Morgunblaðið - 17.09.2020, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Augnlyfting
Einstökmeðferð til að
lyfta slappri húð á augnsvæði!
Áhudfegrun.is máfinna upplýsingar umfleiri tilboð!
TILBOÐ í september20% afsláttur af AUGNLYFTINGU
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Ráðherrann fjallar um stjórnmála-
manninn Benedikt Ríkharðsson
sem kemst í stól forsætisráðherra
Íslands eftir spennandi alþing-
iskosningar.
„Benedikt er leiðtoginn sem við
öll þráum, greindur hæfi-
leikamaður með hjartað á réttum
stað. Vandamálið er bara að sam-
hliða því að vera æðsti valdhafi
þjóðarinnar heyir hann hressilega
baráttu í höfðinu á sér. Hann er
nefnilega með geðhvarfasýki. Serí-
an er í raun ferðalag hans gegnum
ólgusjó pólitíkur og andlegra veik-
inda með tilheyrandi drama og
sveiflum. Ráðherrann er líka saga
aðstandanda manneskju í svo öfga-
kenndum aðstæðum, eiginkonu
hans Steinunnar sem er eigandi
fjölmiðlaveldis, komin úr pólitískri
fjölskyldu, sem og aðstoðarkonu
Benedikts, Hrefnu,“ segir Björg í
viðtali við Morgunblaðið.
Hún segir að uppleggið hafi ver-
ið að búa til einhvers konar hlið-
arveruleika við íslenskt samfélag
og hnýta saman stjórnmál og geð-
veiki. Þáttunum leikstýra þau
Nanna Kristín Magnúsdóttir og
Arnór Pálmi Arnarsson en með að-
alhlutverk fara þau Ólafur Darri
Ólafsson, Aníta Briem, Þuríður
Blær Jóhannsdóttir og Þorvaldur
Davíð Kristjánsson.
Ásamt Björgu voru þeir Birkir
Blær Ingólfsson og Jónas Margeir
Ingólfsson í höfundateyminu að
þáttunum. Þau byrjuðu að skrifa
handritið fyrir 7 árum og því langt
ferli frá því að hugmynd mótast
þangað til hún er komin á sjón-
varpsskjáinn.
Björg hefur skrifað tvær bækur,
Ekki þessi týpa og Þessi týpa, og
það liggur því beinast við að
spyrja hver sé munurinn á því að
skrifa bók og að skrifa handrit að
þáttum. „Stærsti munurinn liggur
í því að þegar rithöfundur skrifar
bók ræður hún eða hann svo gott
sem öllu. Það gerir hins vegar
enginn nokkurn skapaðan hlut
einn þegar kemur að sjónvarps-
skrifum eða vinnslu í sjónvarpi.
Þar er maður stanslaust í díalóg
við meðhöfunda og framleiðslu eft-
ir atvikum, fær nótur, gagnrýni og
er stöðugt að endurskrifa. Þess
vegna er mjög mikilvægt að læra
að skilja egóið eftir fyrir utan höf-
undaherbergið og taka gagnrýni
ekki persónulega, það er að segja
ef maður ætlar ekki að missa vitið
í svona ferli,“ segir Björg.
Ýmislegt sem Íslendingar
kannast við í þáttunum
Þegar þau Björg, Birkir og Jón-
as skrifuðu handritið leituðu þau
að innblæstri úr ýmsum áttum.
„Ég var eins og margir dolfallin
yfir dönsku þáttunum Borgen sem
komu upphaflega út 2010 og fjalla
um valdatafl í þarlendum stjórn-
málum. Svo má alveg nefna aðrar
stórkostlegar seríur á borð við
West Wing, Yes Minister og
House of Cards sem skvettu bens-
íni á þá hugmynd að mögulega
væri hægt að búa til sögu sem
byggðist á íslenskri stjórnmála- og
menningarsögu.
Hugmyndin þróaðist síðan og
þroskaðist yfir langan tíma í sam-
starfi við meðhöfunda mína, Birki
Blæ Ingólfsson og Jónas Margeir
Ingólfsson. Við leituðum fanga
mjög víða, reyndum eftir fremsta
megni að kynna okkur geð-
hvarfasýki og aðrar andlegar
áskoranir í gegnum viðtöl og skrif,
skoðuðum ýmsa leiðtoga, bók-
menntir og klassísk deilumál Ís-
lendinga í gegnum tíðina sem röt-
uðu síðan inn í þættina með
ólíkum hætti. Í Ráðherranum er
sem sagt fullt af dótaríi sem Ís-
lendingar munu kannast vel við,“
segir Björg. En hver er fyr-
irmyndin að geðveika ráðherranum
Benedikt?
„Það er ekkert launungarmál að
við urðum fyrir áhrifum frá ýms-
um leiðtogum varðandi persónu-
gerð, sjarma og ákveðin atvik eða
mál sem hentu á valdastóli. Í þeim
flokki má til dæmis nefna Jónas
frá Hriflu, Boris Johnson, Davíð
Oddsson, Donald Trump, Kjell
Magne Bondevik, Sigmund Davíð
Gunnlaugsson og Winston Churc-
hill. Allt finnst mér þetta mjög
áhugaverðar persónur. Þetta er
auðvitað vaðandi karlagallerí sem
endurspeglar að ákveðnu leyti
þann veruleika sem við búum við,“
segir Björg.
„Íslenskan á það svo feitt
skilið að við peppum hana“
Björg hefur sýslað ýmislegt síð-
ustu misseri en hún kom að skrif-
um að þáttunum Systrabönd sem
kláruðust í tökum nú í sumar. Silja
Hauksdóttir leikstýrir þáttunum
en þættirnir fjalla um skelfilegt
leyndarmál sem þrjár konur á fer-
tugsaldri hafa burðast með frá
unglingsaldri. Þættina skrifaði
Björg ásamt Jóhanni Ævari
Grímssyni og seinna í ferlinu bætt-
ist Jóhanna Friðrika Sæmunds-
dóttir við teymið.
Björg stýrir einnig þáttunum
Morgunkaffið á laugardags-
morgnum á Rás 2 ásamt Gísla
Marteini Baldurssyni. Síðastliðinn
föstudag hófst svo önnur sería af
þáttunum Kappsmál. Kappsmál
hefur notið mikilla vinsælda en
Björg stýrir þáttunum ásamt
Braga Valdimar Skúlasyni.
„Það er nú enn einn skemmti-
garðurinn enda er þar markmiðið
að leika okkur með íslenskuna á
léttum nótum og fáum við góða
keppendur í lið með okkur. Eins
og allir vita á íslenskan undir
höggi að sækja á þessum síðustu
og verstu en einmitt í ljósi þess
fögnum við því að fá tækifæri til
þess að búa til prógramm sem hef-
ur þetta tvíþætta markmið, að
skemmta fólki og leika okkur með
okkar dásamlega tungumál. Ís-
lenskan á það svo feitt skilið að við
peppum hana!“
Fyrsti þátturinn af Ráðherranum fer í loftið á RÚV
sunnudaginn næstkomandi. Fjölmiðlakonan Björg
Magnúsdóttir, einn höfundanna, segir að Íslend-
ingar muni kannast við ýmislegt í þáttunum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stjórnmál Þorvaldur
Davíð Kristjánsson fer
með hlutverk í þáttunum.
Ráðherrann Ólafur Darri Ólafs-
son fer með hlutverk ráðherrans
Benedikts Ríkharðssonar.
Innblástur Björg, Birkir og
Jónas sóttu sér innblástur
úr mörgum áttum.
„Benedikt er leiðtoginn sem við öll þráum“
Kunnuglegt Björg Magnús-
dóttir segir að Íslendingar
muni kannast við ýmislegt í
þáttunum Ráðherrann.