Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.10.2020, Blaðsíða 29
þekkja sem Hr. Hnetusmjör, er vinsælasti rappari Íslands. Þrátt fyrir ungan aldur á hann magnaða lífssögu að baki og í bókinni Hr. Hnetusmjör hingað til rekur Sól- mundur Hólm þá sögu og dregur ekkert undan. Einnig kemur út ný bók um Fíu- sól, Fíasól og skringileg saga um Pippu systur með kött í maga, eft- ir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Halldór Baldursson myndskreytir bókina að vanda. Háspenna, lífshætta á Spáni heitir sjálfstætt framhald bók- arinnar Friðbergur forseti eftir Árna Árnason. Nú eru systkinin Sóley og Ari á leið í langþráð frí til Spánar með foreldrum sínum. En það sem átti að vera þægilegt frí til að hlaða batteríin breytist snarlega þegar skuggalegir menn birtast í kringum þau. Bjartur gefur líka út þrjár ljóða- bækur fyrir jólin, Árhring eftir Björgu Björnsdóttur, 1900 og eitt- hvað eftir Ragnheiði Lárusdóttur og ljóðsöguna Guðrúnarkviðu eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur. arnim@mbl.is Birna Anna Björnsdóttir Bókaforlagið Bjartur gefur út tvær íslenskar skáldsögur fyrir þessi jól. Þær Auður Jónsdóttir og Birna Anna Björnsdóttir skrifa saman skáldsögu sem þær nefna 107 Reykjavík. Sagan segir frá Hallgerði sem rekur breskan pöbb á Ægisíðu með Mínu vinkonu sinni, þar sem góðborgarar Reykjavíkur sýna sig og sjá aðra, og hefur komið eiginmanni sínum fyrir sem aðstoðarritstjóra Morgunblaðsins sem hún á stóran hlut í. Í tilkynningu er bókinni lýst sem fyndinni og hárbeittri háðs- ádeilu. Yrsa Þöll Gylfadóttir sendir frá sér sína aðra skáldsögu og nefnir hana Strendingar - fjölskyldulíf í sjö töktum. Pétur vinnur fyrir auglýsingastofu en elur með sér skáldadrauma. Eva kona hans stendur í ströngu sem byggingar- fulltrúi á Stapaströnd. Saman eiga þau þrjú börn; unglinginn Silju, sem hefur annan fótinn í öðrum heimi, viðkvæma sex ára drenginn Steinar og ungbarnið Ólafíu. Auk þess er á heimilinu eðalborinn og ævaforn köttur, kallaður Mjálmar, og þangað kemur líka faðir Pét- urs, Bergur, fyrrverandi bóndi sem hefur nýverið misst konu sína og er við það að hverfa inn í heim gleymskunnar. Í bókinni er fylgst með hálfu ári í lífi fjölskyldu, þar sem allir sjö hugarheimar hennar fá rödd. Síðasta skáldsaga Yrsu var Móðurlífið, blönduð tækni. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir segir ævisögu Einars Þórs Jóns- sonar í bókinni Berskjaldaður, en Einar vakti á sínum tíma þjóðar- athygli þegar hann steig fram sem talsmaður Geðhjálpar. Hann fædd- ist í Bolungarvík, barnabarn Ein- ars Guðfinnssonar útgerðarmanns, sem var allt í öllu í bænum. Hann þurfti fljótlega að berjast fyrir sjálfum sér og takast á við erfiðan móðurmissi og samkynhneigð í litlu sjávarþorpi. Árni Páll Árnason, sem flestir Ævisögur, skáldverk og ljóð  Ævisaga Hr. Hnetusmjörs væntanleg Eyrún Ósk Jónsdóttir Sólmundur Hólm Auður Jónsdóttir MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Harry Potter * Hvolpasveitin (ísl. tal) * The Secret : Dare to dream * The New Mutants * Unhinged * A Hidden Life SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna. FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is MÖGNUÐ MYND SEM GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI : ★★★★★ ★★★★★ ★★★★★ Roger Ebert.com San Fransisco Cronicle The Playlist 88% Bókabeitan er umsvifamikil í barnabókaútgáfu eins og jafnan og fyrir þessi jól koma út fimmtán bækur íslenskra höfunda, en einn- ig fimm þýddar barnabækur. Að auki gefur Bókabeitan út þrjár bækur fyrir fullorðna á árinu. Þrjár bækur koma út eftir bók- menntaverðlaunahafann Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, Töfralandið, sem er lofsöngur Bergrúnar um bækur, Kennarinn sem hvarf spor- laust, framhald af verðlaunabók- inni Kennarinn sem hvarf, og Bræðurnir breyta jólunum, sem Bergrún vinnur með tónlistar- manninum og lagahöfundinum Hauki Gröndal. Einnig eru þrjár bækur Bergrúnar gefnar út að nýju, Viltu vera vinur minn?, Vin- ur minn vindurinn og Sjáðu mig, sumar! en tvær þær síðarnefndu eru gefnar út sem ein bók. Hjalti Halldórsson sendir frá sér tvær bækur. Græna geimveran segir frá Dísu sem fer í heimsókn til ömmu og afa í Mývatnssveit og heldur að þar verði hún óhult fyrir geimverum sem eru alltaf að reyna að ná valdi á fólki. Það var hins vegar eins gott að hún tók með sér álklæddu derhúfuna, vatnsbyssuna og stækkunarglerið – og kynntist Dreng – því það er eitthvað stór- undarlegt á seyði í sveitinni. Ofur- hetjan segir svo frá Gulla, sem dreymir um að verða eitthvað meira en ósköp venjulegur dreng- ur. Með hjálp Helgu vinkonu sinn- ar uppgötvar hann óvænt áður óþekktan hæfileika sem breytir lífi hans. Hann setur á sig grímuna og verður Ormstunga, ofurhetja sem berst gegn eineltisseggjum. Einnig koma tvær bækur út eft- ir Guðna Líndal Benediktsson. Hundurinn með hattinn 2 segir af frekari ævintýrum hundsins með hattinn, spæjarans Spora, og að- stoðarmanns hans, kettlingsins Tása. Bráðum áðan er fyrir heldur eldri lesendur, en bókin segir frá Söruh sem hefur átt erfiða daga síðan hún missti mömmu sína. Dag einn birtist svo Elsa frænka eftir áralanga fjarveru, bullandi um alkemíu, tímaflakk og skrímsli – íklædd málmhönskum og áður en Sarah veit af er hún lögð af stað í stórhættulegt ferðalag gegnum tíma og rúm og orðin þátttakandi í trylltu ævintýri. Yrsa Þöll Gylfadóttir sendir líka frá sér tvær bækur í nýrri bókaröð sem nefnist Bekkurinn minn, sem er bókaflokkur ætlaður byrjendum í lestri. Hver saga er sögð frá sjónarhorni eins nemanda en allar aðalpersónurnar eru saman í bekk í íslenskum grunnskóla. Prumpu- samloka! fjallar um fyrsta skóla- dag Nadiru, sem nýflutt er til Ís- lands frá Írak, og Geggjað ósanngjarnt! fjallar um Bjarna Frey sem finnst hann ítrekað hafður fyrir rangri sök. Myndir teiknar Iðunn Arna Björgvins- dóttir. Dularfulla símahvarfið eftir Brynhildi Þórarinsdóttur segir frá því er Katla fær Hildi systur sína og Bensa vin hennar til grafast fyrir um það af hverju símar hverfa í hverfinu þeirra og finnast ekki aftur. Eva Rún Þorgeirsdóttir hefur skrifað aðra bók um jólasveininn Stúf, Stúfur leysir ráðgátu, en að þessu sinni glímir hann við gátu um það hvað hafi orðið um vönd- inn hennar Grýlu. Einnig er væntanleg bók frá Ásrúnu Magn- úsdóttur um hnátuna Brásól Brellu, Brásól Brella – Vættir, vargar og vampírur, sem kemst að því að hún sé alvöru norn þegar hún breytir pabba sínum í punt- svín. Það gengur ekki eins vel að breyta honum aftur í pabba og því heldur Brella inn í Stóraskóg að leita sér hjálpar. Myndir í bókinni eru eftir Iðunni Örnu. Nornasaga - Nýársnótt eftir Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur er framhald bókarinnar Nornasaga - Hrekkjavakan og önnur bókin í Nornasöguþríleiknum sem segir af glímu þeirra Kötlu og Mána við nornina illu Gullveigu. Kristín myndskeytir bókina sjálf. Bókaröðin Dulstafir eftir Krist- ínu Björgu Sigurvinsdóttur hefst með bókinni Dóttir hafsins. Í bók- inni segir frá Elísu, sextán ára unglingi frá Vestfjörðum, sem heyrir tónlist berast frá hafinu og leiðir hana ofan í undirdjúpin og að fjólubláu borginni. Dóttir hafs- ins er þegar komin út og eins smá- sagnasafnið Samhengi hlutanna eftir Eygló Jónsdóttur sem geymir fimm smásögur úr daglega lífinu og fjóra þætti úr lífi Jónasar, sem var jú augljóslega óskabarn þjóðarinnar. arnim@mbl.is Barnabækur í öndvegi  Bækur fyrir börn á öllum aldri  Fimm bækur Bergrúnar Bergrún Íris Sævarsdóttir Guðni Líndal Benediktsson Iðunn Arna Björgvinsdóttir Ásrún Magnúsdóttir Hjalti Halldórsson Eva Rún Þorgeirsdóttir Kristín Björg Sigurvinsdóttir Yrsa Þöll Gylfadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.