Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fræðsla sem miðar að því að vekja áhuga með fólki á umhverfi sínu er áhrifamikil í náttúruvernd. Í þessu efni eru landverðir í lykilhlutverki og við sem störf- um úti á akrinum finnum vel að skilningur fólks á mikilvægi þess að ganga vel um landið og vernda viðkvæm svæði verður æ meiri og betri,“ segir Kári Kristjánsson landvörður. Dagur ís- lenskrar náttúru var 11. september síðastliðinn og þá veitti Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- ráðherra Kára Náttúruverndar- viðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Sú var konan sem gaf hvergi eftir þegar virkja átti Gullfoss, svo úr varð hennar sögulegi sigur. Heimahöfn á Klaustri Í umsögn ráðherra um viðurkenn- inguna sem Kári hlaut segir að hann sé stundum nefndur Landvörður Ís- lands enda hafi hann sinnt náttúru- vernd af miklum áhuga síðustu ára- tugi. Áhugi hans á viðfangsefninu sé smitandi og verklagnin þekkt. Hann hafi meðal annars þróað aðferð til að flytja til grámosa og koma honum fyrir þar sem sár hafa myndast vegna álags þannig að villustígar myndist. Svo hafi verið hans siður sem landvörður í Lakagígum að taka alla tali sem þangað koma og upplýsa fólk um undur svæðisins, umgengnisreglur og verndargildi. Sú nálgun hafi gefið góða raun. „Sannarlega finnst mér vænt um að fá verðlaunin,“ segir Kári sem hóf störf við landvörslu árið 1989. Var fyrst ellefu sumur á vaktinni í Öskju, Herðubreiðarlindum og Hvanna- lindum og svo þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum um tveggja ára skeið. Kom svo til starfa sunnan jökla og tók við landvörslu í Laka- gígum, með aðsetur á Kirkjubæj- arklaustri. Segja má að enn í dag sé Klaustur heimahöfn Kára í starfinu, en frá 2008 hefur hann verið starfs- maður Vatnajökulsþjóðgarðs. Sinnir ýmsum verklegum framkvæmdum og hefur umsjón með mannvirkjum. Náttúra er samofin heild Kári segir áhuga sinn á náttúru- vernd og umhverfismálum hafa vaknað strax á uppvaxtarárum sín- um austur í Ölfusi. Þar lærði sveita- drengurinn að þekkja og nefna blóm, fugla og annað í náttúrunni og bera virðingu fyrir því. Þetta hafi fylgt honum alla tíð og mótað við- horf hans. „Vitund og áhugi á nátt- úrunni hefur alltaf fylgt mér. Raun- ar finnst mér alltaf sem fólk sem hefur fengið fræðslu um náttúru landsins skilji betur en aðrir gang- virki náttúrunnar; hvernig allt í um- hverfinu myndar samofna heild sem umgangast ber af virðingu,“ segir landvörðurinn. Margt hefur gerst í náttúruvernd- armálum á Íslandi að undanförnu. Allmörg svæði hafa verið friðlýst á þessu ári; Gjáin og fleiri staðir í Þjórsárdal, Geysir í Haukadal, Búr- fellsgjá ofan Garðabæjar, Kerl- ingarfjöll og Goðafoss, svo eitthvað sé nefnt. Friðlýsing fleiri staða er í undirbúningi sem og stofnun miðhá- lendisþjóðgarðs, sem hefur verið sérstakt áherslumál núverandi um- hverfisráðherra. Þá er í umræðunni að setja á laggirnar sérstaka þjóð- garðastofnun sem annast myndi alla umsjón og stjórn allra þjóðgarða og friðlýstra svæða, sem Kári telur að- kallandi mál. Jöklar fái stimpil verndar „Heildstæð nálgun og stjórn í náttúruverndarmálum er mikilvæg og að fundinn sé millivegur um ólík sjónarmið hvað varðar búfjárbeit. Bændur telja að afnotaréttur þeirra af landinu skerðist með þjóðgarði en þær áhyggjur eru ástæðulausar. Verndarsvæði innan þjóðgarða geta verið með ýmsu móti og ekki sjálf- gefið að þær skerði rétt til sauð- fjárbeitar, veiði eða annars sem bændur hafa hlunnindi af,“ segir Kári og bætir við: „Á hálendinu tel ég aðkallandi nú að Brúaröræfi og Lónsöræfi verði tekin undir Vatna- jökulsþjóðgarð. Einnig að Kjölur, svæði umhverfis Hofsjökul og Lang- jökul og Friðland að Fjallabaki verði innan hálendisþjóðgarðs, því þar er- um við á eldgosabelti sem nær frá Snæfellsnesi inn að miðju landsins. Jöklarnir hopa hratt þessi árin og því er nauðsynlegt að setja á þá og umhverfi þeirra stimpil verndunar. Slíkt stoppar auðvitað ekki undan- hald þeirra, en gæti orðið til þess að efla fræðslustarf, umræðu og rann- sóknir – og til þess er leikurinn líka gerður.“ Fræðsla og skilningur  Kári er nefndur Landvörður Íslands  Viðurkenning Sigríðar í Brattholti  Þjóðgarðarnir verði stækkaðir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vatnajökulsþjóðgarður Selfoss í Jökulsá á Fjöllum er úfinn en fallegur. Kári Kristjánsson IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Silver/ Dark walnut að innan. 2020 GMC Denali, magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleira. Samlitaðir brettakantar, gúmmimottur í húsi og palli. VERÐ 13.250.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Carbon Black/ Walnut að innan. 2020 GMC Denali , magnaðar breytingar t.d. 10 gíra skipting, auto track millikassi, multipro opnun á afturhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. Samlitaðir brettakantar, gúmmimottur í húsi og palli. VERÐ 13.250.000 m.vsk ATH. ekki „verð frá“ 2020 GMC Denali Ultimate Litur: Silver/ Grár að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque, 4X4, 10-speed Automatic transmission, 6-manna. Heithúðaður pallur. VERÐ 11.290.000 m.vsk 2020 Ford F-350 XLT ÚR BÆJARLÍFINU Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum „Hér í Eyjum erum við á varðbergi eins og aðrir landsmenn á þessum veirutímum. Við áttum erfiðan vetur í fyrstu smitbylgjunni og viljum gera allt til að það endurtaki sig ekki. Samstaðan var mikil og er enn. Staðan í bæn- um er almennt góð og ekki mikil ástæða fyrir okkur að kvarta miðað við það sem gengur og gerist þessa dagana,“ sagði Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri þegar hún var beðin um að fara yf- ir stöðuna í Eyjum í dag. „Sumarið var skemmtilegt fram að „ekki“-þjóðhátíðarhelginni. Það kom ánægju- lega á óvart hversu vel gekk í ferðaþjónustu og verslun í sumar og stóru sjávarútvegs- fyritækin hafa verið á góðri siglingu. Það eru mörg krefjandi verkefni framundan en tæki- færin eru mörg líka. Það er aldrei logn í kring- um samgöngurnar okkar en sem betur fer eru jákvæð teikn á lofti tengd fluginu. Landeyja- höfn er upp á sitt besta og nýr Herjólfur reyn- ist vel. Nú þarf bara að ljúka endurskoðun á samningum við Vegagerðina og tryggja ró og öryggi í kringum rekstur skipsins,“ sagði Íris.    Hún segir Vestmannaeyjar yndislegan og fjölskylduvænan bæ sem bjóði upp á svo margt; ekki síst meiri tíma fyrir fjölskyldu og áhugamál. Fólk sé aldrei nema í nokkurra mínútna fjarlægð frá vinnu, skóla, íþrótta- og tómstundastarfi og öðru sem þarf að sinna. „Tíminn nýtist þannig miklu betur en þar sem þarf að eyða drjúgum hluta dags í að kom- ast á milli staða. Leikskólapláss er í boði fyrir börn frá 12 mánaða aldri, góðir skólar og íþróttastarf sem jafnast á við það besta sem þekkist. Þetta spyrst út enda verðum við vör við að mikið er spurt um þjónustu við barna- fólk og aðstöðu til fjarvinnu. Þetta er jákvæð og spennandi þróun. Og svo má bæta því við að mjaldrasysturnar una glaðar við sinn hag úti í Klettsvík,“sagði Íris að endingu.    Fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar fyrir næsta ár var rædd á fundi bæjarráðs og þar kom fram að útsvarsprósentan verður óbreytt á milli ára, eða 14,46%. Hlutfall af álagningu fasteignaskatta verður óbreytt milli ára, þannig að hlutfall fasteignaskatts á íbúð- arhúsnæði verður 0,291%, á opinberar stofn- anir 1,32% og á annað húsnæði, þ.m.t. atvinnu- húsnæði, 1,55%. Gerð var tillaga um að aðrar tekjur málaflokka, svo sem vegna gjaldskráa bæjarins, hækkuðu um 2,5% í takt við lífs- kjarasamninga. Hins vegar á eftir að taka ákvörðun um gjaldskrár er snúa að fjöl- skyldufólki sérstaklega, t.a.m. leikskólagjöld, dagmæður, skólamáltíðir og Frístund.    Lagt var fram yfirlit um 8 mánaða fjár- hagsstöðu bæjarsjóðs. Í ljósi Covid-19, skerð- ingar á tekjum svo sem hafnargjöldum og framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og aðgerða bæjarins til þess að bregðast við at- vinnuástandi og verkefnastöðu fyrirtækja, sér- staklega í vor og sumar, hefur fjárhagsstaða bæjarins þyngst. Bæjarsjóður stendur hins vegar á traustum grunni og afkoman er þokka- leg í ljósi ástandsins. Ekki er útlit fyrir að skerða þurfi þjónustu eða draga úr fram- kvæmdum það sem eftir er af árinu. Fjárhagsstaða Herjólfs ohf. er hins vegar alvarleg, sem getur haft áhrif á samstæðu bæj- arsjóðs. Viðræður standa nú yfir milli starfs- hóps, sem skipaður var af bæjarstjórn, og Vegagerðarinnar um forsendur þjónustu- samnings um rekstur Herjólfs, fjárhagsstöðu félagsins og aðkomu ríkisins.    Tónlistarskólinn fór af stað með eðlileg- um hætti að mestu. Fyrsti kennsludagur var 26. ágúst og eru skráðir nemendur nú 112, sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár. 10 starfs- menn starfa við skólann í um níu stöðugildum. Boðið er upp á kennslu á flest hljóðfæri og í ár er kennt á 15 mismunandi hljóðfæri. Auk þess eru kenndar tónfræðigreinar og starf- ræktir tónlistarhópar svo sem skólalúðrasveit í tveim hópum, strengjasveit og tilfallandi samspilshópar. Kennarar skólans hafa einnig séð um tónmenntakenslu í Hamarsskóla og söngstundir á Víkinni fimm ára deild.    Ísfélagið, Huginn VE og Vinnslustöðin náðu kvóta sínum í makríl og veiðar á norsk- íslensku síldinni hafa gengið vel. Huginn og Vinnslustöðin eru búin með sinn kvóta og Ís- félagið hefur náð 12.000 tonnum og á 6.000 tonn eftir. Bolfiskveiðar hafa líka gengið vel og næg vinna í landi.    Pysjutímabilið 2020 var gott og er ásamt árinu í fyrra besta árið frá því fyrir aldamót. Pysjueftirlitið skráði og mældi 7.706 pysjur í fyrra og 7.623 pysjur í ár. Krakkar voru úti öll kvöld og nætur að ná pysjum sem flugu inn í bæinn. Dagurinn fór svo í að sleppa þeim út á sjó. Munurinn frá síðasta ári er að nú voru pysjurnar vænni og betur undir það bún- ar að takast á við hætturnar sem bíða þeirra á sjónum. Staðan almennt góð í Eyjum Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Vestmannaeyjar Kap VE landar hér síld hjá Vinnslustöðinni í vikunni, skipið vel hlaðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.