Morgunblaðið - 06.10.2020, Page 8

Morgunblaðið - 06.10.2020, Page 8
Heiðar Ástvaldsson danskennari lést að- faranótt sunnudagsins 4. október síðastliðins, sem var afmælisdagur hans. Róbert Heiðar Ástvaldsson fæddist á Siglufirði árið 1940 og ólst þar upp. Hann tók stúdentspróf frá Verslunarskóla Ís- lands, nam lögfræði við Háskóla Íslands og lauk prófum í al- mennri lögfræði. Stundaði nám við City of London College í ensku, bókmenntum og al- þjóðalögum og stundaði nám víða um lönd, m.a. í latínu, frönsku, þýsku og spænsku. Heiðar lauk prófi sem danskennari frá Im- perial Society of Teachers of Dancing 1957. Í áratugi sótti Heiðar svo dansnámskeið erlend- is, einkum á Englandi, Þýska- landi og Danmörku en fór einnig til Frakklands, Ítalíu, Grikklands og í Bandaríkjanna. Heiðar starfrækti eigin dans- skóla, Dansskóla Heiðars Ást- valdssonar, frá árinu 1956. Kenndi þúsundum Íslendinga um land allt og var afar áhrifamikill í dansmennt þjóðarinnar. Þá kenndi hann dans í Ríkis- útvarpinu í fimm ár og sá þar um danslagaþátt í 17 ár. Einnig sá hann um þætti á Útvarpi Sögu, m.a. um kúbverska tónlist. Heiðar gerði einnig nokkra sjón- varpsþætti þar sem hann sýndi dans ásamt systrum sín- um, Guðrúnu og Eddu. Hann sýndi þá dans víða á skemmtistöðum, bæði hérlendis og erlendis. Heiðar dæmdi í dans- keppnum á Eng- landi, í Þýskalandi, Danmörku, Rúss- landi, Bandaríkj- unum, Úkraínu og alls staðar á Norðurlöndunum. Heiðar var formaður Dans- kennarasamband Íslands, fulltrúi Íslands hjá Alþjóðasambandi danskennara og formaður Siglfirðingafélagsins í Reykjavík. Hann var forseti Loka og forseti Dansráðs Íslands. Heiðar skrifaði þrjár bækur um dans: Kennslu- bók í chachacha, Alþjóðadans- kerfið, og 25 línudansar. Heiðar kvæntist árið 1965 Hönnu Frímannsdóttur, f. 1936. d. 2008, formanni Karon, samtaka sýningarfólks. Sonur Heiðars og Hönnu er Ástvaldur Frímann, f. 1973, BS í íþróttafræði, cand. scient. í íþróttasálfræði og MBA frá Há- skóla Íslands, búsettur í Reykja- vík. Andlát Heiðar Ástvaldsson 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020 Styrmir Gunnarsson ritar á vefsinn í gær: „Í fréttum Morg- unblaðsins í dag kemur fram að Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) telji að „Ísland standi ekki við skuld- bindingar sínar um framkvæmd EES-reglna. ESA telur að íslenzka ríkið tryggi ekki að Evrópulöggjöf, sem innleidd hefur verið á Íslandi, standi framar inn- lendri löggjöf.“    Um þetta segir Sigríður Á. And-ersen, þingmaður Sjálfstæð- isflokks og formaður utanrík- ismálanefndar Alþingis: „Það er enginn vafi í mínum huga að erlend löggjöf gengur ekki framar ís- lenzkri löggjöf. Eitthvert álit frá ESA breytir engu þar um.“    Birgir Ármannsson, formaðurþingflokks Sjálfstæðisflokks- ins segir af þessu tilefni: „Mér finnst það blasa við að kröfugerð ESA samrýmist mjög illa íslenzkri stjórnskipan. Því þurfa íslenzk stjórnvöld að koma skýrt á fram- færi.“    Afstaða þessara tveggja þing-manna er skýr. En koma íslenzk stjórnvöld þeim sjónarmiðum á framfæri?    Sporin hræða.“    Það er sannarlega rétt að sporinhræða. Þingmenn hafa ítrekað og að ástæðulausu látið reka sig til að samþykkja lög af ótta við að lenda upp á kant við Brussel-valdið.    Vonandi eru ofangreind ummælitil marks um að breyting sé að verða á. Styrmir Gunnarsson Sporin hræða STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ framhaldi af niðurstöðu forvals, þar sem fimm þátttakendum var gefin þátttökuheimild í útboðinu. Tilboð voru opnuð í ágúst sl. og var tilboð Eyktar lægst, eða 8,68 milljarðar. Var það 82% af kostnaðaráætlun sem er 10,5 milljarðar króna án virð- isaukaskatts. Jarðvegsframkvæmdir við grunn hússins gengu vel og er lok- ið, en ÍAV hf. sá um þann þátt. Páll Daníel Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Eyktar hf., segir í til- kynningu að fyrirtækið sé vel und- irbúið fyrir þetta stóra uppsteypuverk, sem er eitt af þeim stærri í Íslandssögunni. „Reynsla okkar og allur aðbúnaður er á þeim stað að við munum strax ráðast í verk- efnið af fullum krafti. Það verða um þrjú hundruð manns á okkar vegum þegar mest verður,“ segir Páll Daníel. Gunnar Svavarsson, fram- kvæmdastjóri NLSH ohf., segir að fjölmargir aðrir verkþættir séu hand- an við hornið, s.s. útboð á jarðvinnu rannsóknahússins og alútboð eftir for- val á bílastæða- og tæknihúsi. sisi@mbl.is Nýr Landspítali hefur samið við byggingarfyrirtækið Eykt um upp- steypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi á Landspítalalóðinni. Nýr meðferðarkjarni verður um 70.000 fermetrar að stærð og er þetta ein stærsta framkvæmd uppbygg- ingar nýs Landspítala. Áætlanir NLSH eru þær að uppsteypan geti hafist í nóvember nk. og fram- kvæmdatími verksins verður um þrjú ár. Útboð á uppsteypu meðferðar- kjarna Nýs Landspítala var haldið í Eykt byggir meðferðarkjarnann Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík Sími 569-6000 - www.os.is Ársfundur Orkustofnunar 2020 sendur út á www.os.is 15. október 14:00 - 16:30 D A G S K R Á 13:45 Mæting 14:00 Ávarp ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir 14:15 Ávarp orkumálastjóra Dr. Guðni A. Jóhannesson 14:30 Vetnishagkerfi – möguleikar á samstarfi Íslands og Þýskalands? Dietrich Becker, sendiherra Þýskalands á Íslandi 15:00 Langtíma orkustefna fyrir Ísland Guðrún Sævarsdóttir, dósent við HR og formaður starfshóps um mótun orkustefnu 15:20 Kaffihlé 15:30 Orkuöryggi í tvær áttir Lennard Bernrann, meistari í rafeindaverkfræði og ráðgjafi, Svíþjóð 15:50 Raforkuöryggi á heildsölumarkaði Kristín Haraldsdóttir, lektor við lagadeild HR og formaður starfshóps um raforkuöryggi á heildsölumarkaði 16:05 Orkuskipti í samgöngum Jón Ásgeir H. Þorvaldsson, sérfræðingur og Anna L. Oddsdóttir, sérfræðingur, jarðhitanýting, orkuskipti, Orkustofnun 16:20 Fundarlok Fundarstjóri: Baldur Pétursson, verkefnastjóri fjölþjóðleg verkefni og kynningar, Orkustofnun Fundurinn verður einungis á www.os.is Viðskipti Texti féll niður í grein Málsgreinar féllu niður í aðsendri grein Þórdísar Bjarkar Sigurþórs- dóttur og Kristínar Johansen, „Ís- land eina Norðurlandaþjóðin með fjarkennslu í framhaldsskólum“, í gær. Beðist er velvirðingar á mistök- unum en textinn er eftirfarandi: „… Inflúensan lagðist fyrst og fremst þungt á ungt fólk (< 60 ára) ólíkt núverandi pest sem leggst þyngra á eldra fólk. Um 170 manns voru lagðir inn á sjúkrahús um haust- ið með staðfesta svínainflúensu. Af þeim þurftu 22 að leggjast inn á gjör- gæsludeild og lágu margir þar í önd- unarvélum vikum saman. Talið er að um 60 þúsund manns hafi veikst af inflúensunni. (https://www.althingi.is/altext/139/ s/0867.html.).“ LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.