulegar
Bjarni Páll hefur ásamt
fjölskyldu sinni í Saltvík
teiknað upp 1.500 km
hestaferð um vesturhluta
Íslands næsta sumar.
Ferðin mun taka um 50
daga og fólk getur keypt
sig inn í einstaka áfanga.
Ljósmynd/Einar Sæmundsen
Leiðsögumaður Bjarni glaður á góðum degi í sumar í hestaferð. Hér leiðir hann hópinn upp Gönguskarð, á leið þeirra í Flateyjardal við Skjálfanda.
Ljósmynd/Björn Bússi
Á baki Ferðahestar í langferðum þurfa að vera sterkir og
reyndir. Hér er Bjarni í einni af ótal hestaferðum sínum.
Ljósmynd/Einar Sæmundsen
Sögustund Bjarni nýtur þess að segja samferðafólki
sínu sögur, hér í Flateyjardal í hestaferð í sumar.
Hringferð 2021 Hér má sjá hvar
reiðleiðin mun liggja um landið.
Nánar á heimasíðum
Saltvíkurfjölskyldunnar:
saltvik.is & riding-iceland.com