Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2020, Qupperneq 29
Í kynningu forleggjarans, Hach-
ette Books, segir að Rust In Peace:
The Inside Story Of The Megadeth
Masterpiece sé saga um þrautseigju
og þá viðleitni okkar mannanna að
pússa upp ryðið sem með tímanum
leggst á allt; okkur sjálf, sambönd
okkar, poppmenninguna, listina og
tónlistina.
Tónlistarblaðamaðurinn Joel
Selvin aðstoðaði Mustaine við skrifin
og það er enginn annar en Slash, gít-
arleikari Guns N’ Roses, sem ritar
formála, en þeir Mustaine eru alda-
vinir. „Hvíl í ryði kom bandinu á
kortið,“ skrifar Slash, „eftir að hún
kom út var Megadeth á allra vörum.
Ég skil vel að stórafmæli Hvíl í ryði
sé fagnað sem mikilvægri vörðu á
vegi Megadeth og þungarokksins
yfirhöfuð.“
Hvíl í ryði hlaut einróma lof gagn-
rýnenda. Greg Kot hjá Chicago
Tribune sagði hana bestu plötu
Megadeth og hrósaði bandinu fyrir
virtúósískan hljóðfæraleik, snjalla
textasmíð og pönkaða heift.
Robert Palmer hjá Rolling Stone
sagði plötuna ákjósanlegt dæmi um
það hve duglega mætti reyna á þan-
þol þrassins, þess ógnarhraða og ill-
skeytta forms, án þess að það yrði
formúlulegt og þreytandi.
Lagasmíðar Mustaines á Hvíl í
ryði voru þroskaðri og heilsteyptari
en áður. Ekki vantaði lengur herslu-
muninn og nærvera nýs gítarleikara,
Martys Friedmans, er almennt talin
hafa lyft spilamennskunni á hærra
plan. Mustaine er sem fyrr pólitísk-
ur og persónulegur í textum sínum
en þessi alvörugefni þjóðfélagsrýnir
hefur alla tíð risið upp úr meðal-
mennskunni í þeim efnum. Þurfti
kannski ekki mikið til?
Hvergi er snöggan blett að finna
á Rust in Peace. Þekktustu lögin
eru líklega Holy Wars … The Pun-
ishment Due, sem margir skil-
greina sem hápunktinn á ferli
Megadeth, og Hangar 18. Bandið
tekur þessi lög á öllum sínum tón-
leikum og á sínum tíma voru bæði
lög á lista, sem Mustaine tók saman
fyrir Rolling Stone, yfir þau fimm-
tán lög sem haft hafa mest áhrif á líf
hans.
Í fyrrnefnda laginu veltir Mus-
taine vöngum yfir styrjöldum og
bendir hlustendum á að horfa ekki
eingöngu til Ísraels, „It might be yo-
ur homelands“. Í Hangar 18 fær
bandaríski herinn á baukinn en hann
á að hafa lokað verur frá öðrum
hnöttum inni í téðu flugskýli.
Áfram má telja. Dawn Patrol
fjallar um hlýnun jarðar og gróður-
húsaáhrifin og Take No Prisoners
um stríðsfanga. Þarna eru líka per-
sónulegri mál, Poison Was the Cure
er uppgjör Mustaines við heróínfíkn
sína, Tornado of Souls hverfist um
fyrrverandi ástkonu hans og Luc-
retia er óður til vofu nokkurrar sem
tekið hefur sér bólfestu á háaloftinu
hjá honum. Segir sagan að Mustaine
blandi stundum geði við hana í skjóli
nætur – þegar enginn sér til.
Megadeth lék Hvíl í ryði í heild
sinni á tónleikaferð sinni fyrir tíu ár-
um en sá leikur verður ekki end-
urtekinn nú enda skilyrði til tón-
leikahalds ekki fyrir hendi, eins og
við þekkjum.
Lúsiðið band
Bandið hefur verið lúsiðið gegnum
tíðina enda þótt listinn yfir meðreið-
arsveina Mustaines sé orðinn á
lengd við gömlu góðu íslensku síma-
skrána. Hljóðversskífurnar eru
fimmtán og kom sú síðasta, Dy-
stopia, út fyrir fjórum árum. Það er
lengsta hlé milli platna í sögu sveit-
arinnar, sem var stofnuð 1983. Skýr-
ingin á því liggur öðru fremur í veik-
indum Mustaines en hann greindist
með krabbamein í hálsi á síðasta ári.
Meðferðin gekk vel og snemma á
þessu ári upplýsti Mustaine að hann
væri laus við meinið.
Téður Friedman og trymbillinn
Nick Menza, sem léku á Hvíl í ryði,
eru löngu horfnir á braut en sá síð-
arnefndi lést 2016; fékk hjartaslag á
miðjum tónleikum. Hann var 51 árs.
Hann var ekki fyrsti fyrrverandi
trommari Megadeth til að falla frá
en Gar Samuelson, sem lamdi húðir
á fyrstu tveimur plötunum, lést árið
1999.
Bassaleikarinn David Ellefson er
enn þá í Megadeth en hann hefur
fylgt Mustaine mestallan tímann.
Skrapp þó frá í fýlu um tíma. Með
þeim nöfnunum í bandinu eru í dag
brasilíski gítaristinn Kiko Loureiro
og belgíski trymbillinn Dirk Ver-
beuren. Mögulega endast þeir betur
úr því þeir tala annað tungumál.
Dave Mustaine í ham á
sviðinu með Megadeth.
AFP
20.9. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
SJÓNVARP Þættirnir um Ratched
hjúkrunarfræðing, sem margir
muna eftir úr skáldsögunni og
kvikmyndinni um Gaukshreiðrið,
komu inn á efnisveituna Netflix á
föstudaginn var. Þeir hafa verið að
fá glimrandi dóma í bresku press-
unni; til að mynda fullt hús, fimm
stjörnur, á vef breska ríkisútvarps-
ins, BBC og þykir gagnrýnand-
anum andi Alfreds Hitchcocks og
Ógnareðlis (e. Basic Instinct) svífa
yfir vötnum. Sarah Paulson þykir
fara einkar vel með titilhlutverkið.
Hitchcockst ógnareðli
Sarah Paulson í hlutverki Ratched.
Netflix
BÓKSALA 9.-15. SEPTEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Lygalíf fullorðinna Elena Ferrante
2
Bekkurinn minn 1
Prumpusamloka
Yrsa Þöll Gylfadóttir
3 Alls ekki opna þessa bók Andy Lee
4
Bekkurinn minn 2 –
geggjað ósanngjarnt!
Yrsa Þöll Gylfadóttir
5 Saumaklúbburinn Berglind Hreiðarsdóttir
6 Verstu kennarar í heimi David Walliams
7
Strákurinn í röndóttu
náttfötunum
John Boyne
8 Líkkistusmiðirnir Morgan Larsson
9 Þín eigin saga – risaeðlur Ævar Þór Benediktsson
10 Sundkýrin Sæunn Eyþór Jónss./Freydís Kristjánsd.
1 Saumaklúbburinn Berglind Hreiðarsdóttir
2 Þegar karlar stranda Sirrý Arnardóttir
3 Vörn gegn veiru Björn Ingi Hrafnsson
4 Brosað gegnum tárin Bryndís Schram
5 Ástarsögur íslenskra karla María L./Rósa Björk
6 Þess vegna sofum við Matthew Walker
7
Úr hugarfylgsnum
augnlæknis
Ingimundur Gíslason
8
Veiðar á villtum fuglum
og spendýrum
Einar Guðmann
9 Sveppahandbókin Einar Guðmann
10
Borgríkið - Reykjavík sem
framtíð þjóðar
Magnús Skjöld
Allar bækur
Handbækur/fræðibækur/ævisögur
Ég hef alltaf verið mikill lestr-
arhestur en er búin að lesa
óvenju mikið það sem af er þessu
ári. Ein af fyrstu bókunum sem
ég las á árinu
var bókin Aust-
ur eftir Braga
Pál, en hún kom
út á síðasta ári.
Ég vissi í raun-
inni ekkert hvað
ég væri að fara
út í en ég bjóst
svo sannarlega
ekki við því sem raun bar vitni.
Höfundur lýsir bókinni sinni sjálf-
ur sem hversdagslegri hrollvekju
og hittir með því naglann beint á
höfuðið, því það besta (eða
versta) við bókina er að allir at-
burðirnir gætu vel átt sér stað í
raunveruleikanum.
Stuttu seinna las ég fyrstu og
einu vísindaskáldsöguna sem ég
hef lesið, Leiðarvísi puttaferða-
langsins um vetrarbrautina (e.
Hitchhikers Guide to the Galaxy)
eftir Douglas Adams. Ég bjóst
ekki við að njóta hennar jafn mik-
ið og ég gerði. Hún greip mig al-
veg og eru framhaldsbækurnar
klárlega komnar á leslistann.
Ég las líka
Beðið eftir bar-
börunum eftir
suðurafríska höf-
undinn J.M.
Coetzee en hún
kom út í ís-
lenskri þýðingu
fyrr á árinu.
Þetta er mögn-
uð ádeila á nýlendustefnuna sem
á alltaf erindi, og kannski ekki síst
í dag. Bókin er líka einstaklega
vel þýdd, en að henni stóðu Sig-
urlína Davíðsdóttir og Rúnar
Helgi Vignisson.
Fýkur yfir hæðir (e. Wuthering
Heights) eftir Emily Brontë
stendur líka upp úr. Þvílík ást-
arsaga! Ég fann
mig knúna til að
lesa hana eftir
að hafa hlustað
temmilega oft á
samnefnt lag
með Kate Bush
og ég varð ekki
fyrir von-
brigðum. Ég las
hana í þýðingu
Sigurlaugar Björnsdóttur frá
árinu 1951, sem er líka mjög
skemmtileg.
Ég kemst svo ekki hjá því að
nefna mína uppáhaldsbók,
Skugga-Baldur eft-
ir Sjón. Ég las
þessa bók fyrst í
MR og hef lesið
hana reglulega síð-
an. Hún er ekki
nema um 120
blaðsíður og mað-
ur les hana í einum
rykk, en þrátt fyrir það get ég lof-
að að hún skilur engan eftir
ósnortinn. Rómantísk náttúru-
lýsing er allsráðandi og hún er
stútfull af vísbendingum sem les-
andinn púslar saman jafnóðum. Í
lokin fléttast svo allir þræðirnir
saman í svo snjallan endi að mér
finnst engin bók standast saman-
burðinn.
INGIBJÖRG IÐA ER AÐ LESA
Grípandi geimferðir og bók
sem ber af öðrum bókum
Ingibjörg Iða
Auðunardóttir
er íslensku-
nemi.