Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2020, Qupperneq 24
auðvelt að sannfæra fjölskylduna.
Svo árið 2017 fluttum við norður og
ég opnaði kaffihúsið 2018. Ég vissi
ekkert um rekstur eða endurbætur
á húsum þannig að ég fór á mörg
námskeið og fékk alls kyns ráðlegg-
ingar,“ segir María.
„Einn ráðlagði mér að vera ekki
að setja mig í skuldir heldur ætti ég
bara að gera það sem ég kann; fara í
búning, segja sögur, búa til kaffi. Ég
tók þann pól í hæðina, safnaði á Kar-
olinafund og sótti um alla styrki sem
ég komst í. Ég bauð Ólafi Ragnari
Grímssyni í kaffi, því ég frétti að
mamma hans hefði fengið berkla.
Honum fannst þetta frábær hug-
mynd og styrkti verkefnið bæði með
fjármagni og sögu móður sinnar sem
er mögnuð og verður sögð á sýning-
unni,“ segir hún.
Maríu tókst svo að safna nóg til
þess að standsetja kaffihúsið og
safnið en þar eru sagðar sögur af
missi, sorg, einangrun og örvænt-
ingu en ekki síður von, æðruleysi,
lífsþorsta og rómantík.
Hrúgað í stofurnar
„Hér á Akureyri var verið að höggva
fólk við berklum. Það var hrikaleg
aðgerð. Þetta var neyðarúrræði; þá
var skorið í bakið, í staðdeyfingu,
kjötið skrapað af beinunum, og tvö
og upp í níu rifbein klippt úr til að
leggja lungað saman endanlega og
þá náði berklasárið að gróa. Svona
voru margir höggnir og lögðust svo
inn á Kristnes,“ segir hún og upp-
lýsir blaðamann að berklahælið
Kristnes hafi verið opnað árið 1927
en Vífilsstaðir árið 1910.
„Ástandið var hrikalegt og vantaði
hæli og því var þetta opnað með
pláss fyrir fimmtíu og það fylltist
strax, en mest voru áttatíu sjúkling-
ar hér. Þá var hrúgað í stofurnar.
Árið 1950 komu lyfin og þá var þetta
ekki jafnmikill dauðadómur,“ segir
hún og segist hafa fengið mikinn
stuðning úr samfélaginu við gerð
safnsins. Bæði voru sveitungar, vinir
og vandamenn duglegir að gefa
vinnu sína og einnig streymdu sög-
ur, myndir og munir frá fólki.
„Fólk er enn að senda mér alls
kyns hluti og bréf því það er svo
ánægt að finna þessu stað,“ segir
María og ákvað að opna einnig kaffi-
hús og er Hælið opið allar helgar frá
tvö til sex. Tilvalið er að rölta um
safnið og setjast svo niður yfir kaffi
og kökusneið.
„Hjónabandssælan er æðisleg og
svo er ég með heimsins bestu parta
og rúgbrauð sem tengdamóðir mín
gerir; skúffuköku, apríkósuköku og
vöfflur.“
Flugur á vegg
Fleira er á prjónunum hjá Maríu því
henni tókst að sameina leiklistar-
ástríðuna við safnið sitt. Leikritið
Tæring var frumsýnt 19. september
og verður sýnt í allt haust.
„Við vorum að frumsýna sviðs-
listaverkið Tæringu í leikstjórn Völu
Ómarsdóttur. Þetta er magnað verk
þar sem leiknum senum er blandað
við hljóðverk og vídeóverk. Allt unnið
upp úr og innblásið af sögu berklanna.
Gestir mega bara vera tíu í senn og
eru þeir leiddir um Hælið, í gegnum
verkið. Það verða tvær sýningar á
dag, fimmtudaga, föstudaga og laug-
ardaga. Þetta verður dásamlegt,“ seg-
ir María sem er framleiðandi verksins.
„Áhorfendur sitja ekki, heldur eru
eins og flugur á vegg.“
Morgunblaðið/Ásdís
Mögulega voru not fyrir fínan kjól á berklahælinu, því oft dvaldi fólk þar mánuðum og árum saman.
Kíkt er ofan í ferðatösku sjúklings og má sjá bók, ljósmynd og fatnað.
Fróðlegt er að ganga
um safnið, skoða her-
bergi, myndir og muni.
Átakanlega sögu
af barni má
finna á Hælinu.
Hér má sjá herbergi þar
sem farið var í ljós, en í
gamla daga voru börn
gjarnan sett í ljós til
þess að fá D-vítamín.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2020
LÍFSSTÍLL
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.