Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti var í gær útskrifaður af Walter Reed- hersjúkrahúsinu, og hélt hann aftur í Hvíta húsið um hálfellefuleytið í gær- kvöldi að íslenskum tíma. Forsetinn hafði krafist þess að vera útskrifaður svo hann gæti horfið aftur til Hvíta hússins og tekið upp þráðinn að nýju í kosningabaráttunni, að sögn frétta- stöðvarinnar CNN. Heimildarmaður hafði eftir Trump að hann hefði feng- ið nóg af spítalavistinni auk þess sem hann teldi hana vera sér veik- leikamerki. Trump tilkynnti um ákvörðun sína að fara aftur í Hvíta húsið stuttu áður en Sean Conley, læknir hans, hélt blaðamannafund um heilsu forsetans. Þar sagði Conley að forsetinn væri ekki „alveg sloppinn“ og að ekki yrði vitað næstu vikuna hver framgangur sjúkdómsins yrði. Þá ríkti óvissa um þau áhrif sem lyf forsetans myndu hafa, en óvenjulegt er að þau séu gef- in sjúklingi svona snemma í sjúk- dómsferlinu. Forsetinn myndi þó fá bestu fáanlegu sjúkdómsmeðferð inn- an Hvíta hússins, en þar er til staðar stórt læknateymi sem mun fylgjast með Trump. Það á ekki af bandaríska stjórn- kerfinu að ganga en í gær sagðist blaðafulltrúi Trumps forseta, Kay- leigh McEnany, veik af kórónuveiru- smiti. Kvaðst hún þó einkennalaus en samt á leið í sóttkví. Að mati Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO) hefur kórónu- veiran smitað um 10% jarðarbúa, sem er 20 sinnum meira en mælst hefur. Segir stofnunin því stóran hluta hinna 7,8 milljarða jarðarbúa enn í bráðri hættu og hvetur hún til skipulags- breytinga til að efla sýkingavarnir. Kórónuveiran sýnir þess engin merki að hún sé að verða undir í stríð- inu við lækna og yfirvöld. Þvert á móti hefur hún verið í mikilli sókn síð- ustu daga og hvarvetna er reynt að kæfa hana með öðrum ráðstöfunum en þeim sem bitna á atvinnu- og efna- hagslífi. Um veröld víða hafa rúmlega 35,2 milljónir sýkinga verið staðfestar frá í desember sl. Að minnsta kosti 1.037.971 maður hefur dáið eftir að hafa sýkst af kórónuveirunni. Flest eru dauðsföllin í Bandaríkjunum eða 209.734, í Brasilíu eru þau næstflest eða 146.352, á Indlandi 102.685, í Mexíkó 79.088 og í Bretlandi 42.350. Hertar aðgerðir Allar krár Parísar og nánustu út- borga skelltu í lás eftir lokun í gær- kvöldi í nýjum tilraunum til að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Er æðsta viðbúnaðarstig í gildi á Parísarsvæð- inu, en þar hafa nýsmit verið í ógn- vekjandi hröðum vexti, að sögn Di- diers Lallemant, lögreglustjóra borgarinnar. Leiðtogar írsku samsteypustjórn- arinnar funduðu í gær með landlækni Írlands um nýja herfræði til að reyna að kveða veiruna í kútinn, en ráð- gjafar stjórnarinnar hafa lagt til ýms- ar hertar aðgerðir til þess. Vilja þeir grípa til æðsta viðbúnaðar um land allt, svipað og gert var í mars sl. Kórónukreppan nær út fyrir Evr- ópu og Norður-Ameríku og dóu til dæmis 235 manns í Íran á sólarhring um nýliðna helgi. Eru það álíka tölur og í fyrstu bylgju veirunnar í júlí. Ný- smit um helgina slógu hins vegar öll fyrri met. Sömuleiðis er veiran aftur í örum vexti í Rússlandi en yfirvöld hafa samt veigrað sér við nýjum lokunum fólks á heimilum þess til að hamla dreifingu hennar. Í fyrradag, sunnudag, voru skráð 10.888 ný tilfelli sýkinga. Nálg- ast smitið metfjölda sýkinga á dag frá 11. maí er 11.656 manns greindust. Verst er ástandið í Moskvu þessa daga og sagði borgarstjórinn Sergej Sóbjanín þar „marga alvarlega veika“. Bresk heilbirgðisyfirvöld eru þessa dagana að draga upp áætlanir um bólusetningu almennings. Í forgangi verða aldraðir og fólk í áhættustörf- um. „Átján ára og yngri verða ekki bólusettir, bara fullorðnir,“ sagði Kate Bingham, forstöðukona vinnu- hóps yfirvalda, við Financial Times. Hafa bresk stjórnvöld pantað tugi milljóna skammta af bóluefni hjá lyfjafyrirtækjum. Í fyrradag, sunnu- dag, rauf kórónuveirusmit hálfrar milljónar múrinn í Bretlandi. Látnir eru 42.369 manns. Kórónuveiran hefur valdið auknum andlegum veikindum að sögn WHO, sem talar um eyðileggingarmátt veir- unnar varðandi andlega sjúkdóma. Sagði stofnunin í aðvörunartón að and- leg heilsa hefði orðið út undan í rimm- unni við kórónuveiruna. Hefði röskun á umönnun geðsjúklinga verið mikil í 93 aðildarlöndum WHO. Af 130 lönd- um sem skoðuð voru reyndust 83% hafa reiknað með aðgerðum í þágu geðheilbrigðis í glímunni við veiruna en aðeins 17% veitt til þess nægum fjármunum. „Þetta eru hinar alvarlegu hliðar Covid-19,“ sagði WHO . 0 10.000 20.000 30.000 0 10.000 20.000 30.000 0 10.000 20.000 30.000 0 10.000 20.000 30.000 Ný tilfelli á dag Meðaltal 7 daga Bretland Kórónuveirusýkingar í Evrópu Heimild: Talning AFP byggð á opinberum tölum breyting á aðferðafræði 2. febrúar 2. febrúar 4. október 4. október 2. febrúar 2. febrúar 5. október 4. október Valin lönd ÞýskalandSpánn Frakkland Heilbrigðisyfirvöld sögðu að „tæknivilla“ hefði valdið mikilli fjölgun tilfella AFP Málar átök við veiruna Sýrlenskur listamaður, Aziz Asmar, málar mynd á vegg í bænum Binnish í Idlib-héraði af Donald Trump Bandaríkjaforseta í átökum við kórónuveiruna. Víða um heim virðist veiran vera í sókn. Óttast áhrif spítalavistarinnar  Donald Trump útskrifaðist af sjúkrahúsinu í gær  Blaðafulltrúinn Kayleigh McEnany veik  Lönd herða sóttvarnaaðgerðir  WHO telur 10% jarðarbúa hafa smitast af kórónuveirunni Bandaríkjamennirnir Harvey Alter og Charles Rice og Bretinn Michael Houghton deila Nóbelsverðlaunum í læknisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar og uppgötvanir á lifrarbólgu C-veirunni er ruddu brautina fyrir lækningu við veikinni. Í tilkynningu nóbelsnefndarinnar sagði að mennirnir þrír hafi verið heiðraðir fyrir „afgerandi framlag til baráttunnar gegn lifrarbólgu sem berst í blóði sem er meiri háttar heilsuvandi er veldur skorpulifur og lifrarkrabba í fólki um heim allan.“ Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO áætlar að um 70 milljónir manna séu sýktir af lifrarbólgu C í veröldinni. Dregur hún um 400.000 manns til dauða á ári. Nóbelsnefndin sagði að það væri að þakka uppgötvunum Alter, Rice og Houghton að nú séu til háþróuð blóðpróf gegn veirunni er hafa nán- ast upprætt lifrarbólgu. Hafi það leitt til betra heilsufars á heimsvísu. Uppgötvanir þremenninganna leiddu til hraðrar þróunar lyfja gegn lifrarbólgu C. „Í fyrsta sinn í sög- unni er lækning veikinnar möguleg. Gefur það vonir um að uppræta megi lifrarbólgu C,“ sagði nefndin. Alter, Brice og Houghton deila með sér 10 milljóna sænskra króna verðlaunafé. agas@mbl.is AFP Nóbel Nóbelsverðlaunahafarnir birtust á skjá eftir að tilkynnt var hvert læknisfræðiverðlaunin færu. Frá vinstri: Alter, Houghton og Brice. Nóbelsverðlaun fyrir að finna lifrarbólgu C Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.