Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2 Augnlyfting Einstökmeðferð til að lyfta slappri húð á augnsvæði! Áhudfegrun.is máfinna upplýsingar umfleiri tilboð! TILBOÐ í september20% afsláttur af AUGNLYFTINGU Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Ráðherrann fjallar um stjórnmála- manninn Benedikt Ríkharðsson sem kemst í stól forsætisráðherra Íslands eftir spennandi alþing- iskosningar. „Benedikt er leiðtoginn sem við öll þráum, greindur hæfi- leikamaður með hjartað á réttum stað. Vandamálið er bara að sam- hliða því að vera æðsti valdhafi þjóðarinnar heyir hann hressilega baráttu í höfðinu á sér. Hann er nefnilega með geðhvarfasýki. Serí- an er í raun ferðalag hans gegnum ólgusjó pólitíkur og andlegra veik- inda með tilheyrandi drama og sveiflum. Ráðherrann er líka saga aðstandanda manneskju í svo öfga- kenndum aðstæðum, eiginkonu hans Steinunnar sem er eigandi fjölmiðlaveldis, komin úr pólitískri fjölskyldu, sem og aðstoðarkonu Benedikts, Hrefnu,“ segir Björg í viðtali við Morgunblaðið. Hún segir að uppleggið hafi ver- ið að búa til einhvers konar hlið- arveruleika við íslenskt samfélag og hnýta saman stjórnmál og geð- veiki. Þáttunum leikstýra þau Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arnór Pálmi Arnarsson en með að- alhlutverk fara þau Ólafur Darri Ólafsson, Aníta Briem, Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Ásamt Björgu voru þeir Birkir Blær Ingólfsson og Jónas Margeir Ingólfsson í höfundateyminu að þáttunum. Þau byrjuðu að skrifa handritið fyrir 7 árum og því langt ferli frá því að hugmynd mótast þangað til hún er komin á sjón- varpsskjáinn. Björg hefur skrifað tvær bækur, Ekki þessi týpa og Þessi týpa, og það liggur því beinast við að spyrja hver sé munurinn á því að skrifa bók og að skrifa handrit að þáttum. „Stærsti munurinn liggur í því að þegar rithöfundur skrifar bók ræður hún eða hann svo gott sem öllu. Það gerir hins vegar enginn nokkurn skapaðan hlut einn þegar kemur að sjónvarps- skrifum eða vinnslu í sjónvarpi. Þar er maður stanslaust í díalóg við meðhöfunda og framleiðslu eft- ir atvikum, fær nótur, gagnrýni og er stöðugt að endurskrifa. Þess vegna er mjög mikilvægt að læra að skilja egóið eftir fyrir utan höf- undaherbergið og taka gagnrýni ekki persónulega, það er að segja ef maður ætlar ekki að missa vitið í svona ferli,“ segir Björg. Ýmislegt sem Íslendingar kannast við í þáttunum Þegar þau Björg, Birkir og Jón- as skrifuðu handritið leituðu þau að innblæstri úr ýmsum áttum. „Ég var eins og margir dolfallin yfir dönsku þáttunum Borgen sem komu upphaflega út 2010 og fjalla um valdatafl í þarlendum stjórn- málum. Svo má alveg nefna aðrar stórkostlegar seríur á borð við West Wing, Yes Minister og House of Cards sem skvettu bens- íni á þá hugmynd að mögulega væri hægt að búa til sögu sem byggðist á íslenskri stjórnmála- og menningarsögu. Hugmyndin þróaðist síðan og þroskaðist yfir langan tíma í sam- starfi við meðhöfunda mína, Birki Blæ Ingólfsson og Jónas Margeir Ingólfsson. Við leituðum fanga mjög víða, reyndum eftir fremsta megni að kynna okkur geð- hvarfasýki og aðrar andlegar áskoranir í gegnum viðtöl og skrif, skoðuðum ýmsa leiðtoga, bók- menntir og klassísk deilumál Ís- lendinga í gegnum tíðina sem röt- uðu síðan inn í þættina með ólíkum hætti. Í Ráðherranum er sem sagt fullt af dótaríi sem Ís- lendingar munu kannast vel við,“ segir Björg. En hver er fyr- irmyndin að geðveika ráðherranum Benedikt? „Það er ekkert launungarmál að við urðum fyrir áhrifum frá ýms- um leiðtogum varðandi persónu- gerð, sjarma og ákveðin atvik eða mál sem hentu á valdastóli. Í þeim flokki má til dæmis nefna Jónas frá Hriflu, Boris Johnson, Davíð Oddsson, Donald Trump, Kjell Magne Bondevik, Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Winston Churc- hill. Allt finnst mér þetta mjög áhugaverðar persónur. Þetta er auðvitað vaðandi karlagallerí sem endurspeglar að ákveðnu leyti þann veruleika sem við búum við,“ segir Björg. „Íslenskan á það svo feitt skilið að við peppum hana“ Björg hefur sýslað ýmislegt síð- ustu misseri en hún kom að skrif- um að þáttunum Systrabönd sem kláruðust í tökum nú í sumar. Silja Hauksdóttir leikstýrir þáttunum en þættirnir fjalla um skelfilegt leyndarmál sem þrjár konur á fer- tugsaldri hafa burðast með frá unglingsaldri. Þættina skrifaði Björg ásamt Jóhanni Ævari Grímssyni og seinna í ferlinu bætt- ist Jóhanna Friðrika Sæmunds- dóttir við teymið. Björg stýrir einnig þáttunum Morgunkaffið á laugardags- morgnum á Rás 2 ásamt Gísla Marteini Baldurssyni. Síðastliðinn föstudag hófst svo önnur sería af þáttunum Kappsmál. Kappsmál hefur notið mikilla vinsælda en Björg stýrir þáttunum ásamt Braga Valdimar Skúlasyni. „Það er nú enn einn skemmti- garðurinn enda er þar markmiðið að leika okkur með íslenskuna á léttum nótum og fáum við góða keppendur í lið með okkur. Eins og allir vita á íslenskan undir höggi að sækja á þessum síðustu og verstu en einmitt í ljósi þess fögnum við því að fá tækifæri til þess að búa til prógramm sem hef- ur þetta tvíþætta markmið, að skemmta fólki og leika okkur með okkar dásamlega tungumál. Ís- lenskan á það svo feitt skilið að við peppum hana!“ Fyrsti þátturinn af Ráðherranum fer í loftið á RÚV sunnudaginn næstkomandi. Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir, einn höfundanna, segir að Íslend- ingar muni kannast við ýmislegt í þáttunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjórnmál Þorvaldur Davíð Kristjánsson fer með hlutverk í þáttunum. Ráðherrann Ólafur Darri Ólafs- son fer með hlutverk ráðherrans Benedikts Ríkharðssonar. Innblástur Björg, Birkir og Jónas sóttu sér innblástur úr mörgum áttum. „Benedikt er leiðtoginn sem við öll þráum“ Kunnuglegt Björg Magnús- dóttir segir að Íslendingar muni kannast við ýmislegt í þáttunum Ráðherrann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.