Morgunblaðið - 10.10.2020, Síða 18
Hvað felst í alþjónustu?
» Dreifing, innan lands og á
milli landa á bréfum allt að 2
kg.
» Dreifing á pökkum allt að 10
kg innanlands og allt að 20 kg
milli landa.
» Sendingar fyrir blinda og
sjónskerta allt að 2 kg og
ábyrgðarsendingar og tryggð-
ar sendingar.
» Dreifing póstsendinga fari
fram tvo daga í viku til ein-
staklinga með fasta búsetu og
lögaðila.
» Tæming póstkassa sem
falla undir alþjónustu skal fara
fram a.m.k. tvisvar í viku.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Hætt er við að tekjur Íslandspósts
dragist saman um 500 milljónir
króna á þessu ári vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar. Stafar tekjufallið
einkum af töfum,
fækkun sendinga
að utan og aukn-
um kostnaði
vegna þeirra. Þá
hefur aukin net-
verslun innan-
lands ekki náð að
vega upp sam-
dráttinn í erlend-
um sendingum.
Þetta er meðal
þess sem kemur
fram í nýbirtri framhaldsúttekt
Ríkisendurskoðunar á rekstri og
fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
Í niðurstöðum stofnunarinnar er
bent á að stjórn og nýtt stjórn-
endateymi Ísandspósts hafi unnið
gott starf við að „hagræða og end-
urskipuleggja í rekstri fyrirtækis-
ins“.
Starfsfólki fækkað um 24,8%
Þannig hafi tekist að fækka
starfsfólki og draga saman hús-
næði án þess að það hafi komið
niður á starfsemi. Bendir Ríkisend-
urskoðun á að starfsmannafjöldi í
júní síðastliðnum hafi aðeins verið
75,2% af því sem hann var í sama
mánuði í fyrra.
Þrátt fyrir hinn góða árangur
sem lýst er í skýrslunni gera höf-
undar hennar ráð fyrir að Póst-
urinn geti lent í greiðsluerfiðleik-
um þegar líður á árið og að af þeim
sökum þurfi sérstaklega að end-
urmeta fjárþörf fyrirtækisins
vegna hinnar svokölluðu alþjón-
ustubyrði sem á fyrirtækinu hvílir.
Í fyrra lagði ríkissjóður Póst-
inum til 1.500 milljónir króna til
þess að lækka skuldir fyrirtækisins
sem voru við það að sliga starfsemi
þess. Ríkisendurskoðun útilokar
ekki frekara inngrip og að „eigandi
Íslandspósts ohf. þurfi að fylgjast
náið með rekstrarhorfum félagsins
með það fyrir augum að mögulega
grípa til sérstakra ráðstafana á
árinu til að tryggja rekstur þess“.
Birgir Jónsson, forstjóri Pósts-
ins, segir að horfur í rekstri fyrir-
tækisins hafi snúist mjög til batn-
aðar frá því að skýrslan var skrifuð
í upphafi sumars og því sé ekki
ástæða til að grípa til sérstakra
ráðstafana til þess að tryggja
rekstur þess.
„Þótt tekjur fyrirtækisins hafi
dregist saman um 360 milljónir á
fyrstu átta mánuðum ársins frá
sama tímabili í fyrra þá er
EBITDA nú 304 milljónir en var
einungis 68 milljónir í fyrra.
EBITDA-hlutfallið er því 6,7% en
var 1,85% í fyrra. Þá er tapið sem
af er ári 16 milljónir en var 345
milljónir á fyrstu átta mánuðum
ársins í fyrra,“ segir Birgir.
Vilja hærri greiðslu frá ríkinu
Hinn 1. janúar síðastliðinn féll
niður einkaréttur Íslandspósts til
dreifingu bréfa undir 50 g að
þyngd á Íslandi. Ný lög um póst-
þjónustu tóku gildi á sama tíma og
er þeim ætlað að tryggja svokall-
aða alþjónustu sem tryggja á póst-
þjónustu út um landið. Samkvæmt
lögunum geta stjórnvöld farið
þrjár leiðir við val á þeim aðila eða
aðilum sem ætlað er að sinna al-
þjónustunni. Í fyrsta lagi getur
ráðherra ákveðið að gera samning
við fyrirtæki með almenna heimild
til að sinna alþjónustuskyldum. Í
öðru lagi getur ráðherra ákveðið að
fela Póst- og fjarskiptastofnun
(PF) að útnefna fyrirtæki með al-
þjónustuskyldur. Í þriðja lagi getur
ráðherra ákveðið að bjóða þjón-
ustuna út.
Segir í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar að til þess að eyða óvissu um
framkvæmd nýju póstlaganna og
tryggja alþjónustu í pósti frá og
með gildistöku þeirra hafi sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðuneyt-
ið ákveðið að nauðsynlegt væri að
fara leið tvö, þ.e. útnefningarleið-
ina. Mun ráðuneytið hafa vísað til
þess að ríki Evrópu, að Þýskalandi
undanskildu, hafi öll farið þá leið
við afnám einkaréttar í pósti.
Stefnt á 10 ára samning
Var Pósturinn útnefndur af PF
til að sinna alþjónustunni tíma-
bundið, uns sérstakur þjónustu-
samningur yrði gerður til 10 ára.
Samkvæmt fyrirmælum frá ráðu-
neytinu var ákveðið að Pósturinn
fengi 250 milljónir á árinu í formi
„varúðarframlags“ til að mæta al-
þjónustubyrðinni. Frá upphafi var
hins vegar skýrt af hálfu Póstsins
að hann teldi framlagið þurfa að
vera 490 milljónir. „Við höfum ein-
faldlega lagt þessa útreikninga fyr-
ir stjórnvöld og sýnt fram á að
kostnaður okkar við að veita þessa
þjónustu er ekki undir 490 millj-
ónum nú í ár. Ef ekki er vilji til
þess að veita það fé til verkefnisins
verður að endurskoða þjónustu-
stigið og gera hlutina öðruvísi.
Pósturinn er reiðubúinn í þá
vinnu,“ segir Birgir.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er
bent á að samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið hafi lýst því yfir
að alþjónustubyrðin ætti ekki að
vera vandamál fyrir Íslandspóst
þar sem fyrirtækið fái „lögum sam-
kvæmt endurgreiddan allan kostn-
að sem sannanlega fellur til vegna
alþjónustunnar“.
Spurður út í þessa yfirlýsingu
segir Birgir að hún standist ekki
skoðun.
„Við fórum yfir þær kröfur sem
alþjónustubyrðin leggur okkur á
herðar. Við reiknuðum út hvað það
kostaði að veita þessa þjónustu og
lögðum þá útreikninga fyrir Póst-
og fjarskiptastofnun og ráðuneytið.
Það hefur enginn rengt þessa út-
reikninga. Því er ljóst að við erum
ekki að fá kostnaðinn endurgreidd-
an. Hann fellur einfaldlega á fyrir-
tækið, sem er ekki eðlilegt.“
Greinir á um verð fyrir þjónustuna
Morgunblaðið/Eggert
Ógöngur Rekstur Póstsins stefndi í þrot en nú horfir til betri vegar.
Forstjóri Póstsins segir fyrirtækið niðurgreiða alþjónustu Tæpar 250 milljónir vanti upp á greiðslur
frá ríkinu Tapið 16 milljónir á fyrstu átta mánuðum ársins en var 345 milljónir á sama tíma í fyrra
Birgir
Jónsson
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er í
hópi 20 fremstu seðlabankastjóra
heims að mati tímaritsins Global Fin-
ance. Það gefur
árlega út lista þar
sem lagt er mat á
árangur flestra
seðlabankastjóra
heimsins. Er þar
meðal annars
horft til þess
hvernig tekist hef-
ur að halda aftur
af of mikilli verð-
bólgu, hvernig
vaxtastefna við-
komandi banka hefur skilað sér og
einnig stefnu þeirra í gjaldeyrisvara-
forðamálum.
Tímaritið raðar að þessu inni 94
seðlabankastjórum á lista og gefur
þeim einkunnina á skalanum A til F.
Er Ásgeir í hópi þeirra bankastjóra
sem fá einkunnina A- en þann flokk
fylla ásamt honum níu bankastjórar,
m.a. Jerome Powell, seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, og Elvira
Nabiullina, seðlabankastjóri Rúss-
lands. Aðeins 10 bankastjórar ná ein-
kunninni A.
Í umsögn Global Finance segir að
Ásgeir hafi tekið við góðu búi. Þá er
bent á að Ásgeir hafi með fulltingi pen-
ingastefnunefndar lækkað vexti um 175
punkta og að hann hafi ekki útilokað
frekari lækkun, sé hún nauðsynleg.
Einkunnir seðla-
banka í Evrópu*
*Skv. Global Finance. **Of snemmt að segja.
Land Bankastjóri Einkunn
Hvíta-Rússland Pavel Kallaur B-
Búlgaría Dimitar Radev A
Tékkland Jiří Rusnok A-
Danmörk Lars Rohde B+
ESB Christine Lagarde **
Georgía Koba Gvenetadze A-
Ungverjaland György Matolcsy B+
Ísland Ásgeir Jónsson A-
Noregur Øystein Olsen C
Pólland Adam Glapiński C
Rúmenía Mugur Isărescu B-
Rússland Elvira Nabiullina A-
Sviss Thomas Jordan B+
Svíþjóð Stefan Ingves C
Tyrkland Murat Uysal D
Í hópi fremstu
seðlabankastjóra
Tímaritið Global
Finance gefur
stjórunum einkunn
Ásgeir
Jónsson
Viðskipta
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ