Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
✝ Guðný HelgaGuðmunds-
dóttir fæddist í
Vestmannaeyjum
22. nóvember 1968.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans 5. september
2020.
Foreldrar henn-
ar eru Inga Dóra
Þorsteinsdóttir, f.
2. maí 1946, og
Guðmundur Helgi Guðjónsson,
f. 5. mars 1947.
Systur Guðnýjar Helgu eru:
1) Ingigerður Guðmundsdóttir,
f. 26. jan. 1966; maki Elías Jó-
hannesson, f. 1967. 2) Kristín
Hrönn Guðmundsdóttir, f. 12.
febrúar 1976; maki Tryggvi Pét-
ursson, f. 1975.
Maki Guðnýjar Helgu er Frið-
rik Smári Björgvinsson, f. 3.
mars 1961. Þau gengu í hjóna-
band 25. júní árið 1994. For-
eldrar Friðriks Smára eru Daisy
Edda Karlsdóttir, f. 1932, og
Björgvin Sævar Hjaltason, f.
1932, d. 2015.
Synir Guðnýjar Helgu og
gossins á Heimaey. Fjölskyldan
flutti síðan í Árbæjarhverfi í
Reykjavík og þar bjó Guðný
Helga lengst af.
Guðný Helga gekk í Árbæj-
arskóla og síðan í Menntaskól-
ann við Sund. Hún flutti sig í
Fjölbrautaskólann í Breiðholti
og lauk stúdentsprófi frá þeim
skóla árið 1988. Guðný Helga
var starfsmaður í fjármálaráðu-
neytinu 1988-1992. Hún varð
cand.oecon frá Háskóla Íslands
1997 og löggiltur endurskoð-
andi árið 2006. Guðný Helga
starfaði hjá KPMG hf. frá árinu
1996 og gerðist meðeigandi í
fyrirtækinu árið 2007. Hún var
sviðsstjóri endurskoðunarsviðs
KPMG frá 2013 og átti sæti í
framkvæmdastjórn félagsins.
Guðný Helga sinnti gæðaeftirliti
fyrir hönd Félags löggiltra end-
urskoðenda árin 2007-2008 og
var í gæðanefnd félagsins frá
2008 til 2012. Guðný Helga sat í
stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur
frá árinu 2013.
Útför Guðnýjar Helgu fer
fram frá Árbæjarkirkju í dag,
17. september 2020, kl. 13.
Vegna aðstæðna í samfélaginu
verður athöfnin einungis fyrir
nánustu aðstandendur og vini.
Athöfninni verður streymt á
https://tinyurl.com/y5bsuw6o/.
Virkan hlekk má nálgast á
https://www.mbl.is/andlat/.
Friðriks Smára
eru: 1) Andri, f. 14.
nóvember 1990,
sambýliskona
Hrafnhildur Krist-
insdóttir, f. 1992.
Dóttir þeirra er
Friðrika Hjördís, f.
2018. 2) Gunnar
Helgi, f. 18. maí
1993, sambýliskona
Svava Stefanía
Sævarsdóttir, f.
1993. Þau eiga tvær dætur; Dag-
nýju Hörpu, f. 2017, og Sölku
Marín, f. 2019. 3) Alexander Elv-
ar, f. 13. febrúar 1999, sambýlis-
kona hans er Bertha María
Smáradóttir, f. 1999. 4) Krist-
ófer Máni, f. 13. febrúar 1999,
unnusta hans er Kristín Dís
Árnadóttir, f. 1999. 5) Stjúpson-
ur Emil (sonur Friðriks Smára),
f. 8. desember 1982. Börn hans
eru Ragnheiður Lilja, f. 30. júlí
2001, og Matthías Ingi, f. 15.
desember 2007.
Guðný Helga bjó í Vest-
mannaeyjum til ársins 1973 en
þá fluttist hún ásamt fjölskyldu
sinni til Hafnarfjarðar í kjölfar
Mig langar að minnast elsku
dóttur okkar með nokkrum orð-
um.
Guðný Helga fæddist í Vest-
mannaeyjum 22. nóvember 1968.
Fyrir áttum við Ingigerði, fædda
1966.
Guðný Helga var 4 ára þegar
gaus á Heimaey en þá flutti fjöl-
skyldan upp á land, fyrst í Hafn-
arfjörð og síðan í Árbæinn. Hún
gekk í Árbæjarskóla og þar eign-
aðist hún vinkonur sem hún hélt
vinskap við alla tíð.
Guðný var vinamörg og var allt-
af mikil gleði í kringum hana. Hún
var dugleg að bjóða vinum heim í
Fjarðarás en þar var oft glatt á
hjalla á neðri hæðinni. Guðný var
góð í stærðfræði. Það vissu vin-
irnir og nýttu sér það fyrir próf.
Stofuborðið var lagt undir
kennslu. Hún var ekki bara vina-
mörg heldur var hún líka vinnu-
söm. Vinnusemi fylgdi henni til
æviloka.
Þegar hún var 20 ára kynntist
hún ástinni sinni honum Friðriki
Smára. Þau eignuðust íbúð í
Barðavogi og byggðu sér síðar
heimili í Viðarási 63 en þar bjuggu
þau lengst af með drengjunum
sínum fjórum og seinna tengda-
dætrum.
Guðný fór í Háskóla Íslands og
lærði þar viðskiptafræði. Á meðan
hún var þar í námi fór Friðrik í
lögfræðinám. Með góðu skipulagi
og góðri samvinnu luku þau bæði
námi. Eftir að tvíburarnir þeirra
fæddust fór Guðný í nám í endur-
skoðun og vann síðan hjá KPMG
til æviloka.
Vegna stöðu sinnar þar vann
hún mikið þá kom sér vel fyrir
hana og drengina að Friðrik var
liðtækur í flest, hvort sem það var
að baka, þvo þvotta eða annað sem
upp á kemur á stóru heimili með
fjórum strákum sem allir voru
vinamargir og var þar oft líflegt.
Þegar hlé kom á löngum vinnu-
dögum var tíminn vel notaður með
fjölskyldunni. Hún var mikið fyrir
fjölskylduna sína. Friðrik og
drengirnir hennar voru henni allt.
Þegar hún vissi í hvað stefndi
fannst henni erfitt að geta ekki
fylgst með barnabörnunum sínum
vaxa úr grasi, þeim Dagnýju
Hörpu 3 ára, Friðriku Hjördísi 2
ára og Sölku Marín eins árs, og
geta ekki tekið þátt í gleði og sorg-
um sona sinna við hlið Friðriks.
Hún lagði mikið upp úr því að
styrkja fjölskylduböndin við okkur
foreldrana, systur sínar Ingigerði
og Kristínu Hrönn og fjölskyldur
þeirra. Hún átti stóran þátt í því
hvað fjölskyldan hélt vel saman.
Hún flutti 4 ára frá Eyjum en
hélt mikilli tryggð við Eyjar og var
þjóðhátíð ómissandi. Eigum við og
fjölskyldurnar góðar minningar
frá þjóðhátíð með Guðnýju, Frið-
riki og fjölskyldu.
Þegar þú átt fjóra syni þá eign-
ast þú líka tengdadætur, hún tal-
aði um þær af mikilli virðingu og
var þeim góð vinkona.
Elsku Guðný okkar. Það er sár
söknuður í hjörtum okkar. Við eig-
um erfitt með að sætta okkur við
að þú skulir vera farin og skiljum
ekki þetta óréttlæti að ung kona í
blóma lífsins þurfi að fara frá eig-
inmanni, börnum og ungum
barnabörnum sem skilja ekki
hvers vegna amma er ekki heima
hjá afa.
Elsku Guðný Helga okkar,
minningin um þig mun lifa með
okkur foreldrum þínum sem þótti
svo óendanlega vænt um þig.
Blessuð sé minning þín elskan
okkar.
Ástarkveðjur frá
mömmu og pabba.
Elsku Guðný Helga, það er
skrítinn raunveruleiki sem hefur
tekið við eftir að þú kvaddir okkur.
Þú tókst mér með opnum örmum
um leið og ég kom inn í líf ykkar og
fyrir það verð ég ávallt þakklát. Á
þeim tæpa áratug sem ég hef
þekkt þig hefur þú kennt mér svo
margt sem ég er þér óendanlega
þakklát fyrir. Þú sýndir mér hvers
maður er megnugur bara ef mað-
ur þorir og svo kynntir þú mig fyr-
ir elsku Vestmannaeyjunum þín-
um. Afmælisdagurinn hefur æði
oft verið á Þjóðhátíð og þá var
ávallt slegið upp veislu í hvíta
tjaldinu þínu elsku Guðný. Þar
varst þú hrókur alls fagnaður, því
þú kunnir svo sannarlega að gleðj-
ast með öðrum. Þær voru ófáar
gleðistundirnar sem við áttum
saman og aldrei var leiðinlegt í
kringum þig. Þú vissir alltaf um
einhverja leiki sem hægt var að
fara í til að efla hópinn, enda fædd-
ur leiðtogi. Allt sem þú tókst þér
fyrir hendur gerðir þú svo vel og
áreynslulaust og alltaf af heilum
hug, þótt maður hafi nú stundum
þurft að hjálpa mér með þessi
blessuðu „afmælisvídeó“. Ég er
ótrúlega þakklát fyrir að hafa
kynnst svona öflugri konu sem var
sannarlega drifkraftur í lífi okkar
allra. Það er sárt að okkar tími
saman sé kominn á enda en ég veit
að þú munt vaka yfir okkur öllum
þar til við hittumst aftur. Hvíl í
friði elsku Guðný.
Hrafnhildur.
Guðný Helga frænka var ein-
stök manneskja sem skaraði fram
úr á svo mörgum sviðum. Í
vinnunni naut hún óskoraðs
trausts samstarfsfélaga til að
gegna forystuhlutverki. Hún var
líka í forystu í hópi okkar frænd-
systkinanna.
Við ólumst upp fyrstu æviárin á
Kirkjubæjarbrautinni í Vest-
mannaeyjum en Guðný Helga var
alltaf mesta Eyjastelpan. Hún
elskaði Eyjarnar og voru þau
Friðrik búin að koma sér upp fal-
legri íbúð í Eyjum og hún hlakkaði
alltaf til að heimsækja Eyjuna
sína.
Við Guðný Helga frænka áttum
langt og gott spjall fyrr í sumar.
Hún var með ýmsar hugmyndir
um hvernig hún ætlaði að nýta
sem best tímann í krabbameins-
meðferðinni. Hana langaði að nýta
yfirgripsmikla þekkingu sína til að
skapa eitthvað sem gæti komið ís-
lensku athafnafólki til góða. Ég
heillaðist af krafti frænku minnar
sem stóð frammi fyrir einni
stærstu áskorun sem einstakling-
ur getur staðið frammi fyrir. Hún
ætlaði sér að sigra og halda áfram.
En svo náði meinið yfirhöndinni
og allt of fljótt kvaddi þessi kraft-
mikla og klára frænka mín.
Inga Dóra frænka og Helgi for-
eldrar Guðnýjar Helgu léku ein-
stakt hlutverk í uppvexti okkar
systkinanna í Eyjum. Þau voru
unga parið á Kirkjubæjarbraut-
inni, sem passaði okkur þegar
mamma og pabbi brugðu sér af
bæ. Það hefur alltaf verið einhver
sérstakur strengur á milli okkar
systkinanna og Ingu Dóru og
Helga. Svo fylgdumst við með fjöl-
skyldu þeirra stækka; fjölskyldu
sem var glæsileg, einstaklega
samrýnd og glöð saman.
Strákarnir þeirra Guðnýjar
Helgu og Friðriks áttu hug þeirra
og hjörtu. Glæsilegir einstakling-
ar sem munu segja börnum sínum
í framtíðinni sögur af einstakri og
skemmtilegri ömmu. Það er erfitt
en falleg minning Guðnýjar Helgu
lifir hjá stórum hópi vina og fjöl-
skyldu.
Við Halldóra biðjum góðan Guð
að geyma minningu Guðnýjar
Helgu og halda þéttingsfast um
stórfjölskylduna. Innilegar sam-
úðarkveðjur sendum við Friðriki,
strákunum og allri fjölskyldu
þeirra Guðnýjar Helgu. Þá send-
um við Ingu Dóru og Helga, Ingi-
gerði og Kristínu Hrönn og fjöl-
skyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur.
Þór Sigfússon.
Ég er þakklát fyrir að hafa átt
Guðnýju sem vinkonu og fengið
þann tíma með henni sem okkur
gafst. Tólf ára gekk ég niður í
Hraunbæ eftir að foreldrar mínir
höfðu flutt í Árbæ, þekkti engan
en óraði ekki fyrir því að hitta
þessa yndislega stelpu þá. Urðum
við strax óaðskiljanlegar vinkonur
og eyddum nær öllum tíma okkar
saman. Nefndi við hana einmitt
nýlega að við vorum ekkert eðli-
legar hlustandi á Dúmbó og Steina
í plötuspilaranum hennar Guðnýj-
ar og spilandi 21. Síðar þegar tafl-
tímabilið fór af stað byrjuðum við
að tefla hvor við aðra. Kannski eft-
ir á hyggja er ekki skrítið að hún
varð síðar endurskoðandi en ég
hjúkrunarfræðingur, hún vann
nær alla leikina nefnilega. Svo
klók, góðhjörtuð og góð vinkona
sem hugsaði vel um vini sína. Eins
og gengur og gerist á lífsleiðinni
varð rof á okkar vinskap um tíma
þegar lífið tók við, en eftir að við
tókum upp þráðinn aftur hittumst
við reglulega með mökum okkar.
Það sem kannski tengdi okkur
mikið síðar var að við eigum báðar
fjóra yndislega stráka, þar af tví-
burastráka, og var því mikið að
ræða. Þótti henni sérstaklega
vænt um Orra og Darra, sem eru
mínir tvíburar, og mér þótti sér-
staklega vænt um Alexander og
Kristófer, hennar tvíbura. Ég er
svo þakklát fyrir allan þann tíma
sem við áttum saman og mun
ávallt hugsa til hennar. Ég votta
fjölskyldu hennar mína innileg-
ustu samúð.
Þín
Árný Sigríður
Daníelsdóttir (Addý).
Stelpur, má ég skipuleggja?
Heyrðist ósjaldan frá Guðnýju,
hvort sem ferðinni var heitið til út-
landa, í sumarbústað, á þjóðhátíð
eða bara að hittast á pallinum.
Guðný ferðaðist mikið og vildi
að aðrir sem henni voru kærir
fengju sömu dásamlegu upplif-
unina og nutum við þess ósjaldan
með henni.
Guðný var falleg að innan sem
utan, hörkudugleg, ákveðin, já-
kvæð, hress og skemmtileg, mjög
hjálpsöm og klár. Hún var um-
fram allt traustur vinur og alltaf
gátum við vinkonurnar leitað til
hennar. Guðný hélt vel utan um
fjölskylduna sína sem var henni
allt og var hún mjög stolt af
Frikka sínum, strákunum,
tengdadætrum og litlu yndislegu
ömmustelpunum.
Við eigum eftir að sakna sam-
verustundanna okkar, takk fyrir
allt, elsku besta Guðný. Minningin
um þig lifir í hjörtum okkar.
Elsku Frikki og fjölskylda,
hugur okkar er hjá ykkur.
Þínar vinkonur,
Sigrún, Lovísa, Rósa,
Fanný og Elín.
Það er komið að kveðjustund
elsku Guðný Helga.
Það var á Kirkjubæjarbraut í
Vestmannaeyjum sem við frænk-
urnar kynntumst og ólumst að
miklu leyti upp saman. Báðar
fæddar í Eyjum í nóvembermán-
uði en með árs millibili og mæður
okkar systur með sínar fjölskyld-
ur í Eyjum. Þótt það væru 16 ár á
milli mæðra okkar þá var ég svo
heppin að vera á sama reki og þið
Ingigerður og mér fannst ég svo
rík að eiga ykkur að.
Ég á margar góðar minningar
um þig sem ég mun varðveita alla
tíð, allt frá göngutúrunum okkar
um Eyjarnar með litlu dúkku-
vagnana að tína upp hundasúrur
til sumarbústaðaferðanna sem
unglingar með ömmu og afa. Eld-
hús ömmu Ingu í Goðasteini var
okkar samkomustaður og alltaf
var skjól hjá ömmu og afa fyrir
okkur. Eftir gos flutti svo megnið
af stórfjölskyldunni til Reykjavík-
ur og Hafnarfjarðar en áfram
héldum við frænkurnar að hittast
og árið 1976 bættist yndislega
Kristín Hrönn í systrahópinn sem
gaman var að knúsa og burðast
með.
Guðný Helga kláraði viðskipta-
fræði og stýrði endurskoðunar-
sviði KPMG af mikilli festu í nokk-
ur ár. Þar lágu leiðir okkar saman
að nýju þar sem við unnum saman
í þrjú ár. Ég er óendanlega þakk-
lát fyrir að hafa fengið þann tíma
með Guðnýju. Hún hafði svo góða
nærveru, gleði og húmor og ýtti
því auðvitað undir að við myndum
klæða okkur í búninga á öskudag
og þá var bara setið í risastórum
bangsabúningum í vinnunni allan
daginn eins og ekkert væri, það
var alltaf gaman í kringum Guð-
nýju.
Ég sendi ástvinum Guðnýjar og
fjölskyldu dýpstu samúðarkveðj-
ur og bið Guð að styrkja þau í sorg
sinni.
Sif Sigfúsdóttir.
Guðný Helga er látin eftir stutt
veikindi. Það eru aðeins nokkrir
mánuðir síðan hún var að vinna
með okkur af fullum krafti, einn af
stjórnendum KPMG, sem lagði
ávallt sitt af mörkum við að takast
á við ný og krefjandi verkefni. Við
Guðný Helga kynntumst þegar
hún hóf störf hjá KPMG á árinu
1996. Það kom fljótt í ljós að hún
var á réttum stað og starfsvett-
vangurinn sem hún valdi sér hent-
aði henni vel. Eftir nokkurra ára
starfsreynslu öðlaðist hún löggild-
ingu til endurskoðunarstarfa. Mér
er minnisstætt þegar hún kom á
minn fund og sagðist hafa ráðið
sig hjá einum af okkar stærri við-
skiptavinum. Við áttum langt og
gott spjall og ég vona að það hafi
átt sinn þátt í því að henni snérist
hugur og hún ákvað að halda
áfram störfum sínum hjá KPMG
bæði henni og félaginu til heilla. Á
árinu 2007 varð hún einn af eig-
endum KPMG. Við unnum náið
saman, meðal annars að endur-
skoðun á sumum af stærstu fé-
lögum landsins en einnig í fram-
kvæmdarstjórn félagsins frá árinu
2013 þegar hún tók við forystu
endurskoðunarsviðs. Það var gott
að starfa með Guðnýju Helgu sér
við hlið. Guðný Helga var afburða-
fagmaður og sinnti hlutverki sínu
ávallt af miklum heilindum. Hún
var flaggberi allra þeirra gilda
sem KPMG stendur fyrir, góður
stjórnandi, ljúf í samskiptum,
harðdugleg, virk í félagsstarfi og
síðast en ekki síst vel liðin af við-
skiptavinum sínum með einstaka
þjónustulund. Við vinirnir og sam-
starfsmennirnir hjá KPMG kveðj-
um Guðnýju Helgu með söknuði
og hlýju og minnumst hennar sem
yndislegrar konu og frábærs sam-
tarfsmanns með þakklæti fyrir
samfylgdina. Það fór ekki á milli
mála að fjölskyldan skipaði stóran
sess hjá Guðnýju Helgu og var
gaman að sjá og heyra hversu
stolt hún var af strákunum sínum
og ömmuhlutverkinu. Við vottum
Friðriki Smára, sonum þeirra og
öllum aðstandendum okkar
dýpstu samúð.
Fyrir hönd KPMG,
Jón S. Helgason.
Elsku glæsilega, lífsglaða
Guðný Helga er farin frá okkur
svo allt of fljótt. Ég var svo heppin
að eiga í henni frábæra samstarfs-
konu og trúnaðarvin.
Af öllum þeim gæðum
sem okkur veitir
viturleg forsjá
til ánægjuauka
er vináttan dýrmætust
er haft eftir gríska heimspek-
ingnum Epikúros. Þessi viska,
sem er meira en tvö þúsund ára
Guðný Helga
Guðmundsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÓLAFÍA LÁRUSDÓTTIR,
Sæviðarsundi 8,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
2. september. Útför hennar fer fram frá
Áskirkju föstudaginn 18. september kl. 15.
Allir velkomnir en einnig verður streymt frá athöfninni á
https://www.facebook.com/groups/olafialarusdottir.
Eiríkur Ellertsson
Jóhannes Ellert Eiríksson Jódís Ólafssdóttir
Lárus E. Eiríksson Gróa Karlsdóttir
Kristín Eiríksdóttir Trond Solberg
Guðlaug Eiríksdóttir Ólafur Stefánsson
Ragnhildur Eiríksdóttir Þorgrímur Þráinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÞÓRARINN ARNFJÖRÐ MAGNÚSSON,
fyrrverandi tollfulltrúi,
áður til heimilis á Háaleitisbraut 40,
Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolsvelli,
laugardaginn 12. september.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hallfríður Dagmar Þórarinsdóttir Munsch
Friðrik Sölvi Þórarinsson Þórunn Óskarsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KARL EIRÍKSSON
bóndi í Vatnshlíð,
Austur-Húnavatnssýslu,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar
á Landspítalanum sunnudaginn 6. september.
Útför hans fer fram frá Löngumýrarkapellu í Skagafirði
laugardaginn 26. september klukkan 14.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, þökkum hlýju og samúð.
Margrét Þórhallsdóttir
Kristín Karlsdóttir
Heiðdís Karlsdóttir
Skarphéðinn Jónas Karlsson Brynhildur Þöll Kristjánsdóttir
Anna Sóley Karlsdóttir Róbert Gils Róbertsson
og barnabörn