Morgunblaðið - 06.10.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020
Erik Hamrén landsliðsþjálf-
ari í fótbolta hefur fagnað því
mjög að hafa í fyrsta skipti nán-
ast alla bestu fótboltamenn
landsins til umráða fyrir lands-
leik, frá því hann tók við liðinu
haustið 2018.
Svíinn stendur frammi fyrir
lúxusvandamáli þegar hann still-
ir upp liðinu sem mætir Rúmeníu
í leiknum mikilvæga á fimmtu-
dagskvöldið.
Leikmennirnir sem í heild-
ina stóðu sig vel í tapinu nauma
gegn Englandi 5. september
gætu flestallir gert tilkall til þess
að vera í byrjunarliðinu.
En svo eru Gylfi Þór Sigurðs-
son, Jóhann Berg Guðmunds-
son, Ragnar Sigurðsson, Alfreð
Finnbogason og Rúnar Már
Sigurjónsson allir komnir í hóp-
inn á ný. Líka Kolbeinn Sigþórs-
son sem heltist úr lestinni í upp-
hituninni fyrir Englandsleikinn.
Að ógleymdum hinum sí-
unga Birki Má Sævarssyni en
endurkoma hans er ekki síst at-
hyglisverð. Fer hann ekki beint í
byrjunarliðið? Margir eru á því
að hann sé enn okkar besti
hægri bakvörður og það væri í
raun enginn tilgangur í því að
kalla hann inn í liðið nú, nema til
þess að spila.
Það er því engin goðgá að
áætla að byrjunarliðið gegn
Rúmeníu verði afar áþekkt því
ellefu manna liði sem hóf alla
fimm leikina í Evrópukeppninni í
Frakklandi sumarið 2016.
En vissulega gera bæði Guð-
laugur Victor Pálsson og Sverrir
Ingi Ingason afar sterkt tilkall til
þess að vera áfram í byrjunarliði.
Að öðru leyti er stærsta
spurningin sú hvort Tólfan fái að
vera á vellinum sem tólfti liðs-
maður Hamréns.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Ágúst Eð-
vald Hlynsson hefur skrifað undir
fjögurra ára samning við danska
úrvalsdeildarfélagið Horsens en
hann kemur til félagsins frá Víkingi
úr Reykjavík.
Ágúst, sem er tvítugur að árum,
hefur leikið með Víkingum und-
anfarin tvö tímabil en hann er upp-
alinn hjá Breiðabliki. Hann hefur
einnig leikið með unglingaliðum
Norwich og Brøndby á sínum ferli
Ágúst á að baki 43 leiki í efstu deild
með Breiðabliki og Víkingum þar
sem hann hefur skorað átta mörk.
Víkingurinn til
liðs við Horsens
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Danmörk Ágúst Eðvald hefur leikið
með Víkingum undanfarin tvö ár.
Samúel Kári Friðjónsson er geng-
inn til liðs við norska knattspyrnu-
félagið Viking frá Paderborn í
Þýskalandi en hann skrifaði undir
tveggja ára samning við norska úr-
valsdeildarfélagið. Miðjumaðurinn,
sem er 24 ára gamall, þekkir vel til
hjá Viking eftir að hafa leikið með
liðinu sem lánsmaður frá Våle-
renga tímabilið 2019.
Samúel Kári er uppalinn hjá
Keflavík en hann gekk til liðs við
Reading árið 2013. Þaðan lá leiðin
til Vålerenga árið 2016 en hann á
að baki átta A-landsleiki.
Frá Þýskalandi
til Noregs
Morgunblaðið/Eggert
Noregur Samúel er kominn aftur til
Viking eftir stopp í Þýskalandi.
sigrar Rúmeníu í undankeppninni
komu gegn Möltu og Færeyjum
Eina stórtapið hjá Rúmeníu í und-
ankeppni var á Spáni þar sem Spán-
verjar unnu 5:0. Annars virðist liðið
oft hafa verið í hörkuleikjum. Tapaði
1:2 gegn Spáni heima og gerði tvö
jafntefli gegn Noregi. Liðið tapaði
báðum leikjunum gegn Svíum, 2:1 og
0:2. Ef til vill má draga þær ályktanir
að liðinu hafi ekki gengið vel að næla
í sigur í jöfnum leikjum um nokkra
hríð. Alla vega ekki gegn andstæð-
ingum sem eru hærra skrifaðir.
Í september gerði liðið jafntefli,
1:1, gegn N-Írlandi og vann Aust-
urríki 3:2 en báðir leikirnir voru í
Þjóðadeildinni. Útisigur gegn Aust-
urríki bendir til þess að liðið gæti
verið að ná sér á strik.
Langt er orðið síðan Rúmenía
vann einhverja af þekktustu knatt-
spyrnuþjóðum Evrópu í mótsleik.
Var það í undankeppni EM 2008 þeg-
ar Rúmenía vann Holland 1:0.
Ný kynslóð mun taka við
Engu að síður hefur bjartsýni auk-
ist í Rúmeníu varðandi landsliðið og
framhaldið. Ungir leikmenn þykja
hæfileikaríkir en sprungu samt ekki
út með neinum látum í þessari und-
ankeppni. Ekki er það að ástæðu-
lausu að vonir eru bundnar við þá því
Rúmenía fór í undanúrslit á EM U21
árs landsliða í fyrra. Liðið var ein-
mitt undir stjórn Mirels Radois.
Af þessum sökum getur Rúmenía
verið hættulegur andstæðingur.
Leikmenn sem eru í undanúrslitum á
EM U21 árs hafa getu til að gera
góða hluti. Það liggur alveg fyrir en
er kannski tímaspursmál. Spurn-
ingin er hvort sá sem stýrði þeim í
U21 árs liðinu gefi þeim tækifæri að
ráði nú í umspilinu. Ekki er gott að
lesa í það enda voru engin landsliðs-
verkefni í marga mánuði.
Eftir rólega tíma kemur einhvern
tíma að því að Rúmenía láti aftur að
sér kveða á knattspyrnuvellinum. Af
og til hefur rúmenska landsliðið verið
sterkt en nú er orðið nokkuð síðan.
Vonandi verður það ekki umspilið
fyrir EM 2021 sem verður nýr vendi-
punktur hjá Rúmeníu.
Stór töp gegn Rúmeníu
Þeir sem fylgdust með knatt-
spyrnunni þegar rúmenski snilling-
urinn Gheorghe Hagi var upp á sitt
besta muna væntanlega eftir lands-
liði Rúmeníu. Rúmenar voru
sprækir á HM á Ítalíu 1990 en
þurftu að sætta sig við að falla úr
keppni í 16-liða úrslitum eftir víta-
spyrnukeppni gegn Írum. Á HM í
Bandaríkjunum fjórum árum síðar
gerði liðið enn betur og komst í 8-
liða úrslit. Þá þurfti einnig víta-
spyrnukeppni til að slá Rúmena út
og þá voru það Svíar. Líklega má
segja að þarna hafi Rúmenía náð
sínum besta árangri en liðið komst
eining í 8-liða úrslit á EM árið 2000.
Íslendingar hafa sjaldan lent á
móti Rúmenum í mótsleikjum í
knattspyrnunni. Liðin voru saman í
riðli í undankeppninni fyrir HM
1998. Rúmenía vann báða leikina
4:0; á Laugardalsvelli í október
1996 og í Búkarest í september
1997.
Segja má að hápunkturinn í sögu
rúmenskrar knattspyrnu hafi kom-
ið árið 1986 þegar Steaua frá Búk-
arest sigraði í Evrópukeppni meist-
araliða eftir eftirminnilega
vítaspyrnukeppni gegn Barcelona í
úrslitaleiknum í Sevilla.
Mun nýr þjálfari koma
Rúmenum á rétta braut?
Fyrirliði Rúmeníu missir af umspilsleiknum á Laugardalsvelli á fimmtudaginn
AFP
Sigur Landsliðsþjálfarinn Mirel Radoi fagnar sigri gegn Austurríki ásamt sínum mönnum.
RÚMENÍA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Lið Íslands og Rúmeníu eigast við á
Laugardalsvelli á fimmtudaginn í
umspili um sæti á EM karla í knatt-
spyrnu á næsta ári. Liðin eru í heldur
ólíkri stöðu. Stutt er síðan Ísland náði
sínum besta árangri í sögunni og
keyrt hefur verið á sömu leik-
mönnum að mestu leyti í mörg ár.
Rúmenar hafa á hinn bóginn verið í
lægð í áratug eða svo og tóku þá
ákvörðun að skipta um landsliðsþjálf-
ara í aðdraganda umspilsins.
Eins og íþróttaunnendur þekkja
átti leikurinn að fara fram í mars á
þessu ári. Seint á síðasta ári gripu
Rúmenar til þess ráðs að segja lands-
liðsþjálfaranum, Cosmin Contra, upp
störfum og ráða í hans stað Mirel
Matei Radoi. Er hann verðlaunaður
fyrir afar góðan árangur með U21
árs lið Rúmeníu á umliðnum árum.
Radoi þekkir landsliðsumhverfið vel
því sjálfur lék hann 67 A-landsleiki
fyrir Rúmeníu á árunum 2000-2010.
Rúmenska liðið varð fyrir blóðtöku
á laugardaginn þegar fyrirliði liðsins
og reyndasti leikmaður Rúmena,
miðvörðurinn Vlad Chiriches, fór
meiddur af velli í leik með félagsliði
sínu, Sassuolo, gegn Crotone í ítölsku
A-deildinni og verður ekki leikfær á
fimmtudaginn.
Þegar litið er yfir hópinn hjá Rúm-
eníu er ólíku saman að jafna við and-
stæðinga Íslands í Þjóðadeildinni um
þessar mundir. Knattspyrnuunn-
endur þekkja marga leikmenn hjá
Englandi, Belgíu og Danmörku en
ekki mörg nöfn hjá Rúmenum munu
hringja bjöllum hjá Íslendingum. Í
liðinu er þó sonur Gheorghes Hagis
en varla gerir einhver ágreining um
að hann sé snjallasti leikmaður sem
komið hefur frá Rúmeníu. Sonurinn
heitir Ianis Hagi og leikur með Rang-
ers. Hann er einungis 21 árs.
Þekktasta félagið sem landsliðs-
maður Rúmeníu leikur með er AC
Milan en markvörðurinn Ciprian
Tatarusanu gekk í raðir félagsins á
árinu. Er hann 34 ára og hefur leikið
69 A-landsleiki. Var hann lengi hjá
Fiorentina. Nokkrir í leikmannahópi
Rúmena leika með CFR Cluj í heima-
landinu en annars eru landsliðsmenn-
irnir dreifðir hingað og þangað eins
og gengur. Tveir leika með Ludogo-
rets Razgrad, sem er yfirburðalið í
Búlgaríu. Rúmenarnir eiga einnig
menn hjá New York City, Reading,
Cagliari, Maribor og Sparta Prag svo
eitthvað sé nefnt.
Gekk illa að landa sigrum
Rúmenía hafnaði í fjórða sæti í sín-
um riðli í undankeppni EM, á eftir
Spáni, Svíþjóð og Noregi, en Lars
Lagerbäck stýrir norska liðinu. Einu
Lengjudeild kvenna
Augnablik – Víkingur R........................... 0:0
Staðan:
Tindastóll 17 15 1 1 50:7 46
Keflavík 17 13 3 1 45:16 42
Haukar 17 10 2 5 27:18 32
Afturelding 17 8 4 5 26:22 28
Augnablik 17 6 6 5 27:30 24
Grótta 17 5 5 7 24:33 20
Víkingur R. 17 5 4 8 22:31 19
ÍA 17 3 6 8 24:31 15
Fjölnir 17 2 1 14 10:35 7
Völsungur 17 1 2 14 12:44 5
Tindastóll og Keflavík hafa unnið sér úr-
valsdeildarsæti en Fjölnir og Völsungur
eru fallin í 2. deild.
2. deild kvenna
Fjarðab/Höttur/Leiknir – Sindri ............ 2:1
Hamrarnir – Fram ................................... 0:4
Hamar – Álftanes ..................................... 1:2
Staðan:
HK 16 11 2 3 49:14 35
Grindavík 14 9 3 2 33:11 30
FHL 14 9 2 3 35:22 29
Álftanes 14 7 2 5 24:32 23
Hamrarnir 14 5 3 6 18:24 18
Hamar 15 4 2 9 20:36 14
Fram 14 3 4 7 28:43 13
Sindri 14 3 2 9 19:33 11
ÍR 15 2 4 9 25:36 10
HK fer upp nema FHL vinni tvo síðustu
leikina með alls 22 marka mun og Grinda-
vík vinni báða sína leiki. Grindavík og FHL
eru annars í baráttu um að fylgja HK upp.
Holland
B-deild:
Excelsior – De Graafschap..................... 1:2
Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior.
Katar
Deildabikarinn, B-riðill:
Umm Salal – Al-Arabi ............................. 0:3
Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Al-
Arabi vegna landsliðsundirbúnings. Heimir
Hallgrímsson þjálfar liðið.