Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 24
Rauðan og hvítan-
grunnskóli
Lesa
Skrifa
Reikna
Náttúrufræði
Virðing og
tillitssemi
Tónlist,
söngur
Leiklist, tjáning
Myndmennt Hreyfi ng, íþróttir
Líffræði
Heimilisfræði
Samfélagsgreinar
EnskaEf maður skoðar grunnskól-ann er mjög mikilvægt aðhann sjái til þess að börn
öðlist grunnleggjandi færni í
lestri, skrift, náttúrufræði og
stærðfræði. Grunnleggjandi færni
er lykilatriði fyrir börn að ná tök-
um á til þess að geta öðlast þekk-
ingu. Þekking er algjört lykilatriði
fyrir framfarir í öllum þjóð-
félögum.
Eins og skýringamyndin sýnir
eru þessir þættir inni í rauðunni.
Hérna er mikilvægt að maður noti
þær aðferðir sem rannsóknir sýna
að séu þær bestu fyrir nám. Í
rannsóknum kemur ein aðferð
best út við lestrarkennslu. Það er
hljóðaaðferð (eindaraðferð) – bók-
staf-hljóð-aðferð. Bókstaf-hljóð-
kunnátta er hornsteinn fyrir lest-
ur samkvæmt fremstu vís-
indamönnum í heiminum á sviði
lestrar (Nation, Dehaene, Lyyt-
inen og Tønnesen).
Frábærir kennarar sem hafa
unnið lengi við kennslu lesturs
styðja einnig notkun hljóðaaðferð-
ar og mikilvægi bókstaf-hljóða-
kunnáttu fyrir læsi. Sem sagt að
kenna börnum bókstafina og
þeirra hljóð,
vinna með að
lesa tveggja og
þriggja stafa orð
og síðan fjögurra
og fimm stafa
orð og stuttar
setningar. Þang-
að til læsi er náð.
Þegar læsi er
náð er aðal-
áherslan á að
stuðla að aukinni þjálfun barna.
Hérna erum við að tala um
kennslu byrjenda.
Þegar börn hafa brotið lestrar-
kóðann, geta lesið orð með 2, 3 og
4 bókstöfum, er höfuðmálið að
vekja áhuga þeirra á lestri og fá
þau til að lesa eins margar bækur
og þau geta. Þar gegna lykilhlut-
verki bókasöfn bæði skóla og bæj-
arfélaga – sjáum til þess að börn
og unglingar geti fundið bækur
við hæfi. Markviss þjálfun er al-
gjört lykilatriði í sambandi við að
læra að lesa og að verða góður í
lestri. Því lestur er færni og færni
þarf að þjálfa til að hún verði
betri.
Þau börn sem ekki ná tökum á
lestrinum verða að fá aðstoð. Mað-
ur verður að finna út hvar þau
standa, finna hvaða bókstafi-hljóð
þau kunna og sjá til þess að þau
læri þá bókstafi-hljóð sem þau
ekki kunna. Annað sem er mjög
mikilvægt er að þau börn sem
ekki fá hjálp heima verða að fá
aðstoð i skólanum – þjálfunartíma
– með okkar besta fagfólk. Sama á
við um þjálfun á handskrift, þar
er mikilvægt að vinna með að
skrifa alla bókstafina. Það sem er
sérstakt með skriftarþjálfun er að
sú handskrift sem maður þjálfar,
verður sjálfvirk. Það er að segja
gæði þeirrar handskriftar sem er
orðin sjálfvirk er erfitt að breyta
nema með að hefja aftur skrift-
arþjálfun. Þá þarf sem sagt að
brjóta upp „gamla“ munstrið og
skapa nýtt munstur.
Í kennslu stærðfræði er einnig
mikilvægt að vinna með grunninn.
Byrja með að vinna með plús og
mínus. Síðan bæta við margföldun
og deilingu. Gífurlega mikilvægt
er að fylgja hverju barni vel eftir,
þannig að það lendi ekki á eftir
hinum.
Rannsóknir hafa sýnt að lítil
fylgni er á milli
ólíkra stærð-
fræðiþátta hjá
10 ára börnum.
Það er að segja
þau gætu verið
góð í samlagn-
ingu (5 + 10)
en ekki sam-
lagningu í
texta: Óli
keypti epli sem
kostaði 10 kr. og appelsínu sem
kostaði 5 kr. Hversu mikið borg-
aði Óli?
Hérna er sérhæfing mikilvæg
og sýnir mikilvægi sérhæfðrar
þjálfunar. Í sambandi við orða-
dæmi hafa fræðimenn bent á að
kannski væri sniðugra að byrja
ekki með orðadæmi í 2. bekk, þeg-
ar 30% barna eru ólæs, heldur
seinna, í lok barnaskólans.
Náttúrufræðikunnáttu verðum
við að efla með markvissri kennslu
barna frá 1. bekk. Skapa ástríðu
fyrir náttúrufræði og umhverfi.
Lykilatriði í sambandi við
færninám er þálfun og að börn fái
áskoranir miðað við færni.
Eflum grunnleggjandi færni
fyrir þekkingarþróun.
Grunnskólinn og grunnliggjandi færni
Vísindi og
samfélag
Hermundur
Sigmundsson
hs@ru.is
Herdís Egilsdóttir, lestrarkennari og rit-
höfundur, notaði hljóðaaðferð alla sína
tíð í lestrarkennslu með góðum árangri.
Morgunblaðið/Golli
Morgunblaðið/Styrmir Kári
’ Lykilatriði í sam-bandi við færninámer þálfun og að börn fáiáskoranir miðað við
færni. Eflum grunn-
leggjandi færni fyrir
þekkingarþróun.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020
LÍFSSTÍLL