Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 62
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Guðrún Brá Björgvinsdóttir at-
vinnukylfingur er í toppbaráttunni
á móti á áskorendamótaröð kvenna
í golfi, Amundi Czech Ladies Chal-
lenge, sem hófst í Prag í Tékklandi
í gær. Guðrún lék fyrsta hringinn á
einu höggi undir pari vallarins, 71
höggi, og deilir áttunda sætinu með
fjórum öðrum kylfingum. Guðrún
sýndi mikinn stöðugleika en hún
fékk þrjá fugla og tvo skolla á
hringnum. Á seinni hringnum lék
hún átta holur af níu á pari. Annar
hringur er leikinn í dag og loka-
hringur á morgun.
Guðrún í topp-
baráttu í Prag
Ljósmynd/GSÍ
Prag Guðrún Brá Björgvinsdóttir
lék vel á fyrsta hringnum.
Afturelding vann mikilvægan sigur
á Þrótti í spennuleik í Laug-
ardalnum í gærkvöldi í næstefstu
deild karla í knattspyrnu. Þrótt-
arar voru 1:0 með marki frá Oliver
Hreiðarssyni á 66. mínútu. Mosfell-
ingar sneru taflinu við með mörk-
um Elvars Vignissonar og Hafliða
Sigurðarsonar á 79. og 85. mínútu.
Afturelding er nú með 18 stig en
Þróttur með 12 stig í 10. sæti. Þar á
milli er Víkingur frá Ólafsvík með
16 stig en Þór vann Víking 1:0 á Ak-
ureyri í gær. Ólafur Aron Pét-
ursson skoraði eina mark leiksins.
Mikilvæg stig
Mosfellinga
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Sigurmark Ólafur Aron Pétursson
skoraði mark Þórsara í gær.
EM KVENNA
Víðir Sigurðsson
Bjarni Helgason
Undankeppni Evrópumóts kvenna í
fótbolta heldur loksins áfram í kvöld
þegar Ísland tekur á móti Lettlandi á
Laugardalsvellinum klukkan 18.45.
Þessi leikur átti að fara fram
snemma í sumar, á eftir útileikjum
gegn Ungverjalandi og Slóvakíu, sem
var hinsvegar frestað fram til mán-
aðamótanna nóvember/desember.
Þá á riðlakeppninni að ljúka og Ís-
land mætir Svíþjóð tvívegis í millitíð-
inni. Á Laugardalsvellinum næsta
þriðjudag og aftur ytra í lok október.
Útbreiðsla kórónuveirunnar setti
stórt strik í undankeppnina og ekki
síður í lokakeppnina sjálfa sem fram
átti að fara á Englandi næsta sumar,
2021, en var frestað um eitt ár og
verður haldin þar í landi sumarið
2022.
Ísland og Svíþjóð hafa bæði unnið
alla sína leiki gegn Ungverjalandi, Sló-
vakíu og Lettlandi og báðar þjóðir eru
með níu stig að loknum þremur um-
ferðum. Ísland vann heimaleikina
gegn Ungverjalandi, 4:1, og Slóvakíu,
1:0, í byrjun september síðasta haust.
Svíar unnu Letta 4:1 og Ungverja 5:1 á
útivöllum og Slóvaka 7:0 á heimavelli.
Einvígi við Svía
Ljóst er að Ísland og Svíþjóð heyja
einvígi um sigur í riðlinum og sæti í
lokakeppninni á Englandi. Sigurlið
riðlanna níu fara beint í lokakeppnina.
Þá komast þrjár þær þjóðir sem ná
bestum árangri í öðru sæti beint í
lokakeppnina. Það er því gríðarlega
mikið í húfi fyrir íslenska liðið að
vinna alla leikina þrjá sem eftir eru
gegn Lettlandi, Ungverjalandi og Sló-
vakíu því það gæti mögulega nægt til
að fara áfram, jafnvel þótt Svíarnir
myndu reynast of sterkir.
Eins gæti skipt öllu máli að fá eitt
stig, hvað þá þrjú, í leikjunum tveim-
ur við Svía. Í þremur öðrum riðlum
undankeppninnar eru tvö lið í sér-
flokki þannig að hvert mark getur
ráðið úrslitum í innbyrðis baráttu um
bestan árangur í öðru sæti.
Þannig eru Ítalir og Danir að slást í
B-riðli, Frakkar og Austurríkiskonur
í G-riðli og Belgar og Svisslendingar í
H-riðli.
Annars umspil á næsta ári
Hafni Ísland í öðru sæti riðilsins og
nái ekki nógu góðum árangri til að
fara beint á EM bíða liðsins tveir um-
spilsleikir á næsta ári. Þar eru tals-
verðar líkur á að andstæðingurinn
yrði úr hópi Belga, Rússa, Walesbúa,
Úkraínukvenna, Finna og Tékka.
Íslensku landsliðskonurnar eru því
einfaldlega á leið í leik í kvöld þar sem
um „skyldusigur“ er að ræða. Þær
sigruðu Lettland á sannfærandi hátt í
útileiknum síðasta haust, 6:0 í moldar-
flagi í Liepaja, þar sem kraftmikill
fótbolti við aðstæður sem gerðu ekki
kleift að spila á eðlilegan hátt færði ís-
lenska liðinu þessi afgerandi úrslit.
Sá leikur fór fram 8. október 2019
og frá þeim degi hefur íslenska liðið
ekki spilað í undankeppninni. Það lék
hinsvegar þrjá leiki á alþjóðlega Pi-
natar-mótinu á Spáni í mars, rétt áður
en allt stöðvaðist vegna kórónuveir-
unnar. Ísland vann þá 1:0-sigra á
Norður-Írlandi og Úkraínu en tapaði
0:1 fyrir Skotlandi. Dagný Brynj-
arsdóttir skoraði sigurmarkið gegn
Norður-Írum og Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir sigurmarkið gegn Úkra-
ínukonum.
Jeffs stjórnar íslenska liðinu
Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari
var rekinn upp í stúku á leiknum í
Lettlandi og þarf fyrir vikið að taka út
leikbann í dag. Vegna áhorfenda-
banns má hann ekki sitja í stúkunni
og þarf því að fylgjast með leiknum
einhvers staðar úr húsakynnum KSÍ
á Laugardalsvellinum.
Það mun því koma í hlut Ians Jeffs
aðstoðarþjálfara að stýra íslenska lið-
inu í leiknum.
„Sem betur fer erum við með mjög
öflugt þjálfarateymi og liðið er vel und-
irbúið fyrir leikinn. Það eru þrjú stig í
boði á morgun og við ætlum okkur að
taka þau enda skýrt markmið frá upp-
hafi að við ætlum okkur til Englands í
lokakeppnina. Við erum á heimavelli á
morgun og þar er krafan alltaf að
sækja til sigurs,“ sagði Jón Þór á
fréttamannafundi landsliðsins í gær.
Spennandi nýliðar
Tveir nýliðar eru í íslenska lands-
liðshópnum fyrir leikina við Letta og
Svía, hinar 19 ára gömlu Sveindís
Jane Jónsdóttir úr Breiðabliki og
Barbára Sól Gísladóttir frá Selfossi.
Sveindís hefur verið langbesti leik-
maður Pepsi Max-deildarinnar í sum-
ar, samkvæmt M-einkunnagjöf Morg-
unblaðsins, og umræða hefur verið
um að Barbára henti vel til að leysa
stöðu hægri bakvarðar í landsliðinu
en Jón Þór tefldi aldrei fram sama
leikmanninum í þeirri stöðu í fyrstu
þremur leikjunum í keppninni.
Heimaleikur gegn neðsta liðinu í
riðlinum ætti einmitt að vera kjörið
tækifæri fyrir nýliða til að fá að
spreyta sig og öðlast mikilvæga
reynslu og því er líklegt að báðar
stúlkurnar fái tækifæri í leiknum.
„Það er alltaf gaman að sjá svona
ungar stelpur koma inn. Þær eru full-
ar af sjálfstrausti og vilja spila, sem er
frábært. Ég er ótrúlega spennt að sjá
þær á morgun og það er virkilega já-
kvætt að fá þær inn því við þurfum á
þeim að halda,“ sagði Sara Björk
Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði á
fundinum í gær.
Sjálf leikur Sara sinn 132. landsleik
í kvöld og verður þá aðeins einum leik
frá því að jafna landsleikjamet Katr-
ínar Jónsdóttur.
Líklegt byrjunarlið?
Ekki er ólíklegt að byrjunarlið Ís-
lands verði þannig skipað:
Sandra Sigurðardóttir – Barbára
Sól Gísladóttir, Glódís Perla Viggós-
dóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Hall-
bera Guðný Gísladóttir – Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir, Dagný Brynj-
arsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir –
Hlín Eiríksdóttir, Elín Metta Jensen,
Agla María Albertsdóttir.
Raunar eru þeir Jón og Ian með
tvær firnasterkar sóknarlínur til um-
ráða því þær Svava Rós Guðmunds-
dóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir
og Sveindís Jane Jónsdóttir gætu al-
veg eins hafið leikinn sem framherjar
íslenska liðsins.
Fá nýliðarnir að spreyta
sig gegn Lettum í kvöld?
Langþráður leikur íslenska kvennalandsliðsins á Laugardalsvellinum
Morgunblaðið/Eggert
Á Laugardalsvelli Íslensku landsliðskonurnar á æfingu í Laugardalnum í haustlegu veðri í gær. Þær ætla sér sigur í kvöld.
Lengjudeild karla
Þór – Víkingur Ó ...................................... 1:0
Þróttur R. – Afturelding.......................... 1:2
Staðan:
Fram 15 9 5 1 34:20 32
Keflavík 14 9 3 2 44:21 30
Leiknir R. 15 9 2 4 35:20 29
ÍBV 16 6 8 2 26:19 26
Þór 16 8 2 6 30:27 26
Vestri 16 6 5 5 22:22 23
Grindavík 14 5 7 2 29:25 22
Afturelding 16 5 3 8 32:27 18
Víkingur Ó. 16 4 4 8 21:35 16
Þróttur R. 16 3 3 10 13:30 12
Leiknir F. 16 3 3 10 16:34 12
Magni 16 2 3 11 17:39 9
Meistaradeild Evrópu
3. umferð:
Midtjylland – Young Boys ...................... 3:0
Mikael Anderson var ónotaður varamað-
ur hjá Midtjylland.
Omonia Nikósía – Rauða stjarnan.......... 1:1
Nikósóa áfram eftir vítakeppni, 4:2
Ferencváros – Dinamo Zagreb............... 2:1
Maccabi Tel Aviv – Brest......................... 1:0
Qarabag – Molde ...................................... 0:0
Molde áfram eftir vítakeppni, 6:5.
Sigurliðin eru komin í umspil um sæti í
riðlakeppni Meistaradeildarinnar en tap-
liðin í umspil um sæti í riðlakeppni Evr-
ópudeildarinnar.
Evrópudeild UEFA
2. umferð:
Hammarby – Lech Poznan..................... 0:3
Aron Jóhannsson lék allan leikinn með
Hammarby.
Progres Niederkorn – Willem II ............ 0:5
B36 Þórshöfn – The New Saints ............. 2:2
Þórshöfn áfram eftir vítakeppni, 5:4.
Sigurliðin eru komin í 3. umferð Evrópu-
deildar en tapliðin eru úr leik.
England
Deildabikarinn, 2. umferð:
Everton – Salford .................................... 3:0
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
með Everton og skoraði.
WBA – Harrogate .................................... 3:0
Ipswich – Fulham..................................... 0:1
Bristol City – Northampton .................... 4:0
Leeds – Hull.............................................. 1:1
Hull áfram eftir vítakeppni, 9:8.
Southampton – Brentford ....................... 0:2
Danmörk
B-deild:
Esbjerg – HB Köge.................................. 1:0
Andri Rúnar Bjarnason kom inn á sem
varamaður á 66. mínútu hjá Esbjerg. Ólaf-
ur H. Kristjánsson þjálfar liðið.
Viborg – Kolding ..................................... 4:2
Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki
með Viborg vegna veikinda.
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Damsø – Nordsjælland............................ 1:5
Amanda Andradóttir lék allan leikinn
með Nordsjælland og skoraði.
Svíþjóð
B-deild:
Brage – GAIS ........................................... 2:1
Bjarni Mark Antonsson lék allan leikinn
með Brage.
Slóvakía
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Zvoncin – Spartak Trnava ................... 1:10
Birkir Valur Jónsson byrjaði á vara-
mannabekk Spartak Trnava.
Meistaradeild karla
A-RIÐILL:
Flensburg – Kielce .............................. 31:30
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði tvö
mörk fyrir Kielce. Haukur Þrastarson var
á leikskýrslu.
B-RIÐILL:
Celje Lasko – Aalborg ........................ 29:31
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Danmörk
Aarhus United – Randers................... 22:17
Thea Imani Sturludóttir komst ekki á
blað hjá Aarhus United.
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
SønderjyskE – Skjern......................... 27:33
Sveinn Jóhannsson skoraði tvö mörk
fyrir SønderjyskE.
Elvar Örn Jónsson skoraði sex mörk fyr-
ir Skjern.
Noregur
Drammen – Fyllingen......................... 29:29
Óskar Ólafsson skoraði fjögur mörk fyr-
ir Drammen.
Kristiansand – Oppsal ........................ 35:23
Birta Rún Grétarsdóttir skoraði eitt
mark fyrir Oppsal.
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, undanúrslit:
LA Clippers – Denver........................ 89:104
Denver sigraði 4:3 og mætir LA Lakers í
úrslitum.
Austurdeild, úrslit:
Boston – Miami................................. 114:117
Staðan er 1:0 fyrir Miami.