Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020 Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30 Veitingamenn athugið! Við sérhæfum okkur í þjónustu fyrir veitingahús Spínat lasagna Athugið að þessi uppskrift er frekar stór, ef þið viljið hafa hana minni er gott að helminga hana Spínatlag 30 g smjör 2 msk. extra virgin-ólífuolía 1 stór skallotlaukur eða 1/2 bolli ca. 50 g 6 marin hvítlauksrif salt og pipar 900 g ferskt spínat Ostalag 2 egg 120 g rifinn parmesan-ostur 1 tsk. múskat (ekki sleppa gefur svo gott bragð) 900 g kotasæla Hvít sósa 60 g smjör 40 g hveiti 3 bollar nýmjólk 200 g rifinn mozzarella-ostur 200 g rifinn cheddar-ostur Annað 1 poki rifinn mozzarella til að dreifa ofan á 1 poki rifinn cheddar-ostur til að hafa ofan á 2 pakkar fersk lasagna-blöð frá Pastella paprikuduft Spínatlag Hitið olíu og smjör á pönnu. Skerið skalottlauk smátt og merjið hvítlauk. Setjið á pönnuna en hafið vægan hita á svo laukarnir mýkist og soðni en mega ekki verða brúnir. Saltið og piprið og byrjið að bæta spínati smátt og smátt á pönnuna, ykkur gæti fundist magnið af spínat- inu líta út fyrir að vera allt of mikið en það mun hjaðna og minnka um meira en helming. Haldið áfram að bæta við spínatinu á pönnuna smátt og smátt þar til það er allt orðið eins og blautt og búið að minnka um meira en helming og salt- ið aftur ögn og piprið. Færið þá spínatið yfir í sigti yfir skál og ýtið á það með sleif til að ná öllum umfram vökva úr því, látið svo standa áfram í stigtinu meðan ostalag er útbúið. Ostalag Blandið öllu innihaldinu saman í blandara eða matvinnsluvél, þ.e. eggi, osti, múskat og kotasælu. Ýtið á pulse-takkann og maukið þar til verður fallegt og hvítt. Setjið svo yfir í stóra skál og saltið örlítið. Reynið að ná sem mestu úr bland- aranum en þurfið ekkert að skola hann á milli, setjið næst spínatið úr sigtinu í blandarann og ýtið á pulse þar til er orðið eins og fallegt grænt pesto. Setjið spíantið svo í skálina með kotasælu-ostalaginu og hrærið var- lega saman með sleif og leggið til hlið- ar. Hvít sósa Hitið smjör á pönnu og bætið svo hveitinu út í þegar það er alveg bráðnað. Hrærið vel í allan tímann en leyfið því að sjóða saman í eins og eina mín- útu til að ná úr öllu hveitibragði. Bætið þá einum bolla af mjólk út í í einu og hrærið vel í á meðan þar til öll mjólkin er komin í og sósan orðin að- eins þykkari. Saltið þá ögn og piprið. Takið þá af hellunni og bætið út í 200 g af Mozzarella og 200 g af chedd- ar og hrærið þar til þetta er orðin eins og þykk hvít ostasósa. Samsetning á lasagna Byrjið á að hita ofninn í 200°C blástur. Setjið svo í stórt eldfast mót hvíta sósu á botninn, svo lasagna-plötur of- an á. Næst er sett spínat/ostalagið ofan á það og svo hvít sósa og plötur. Haldið svona áfram þar til allt er búið en endið efst á hvítu sósunni og stráið svo mozzarella rifnum og rifn- um cheddar-osti yfir allt og gott er að setja smá paprikuduft yfir ostinn en má líka sleppa. Eldið í ofni í 25 mínútur. Takið svo út og leyfið að standa á borði í 20-30 mínutur, jafnvel lengur. Berið fram með fersku salati og hvítlauksbrauði. Punktar Ykkur gæti fundist eins og magnið af spínatinu sé allt of mikið en spínat er mjög fljótt að minnka við eldun svo ekki láta ykkur bregða við magnið. Best er að leyfa þessu lasagna að standa í alla vega 20-30 mín. á borði áður en þess er neytt en það má einn- ig bera það fram sjóðandi heitt en þá á það til að leka eins og annað la- sagna. Einnig er það gott kalt daginn eftir eins og t.d. í nesti. Spínat-lasagna löðrandi í osti María Gomez á Paz.is er hér með pastauppskrift sem er svo yfirgengilega girnileg að leitun er að öðru eins. Fyrir þá sem eru fordómafullir í garð grænmetis þá vill svo skemmtilega til að það er fátt betra en gott grænmetis- lasagna og mörgum þykir það jafnvel betra en hefðbundið lasagna. Við hvetjum ykkur til að prófa þessa dásemd sem leikur við bragðlaukana. Ljósmynd/María Gomez Sjúklega gott Þessi lasagna-uppskrift þykir með þeim betri. Íslenska frumkvöðlafyrirtækið Nordic Wasabi heldur áfram sig- urgöngu sinni um heiminn en ferskt íslenskt wasabi hefur ítrekað ratað inn á matseðla þekktustu veit- ingastaða Skandinavíu. Má þar nefna Noma og AOC í Kaupmanna- höfn, Frantzén í Stokkhólmi og RE- NAA í Noregi. Að auki er Nordic Wasabi í sam- starfi við einn þekktasta mat- aráhrifavald Skandinavíu, Anders Husa, sem tók wasabi fyrir og kenndi hvernig á að meðhöndla það auk þess að elda úr því dýrindis- konomyaki og nota ferskt íslensk wasabi til að búa til wasabi-mæjó með. Anders Husa, ásamt maka sín- um Kaitlin Orr, hefur um árabil rekið eitt virtasta og áhrifamesta matarblogg Skandinavíu og telur fylgjendafjöldi þeirra vel á fjórða hundrað þúsund auk þess sem þau halda úti vinsælli YouTube-rás og öflugu Instagrammi. Íslensk sjálfbærni Það gerir árangur Nordic Wasabi þeim mun einstakari en um er að ræða íslenskt frumkvöðlafyrirtæki sem hefur hægt og rólega verið að hasla sér völl hér heima og erlendis. Nordic Wasabi er hreint wasabi og er ræktað á sjálfbæran máta á Íslandi. Ræktunin fer fram í há- tæknigróðurhúsum á Egilsstöðum þar sem jarðhiti og rafmagn eru nýtt til framleiðslunnar. 95% af wasabi er ekki wasabi Wasabi er japönsk planta sem hefur einstakt bragð og er mjög ríkjandi í japanskri matargerð. Kúnstugt er að rækta plöntuna og því er yfirleitt brugðið á það ráð að bjóða upp á gervi-wasabi sem er í reynd verksmiðjuframleidd vara unnin úr piparrót með grænum matarlit. Reiknað er með að um 95% af öllu wasabi í heiminum sé gervi-wasabi. Á Íslandi má meðal annars finna Nordic Wasabi á veitingastöðunum Sushi Social, Fiskfélaginu og Moss í Bláa lóninu og á Sjálandi í Garða- bæ, en einnig er það selt í Krónunni á Granda og ýmsum sælkeraversl- unum á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að hægt er að panta beint í gegnum vefverslunina www.nor- dicwasabi.is. Heimsþekktir veitingastaðir nota Nordic Wasabi Ljósmynd/Nordic Wasabi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.