Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020 LÍFSSTÍLL Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Nýja Tokyo línan komin í sýningasal Moorthy, eins og hann er kallaður á Ís-landi, er frá Suður-Indlandi. Hannhefur búið hér í 22 ár en hingað kom hann ungur maður í ævintýraleit, þá 26 ára gamall. Sá í fyrsta sinn snjó „Ég elska Ísland. Áður en ég kom hingað vann ég á fimm stjörnu hóteli á Suður-Indlandi. Ég er lærður kokkur,“ segir hann og segist hafa komið hingað fyrir tilstilli vinar síns. „Vinur minn var á Íslandi og bauð mér vinnu þannig að ég sló til. Það var frábært að koma hingað, ungur og ókvæntur. Ég sá þá í fyrsta sinn á ævinni snjó,“ segir Moorthy sem segist aldrei hafa ferðast áður en hann kom til Ís- lands. „Ég kom svo einhvern tímann í heimsókn til Akureyrar og féll fyrir bænum og hef verið hér síðan, en ég bjó fyrstu sjö árin í Reykjavík.“ Til Indlands í konuleit Moorthy fer árlega heim til Indlands að heim- sækja fjölskylduna og í eitt skipti kom hann til baka með eiginkonu. „Ég fór til Indlands þegar ég var 32 ára til að finna mér konu,“ segir hann og hlær. „Foreldrar mínir fundu konu fyrir mig og við hittumst nokkrum sinnum áður en við giftumst. Fjölskyldur okkar þekkjast. Jot- himani var alveg til í að flytja til Íslands. Það var líka í fyrsta skipti sem hún fór út fyrir landsteinana. Við komum svo beint til Ak- ureyrar og hún vinnur með mér hér á veit- ingastaðnum.“ Það var svo á því herrans góðærisári 2007 að Moorthy og Jothimani ákveða að opna ind- verskan „take-away“-stað í Hafnarstræti. Fyr- ir tveimur árum fluttu þau sig um set og opn- uðu veitingastaðinn Indian Curry House sem stendur við Ráðhústorg. „Maturinn hér er blanda af mat frá Suður- og Norður-Indlandi. Mér finnst tandoori- lambið best,“ segir hann og segir Íslendinga mjög hrifna af matnum. „Við notum mikið cumin, chilli og kórían- derkrydd,“ segir Moorthy og segist sjálfur flytja inn kryddin beint frá Indlandi. „Við kaupum alltaf ný og fersk krydd í hvert sinn sem við förum til Indlands og komum með þau heim í ferðatöskum. Við komum heim með tuttugu, þrjátíu kíló í hvert sinn,“ segir hann. „Mamma og pabbi hjálpa okkur að þurrka kryddin,“ segir hann og segir foreldra sína ekki hafa komið til Íslands því þeim finnist of kalt hér. „Mér finnst ekki of kalt hér. Á Indlandi er of heitt; það getur farið í 40-45 gráður,“ segir hann. Hjónin eiga þrjú börn, fjórtán, tíu og átta ára, og er töluð tamílska á heimilinu. Fyrstu tvö börnin bera indversk nöfn en sú yngsta heitir Svanhildur. „Það er bara svo fallegt nafn.“ Ég elska Akureyri Jothimani birtist inn um dyrnar og er drifin í viðtal. „Ég kom hingað árið 2005 og ég elska Ak- ureyri. Við höfum kynnst mörgu fólki hér. Ég vinn með Moorthy og er líka kokkur,“ segir hún og segist hafa lært af ellefu ára reynslu í eldhúsinu á veitingastað þeirra hjóna. „Hún er mjög góður kokkur,“ skýtur Moorthy inn í. „Ég hef haft mikið að gera síðan ég kom; eignast þrjú börn og svo vinnan,“ segir hún og segist una hag sínum vel á Íslandi. Morgunblaðið/Ásdís Með töskur fullar af kryddum Hjónin Moorthy og Jothi- mani hafa fært Akureyr- ingum og ferðamönnum Indland á diski í áraraðir. Ilmandi lykt af indverskum mat leggur út á Ráðhústorg Akureyrar en þar má finna Indian Curry House. Sathiya Moorthy Muthuvel og kona hans Jothimani elda mat frá ýmsum svæðum Indlands. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is 4 laukar saxað kóríanderlauf 2 stk. karrýlauf, söxuð 1 hvítlauksrif ½ grænt chilli 1 tsk. fennelfræ salt 1 tsk. cumin-krydd 1 tsk. chilliduft 2 dl Besan-hveiti (gram flour sem er til í Nettó) 2-3 msk. vatn olía til djúpsteikingar Skerið lauk í þunna strimla. Saxið kóríander, karrýlauf, fennel, hvít- lauk og chilli og bland- ið saman við laukinn. Kryddið með salti, cumin, turmerik og chillidufti. Blandið öllu vel saman með höndunum. Setjið hveitið í skál, hellið vatninu saman við, það þarf alls ekki mikið og deigið má ekki vera of blautt. Veltið lauknum upp úr deiginu og búið til litl- ar kökur. Setjið kökurnar út í heita olíu og steikið í 3-4 mínútur eða þar til kökurnar eru brún- ar. Þetta tekur smá stund og það er ágætt að snúa kökunum við nokkrum sinnum og gætið þess að snúa þeim við varlega, þær eru svolítið við- kvæmar. Þerrið á eldhús- pappír og kryddið með salti. Berið strax fram. Lauk-pakoda

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.