Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 2
Hvaða átak er þetta, breytum leiknum? Þetta er átak til þess að hvetja stelpur til að æfa handbolta og halda þeim lengur. Við þurfum að sýna þeim að þær geta átt mikla framtíð í íþróttum; til þess þurfum við að breyta göml- um og úreltum viðhorfum innan íþróttahreyfingarinnar. Þess má geta að í heiminum eru aðeins 4% íþróttaumfjöllunar um konur; restin er um karla. Hvernig var staðan þegar þú varst stelpa? Ég hafði alltaf mikinn áhuga á íþróttum en mamma mín þurfti bókstaflega að draga mig á æfingar. Ég hafði engar fyr- irmyndir, alla vega ekki neinar sem voru sýnilegar. Ég þekkti enga konu í handbolta og var ekki viss um að ég ætti að verja tíma í þetta ef það væru engir möguleikar í þessu. En þú hélst áfram? Já, ég fékk ekki leyfi til þess að hætta; foreldrarnir leyfðu það ekki. En svo komst ég að því hvað þetta var ótrúlega skemmtilegt og gefandi félagslega. Ég gaf þessu séns og er ótrúlega þakklát fyrir það í dag. Eru ekki fleiri fyrirmyndir úr röðum kvenna í dag? Jú, við erum klárlega á réttri leið. En það er alltaf þetta ójafnvægi sem við þurfum að vinna í. Svo þarf að breyta hugarfarinu og fá fras- ana eins og „að væla eins og stelpa“ eða „að kasta eins og stelpa“ út. Ég kasta örugglega fastar en flestir strákar; það hlýtur þá að vera jákvætt að kasta eins og stelpa. Viltu segja eitthvað að lokun? Já, ég vil segja að þetta snýst ekki bara um að stelpur fari út í at- vinnumennsku í íþróttum, heldur meira að þær komi út í lífið með sterkari sjálfsmynd og að þeim séu allir vegir færir. Morgunblaðið/Eggert ARNA SIF PÁLSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Breytum leiknum! Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020 Aðalslúðurfréttir vikunnar hafa varla farið fram hjá nokkrum manni; heimsókníslenskra meyja á hótelherbergi enskra landliðsmanna í knattspyrnu, semvoru „nota bene“ í sóttkví. Stúlkurnar voru úthrópaðar og niðurlægðar á net- inu; kallaðar ýmsum ljótum nöfnum. Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir kom stúlkunum til varnar í frábærum pistli þar sem hún lýsir sínum eigin bernskubrekum, eða kannski frekar vitleysisgangi ungrar konu. Þar var ekkert dregið undan en skilaboðin voru þau að öll gerum við hluti sem við hefðum betur sleppt og sérstaklega á yngri árum. Ekki er ég jafn hugrökk og Auður að rifja upp prakkarastrik ungdómsára minna opinberlega. Við sem komin erum af léttasta skeiði fáum að eiga minningar, af mis- gáfulegum atburðum og gjörðum, út af fyr- ir okkur því engir voru samfélagsmiðlarnir á áttunda, níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Sem betur fer. Annað stórmál vikunnar, sem fór fyrir brjóstið á mörgum, var teikning af hinum brjóst(a)góða Jesú Kristi, hlaupandi glað- ur undir regnboga. Nokkur hundruð manns sögðu sig úr Þjóðkirkjunni eftir að teikningin birtist á vef kirkjunnar. Það er kannski skiljanlegt að fólk reiddist, hneykslaðist eða varð hissa. Jú, Jesús var auðvitað til í alvöru; hann var karlmaður og ekki var hægt að fara í kynleiðréttingu árið 25 eftir Krist. Hann getur því ekki verið með brjóst, eða hvað? Jú, samkvæmt kirkjunni má hann það bara alveg! Kannski má þá María mey vera með pung, hvað veit ég. Persónulega myndi ég kjósa að hafa Jesú án brjósta, ef ég mætti velja. En að því sögðu þá gæti mér ekki verið meira sama um þessa blessuðu teiknuðu mynd, enda trúlaus með öllu. Líklega er brillíant að vekja athygli á Jesú með þessu móti. Þetta hefur að minnsta kosti skapað umræðu í þjóðfélaginu! Talandi um Jesú og hans boðskap. Hvernig væri að sýna smá umburðarlyndi og hætta að dæma fólk og úthrópa það á samfélagsmiðlum? Dómharkan er mikil og fólk er hreinlega tekið af lífi á netinu. Stúlkurnar tvær sem heimsóttu Bretana eru gott dæmi um það. Og piltarnir ensku líka. Orð meiða, hvort sem þau eru sögð eða rituð. Og þótt trúlaus sé, þá man ég þó eftir þessum góðu orðum: Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum. Af syndurum og brjóstgóðum Jesú Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Jú, Jesús var auðvitaðtil í alvöru; hann varkarlmaður og ekki varhægt að fara í kynleiðrétt- ingu árið 25 eftir Krist. Hann getur því ekki verið með brjóst, eða hvað? Agnes Sandholt Tesla. Módel S. SPURNING DAGSINS Hver er drauma- bíllinn þinn? Jón Friðrik Gunnarsson Ætli það sé ekki bara Peugeot. Júlía Guðjónsdóttir Nýi Volvoinn. Þorri Arnarsson Á meðan ég er ekki milljarðamær- ingur mun ég bara eiga ljóta bíla af því ég klessi þá alltaf. Þannig að ég segi bara Toyota Corolla. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Íris Dögg Einarsdóttir Arna Sif Pálsdóttir er landsliðskona í handbolta og spilar með Val. Hún vinnur hjá H:N Markaðssamskiptum, sem unnu herferðina Breytum leiknum fyrir HSÍ. Árgerð 2014, ekinn 45 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur 7 gírar. Leður, lúga og fl. Verð 7.990.000. Rnr. 212941 Sértilboðsverð 5.990.000 MERCEDES-BENZ E 400 AMG Athugið breyttan opnunartíma: Mánudaga-föstudaga kl. 10-17, laugardaga kl. 12-15

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.