Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.09.2020, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.9. 2020 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Dóra og vinir 09.05 Mæja býfluga 09.20 Adda klóka 09.45 Zigby 09.55 Mia og ég 10.20 Lína langsokkur 10.45 Latibær 11.05 Lukku láki 11.30 Ævintýri Tinna 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.50 Impractical Jokers 14.55 Life and Birth 15.55 Kviss 16.45 FC Ísland 17.30 60 Minutes 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.50 Sportpakkinn 19.00 Bibba flýgur 19.25 Steinda Con: Heimsins furðulegustu hátíðir 20.05 Who Wants to Be a Millionaire 20.55 Grantchester 21.45 Salisbury Poisonings 22.35 Two Sisters One Body 23.25 Queen Sugar 00.10 Wentworth ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Sögur frá Grænlandi 20.30 Hvítir mávar – þáttur 1 Endurt. allan sólarhr. 14.00 Omega 15.00 Joel Osteen 15.30 Charles Stanley 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 22.30 Gegnumbrot 23.30 Tónlist 20.00 Mannamál – sígildur þáttur (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Hjúkrun í heila öld Endurt. allan sólarhr. 12.35 Dr. Phil 13.20 Dr. Phil 14.05 Dr. Phil 14.50 Dr. Phil 15.35 Carol’s Second Act 16.00 90210 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 17.35 A Million Little Things 18.20 This Is Us 19.05 Með Loga 20.00 The Block 21.20 The Act 22.15 Billions 23.10 Love Island 00.05 Hawaii Five-0 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Tríó. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.05 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Dóm- kirkjunni. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 12.40 Veðurfregnir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Jazzhátíð Reykjavíkur 30 ára. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Píanógoðsagnir. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Orð um bækur. 20.35 Gestaboð. 21.30 Úr gullkistunni. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Friðþjófur forvitni 07.39 Klingjur 07.50 Lalli 07.57 Grettir 08.08 Nellý og Nóra 08.15 Robbi og Skrímsli 08.37 Hæ Sámur 08.44 Unnar og vinur 09.07 Múmínálfarnir 09.29 Sammi brunavörður 09.40 Millý spyr 10.00 Reikistjörnurnar 11.00 Silfrið 12.10 Lestarklefinn 13.05 Í góðri trú – saga ís- lenskra mormóna í Ut- ah 13.40 Séra Brown 14.25 Bítlarnir að eilífu – Lucy in the Sky With Dia- monds 14.35 Ant Middleton leggur á Everest 15.25 Fólkið mitt og fleiri dýr 16.15 Til hamingju með af- mælið Beethoven! 17.20 Menningin – samantekt 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 99% norsk 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Smáborgarasýn Frí- manns 20.05 Í góðri trú – saga ís- lenskra mormóna í Ut- ah 20.35 Snilligáfa Einsteins 21.40 Norrænir bíódagar: Aminas breve 12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í gleðinni með K100. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn er eini opinberi vinsældalisti landsins. 18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt kvöld. Í Síðdegisþætti Loga Bergmanns og Sigga Gunnars viðurkenndi Siggi að draumastarf hans væri að verða flugfreyja. Hann segir spennandi að fá að ávarpa flug- gesti og telur sig tilvalinn í starfið. Logi samsinnir því að Siggi gæti orðið góð flugfreyja en efast þó aðeins um þjónustulund hans. Segir hann líklega myndu verða of uppáþrengjandi við gesti flugvélarinnar. Dreymir um að verða flugfreyja Siggi telur sig tilvalinn í starfið. Feneyjum. AFP. | Afi hennar, Francis Ford Coppola, gerði Guðföð- urinn þannig að það þarf ekki að koma á óvart að fjölskyldan gegni stóru hlutverki í lífi Giu Coppola og frama hennar sem leikstjóri. Gia Coppola varði löngum stund- um í æsku á tökustað hjá frænku sinni, Sofiu Coppola, sem gerði með- al annars myndirnar Virgin Suicides og Lost in Translation, og það hafði greinilega áhrif. Miðar á forsýningar á mynd henn- ar Mainstream á kvikmyndahátíð- inni í Feneyjum fyrir viku spændust upp á augabragði. Þar fjallar hún um þá sem búa til efni fyrir YouTube og oft og tíðum eitraða menningu áhrifavalda á félagsmiðlum. Og aldrei þessu vant stóðst mynd- in, sem vakið hafði mesta eftirvænt- ingu, væntingar, ekki síst vegna töfrandi frammistöðu breska leik- arans Andrew Garfield í hlutverki aðlaðandi flækings, sem á einni nóttu slær í gegn í netheimum. Myndin kemur frá hjartanu og í henni eru notaðar sams konar brell- ur og tilfinningatakn og þeir sem búa til efni fyrir YouTube beita. Þar má nefna að helsta kvenpersóna mynd- arinnar gubbar brostnum hjörtum þegar kærastinn svíkur hana. „Þetta fólk hefur milljónir fylgj- enda og gríðaleg áhrif,“ sagði Cop- pola við AFP. „Ég var forvitin um valdið, sem þetta fók getur haft. All- ar þessar spurningar um hvernig við erum fórnarlömb þess að vilja fá viðurkenninguna sem fylgir því að fá læk og hvað felist í því að ná vinsæld- um sveimuðu um í höfðinu á mér [þegar ég var að skrifa handritið]. Viljum við snúa bökum saman eða ætlum við bara að vera eigingjörn og leggja í einelti? Mörgum finnst þeir vera utangarðs í menningu samtím- ans og hvar passar hver og einn inn í á félagsmiðlum?“ Garfield (sem lék í þáttaröðunum Stranger Things) er ekki skyldur Coppola, en sú tilfinning vaknar að allir aðrir sem koma að myndinni séu af aðlinum í Hollywood. Maya Hawke, elsta barn Umu Thurman og Ethans Hawkes, er hjarta myndarinnar, barþjónn í basli af z-kynslóðinni, sem er að reyna að slá í gegn á YouTube. Jason Schwartzman leikur netverja, sem kemur við sögu. Hann er sonur Taliu Shire, sem lék í Guðföðurnum og Rocky og er systir Francis Ford Coppola. Móðir Giu Coppola, Jacqui de la Fontaine, hannaði búningana. „Það er gaman að vinna með fjöl- skyldunni, sérstaklega Jason,“ sagði Coppola við AFP. Líkt og um fyrstu mynd hennar, Palo Alto, má segja að Mainstream fjalli um það þegar ráðvönd stúlka hittir slæman dreng. „Þetta er gömul saga fyrir konur, en sönn. Þegar þú elskar einhvern og vilt vera elskuð og sleppir taki á sið- ferðinu og eðlisávísuninni til að ein- beita þér að einhverjum af fullum krafti getur það orðið uggvænlegt þegar sú persóna reynist hættuleg,“ sagði hún. Coppola segist ekki byggja á eigin reynslu. „Ég hef enga reynslu af hættulegum, heillandi mönnum, en er hrifin af slíkum persónum í bíó- myndum.“ Hún segist ekki gera bíó- myndir bara til að gera bíómyndir, heldur endurspegli þær hvar hún sé stödd í sínu lífi: „Ég get aðeins unnið með efni, sem ég tengi við.“ Leikkonan Maya Thurman-Hawke og leikstjórinn Gia Coppola mæta á forsýn- ingu á myndinni Mainstream á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir viku. AFP GIA COPPOLA VEKUR EFTIRVÆNTINGU Í FENEYJUM Gerir bíó um áhrifavalda Atriði úr kvikmyndinni Main- stream eftir Giu Coppola. Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVARSEMÞÚERT SAMSTARFSAÐILI Öryggiskerfi 15:04 100%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.