Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 1
Friðarsúlan í Viðey var tendruð í fjórtánda sinn í gærkvöldi. Súlan er lista-
verk Yoko Ono, ekkju tónlistarmannsins og bítilsins Johns Lennons, sem
hefði orðið áttræður í gær.
Streymt var beint frá tendruninni þar sem Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri flutti stutt ávarp og að því loknu var kveikt á súlunni. Áhorfendur voru
hvattir til að hugsa um frið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Friðarsúlan í
Viðey tendruð á ný
Að miðlagleðinni
Eftir að hafa gefið úfó
11. OKTÓBER 2020SUNNUDAGUR
Meðvísinda-bakteríu
Hlýjar
kveðjurfylgja
gítargoðinuEddie VanHalen yfirmóðunamiklu. 28
Gott aðlúlla með
Lúllu
Davíð O. Arnar,yfirlæknir hjarta-lækninga, erheiðursvísinda-maður Land-spítala 2020. 22
Af öðrumhnetti
FrumkvöðullinnEyrún Eggertsdóttirhefur varið heilum áratugí að koma dúkkunniLúllu á markað. 14
L A U G A R D A G U R 1 0. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 239. tölublað 108. árgangur
KARDEMOMMUBÆR-
INN SKRAUTLEGT
SJÓNARSPIL
ERNIR MEÐ
TÆKNINA
Á BAKINU
VARPA LJÓSI 16 45
Rafmagnaður fjölskyldubíll
Tryggðu þér eintak í forsölu
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170
www.volkswagen.is/id4
496 km
drægni
(WLTP)
Við biðjum gesti að aðstoða okkur í að gæta sóttvarnareglna og virða 2 metra bilið á milli gesta.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Lilja Alfreðsdóttir menningar-
málaráðherra hefur gert nýjan
þjónustusamning við Ríkisútvarpið
ohf. (Rúv.), en samkvæmt honum
eru tekjur stofnunarinnar tryggð-
ar í bak og fyrir og engu breytt
um umsvif Rúv. á auglýsingamark-
aði.
Gríðarlegrar óánægju gætir með
það hjá sjálfstæðismönnum á
þingi, sem segja að Lilja hafi svik-
ið loforð um samráð við gerð
samningsins. Þeir segja að frum-
varp hennar um styrki til einka-
rekinna fjölmiðla sé „steindautt“
fyrir vikið.
Enginn þingmanna Sjálfstæð-
isflokksins, sem Morgunblaðið
ræddi við, vildi tjá sig undir nafni
og sögðu þeir málið viðkvæmt.
Fullyrt var að gremjan í garð Lilju
teygði sig inn í ráðherralið flokks-
ins.
Heimildarmenn meðal vinstri-
grænna vildu sem minnst um mál-
ið segja, enda hefðu þeir aðeins
heyrt um það á skotspónum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, for-
maður stjórnar Rúv. ohf., segir að
þjónustusamningurinn hafi verið
samþykktur samhljóða af stjórn-
inni og undirritaður 30. september.
Lilja hefur þó ekki lagt samn-
inginn fram í ríkisstjórn eða kynnt
með formlegum hætti, en hún mun
ekki hafa undirritað hann enn.
Morgunblaðið lagði fyrirspurn
til ráðherra um þetta, en henni
hefur ekki verið svarað.
Ríkisútvarpið hefur verið án
þjónustusamnings allt þetta ár.
Samkvæmt heimildum blaðsins
kveður nýi samningurinn á um
vísitölutryggðar tekjur, sem mið-
ast við árið 2019, þegar þær voru
mestar.
Fækki greiðendum útvarps-
gjalds, eins og nú blasir við, skuli
það bætt með sérstöku framlagi á
fjárlögum. Sömuleiðis tekjufall í
auglýsingasölu, sem á þessu ári er
talið nema 300 m.kr.
Segja Lilju
hafa svikið
Þjónustusamningur
» Þjónustusamningar við Rúv.
voru teknir upp þegar það varð
opinbert hlutafélag árið 2007.
» Samningurinn snýr einkum
að útvarpsþjónustu í almanna-
þágu og tekjuöflun.
» Síðasti samningur rann út
um liðin áramót.
» Nýi samningurinn veitir Rúv.
tekjutryggingu og óbreytta
auglýsingasölu.
Morgunblaðið/Eggert
Efstaleiti Ríkisútvarpið hefur verið án þjónustusamnings allt þetta ár.
Ráðherra gerði nýjan þjónustusamn-
ing við Ríkisútvarpið ohf. Sjálfstæð-
ismenn mjög óánægðir og telja hana
hafa svikið fyrirheit um samráð
Vísan um jólasveinana einn og átta
hefur lengi verið ráðgáta. Af hverju
eru þeir níu en ekki þrettán? Hver
er þessi Andrés sem er svo utan
gátta? Hver er Jón á völlunum?
Lára Magnúsardóttir, doktor í
sagnfræði, hefur nú svarað þessum
spurningum, en svörin var að finna í
Árna sögu biskups, sem skrifuð er
snemma á 14. öld.
Fyrir tilviljun uppgötvaði hún
samsvörun í sögunni við hið fræga
jólalag.
„Ég er að lesa um jarðarförina
hans þegar ég skil allt í einu að
þarna stendur Andrés, sem þýðir að
líkið stendur, og hann er utan gátta
af því að hann dó bannfærður,“ segir
Lára en viðtal við hana má finna í
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Ásdís
Samsvörun Lára Magnúsardóttir
fann sögulegar skýringar á jólavísu
sem allir kunna en færri skilja.
Andrés
ekki lengur
utan gátta