Morgunblaðið - 17.09.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 17.09.2020, Qupperneq 25
1. Borgarbúar eru fastir í umferðarteppum alla daga, kvölds og morgna, vegna aðgerðarleysis og skemmdarstarfsemi borgaryfirvalda í samgöngumálum. 2. Umferðartafirnar hafa í för með sér gríðarlega mengun en rannsóknir hafa leitt í ljós að eyðsla bílvéla eykst um 131% í umferðarteppum samanborið við hindrunarlausa umferð. 3. Svifryk í borginni fer ítrekað yfir heilsuverndarmörk. Draga mætti stórlega úr því með því að hreinsa göturnar og rykbinda. Borgaryfirvöld hafa skellt skollaeyrum við slíkum ábendingum. 4. Bragginn í Nauthólsvík var reistur á ábyrgð borgarstjórans. Hann átti að kosta 158 milljónir en endaði í 415 með dönskum puntstráum og öllu tilheyrandi. 5. Reynt er að spilla allri flugstarfsemi í borginni og hrekja flugvöllinn burt sem skapar allt að 1000 manns atvinnu. 6. Grænu svæðin í borginni fá ekki að vera í friði fyrir áformum um þrengingu byggðar, þar á meðal er ráðist á Elliðaárdalinn, náttúruperlu í miðju borgarlandinu. 7. Hvergi er haft samráð við borgarbúa um nýbyggingar. Skemmst er að minnast fyrirhugaðra húsa á saltfiskreitnum við Sjómannaskólann sem reist verða í fullkominni óþökk nágranna. 8. Skólamálin eru hneysa hvarvetna. Ekkert samráð hefur verið haft varðandi Korpuskóla og Rimaskóla svo dæmi sé tekið. 9. Framkvæmdir við nýjan innsiglingarvita fóru tvöfalt fram út kostnaðaráætlun. 10. Umhirða grænna svæða er til háborinnar skammar. Tún eru illa slegin, illgresi kæfir runna og rusl og veggjakrot blasir við hvert sem litið er. Malarhrúgan úti við Eiðsgranda er táknræn fyrir sóðaskapinn sem einkennir borgaryfirvöld. 11. Sorphirðugjöld hafa hækkað mikið undanfarin ár en samt sem áður hefur þjónustan versnað stórlega og sorpílát eru aðeins tæmd hálfsmánaðarlega með öllum þeim óþrifnaði sem því fylgir, að ekki sé minnst á rottuganginn. 12. Biðlistar eftir félagslegri þjónustu lengjast dag frá degi og þannig hefur ástandið verið lengi. 13. Kostnaður við Mathöll á Hlemmi fór 79% fram úr áætlun. 14. Á vakt borgarstjórans hafa orðið alvarleg mengunarslys sem hann hefur skirrst við að taka á af festu. Borgaryfirvöld vissu vel að sjósundsfólk synti í skólpmenguðum sjó vikum saman. 15. Norræn rannsókn leiddi í ljós að 6,3 milljónir plastagana berast úr skólphreinsistöðinni við Klettagarða á hverri klukkustund. Plastagnir eru alvarleg ógn við lífríki heimshafanna og Reykjavík ætti sem höfuðborg sjávarútvegsþjóðar að vera í fararbroddi við verndun lífríkis hafsins. Lítið hefur farið fyrir umbótum í þessu efni. 16. Víða hefur verið ráðist í óskiljanlegar gatnaframkvæmdir með gríðarlegum tilkostnaði. Nægir á benda á Birkimel, Sæmundargötu, Borgartún, Hverfisgötu og Grensásveg, að ógleymdri Hofsvallagötu með alls konar hrákasmíð, fuglahúsum og fleiru. 17. Borgarlínan – sem enginn veit hvað er – nema hvað hún á að kosta á annað hundrað milljarða hið minnsta. Þessu sukki var fagnað með sérstakri veislu borgarbrodda sem skattgreiðendur voru látnir greiða hálfa milljón króna fyrir. 18. Eyðilegging besta kostsins fyrir Sundabraut, svokallaðri innri leið, gerir það að verkum að kostnaður margfaldast. 19. Reykjavíkurborg er de facto gjaldþrota og hefur verið um langa hríð. Þannig mætti halda lengi áfram að telja og þarf enginn að velkjast í vafa um að Dagur B. Eggertsson er versti borgarstjóri Reykjavíkur frá upphafi. Sammælumst um að kjósa hann aldrei aftur! Endurreisn borgarinnar getur ekki hafist fyrr en niðurrifsöflin hafa verið brotin á bak aftur. Bolli Kristinsson kaupmaður og Reykvíkingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.