Morgunblaðið - 10.10.2020, Qupperneq 13
Lítið kemst að þessa dagana annaðen kórónaveiran. Veiran dreifir sérhratt um heimsbyggðina enn og aftur
og erfitt er að átta sig á framhaldinu. Það
eina sem við getum gert er að fylgja reglum
landlæknisembættisins og huga vel að okkar
eigin heilsu, bæði líkamlegri sem andlegri.
Eins og Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar hefur bent á þá bendir flest
til að 40% smitaðra séu einkennalausir, því
er það mjög mikilvægt fyrir hvern og einn að
byggja upp sitt eigið ónæmiskerfi til að gera
líkamanum kleyft að takast sem best á við
flensur og aðrar veirusýkingar.
Meltingin er grunnurinn
Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf betur
og betur hversu mikilvægt það er að
hafa meltingarfærin í lagi og hvaða áhrif
þarmaflóran hefur bæði á líkamlega og
andlega líðan. Að auki spilar hún stórt
hlutverk í að viðhalda öflugu ónæmiskerfi.
Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður
til að næringarefnin frásogist en til þess
að það gerist þarf þarmaflóran að vera í
jafnvægi. Meltingarfærin eru því það fyrsta
sem við þurfum að huga að til að geta nærst
vel, því um leið og upptakan er góð og við
skilum frá okkur eðlilegum hægðum, kemst
betra jafnvægi á og þannig höfum við stigið
stórt skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má
líkja þessu við að við séum að byggja hús og
við byrjum á grunninum. Því traustari og
vel gerðari sem grunnurinn er, þeim mun
auðveldara verður að byggja ofan á þannig að
allt haldi vel.
Góður og grænn á morgnana
Grænn þeytingur (smoothie) eins og má
sjá í meðfylgjandi uppskrift er fullur af
næringarefnum og trefjum sem eru bæði
nauðsynleg og góð fyrir meltinguna. Vel
samsettir þeytingar hafa líka jákvæð áhrif á
blóðsykurinn og geta hjálpað í baráttunni við
sykurpúkann. Það þarf ekki að vera flókið að
skella í góðan drykk og tekur varla meira en
2-3 mínútur.
Ýmislegt má svo nota til að „poppa drykkinn
aðeins upp“ en það getur verið smá kanill,
turmerik, 1 msk hörfræ eða chiafræ,
smá epladjús eða 2 döðlur til að sæta
aðeins. Berjadrykkir eru líka einstaklega
næringaríkir og um að gera að finna hvað
hentar.
Þreyta eftir máltíðir
Ensím eru nauðsynleg í öllum efnaskiptum
í líkamanum en í hráu fæði eru ensím
sem verða óvirk við eldun. Þegar við
borðum eldaðan og unninn mat notar
líkaminn orkuna að finna og flytja ensím
til meltingarvegarins, en hver hefur ekki
fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir.
Með hækkandi aldri gerist það líka að
framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en
ensímskortur getur lýst sér í eftirfarandi:
n Brjóstsviði
n Vindverkir
n Uppþemba
n Ónot í maga & ógleði
n Bólur
n Nefrennsli
n Krampar í þörmum
n Ófullnægt hungur
n Exem
n Höfuðverkur
n Skapsveiflur
n Liðverkir
n Húðkláði
n Húðroði
n Svefnleysi
Það er alltaf mikilvægt að borða „lifandi
fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með
elduðum mat og fjölmargir hafa einnig
fundið lausn í að taka inn meltingarensím
til að auðvelda líkamanum verkið og
nýta fæðuna betur. Þetta er einnig
grundvallaratriði í átt að heilbrigðari lífsstíl.
Meltingarensímin frá Enzymedica eru
tekin inn með mat og hafa losað fólk við
ótrúlegustu óþægindi og aukið orku til muna.
Aðferð við vinnslu á Enzymedica ensímunum
kallast Thera-Blend og er það einkaleyfisvarin
aðferð sem gerir þeim kleyft að vinna á
mismunandi pH- gildum í líkamanum sem
gerir þau mörgum sinnum öflugri en önnur
meltingarensím.
Öflugasta viðbótin
Fyrir utan bæði D-vítamín og Omega-3
fitusýrur sem er okkur lífsnauðsynlegt, eigum
við að taka inn öfluga mjólkursýrugerla.
Það er stöðugt álag á meltingunni okkar
og atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur
og koffein sem valda því að þarmaflórann
er ekki í nógu góðu jafnvægi. Bio Kult
mjólkursýrugerlarnir eru mjög öflugir og
til að efla ónæmiskerfið enn frekar er talið
að Bio Kult Candéa haft virkilega góð áhrif.
Auk 7 gerlastofna innheldur BIo Kult Candéa
hvítlauk sem er bakteríudrepandi og þekktur
fyrir að vera öflugur fyrir ónæmiskerfið
og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem
inniheldur öflug efnasambönd sem talin eru
efla varnir líkamanns gagnvart fjölmörgum
bakteríutegundum, veirum og sveppum.
NEUBRIA
- nærir heilann
NÝTT
ENERGY – Orka
og úthald
MEMORY –
Athygli ogminni
FOCUS – Skýrleiki
og einbeiting
MOOD – Gleði og
jafnvægi
SLEEP – Svefn
og slökun
NÝTT
Neubria vörurnar eru háþróaðar vörur sem innihalda öflugar jurtir ásamt mikilvægum
vítamínum og steinefnum sem gefa aukna orku og geta eflt mótstöðu gegn streitu og álagi.
NEUBRIA - næring fyrir heilann
Að byggja upp sterkt
ónæmiskerfi getur
skipt sköpum
Á tímum sem þessum er sterkt ónæmiskerfi lykilatriði. Þættir eins og
hreyfing, góður svefn, hollt mataræði og góðmelting eru
undirstaðan að öflugu ónæmiskerfi.
Grænn og vænn:
1 lúka blönduð græn blöð,
spínat eða grænkál
½-1 banani (má vera frosinn)
1 bolli frosið mangó eða t.d.
ananas
1-2 cm engifer
Smá sítrónusafi
1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu-
eða haframjólk