Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Lág
kolvetna
PURUSNAKK
Það er sérstaklega mikilvægt að hrósa fyrir það sem vel er
gert. Bæði höfum við öll gott af því að fá hrós, sem og að
gefa það áfram. Hvað þá núna þegar veturinn nálgast, dag-
arnir styttast og kuldinn læðist að okkur.
Því ætlum við á K100.is að byrja allar vikur á því að
bjóða fólki að hrósa þeim sem eiga
það skilið. Það var samfélagsmið-
astjarnan Erna Kristín hjá
Ernulandi sem hóf hrósbylgjuna
á því að hrósa henni Andreu Ey-
land fyrir Kviknar.
„Ég myndi vilja byrja á
því að hrósa Kviknar –
Andreu Eyland, fyrir
frábært samfélag for-
eldra og umönnunar-
aðila barna. Þar
opnar hún fyrir alls
konar umræður,
bæði fallegar, erf-
iðar og krefjandi
sem hjálpa okk-
ur að vera til
staðar sem for-
eldrar. Hún er
með þættina Líf
kviknar og Líf
dafnar og þetta
er svo frábært í
alla staði og svo
mikilvægt!“
Fylgist með á K100.is
þar sem við höldum áfram
með hrós vikunnar alla
mánudaga og ekki gleyma
að hrósa hvert öðru og sjálf-
um ykkur.
Andrea
Andrea
skrifaði bók-
ina Kviknar.
Erna Sam-
félagsmiðla-
stjarnan
Erna Kristín
hrósar
Andreu
Eyland.
In
st
ag
ra
m
/E
rn
ul
an
d
Hrós vikunnar alla mánudaga á K100.is
Mikilvægt að hrósa fólki
Steinunn Svavarsdóttir pantaði sér
á dögunum sérstakan háralit til
þess að lita hundinn sinn Monsu
sem er af tegundinni Toy Poodle.
Liturinn bleikur varð fyrir valinu
og keypti Steinunn einnig sérstakt
bleikt naglalakk fyrir hana.
Í viðtali við K100.is segir Stef-
anía að liturinn sé tímabundinn og
alveg skaðlaus dýrum. Hún segir
hundalitun vinsæla í Ameríku en
að hún viti ekki til þess að neinn
hundasnyrtir geri svona hérlendis.
Steinunn segir Monsu hafa feng-
ið mikla athygli út á litinn og að í
hvert skipti sem hún hafi farið
með hana út að ganga sé starað á
eftir þeim. Hægt er að lesa við-
talið við Steinunni í heild sinni á
K100.is.
Litaði hundinn
sinn bleikan
Monsa Príma-
donna af tegund-
inni Toy Poodle.
Skaðlaust efni
Aníta Estíva Harðardóttir
anita@k100.is
Guðjón Ari og Eiður Axelsson Weld-
ing vinna saman að því að upplýsa
fólk um málefni sem þeim þykir þörf
á að ræða. Vinirnir mættu saman í
þáttinn Ísland vaknar í vikunni og
deildu því með hlustendum hvað það
er sem þeir eru að gera.
Eiður fæddist með Cerebral Palsy
(CP) sem á íslensku kallast heilalöm-
un. Hann, ásamt Guðjóni, heldur um
þessar mundir fyrirlestra þar sem
hann útskýrir fyrir fólki hvernig það
er að lifa með slíka fötlun. Á fyrir-
lestrunum ræðir Guðjón um innihald
bókar sinnar en hann segist alltaf
hafa velt því fyrir sér hvers vegna fólk
hegði sér á ákveðinn hátt.
Þann 6. október næstkomandi er
alþjóðadagur heilalömunar og segir
Eiður fötlunina fá litla athygli hér á
Íslandi miðað við það að hún sé sú al-
gengasta.
„Við ætlum að halda fyrirlestur þar
sem við ætlum að vekja athygli á
þessari fötlun og þessum degi. Hvern-
ig það sé að vera með CP í þessu sam-
félagi sem við lifum í í dag. Þetta er
ákveðið róf eins og einhverfurófið og
fólk getur verið með mjög væga fötl-
un en líka mjög mikla,“ segir Eiður
sem lætur fötlun sína ekki stoppa sig.
Eiður fæddist með
Cerebral Palsy sem á
íslensku kallast heila-
lömun. Hann lætur
fötlun sína þó ekki
stoppa sig og heldur
nú fyrirlestra til þess
að vekja athygli á henni.
Lætur fötlunina ekki stoppa sig
CP fær litla athygli
Vinirnir Guðjón Ari
og Eiður halda
fyrirlestra saman.