Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 28
HEILUN Málmbandið Papa Roach er í hljóð-
veri um þessar mundir að semja og taka upp
nýja plötu. Í samtali við bandarísku útvarps-
stöðina WEBN segir Jacoby Shaddix söngvari
rífandi gang í verkefninu og að efnið sé fun-
heitt. Þar á meðal er lag, No Apologies, sem
Shaddix tileinkar föður sínum. „Tilgangurinn
er að fyrirgefa allt sem gengið hefur á í lífi
okkar feðga en af einhverjum ástæðum
höfum við ekki tengt. Í þessu fólst mikil
heilun fyrir mig. Ég get ekki beðið eftir að
hafa uppi á gamla manninum og spila þetta
lag fyrir hann og gera um leið upp okkar
sakir. Tónlistin gefur okkur það tækifæri.“
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020
LESBÓK
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Fjarðarkaup, Melabúðin, Frú Lauga,
Matarbúr Kaju Akranesi
BÆKUR Fyrsta opinbera bókin um breska málmbandið Judas Priest er
væntanleg með haustinu og byrjað var að taka við pöntunum á föstu-
daginn var. Bókin heitir einfaldlega „Judas Priest - 50 Heavy Metal
Years“ og leggja allir núverandi bandingjar sitt lóð á vogarskálarnar.
Bókin er mikil vöxtum, alls 648 síður í stóru broti (óskiljanlegt að menn
hafi ekki bætt við átján síðum) og er eftir David Silver, Ross Halfin
og Jayne Andrews. Ekki fylgir sögunni hvað KK Downing, fyrr-
verandi gítarleikara Judas Priest, finnst um
gjörninginn en hann hefur um skeið
staðið í deilum við sína gömlu fé-
laga. Rob Halford söngvari gerir
það hins vegar ekki endasleppt en
sjálfsævisaga hans, „I Confess“,
kemur út 29. september næstkomandi.
Geistlegar bókmenntir
Ritræpa rann á
Rob Halford. AFP
Semur um samband sitt við föður sinn
Jacoby Shaddix hlakkar til að hitta pabba gamla.
AFP
Billy Piper leikur aðalhlutverkið.
Allt í hakki
VESEN Leikkonan og söngkonan
Billie Piper hefur verið að fá góða
dóma fyrir frammistöðu sína í bik-
svartri kómedíu, I Hate Suzie, sem
byggist á lífi hennar sjálfrar. Piper
leikur þar söng- og leikkonu, Suzie
Pickles, sem er á hraðri uppleið en
magalendir harkalega þegar ein-
hver hakkar sig inn í símann henn-
ar og dreifir myndum af henni í
æsilegum ástarleikjum með manni
sem er alls ekki eiginmaður henn-
ar. Að vonum snýst veröld Suzie á
hvolf og góð ráð eru dýr. Lucy
Prebble skrifar handritið, eins og
þegar Piper fór með aðalhlutverkið
í annarri biksvartri kómedíu, Se-
cret Diary of a Call Girl, fyrir heil-
um þrettán árum.
Það myndi ég nú ætla,“ flýtirTómas Þór Þórðarson, rit-stjóri Enska boltans í Sjón-
varpi Símans, sér að segja þegar
ég velti því upp hvort það beri
ekki hæst í sjónvarpsdagskránni
um helgina að keppni í úrvals-
deildinni sé að hefjast á ný eftir
óvenju stutt hlé.
„Þetta leggst bara vel í mig,“
heldur hann áfram. „Alla vega bet-
ur en það gerði þegar við hættum
í sumar; maður var orðinn býsna
lúinn þá enda var lokaspretturinn
á því tímabili eins og við þekkjum
ofboðslega skrýtinn og for-
dæmalaus. Enginn hefur lent í
öðru eins.“
Þar vísar hann vitaskuld til
heimsfaraldursins sem skar mótið
í sundur í mars og hafði þær af-
leiðingar að meistarar, sem unnu
mótið með metfjölda leikja eftir,
voru ekki krýndir fyrr en um há-
sumar, löngu síðar en menn eiga
að venjast. „Við náðum að hefja
þetta mót í ágúst og ljúka því í
júlí. Það verður líklega aldrei leik-
ið eftir. Ekki nóg með það, okkur
tókst líka að gera Liverpool að
meisturum, fyrst allra áskrift-
arstöðva hér á landi. Þannig að
þetta var óvenju viðburðaríkt
tímabil og ekki laust við að kom-
inn sé dúndrandi fiðringur í mann
að byrja aftur.“
– Það þarf væntanlega ekki að
segja ykkur eftir þennan fyrsta
vetur sem sýningarrétturinn var
hjá Sjónvarpi Símans að allt getur
gerst?
„Heldur betur. Það er enginn
viðbúnari en við og engin leið að
koma okkur á óvart,“ svarar hann
sposkur.
Spurður um nýjungar á tíma-
bilinu sem nú fer í hönd svarar
Tómas Þór því til að stöðugleiki sé
vanmetin auðlind í íþrótta-
sjónvarpi. „Þetta verður með mjög
áþekku sniði og á síðasta tímabili.
Við verðum með Völlinn á sama
tíma, beint eftir seinasta leik á
sunnudögum, og áhorfendur munu
sjá sömu andlitin, Eið Smára Guð-
johnsen, Margréti Láru Viðars-
dóttur og Bjarna Þór Viðarsson.
Freyr Alexandersson mun líka
kíkja á okkur reglulega og Gylfi
Einarsson, sem kom stundum í
heimsókn á síðasta tímabili, verður
fastur maður í vetur enda eru
hans menn, Leeds United, aftur
komnir á sinn stað í úrvalsdeild-
inni.“
Hann nefnir einnig nýja tölvu-
tækni sem geri hópnum kleift að
búa til meira efni inn á mbl.is og
samfélagsmiðla í beinni útsend-
ingu. „Þarna getum við búið til
lengri hala á leiki og haldið um-
ræðum um þá gangandi. Þannig að
þjónustan við áhorfendur verður
enn þá betri.“
Tókst að gera
Liverpool að
meisturum
Enda þótt keppni í ensku úrvalsdeildinni sé rétt
lokið þá hefst hún að nýju um helgina. Veturinn
leggst vel í Tómas Þór Þórðarson, umsjónarmann
Enska boltans í Sjónvarpi Símans, og hann vonast
eins og fleiri eftir jafnara móti að þessu sinni.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Tómas Þór Þórðarson segir viðtökur í Sjónvarpi Símans hafa verið góðar.
Sjónvarp Símans/Ari Magg