Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Qupperneq 18
Söngkonan Rita Ora er meðal þeirra semtóku þátt í að óska Fendi til hamingjumeð töskuna frægu sem varð tólf ára í
vikunni.
Taskan hefur notið vinsælda frá því hún kom
fyrst fram á sjónarsviðið en þá útskýrði Silvia
Venturini Fendi að hugmyndin á bak við töskuna
væri að færa nútímakonunni eitthvað einfalt og
smart sem gæti gengið við alls konar tækifæri.
Tískuhúsið virðist hafa fengið nokkra þekkta
einstaklinga til að birta ljósmynd af sér með
uppáhalds Peekaboo-töskuna á samfélags-
miðlum.
12 ár frá því Peeka-
boo-taskan frá
Fendi varð til
Peekaboo-taskan frá Fendi er án efa
ein vinsælasta taska veraldar.
Söngkonan Rita Ora birti
þessa mynd af sér með
hvítu Peekaboo töskuna
sína í vikunni.
Ég reyni að huga að heilsunni, húðinni oghárinu. Líkamleg og andleg heilsa hafatöluverð áhrif á útlitið svo ég hef heils-
una oftast í forgangi. Svo passa ég mig að halda
húðinni og hárinu vel nærðu með nóg af raka, á
húðina ber ég hreina arganolíu og svo nota ég
bara Bruns-hárvörur frá Heiðrúnu á Grænu
stofunni í hárið mitt en þær gera kraftaverk,“
segir Una um hvernig hún hugsar um útlitið.
Hvernig málar þú þig dags daglega?
„Ég byrja á því að bera á mig rakakrem og
High spreadability fluid primer. Ég set svo á
mig léttan The Ordinary serum-farða og yfir
hann hálfgegnsætt Laura Mercier púður. Ég
nota mikið Hourglass ambient lighting blush-
pallettuna mína til þess að skyggja
og setja smá lit í kinnarnar. Ég
set svo á mig maskara og ein-
hvern hógværan varalit.“
En þegar þú ferð eitthvað
spari?
„Ég er mjög hrifin af því að
eiga fáar en góðar snyrtivörur
sem endast lengi. Ef ég er að
fara eitthvað spari set ég oftast
á mig farða úr sömu línu sem
þekur betur og hyljara. Ég
nota svo Hourglass-pallettuna
en hef skygginguna og highlig-
hter örlítið ýktari. Ég á mjög hentugan Eyes to
mesmerise-kremaugnskugga frá Charlotte Til-
bury sem hentar öllum sparitilefnum og þegar
ég er hugrökk reyni ég við augnblýantinn.
Þessa dagana nota ég oftast rauðan Benecos-
varalit sem ég keypti í flýti kvöldið áður en ég
gifti mig.“
Hvað tekur það þig langan tíma að gera þig
til?
„Ég á eins árs dóttur og við vöknum saman á
morgnana. Ég er oftast með annan fótinn inni á
baði að gera mig til á milli þess sem ég sinni
henni svo það getur tekið allt frá 15 til 30 mín-
útur. Ef ég er að fara eitthvað fínt tekur það oft-
ast 30 til 40 mínútur, ég reyni að gefa mér að-
eins lengri tíma og vanda mig betur við
förðunina.“
Una var í níunda bekk þegar hún byrjaði að
mála sig. „Ég grátbað mömmu um leyfi, sem
ranghvolfdi bara augunum. Ég var nýkomin
heim úr ströngum skóla í Bretlandi þar sem
förðun, skór með hærri hæla en tveir sentimetr-
ar og húðlitaðar sokkabuxur voru á bannlist-
anum. Eftir að ég kom heim saknaði ég skóla-
búningsins en fagnaði frelsinu til þess að farða
mig. Ég keypti mér Maybelline Dream Matte
Mousse-dollu, svartan augnablýant og maskara
en þessar þrjár vörur voru þær einu í snyrti-
töskunni minni þar til ég útskrifaðist úr
menntaskóla.“
Hvernig hugsar þú um húðina?
„Ég reyni að gera mitt besta. Guðrún vinkona
mín er dóttir húðlæknis og hamraði hún það inn
í hausinn á mér að nota sólarvörn daglega. Ég
keypti mér rakakrem með SPF 30-vörn en þeg-
ar það er mikil sól úti ber ég líka sólarvörn dótt-
ur minnar á andlitið en hún er mikið sterkari.
Ég passa líka að þrífa alltaf af mér farða áður en
ég fer að sofa og reyni að halda mig við einfalda
en áhrifaríka húðrútínu. Ég nota serum frá The
Ordinary sem heitir buffet öll kvöld og morgna
en á kvöldin nota ég 0,2% retinolblöndu sem ég
skipti stundum út fyrir sýru. Áður en ég fer að
sofa ber ég svo á mig hreina arganolíu. Sam-
kvæmt mínum heimildum á rútínan að halda
húðinni unglegri en ég get ekki staðfest það fyrr
en eftir að minnsta kosti 15 ár. Ég nota bara
Hyljarinn guðs-
gjöf eftir lítinn
nætursvefn
Una Hildardóttir, upplýsingafulltrúi, forseti Landssambands
ungmennafélaga og varaþingmaður Vinstri grænna, hugsar
vel um húðina og er hrifin af því að eiga fáar en góðar snyrti-
vörur. Auk þess að hugsa um hvernig snyrtivörur fara með
húðina hugsar hún um hvernig þær fara með umhverfið.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Una notaði lengi
Dream Matte Mousse
frá Maybelline.
Ljósmynd/Maybelline
Una notar serumið The
Buffet frá Ther Ordinary
kvölds og morgna.
Ljósmynd/The Ordin-ary
Secret Camouflage-
hyljarinn frá Lauru
Mercier er í miklu
uppáhaldi hjá Unu.
Ljósmynd/Laura Mercier
Unu dreymir um vara-
lit frá Zao. Hægt er að
fylla á varalitina.
Ljósmynd/Zao
Ambient lighting blush
palletta frá Hourglass.
Ljósmynd/Hourglass
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020
LÍFSSTÍLL