Morgunblaðið - 10.10.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020
„Þetta er að vissu leyti miður því sjaldan höfum við þurft meira á
list í almannarými að halda en einmitt nú,“ segir Steinunn Þór-
arinsdóttir myndhöggvari. Verk hennar Tákn, sem staðið hefur á
þaki Arnarhvols síðan vorið 2019, verður að óbreyttu tekið niður
eftir helgina. Um er að ræða 11 álfígúrur sem settar voru upp
sem hluti af dagskrá Listasafns Reykjavíkur á ári listar í al-
mannarými. Hafa þær vakið athygli borgarbúa og gesta í miðbæ
Reykjavíkur og hefur listamaðurinn fengið bæði mikil og góð við-
brögð við sýningunni. Upphaflega átti verkið að vera uppi fram á
haust í fyrra en ríkisstjórnin fór fram á að dvöl álkarlanna á þaki
fjármálaráðuneytisins yrði framlengd til 1. október í ár.
„Nú er sem sagt komið að þessu. Ég bauð að tíminn yrði fram-
lengdur, sérstaklega í ljósi þess hvernig málum er háttað í þjóð-
félaginu. Verkin minna jú á ástandið, að við þurfum að standa
saman en með hæfilegu bili á milli manna. Niðurstaðan varð að
halda sig við planið,“ segir Steinunn.
Hún kveðst ánægð með viðtökurnar sem verkið hefur fengið.
„Þetta hefur verið stórkostlegt ævintýri og ég finn fyrir mikilli
væntumþykju gagnvart verkinu. Nú mun það koma heim til
mömmu í bili. Næsta ferðalag er bara handan við hornið.“
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álkarlar Steinunnar virða tveggja metra regluna en víkja þó
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fólk hefur í auknum mæli horfið af
vinnumarkaði seinustu misseri og
sýna kannanir að ungmennum sem
ekki eru við störf á vinnumarkaði og
hvorki í atvinnuleit né námi hefur
fjölgað síðasta árið. Fjórðungur er-
lendra ungmenna er í þeim hópi.
Þetta kemur fram í nýútkominni
skýrslu ASÍ um vinnumarkaðinn en
þar er m.a. að finna sundurgreiningu
á þessum hópi. Sjá má að fjölgun í
hópum fólks sem er utan vinnumark-
aðarins hefur verið meiri en sem
nemur fjölgun íbúa.
„Sláandi er að sjá muninn á er-
lendum ríkisborgurum og íslenskum
þegar gögnin eru skoðuð m.t.t. bak-
grunns ungmenna. Um fjórðungur
ungmenna með erlendan bakgrunn
er hvorki starfandi né í námi borið
saman við um 5% íslenskra ung-
menna,“ segir í úttekt ASÍ.
Í skýrslunni kemur meðal annars
fram að ungmennum sem hvorki eru
starfandi né í námi fjölgaði milli ár-
anna 2017 og 2018, eða á sama tíma-
bili og hægja tók á fjölgun starfa og
atvinnuleysi jókst. ,,Mest hefur
aukningin verið meðal 19 ára en lít-
ilsháttar aukning hefur orðið í öllum
aldurshópum 16-19 ára. Alls eru um
10,8% af 19 ára ungmennum hvorki
starfandi né í námi, sem er hæsta
hlutfall frá því eftir efnahagshrunið
2008,“ segir í skýrslu ASÍ.
Þar kemur einnig fram að á öðrum
ársfjórðungi yfirstandandi árs voru
7.100 einstaklingar óflokkaðir utan
vinnumarkaðar og tvöfaldaðist fjöld-
inn frá fyrsta ársfjórðungi og meira
en fjórfaldaðist frá sama tímabili ár-
ið 2019. Bent er á að við síðari endur-
skoðun talna séu óflokkaðir gjarnan
skráðir í aðra flokka en ekki sé ólík-
legt að hér sé m.a. um atvinnulausa
einstaklinga að ræða frá vormánuð-
um sem eru ekki virkir í atvinnuleit.
„Slíkt er vísbending um að atvinnu-
leysi sé að einhverju leyti vanmetið
og dulið í opinberum gögnum,“ segir
þar ennfremur
Fjöldi ungra hvorki í starfi né námi
Um fjórðungur ungmenna með er-
lendan bakgrunn utan vinnumarkaðar
Hlutfall ungmenna hvorki starfandi né í námi
2005-2018
12%
10%
8%
6%
4%
2%
16 ára 17 ára 18 ára 19 ára
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heimild: Hagstofan/ASÍ 10,8%
Skatturinn vekur athygli á því í um-
sögn við frumvarp um breytingar á
umferðarlögum að hægt sé að kom-
ast inn í vélbúnað fjölda rafmagns-
hlaupahjóla eða rafskúta og breyta
hámarkshraða þeirra, þannig að hjól-
in fari umtalsvert hraðar. Þetta
stangast á við ákvæði umferðarlaga
um lítil vélknúin ökutæki, þ.á m.
rafknúin hlaupahjól sem eiga ekki að
komast hraðar en 25 kílómetra á
klukkustund en ekki má aka þeim á
akbrautum. ,,… hefur embættið upp-
lýsingar um að þetta sé hægt að gera
við fjölda þeirra hjóla sem flutt hafa
verið inn hingað til lands,“ segir í um-
sögn Skattsins.
Embætti Tollstjóra og Ríkisskatt-
stjóra sameinuðust um seinustu ára-
mót. Bendir
Skatturinn á að
ólíkt rafknúnum
reiðhjólum sé
ekkert hámarks-
afl mótors nefnt í
umferðarlögum
varðandi hlaupa-
hjólin en slíkt þak
myndi auðvelda
embættinu „að
stöðva óheftan
innflutning þessara tækja“ og setja
þau í farveg hjá Samgöngustofu.
,,Nokkuð mikið hefur verið um inn-
flutning rafknúinna hlaupahjóla
undanfarin misseri en tollyfirvöld
hafa lítil úrræði til að stöðva innflutn-
ing slíkra tækja ef grunur leikur á að
hámarkshraði tækjanna sé meiri en
25 km/klst.“
Bent er á að hægt sé á einfaldan
hátt að afla sér upplýsinga um hvern-
ig breyta eigi hámarkshraða rafskúta
og jafnvel ná í smáforrit í snjallsíma
sem tengist hugbúnaði hjólsins og
breytir hámarkshraðanum. Þótt
framleiðandi stilli hjólin svo þau kom-
ist ekki hraðar en 25 km/klst. þá sé á
frekar einfaldan hátt hægt að breyta
þeirri stillingu. Þetta skapi talsverða
hættu og óskýrleiki um hraða hjól-
anna torveldi tollyfirvöldum að sinna
vinnu sinni. Leggur Skatturinn til þá
breytingu að kveðið verði á um hvert
sé leyfilegt hámarksafl mótors hjól-
anna, sem takmarkað verði við 0,25
kW. omfr@mbl.is
Breyta hraða rafskúta
Skatturinn varar við breytingum á vélbúnaði rafmagns-
hlaupahjóla Leggur til breytingar á umferðarlögum
Á ferð Rafhlaupa-
hjól eru vinsæl.
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Búast má við enn meiri fjölgun
atvinnulausra á næstu mán-
uðum en áður var spáð. Karl
Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, segir nýja
bylgju faraldursins hægja á öllu
í atvinnulífinu og megi búast við
að atvinnuleysi aukist enn frek-
ar. „Mig grunar að það verði
eitthvað meiri ásókn í hluta-
bótaleiðina,“ segir hann. Birta á
atvinnuleysistölur 13. október.
Ekki er ósennilegt að þær sýni
meira atvinnuleysi en spáð var
eða nálægt 9%.
Búast við
hærri tölum
VINNUMÁLASTOFNUN