Morgunblaðið - 10.10.2020, Page 13

Morgunblaðið - 10.10.2020, Page 13
Lítið kemst að þessa dagana annaðen kórónaveiran. Veiran dreifir sérhratt um heimsbyggðina enn og aftur og erfitt er að átta sig á framhaldinu. Það eina sem við getum gert er að fylgja reglum landlæknisembættisins og huga vel að okkar eigin heilsu, bæði líkamlegri sem andlegri. Eins og Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hefur bent á þá bendir flest til að 40% smitaðra séu einkennalausir, því er það mjög mikilvægt fyrir hvern og einn að byggja upp sitt eigið ónæmiskerfi til að gera líkamanum kleyft að takast sem best á við flensur og aðrar veirusýkingar. Meltingin er grunnurinn Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf betur og betur hversu mikilvægt það er að hafa meltingarfærin í lagi og hvaða áhrif þarmaflóran hefur bæði á líkamlega og andlega líðan. Að auki spilar hún stórt hlutverk í að viðhalda öflugu ónæmiskerfi. Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður til að næringarefnin frásogist en til þess að það gerist þarf þarmaflóran að vera í jafnvægi. Meltingarfærin eru því það fyrsta sem við þurfum að huga að til að geta nærst vel, því um leið og upptakan er góð og við skilum frá okkur eðlilegum hægðum, kemst betra jafnvægi á og þannig höfum við stigið stórt skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má líkja þessu við að við séum að byggja hús og við byrjum á grunninum. Því traustari og vel gerðari sem grunnurinn er, þeim mun auðveldara verður að byggja ofan á þannig að allt haldi vel. Góður og grænn á morgnana Grænn þeytingur (smoothie) eins og má sjá í meðfylgjandi uppskrift er fullur af næringarefnum og trefjum sem eru bæði nauðsynleg og góð fyrir meltinguna. Vel samsettir þeytingar hafa líka jákvæð áhrif á blóðsykurinn og geta hjálpað í baráttunni við sykurpúkann. Það þarf ekki að vera flókið að skella í góðan drykk og tekur varla meira en 2-3 mínútur. Ýmislegt má svo nota til að „poppa drykkinn aðeins upp“ en það getur verið smá kanill, turmerik, 1 msk hörfræ eða chiafræ, smá epladjús eða 2 döðlur til að sæta aðeins. Berjadrykkir eru líka einstaklega næringaríkir og um að gera að finna hvað hentar. Þreyta eftir máltíðir Ensím eru nauðsynleg í öllum efnaskiptum í líkamanum en í hráu fæði eru ensím sem verða óvirk við eldun. Þegar við borðum eldaðan og unninn mat notar líkaminn orkuna að finna og flytja ensím til meltingarvegarins, en hver hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir. Með hækkandi aldri gerist það líka að framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en ensímskortur getur lýst sér í eftirfarandi: n Brjóstsviði n Vindverkir n Uppþemba n Ónot í maga & ógleði n Bólur n Nefrennsli n Krampar í þörmum n Ófullnægt hungur n Exem n Höfuðverkur n Skapsveiflur n Liðverkir n Húðkláði n Húðroði n Svefnleysi Það er alltaf mikilvægt að borða „lifandi fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með elduðum mat og fjölmargir hafa einnig fundið lausn í að taka inn meltingarensím til að auðvelda líkamanum verkið og nýta fæðuna betur. Þetta er einnig grundvallaratriði í átt að heilbrigðari lífsstíl. Meltingarensímin frá Enzymedica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrúlegustu óþægindi og aukið orku til muna. Aðferð við vinnslu á Enzymedica ensímunum kallast Thera-Blend og er það einkaleyfisvarin aðferð sem gerir þeim kleyft að vinna á mismunandi pH- gildum í líkamanum sem gerir þau mörgum sinnum öflugri en önnur meltingarensím. Öflugasta viðbótin Fyrir utan bæði D-vítamín og Omega-3 fitusýrur sem er okkur lífsnauðsynlegt, eigum við að taka inn öfluga mjólkursýrugerla. Það er stöðugt álag á meltingunni okkar og atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur og koffein sem valda því að þarmaflórann er ekki í nógu góðu jafnvægi. Bio Kult mjólkursýrugerlarnir eru mjög öflugir og til að efla ónæmiskerfið enn frekar er talið að Bio Kult Candéa haft virkilega góð áhrif. Auk 7 gerlastofna innheldur BIo Kult Candéa hvítlauk sem er bakteríudrepandi og þekktur fyrir að vera öflugur fyrir ónæmiskerfið og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem inniheldur öflug efnasambönd sem talin eru efla varnir líkamanns gagnvart fjölmörgum bakteríutegundum, veirum og sveppum. NEUBRIA - nærir heilann NÝTT ENERGY – Orka og úthald MEMORY – Athygli ogminni FOCUS – Skýrleiki og einbeiting MOOD – Gleði og jafnvægi SLEEP – Svefn og slökun NÝTT Neubria vörurnar eru háþróaðar vörur sem innihalda öflugar jurtir ásamt mikilvægum vítamínum og steinefnum sem gefa aukna orku og geta eflt mótstöðu gegn streitu og álagi. NEUBRIA - næring fyrir heilann Að byggja upp sterkt ónæmiskerfi getur skipt sköpum Á tímum sem þessum er sterkt ónæmiskerfi lykilatriði. Þættir eins og hreyfing, góður svefn, hollt mataræði og góðmelting eru undirstaðan að öflugu ónæmiskerfi. Grænn og vænn: 1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða grænkál ½-1 banani (má vera frosinn) 1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas 1-2 cm engifer Smá sítrónusafi 1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða haframjólk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.