Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 24
Rauðan og hvítan- grunnskóli Lesa Skrifa Reikna Náttúrufræði Virðing og tillitssemi Tónlist, söngur Leiklist, tjáning Myndmennt Hreyfi ng, íþróttir Líffræði Heimilisfræði Samfélagsgreinar EnskaEf maður skoðar grunnskól-ann er mjög mikilvægt aðhann sjái til þess að börn öðlist grunnleggjandi færni í lestri, skrift, náttúrufræði og stærðfræði. Grunnleggjandi færni er lykilatriði fyrir börn að ná tök- um á til þess að geta öðlast þekk- ingu. Þekking er algjört lykilatriði fyrir framfarir í öllum þjóð- félögum. Eins og skýringamyndin sýnir eru þessir þættir inni í rauðunni. Hérna er mikilvægt að maður noti þær aðferðir sem rannsóknir sýna að séu þær bestu fyrir nám. Í rannsóknum kemur ein aðferð best út við lestrarkennslu. Það er hljóðaaðferð (eindaraðferð) – bók- staf-hljóð-aðferð. Bókstaf-hljóð- kunnátta er hornsteinn fyrir lest- ur samkvæmt fremstu vís- indamönnum í heiminum á sviði lestrar (Nation, Dehaene, Lyyt- inen og Tønnesen). Frábærir kennarar sem hafa unnið lengi við kennslu lesturs styðja einnig notkun hljóðaaðferð- ar og mikilvægi bókstaf-hljóða- kunnáttu fyrir læsi. Sem sagt að kenna börnum bókstafina og þeirra hljóð, vinna með að lesa tveggja og þriggja stafa orð og síðan fjögurra og fimm stafa orð og stuttar setningar. Þang- að til læsi er náð. Þegar læsi er náð er aðal- áherslan á að stuðla að aukinni þjálfun barna. Hérna erum við að tala um kennslu byrjenda. Þegar börn hafa brotið lestrar- kóðann, geta lesið orð með 2, 3 og 4 bókstöfum, er höfuðmálið að vekja áhuga þeirra á lestri og fá þau til að lesa eins margar bækur og þau geta. Þar gegna lykilhlut- verki bókasöfn bæði skóla og bæj- arfélaga – sjáum til þess að börn og unglingar geti fundið bækur við hæfi. Markviss þjálfun er al- gjört lykilatriði í sambandi við að læra að lesa og að verða góður í lestri. Því lestur er færni og færni þarf að þjálfa til að hún verði betri. Þau börn sem ekki ná tökum á lestrinum verða að fá aðstoð. Mað- ur verður að finna út hvar þau standa, finna hvaða bókstafi-hljóð þau kunna og sjá til þess að þau læri þá bókstafi-hljóð sem þau ekki kunna. Annað sem er mjög mikilvægt er að þau börn sem ekki fá hjálp heima verða að fá aðstoð i skólanum – þjálfunartíma – með okkar besta fagfólk. Sama á við um þjálfun á handskrift, þar er mikilvægt að vinna með að skrifa alla bókstafina. Það sem er sérstakt með skriftarþjálfun er að sú handskrift sem maður þjálfar, verður sjálfvirk. Það er að segja gæði þeirrar handskriftar sem er orðin sjálfvirk er erfitt að breyta nema með að hefja aftur skrift- arþjálfun. Þá þarf sem sagt að brjóta upp „gamla“ munstrið og skapa nýtt munstur. Í kennslu stærðfræði er einnig mikilvægt að vinna með grunninn. Byrja með að vinna með plús og mínus. Síðan bæta við margföldun og deilingu. Gífurlega mikilvægt er að fylgja hverju barni vel eftir, þannig að það lendi ekki á eftir hinum. Rannsóknir hafa sýnt að lítil fylgni er á milli ólíkra stærð- fræðiþátta hjá 10 ára börnum. Það er að segja þau gætu verið góð í samlagn- ingu (5 + 10) en ekki sam- lagningu í texta: Óli keypti epli sem kostaði 10 kr. og appelsínu sem kostaði 5 kr. Hversu mikið borg- aði Óli? Hérna er sérhæfing mikilvæg og sýnir mikilvægi sérhæfðrar þjálfunar. Í sambandi við orða- dæmi hafa fræðimenn bent á að kannski væri sniðugra að byrja ekki með orðadæmi í 2. bekk, þeg- ar 30% barna eru ólæs, heldur seinna, í lok barnaskólans. Náttúrufræðikunnáttu verðum við að efla með markvissri kennslu barna frá 1. bekk. Skapa ástríðu fyrir náttúrufræði og umhverfi. Lykilatriði í sambandi við færninám er þálfun og að börn fái áskoranir miðað við færni. Eflum grunnleggjandi færni fyrir þekkingarþróun. Grunnskólinn og grunnliggjandi færni Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hs@ru.is Herdís Egilsdóttir, lestrarkennari og rit- höfundur, notaði hljóðaaðferð alla sína tíð í lestrarkennslu með góðum árangri. Morgunblaðið/Golli Morgunblaðið/Styrmir Kári ’ Lykilatriði í sam-bandi við færninámer þálfun og að börn fáiáskoranir miðað við færni. Eflum grunn- leggjandi færni fyrir þekkingarþróun. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.