Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 ALVÖRU VERKFÆRI 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Síðustu vikurnar hefur vinnsla í fisk- iðjuveri Brims hf. á Norðurgarði auk- ist smátt og smátt eftir sumarhlé. Unnið hefur verið að gagngerri end- urnýjun í vinnslunni og ný tæki frá Marel, Curio og fleiri fyrirtækjum hafa leyst þau eldri af hólmi. Upp- setningu og prófunum lýkur á næst- unni og er gert ráð fyrir að fullum afköstum verði náð er líður á októbermánuð. Ægir Páll Frið- bertsson, fram- kvæmdastjóri Brims, segir að aukin sjálfvirkni einkenni breyt- ingarnar. Hann nefnir þrjár vatnsskurðarvélar frá Marel sem skeri flakið. Róbótar raði fisknum í kassa og aðrir róbótar raði kössunum síðan á bretti. Um 130 starfsmenn Í dag vinna um 130 starfsmenn við fiskvinnsluna á Norðurgarði. Ægir Páll segir að störf hluta starfsfólks muni breytast með aukinni sjálfvirkni þó svo að fjöldi starfsmanna verði svipaður gangi áætlanir um unnið magn eftir. Eitt af markmiðunum sé að vinna fleiri kíló í fiskiðjuverinu á hvern starfsmann heldur en áður. Nýi búnaðurinn er einkum ætlaður fyrir vinnslu á þorski og ufsa, en ekki hafa verið gerðar breytingar á karfa- vinnslunni. Starfsemi var tímabundið hætt á Norðurgarði í lok apríl þegar undir- búningur hófst að uppsetningu á full- komnum vinnslu- og hugbúnaði fyrir bolfiskvinnslu, auk endurbóta og nauðsynlegra lagfæringa á húsnæð- inu. Uppkeyrsla vinnslunnar hófst svo 22. júlí. Áætlað er að ljúka síðustu verkþáttum framkvæmdanna í lok september og að vinnslan verði þá komin á fullt í lok október. Tæknifyrirtæki í fremstu röð Meðan lokað var á Norðurgarði var aukinn kraftur settur í fisk- vinnslu Kambs í Hafnarfirði, en Brim keypti það fyrirtæki á síðasta ári. Kambur gerir út tvo línubáta og er afli þeirra unninn í fiskvinnslunni í Hafnarfirði. Ægir Páll segir að öllum reglum vegna kórónuveikinnar sé fylgt í hví- vetna. Ekki sé tekið á móti gestum og neysluhléum starfsfólks sé skipt þannig að hópurinn fari ekki allur í mat eða kaffi á sama tíma. Fyrr á þessu ári tók Samherji í notkun fullkomið fiskiðjuver á Dalvík. Þar eins og hjá Brimi á Norðurgarði voru íslensk tæknifyrirtæki áberandi við tæknilausnir. Aðspurður segir Ægir Páll að það sé engin tilviljun, ís- lensk tæknifyrirtæki í sjávarútvegi séu meðal þeirra fremstu í heiminum. Áætlað hefur verið að endurbæt- urnar á Grandagarði kosti um þrjá milljarða króna, þ.e. tækjabúnaður og breytingar á húsnæði. Þegar greint var frá samnningi Brims og Marels á síðasta ári sagði m.a. í frétt á heimasíðu fyrirtækisins: „Kerfið felur í sér ýmsar nýjungar, þar á meðal öflugt gæðaeftirlitskerfi og nýjustu róbótatækni sem mun sjálf- virknivæða og straumlínulaga vinnsluna til muna. Meðal þess sem Brim hefur fest kaup á er háþróað pökkunarkerfi með tíu róbótahausum sem mun straumlínulaga allt pökkunarferlið. Jafnframt felur vinnslukerfið í sér þrjár FleXicut-vatnsskurðarvélar ásamt tilheyrandi forsnyrtilínum og sjálfvirkri afurðadreifingu, auk þess sem Brim verður fyrst til að innleiða nýtt SensorX-beinaleitarkerfi fyrir ferskar afurðir. Hugbúnaður verður í lykilhlut- verki í nýja vinnslukerfinu, þar sem hann tengir tækin í hverju vinnslu- þrepi hvert við annað og tryggir jafnframt rekjanleika gegnum allt vinnsluferlið.“ Aukin sjálfvirkni á Norðurgarði  Brim tekur tæknivætt fiskiðjuver í notkun  Kraftur að komast í vinnslu eftir endurbætur  Störfin breytast Ljósmyndir/Brim hf. Norðurgarður Séð yfir vinnslusalinn þar sem eru bolfisklínur með þremur FleXicut-vatnsskurðarvélum. Brim hf. er stærsta útgerðarfyrirtæki landsins og nam úthlutun afla- heimilda til fyrirtækisins rúmlega 33.700 þorskígildistonnum í byrjun fiskveiðiársins sem hófst 1. september. Inni í þeirri tölu eru ekki úthlut- anir í loðnu, deilistofnunum, makríl, kolmunna og norsk-íslenskri síld, né þorskkvótinn í Barentshafinu. Fyrirtækið gerir út ísfisktogarana Viðey, Akurey og Helgu Maríu, frystitogarana Vigra, Höfrung og Örfirisey og uppsjávarskipin Venus og Víking. Auk skrifstofu og fiskiðjuvers á Norðurgarði rekur Brim m.a. uppsjávarfrystihús, fiskimjölsverksmiðju og aðra starfsemi á Vopnafirði. Fjölbreytt útgerð og vinnsla STÆRSTA SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKIÐ Ægir Páll Friðbertsson Tækni Vélmenni eða róbót sem matar hráefniskör inn í vinnslu. Vel hefur gengið á síldveiðum fyrir austan land undanfarið og skipin yfirleitt verið fljót að ná skammt- inum, oft í tveimur til fjórum holum. Ekki skemmir fyrir að veður hefur verið þokkalegt það sem af er vertíð og stutt að sigla til löndunar fyrir Austfjarðaskipin. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar var í vikunni rætt við Birki Hreins- son, skipstjóra á Margréti EA, sem kom til löndunar síðasta laugardag. „Við stoppuðum í átta og hálfan klukkutíma á miðunum og fengum þessi 1.150 tonn í tveimur 100 mín- útna holum. Fyrra holið var 105 mín- útur og hið seinna 110. Aflinn fékkst norðarlega og ofarlega á Glettinga- nesgrunni. Þarna var gríðarmikið af síld að sjá og engin vandræði að fá góðan afla. Síldin er líka eins og best verður á kosið,“ sagði Birkir. Uppsjávarskipin hafa lokið makrílvertíð og er búið að landa um 150 þúsund tonnum. Góð byrjun á síldar- vertíðinni Margrét EA Landað í Neskaupstað. Ljósmynd/Smári Geirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.