Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Okkur langar að leggjaáherslu á að femínismi eröllum opinn, það er enginfemínísk barátta án trans
einstaklinga og þeirra sem eru kyn-
segin,“ segir Sólrún Freyja Sen,
upplýsingafulltrúi RVK Feminist
Film Festival, þegar hún er spurð
að því hvers vegna kastljósinu verði
beint að hinsegin málefnum og kyn-
segin fólki í kvikmyndabransanum,
á kvikmyndahátíðinni sem haldin
verður í annað sinn í Bíó Paradís í
janúar nk.
„Í kvikmyndavalinu verða mál-
efni trans fólks meðal annars höfð
að leiðarljósi og sjónum beint að
persónum sem skilgreina sig ekki
út frá kyni. Okkur finnst frábært að
Trans Ísland og Samtökin ’78 vilji
vinna með okkur að þessari hátíð
og vonandi verða þau með
skemmtilega viðburði í tengslum
við hátíðina, en vissulega verður að
koma í ljós hvernig staðan á covid
verður um miðjan janúar,“ segir
Sólrún en svo skemmtilega vill til
að mögulega kemur barnið sem hún
ber undir belti í heiminn þegar
kvikmyndahátíðin stendur yfir.
Sérstök verðlaun fyrir bestu
covid-19-stuttmyndina
Sólrún segir að nú sé opið fyrir
umsóknir í stuttmyndakeppnina
Systur, sem er hluti af kvikmynda-
hátíðinni RVK FFF. Hún hvetur þá
sem luma á stuttmynd að senda inn
í þá keppni.
„Umsóknarfrestur er til 20.
nóvember en við ætlum að gefa
fólki svigrúm til 20. desember,
þannig að við hvetjum líka þá sem
treysta sér til að búa til stuttmynd
á þessum rúmu tveimur mánuðum
að gera það, sérstaklega ef fólk á
kannski til handrit eða er jafnvel
búið í tökum en á eftir að klára,“
segir Sólrún og bætir við að veitt
verði verðlaun í fimm flokkum í
stuttmyndakeppninni, fyrir bestu
tilraunakenndu myndina, bestu
heimildarmyndina, bestu leiknu
myndina, bestu teiknimyndina og
bestu covid-19-myndina, en það á
við um myndir sem búnar eru til í
heimsfaraldrinum.
„Í heimsfaraldrinum hefur ekki
verið hægt að taka mikið upp í
hefðbundnum kvikmyndatökum fyr-
ir stærri myndir, vegna fjöldatak-
markana og sóttvarnaaðgerða, en
það þarf ekki að vera fjölmargt fólk
saman á setti við stuttmyndagerð,
aðeins ein manneskja getur gert
slíka mynd í tölvunni heima hjá sér.
Stuttmynd þarf ekki heldur að
kosta mörg hundruð milljónir. Fyr-
ir vikið giska ég á að myndir í þess-
um covid-flokki stuttmynda verði
aðeins öðruvísi en við erum vön að
sjá. Okkur finnst virkilega spenn-
andi að sjá hvaða leiðir fólk muni
fara, í fyrra voru til dæmis flestrar
erlendu stuttmyndirnar í Systra-
keppninni teiknaðar. Sérstaklega
minnisstæð er stillumyndin (e. stop
motion) The Wedding Cake sem
fékk verðlaun sem besta erlenda
stuttmyndin, en þar voru playmo-
karlar í öllum aðalhlutverkum. Ég
grét yfir annarri stuttmynd í
keppninni sem var aðeins nokkurra
mínútna löng,“ segir Sólrún og
leggur áherslu á að það sé hægt að
kjarna stóra hugsun í stuttri og ein-
faldri mynd, rétt eins og í ljóði.
„Við hvetjum alla til að senda
stuttmynd inn í keppnina, skilyrðin
er hægt að skoða á vefsíðunni film-
freeway.com.“
Enn mjög karllægur bransi
Skipuleggjendur og hug-
myndasmiðir RVK FFF-hátíð-
arinnar eru María Lea Ævarsdóttir
kvikmyndaframleiðandi og Nara
Walker listakona. Sólrún segir að
femínísk kvikmyndahátíð eigi fullt
erindi því ekki veiti af að draga sér-
staklega fram kvikmyndir eftir
kvenkyns leikstjóra og handritshöf-
unda. „Staðreyndin er því miður sú
að aðeins tíu prósent leikstjóra
hundrað tekjuhæstu myndanna árið
2019 eru konur, og aðeins um fjórð-
ungur framleiðenda þessara sömu
mynda eru konur. Allt of fáar kon-
ur sem leikstýra, framleiða og
skrifa kvikmyndahandrit eru meðal
þeirra sem hampa Óskars-
verðlaunum eða verðlaunum á
helstu hátíðum. Kvikmyndagerð er
enn mjög karllægur bransi og það
er stutt síðan byrjað var að styðja
konur sérstaklega þar. Kvikmynda-
miðstöð Íslands leggur núna
áherslu á að veita konum styrki
sem sækja í sjóðinn, sem er frá-
bært. Þetta er líka að mjakast í
rétta átt úti í heimi, Óskarsverð-
launahátíðin hefur til dæmis sett ný
skilyrði fyrir þær myndir sem fá
verðlaun sem besta mynd, nú fá
konur og minnihlutahópar meira
vægi í því vali. Þannig er verið að
reyna að tryggja að sjónarmið
ólíkra hópa komi að einhverju leyti
að gerð myndanna, því það er ekki
nóg að fjallað sé um kvenpersónur í
kvikmynd og að konur séu í aðal-
hlutverkum, ef karlar koma ein-
vörðungu að kvikmyndagerðinni,“
segir Sólrún og bætir við að sér
finnist augljóst að konur nálgist
með allt öðrum hætti að fjalla um
reynsluheim kvenna í kvikmynd en
karlar.
„Auðvitað er ekkert að því að
konur geri myndir um karla, og
karlar geri myndir um konur, en
flestar kvikmyndir eru um reynslu-
heim karla, af því þeir gera myndir
um þann heim sem þeir þekkja,“
segir Sólrún og bætir við að sér
finnist allt of hægt ganga að leið-
rétta kynjahallann í kvikmynda-
gerð.
„Sumir halda því fram að það
sé miklu auðveldara að vera kona í
kvikmyndaheiminum í dag en áður,
en það er ekki raunin. Ég hef heyrt
að konur hafi verið settar á um-
sóknir fyrir styrkjum til kvik-
myndagerðar og þær fengið að vera
með í byrjun, en þeim hafi svo verið
hent út úr verkefnum. Þetta er eilíf
barátta. Konur og minnihlutahópar
sem framleiða og búa til kvikmynd-
ir þurfa að sanna sig margfalt á við
karlana sem fljóta kannski
áreynslulaust í gegnum allt ferlið.“
Kannski
fæðist barnið
á hátíðinni
Nú er opið fyrir umsóknir í stuttmyndakeppnina Syst-
ur, sem er hluti af kvikmyndahátíðinni RVK FFF sem
fram fer í janúar. Sólrún Freyja Sen segir að teikn-
aðar stuttmyndir geti haft jafn mikil áhrif á áhorfand-
ann og lengri myndir. Sjálf grét hún yfir nokkurra
mínútna mynd á hátíðinni í fyrra. „Það er hægt að
kjarna stóra hugsun í stuttri og einfaldri mynd.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blómleg Sólrún segir að ekki veiti af að draga fram kvikmyndir eftir kvenkyns leikstjóra og handritshöfunda.
RVK FFF 2019 Lea (í rauðri peysu) og Nara (í röndóttum kjól) eru skipu-
leggjendur og hugmyndasmiðir hátíðarinnar. Við hlið Leu er Alexia Muiños
Ruiz de Oyaga, leikstjóri og handritshöfundur, en við hlið Nöru er Wendy
Guerrerol sem hélt fyrirlestur fyrir hönd Geena Davis Institute.
Frábær Stuttmyndin The Wedding
Cake eftir Monicu Mazzitelli fékk
verðlaun sem besta erlenda stutt-
myndin í fyrra, en þar voru playmo-
karlar í öllum aðalhlutverkum.
„Aðeins tíu prósent
leikstjóra hundrað
tekjuhæstu myndanna
árið 2019 eru konur.“
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR