Morgunblaðið - 10.10.2020, Page 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020
ÍEgils sögu segir frá því að bónda-dóttir nokkur lá þungt haldin eftirað henni höfðu verið ristar meinr-únir. Egill læknaði stúlkuna með
rúnakunnáttu sinni og varð honum þá
vísa á munni sem hefst svo:
Skal-at maðr rúnar rista, nema ráða
vel kunni.
Vísan er vel skiljanleg nútímalesanda
nema helst -at sem er bætt við sögnina
skal. Smáorðið -at (stundum -a) þýðir
‘ekki’ og er hengt aftan við sögn í per-
sónuhætti. Slík smáorð sem geta ekki
staðið sjálfstætt nefnast henglar. Heng-
illinn -at (-a) kemur ekki aðeins fyrir í
dróttkvæðum heldur líka eddukvæðum eins og hér:
Kemr-a nú Gunnarr (Guðrúnarkviða III)
Byrði betri / berr-at maðr brautu at / en sé manvit mikit (Hávamál)
Fjölkunnigri konu / skal-at-tu í faðmi sofa (Hávamál)
Þessi neitun er ekki einskorðuð við kveðskap; hún birtist einnig í
elstu heimildum í lausu máli, t.d. Íslensku hómilíubókinni (um 1200) og
Grágás (13. öld). Eftir það hvarf -at úr málinu en í staðinn var notast
við atviksorðin eigi, ei, þeygi og ekki.
Önnur neitun sem kemur fyrir í elstu textum er ne (oft ritað né) sem
er skeytt framan við sögn og
getur staðið ein sér með
henni.
Önd þau ne áttu, óð þau
ne höfðu (Völuspá)
Hengillinn -at getur líka
fylgt með og er þá stundum
talað um „herta neitun“: …
ef Gunnarr ne kemr-at (Atlakviða)
Forskeytta neitunin ne er ekki sama fyrirbæri og né í hvorki – né,
sem er samtenging og merkir ‘og ekki’. Neitunin ne er indóevrópsk
arfleifð í norrænu eins og skyld mál eru til vitnis um, t.d. latína (ne-scio
‘ég veit ekki’) og franska (je ne sais pas ‘ég veit ekki’, þ.e. ‘ég veit ekki
skref’). Ne – pas í frönsku er ekki „tvöföld neitun“ þar sem tvær neit-
anir jafna hvor aðra út (sbr. ekki ópólitískur sem merkir ‘pólitískur’).
Þvert á móti er um að ræða svokallað „neitunarsamræmi“. Þannig
merkja smáorðin tvö, ne og pas, í sameiningu ‘ekki’; raunar er ne iðu-
lega sleppt í frönsku talmáli og pas látið duga: Je (ne) mange pas de
chocolat ‘Ég borða ekki súkkulaði’.
Í forníslensku er neitunin ne varðveitt sem steingerðar leifar í forn-
legum skáldskap. Líkt og fylliorðið of/um, sem áður hefur verið fjallað
um hér, féll neitunin ne fyrst brott á vinstri væng setninga og síðar
hvarf hún alveg. Samtengingin né (í hvorki – né) lifir hins vegar fram á
þennan dag.
Veiklun á neitun er algengt ferli í tungumálum og nefnist „hringrás
Jespersens“ eftir danska málfræðingnum Otto Jespersen (1860-1943)
sem fyrstur fjallaði um fyrirbærið. Hringrásin felst í því að neitun (ne
kemr) er fyrst „hert“ með atviksorði eða viðskeyti (ne kemr-at). Síðan
veiklast forskeytta neitunin og hverfur en viðskeytið tórir áfram
(kemr-at). Loks geispar viðskeytið golunni og þá er leitað á náðir ann-
arra neitana (kemur ekki). Snilld Jespersens felst í því að hafa fangað
brot af hinni sífelldu hringrás sköpunar og eyðileggingar í tungumál-
inu.
Fjölkunnigri konu
skal-at-tu í faðmi sofa
Tungutak
Þórhallur Eyþórsson
tolli@hi.is
Otto Jespersen fjallaði um hring-
rás neitunar í tungumálinu.
Við höfum séð blóðuga sóun út um allt í opin-bera kerfinu,“ sagði Bjarni Benediktssonfjármálaráðherra í Silfri RÚV sl. sunnudagog bætti við: „Dæmin eru endalaus.“
Þetta hafa almennir borgarar lengi talið sig sjá úr
fjarlægð og þess vegna fagnaðarefni að fjármála-
ráðherra segi þetta svo umbúðalaust. Það vekur vonir
um að á þeirri „blóðugu sóun“ verði tekið.
Fyrirsjáanlegur gífurlegur hallarekstur ríkissjóðs í
ár og næstu ár kallar á aðgerðir til þess að auka hag-
kvæmni í opinberum rekstri. Með því er ekki átt við
niðurskurð á fjárframlögum til grunnstoða samfélags-
ins svo sem heilbrigðiskerfis, velferðarkerfis og
menntakerfis, heldur aðgerðir til að stöðva þá
„blóðugu sóun“ sem fjármálaráðherra talaði um.
Að vísu sér veiran um þetta sjálf fyrir okkur að
hluta til.
Allt í einu er hægt að draga stórlega úr utan-
ferðum opinbera kerfisins án þess að það hafi
nokkrar afleiðingar sem máli skipta. Í ljós kemur að
það er hægt að nota fjarfundatækni nútímans til að
halda uppi samskiptum við aðrar þjóðir.
Væntanlega verður það ein af þeim var-
anlegu breytingum sem veiran skilur eftir
sig, þegar hún hefur sjálf horfið á braut.
Og ekki er fráleitt að ætla að um leið
opnist augu manna um allan heim fyrir
því að sendiráð eru að verulegu leyti fyr-
irbæri sem heyra fortíðinni til. Það á ekki sízt við um
sendiráð örþjóða, eins og okkar, sem hafa einfaldlega
engum verkefnum að sinna sem máli skipta. Fjar-
fundatæknin gerir kleift að halda uppi nauðsynlegum
samskiptum á milli landa án þess að þjóðir hafi fasta-
skrifstofur hver hjá annarri með allri þeirri tilgerð og
tildri, sem þeim fylgja.
Hinni „blóðugu sóun“, sem fjármálaráðherra talaði
um, hafa svo fylgt annars konar afleiðingar, sem eru
þær, að embættismannakerfið í heild sinni virðist
hafa tapað áttum og misst sjónar á hlutverki sínu.
Í lýðræðisríki er hlutverk þess að fylgja eftir og
framkvæma ákvarðanir kjörinna fulltrúa á Alþingi og
þeirra ráðherra sem hverju sinni sitja í ráðuneytum.
Valdið liggur hjá hinum kjörnu fulltrúum. Ekki hjá
embættismönnum. En þeir virðast hafa misst sjónar
á þessari einföldu staðreynd. Engir vita þetta betur
en þeir sem hafa sinnt ráðherraembættum á Íslandi
undanfarna áratugi. En þeir hinir sömu hafa brugðizt
þeirri skyldu sinni við kjósendur að setja embættis-
mannakerfinu stólinn fyrir dyrnar.
Nú er tækifæri til þess, um leið og ráðizt er til at-
lögu við þá „blóðugu sóun“ á almannafé sem Bjarni
Benediktsson talaði um í Silfrinu.
Það má orða það svo, að þörf sé á „menningarbylt-
ingu“, þótt hér sé ekki gengið svo langt að leggja til
að senda embættismennina upp í sveit að moka flór-
inn í fjósinu, eins og Maó formaður gerði á sinni tíð í
Kína.
Bjarni er ekki eini stjórnmálamaðurinn sem gert
hefur þetta að umtalsefni að undanförnu. Undir lok
september fjallaði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, um það sama á flokksráðs-
fundi og talaði um að „kerfið“ stýrði og „báknið“
blési út.
Og úr menntamálaráðuneytinu berast fregnir sem
benda til að Lilju Dögg Alfreðsdóttur mennta-
málaráðherra sé nóg boðið og hafi hafizt handa við
að rétta skútuna af, að því er hennar ráðuneyti varð-
ar.
Allt bendir þetta til þess að Sjálfstæðisflokkur,
Framsóknarflokkur og Miðflokkur hafi ákveðið að
segja: hingað og ekki lengra.
Miðað við þá reynslu sem komin er af því að um-
boðslaust embættismannakerfi geri tilraun til að
sölsa til sín völd, sem það kerfi hefur ekki skv.
stjórnarskrá Íslands, má búast við að það
sama kerfi taki til varna. Ein aðferð þess
er sú að dreifa út sögum sem hafa það að
markmiði að gera lítið úr einstökum ráð-
herrum.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
framhaldinu en það er fagnaðarefni að
þessi mál eru komin á dagskrá. Ísland er ekki eina
landið í okkar heimshluta, sem á við vanda að etja af
þessu tagi. Fréttir frá Bretlandi benda til að hið
sama sé að gerast þar.
Ummæli Bjarna Benediktssonar beinast að ríkinu
en ekki er ósennilegt að hið sama eigi við um sveitar-
félögin.
Alla vega er og hefur lengi verið ljóst að það er
kominn tími á sameiningu sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu. Yfirbygging þeirra er margföld á við
það sem hún þyrfti að vera, og óþarfa kostnaður
(blóðug sóun) í samræmi við það. Í hvert sinn sem
sameining sveitarfélaga á suðvesturhorninu er nefnd
á nafn fara „hagsmunaaðilar“ af stað, þ.e. bæði
kjörnir fulltrúar og embættismenn.
Hið sama á við annars staðar á landinu. Með sam-
einingu sveitarfélaga er hægt að spara mikið fé.
Nú þegar okkar litla samfélag stendur frammi fyr-
ir gífurlegum kostnaði næstu árin, bæði ríki og sveit-
arfélög, vegna „pláguófétisins“, eins og Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra komst að orði í stefnu-
ræðu sinni á dögunum, er rík ástæða og kjörið
tækifæri til að ráðast að þeim vanda sem of mikil og
of dýr yfirbygging á þessu örsamfélagi er.
Að ekki sé talað um þá tilraun til ólýðræðislegrar
valdatöku sem embættismannakerfið hefur stundað
um langt skeið átölulaust.
Vonandi mun sá erfiði vetur sem fram undan er
marka þau tímamót í sögu lýðveldis okkar að stjórn-
málamennirnir og þar með alþingismenn taki hönd-
um saman og hristi upp í kerfi sem þeir hafa sjálfir
látið vaxa sér yfir höfuð.
„… blóðug sóun út um allt …“
„Dæmin eru
endalaus“
Af innlendum
vettvangi …
Styrmir Gunnarsson
styrmir@styrmir.is
Að mér sóttu á dögunum minn-ingar um Milton Friedman,
einn virtasta hagfræðing tuttugustu
aldar. Ég hitti hann fyrst á fundi
Mont Pelerin-samtakanna, alþjóða-
samtaka frjálslyndra fræðimanna, í
Stanford í Kaliforníu haustið 1980.
Ég sagði honum þá, að ég hefði
ósjaldan varið hann fyrir árásum ís-
lenskra vinstrimanna. „Þú átt ekki
að verja mig,“ sagði Friedman með
breiðu brosi. „Þú átt að verja hug-
sjónir okkar.“
Næst hitti ég Friedman á þingi
Mont Pelerin-samtakanna í Berlín
1982. Hann sagði mér þá af ferð
sinni til Kína skömmu eftir fundinn
í Stanford. Hann hafði snætt hádeg-
isverð með kínverskum ráðherra,
sem kvaðst vera á leið til Bandaríkj-
anna. Hvaða ráðherra sæi þar um
dreifingu hráefna? Friedman svar-
aði: „Þú skalt fara á hrávörumark-
aðinn í Síkagó.“ Ráðherrann varð
eitt spurningarmerki í framan.
Friedman reyndi að útskýra fyrir
honum, að á frjálsum markaði sæi
ríkið ekki um dreifingu hráefna.
Þau dreifðust um hagkerfið í frjáls-
um viðskiptum. Friedman rifjaði
líka upp ferð sína til Indlands 1962.
Hann kom þar að, sem verkamenn
voru að grafa skipaskurð með skófl-
um. Friedman spurði: „Af hverju
notið þið ekki jarðýtur? Það væri
miklu hagkvæmara.“ Leiðsögu-
maður hans svaraði: „Þú skilur
þetta ekki. Þetta skapar atvinnu.“
Friedman var ekki lengi að bregð-
ast við: „Nú, ég hélt, að þið væruð
að grafa skipaskurð. En ef þið ætlið
að skapa atvinnu, af hverju notið þið
ekki matskeiðar?“
Friedman kom til Íslands á mín-
um vegum haustið 1984. Matthías
Á. Mathiesen viðskiptaráðherra hélt
honum boð í Ráðherrabústaðnum.
Ég stóð við hlið Friedmans og
kynnti hann fyrir gestum. Einn
þeirra var seðlabankastjóri. Ég gat
ekki stillt mig um að segja: „Jæja,
prófessor Friedman. Hér er íslensk-
ur seðlabankastjóri. Hann yrði nú
atvinnulaus, ef kenningar yðar yrðu
framkvæmdar.“ Friedman brosti
kankvís og sagði: „Nei, hann yrði
ekki atvinnulaus. Hann yrði aðeins
að færa sig í arðbærara starf.“ Allir
hlógu, líka seðlabankastjórinn. Eitt
kvöldið héldu íslenskir kaupsýslu-
menn og iðnjöfrar Friedman veg-
lega veislu. Einn þeirra spurði
Friedman: „Hver er að yðar dómi
mesta ógnin við kapítalismann?“
Friedman svaraði: „Horfið í spegil.
Það eru kapítalistarnir, sem ógna
kapítalismanum. Þeir vilja, að ríkið
verji þá gegn samkeppni.“
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Minningar um Milton
HRINGIÐ OG PANTIÐ SKOÐUN
Hamraborg 12
200 Kópavogur
416 0500
www.eignaborg.is
ÁRANGUR
Í SÖLU
FASTEIGNA
Hátún 2A, 105 Reykjavík TIL LEIGU
Upplýsingar gefur Óskar Bergsson lgfs. sími 893 2499, oskar@eignaborg.is
Vandað og vel skipulagt húsnæði á 2. hæð, innréttað sem tannlæknastofur. Mjög
áhugavert fyrir fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu.
Vandaður hringstigi liggur upp á hæðina. Rýmið er skipulagt út frá gangi í miðju
hússins og er innréttað þannig að hægt er að vera með 5-6 sjálfstæðar starfsstöðvar.
Þakrými yfir hæðinni fylgir með sem geymsla. 22 bílastæði eru á lóðinni og fylgja 10
stæði þessari hæð. Húsnæðið losnar í nóvember 2020.
Atvinnuhúsnæði – Stærð 400 fm