Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 28

Morgunblaðið - 10.10.2020, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 2020 ✝ Sigríður Hall-dórsdóttir fæddist á Arn- arhóli í V-Land- eyjum 15. júní 1929. Þriggja ára flutti hún að Syðri- Úlfsstöðum. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suður- lands, Selfossi 27. september 2020. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Guðbjörg Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 5.3. 1901, d. 5.1. 1972, og Hall- dór Jóhannsson, bóndi að Syðri-Úlfsstöðum, A-Land- eyjum, f. 28.2. 1887, d. 1.11. 1976. Systkini Sigríðar eru Karl Hafstein f. 4.2. 1925, d. 24.4. 2000, Óskar, f. 20.4. 1928, d. 7.12. 2008, og Albert Ágúst f. 16.2. 1935. Þann 14.október 1950 giftist Sigríður Óskari Sigurjónssyni, sérleyfishafa frá Torfastöðum í Fljótshlíð, f. 16.8. 1925, d. 10.10. 2012. Börn þeirra eru: 1) Sig- Ágúst Sigurðsson, f. 1964. Sam- an eiga þau 4 börn og 3 barna- börn. Sigríður eða Sigga Halldórs eins og hún var ávallt kölluð, ólst upp við hefðbundin sveit- arstörf og fluttist á Hvolsvöll og vann hjá Kaupfélagi Rangæinga 1947-1949. Veturinn 1949-1950 stundaði hún nám við Hús- mæðraskólann á Laugarvatni. Næstu árin snerust um börn og barnauppeldi, ásamt því að sinna rekstri fyrirtækis þeirra hjóna, Austurleið hf. Þegar börnin uxu úr grasi vann hún við afgreiðslu í söluskála sem fyrirtæki þeirra rak og síðar hjá Sláturfélagi Suðurlands á Hvolsvelli. Árið 1984 dreif hún sig í enskunám til Bournemouth á Englandi. Sigga hafði unun af hannyrðum, garðrækt og ferða- lögum, jafnt innanlands sem ut- an. Þau hjónin ferðuðust t.d. til Kúbu, Rússlands, A-Evrópu og víða um Norðurlönd. Á síðari árum fóru þau árlega til Kan- aríeyja. Sigga var virkur félagi í Kvenfélaginu Einingu á Hvols- velli alla sína tíð ásamt Félagi eldri borgara. Útför Sigríðar fer fram frá Stórólfshvolskirkju á Hvolsvelli í dag, 10. október 2020, kl. 12. Útvarpað verður á FM 106,1. urjón Garðar, f. 1950, maki Anna Ólöf Ólafsdóttir, f. 1953. Þau eiga 4 dætur og 9 barna- börn, 3 stjúpbarna- börn og 1 stjúp- barnabarnabarn. 2) Halldór, f. 1953, maki Edda Guð- laug Antonsdóttir, f. 1953. Þau eiga 4 börn og 9 barna- börn. 3) Ómar, f. 1954, maki Erla Ríkharðsdóttir, f. 1960. Saman eiga þau 4 syni og 3 barnabörn. 4) Guðbjörg, f. 1956, maki Þórður Einarsson, f. 1958. Saman eiga þau 7 börn og 15 barnabörn. 5) Sigurlín, f. 7.11.1958, maki Þormar Andr- ésson, f. 1954. Þau eiga 4 syni og 11 barnabörn. 6) Óskar, f. 1965, maki Íris Adolfsdóttir, f. 1963. Þau eiga 2 börn. 7) Þór- unn, f. 1967, maki Friðrik Sölvi Þórarinsson, f. 1960. Saman eiga þau 5 dætur og 3 barna- börn. 8) Unnur, f. 1967, maki „Tilvera okkar er undarlegt ferðalag, við erum gestir og hótel okkar er jörðin“. Þetta lag og texti var eitt af uppáhaldslögun- um hennar mömmu. Nú hefur hún lokið sinni hóteldvöl hér á jörð og er komin á lúxushótel með spa á öðrum stað. Fyrir þrjátíu árum síðan fór- um við systurnar fjórar og mamma í helgar- og menningar- ferð til Reykjavíkur. Við enduð- um á Árbæjarsafni í Dillonshúsi þar sem við fengum okkur kaffi og vöfflur. Þar með var grunn- urinn lagður að klúbbnum okkar sem við kölluðum Dillons. Mamma var elst okkar systra í þessum félagsskap. Við eigum endalaust margar minningar frá þessum samverustundum þar sem mikið var hlegið, málin rædd, góð ráð gefin, borðaður góður matur og skríkt fram á nótt. Mamma var hrókur alls fagn- aðar, einstaklega þægileg og skemmtileg. Samverustundirnar voru margar heima hjá hver ann- arri, þar sem við klæddum okkur í kjóla af henni, settum upp hatta og varalituðum okkur. Klúbburinn fór m.a. til Luxem- borgar, þaðan með næturlest í 8 klukkutíma til S-Frakklands og áfram til Monte Carlo, St. Tro- pez, Nice, Cannes og fleira. Í Mónakó heimsóttum við gröf uppáhaldsleikkonu mömmu, Grace Kelly. Líkt og hún var mamma ávallt vel til höfð, með eyrnalokka, fest- ar og varalit og hélt hún því til hinstu stundar. Mamma átti mörg áhugamál. Eitt var söngur og tónlist þar sem systkinin Ellý og Vilhjálmur voru í miklu uppá- haldi. Þegar hún frétti andlát Vil- hjálms var sem mjög náinn ást- vinur hefði látist. Annað stórt áhugamál mömmu voru gardínur og dúkar. Hún lifnaði öll við og kættist ef gardínur eða dúka bar á góma og sannarlega var hún glöð með hvað við systur höfum þurft mik- ið á gardínum að halda gegnum tíðina. Enginn fer í hennar spor á mörkuðum á Kanarí að prútta dúka, þá létum við okkur systur hverfa. Síðustu 6 árin hefur mamma búið á Dvalarheimilinu Kirkju- hvoli. Þar kunni hún afar vel við sig og leið vel. Við systur eigum eftir að sakna þess mjög að heimsækja hana þangað og einnig eigum við eftir að sakna starfsfólksins, en viðmót þeirra allra er einstaklega hlýtt og notalegt. Við sendum starfsfólki Kirkju- hvols okkar innilegustu kveðjur og þökkum fyrir frábæra umönn- un. Enginn getur komið í stað elsku mömmu en Dillonsklúbbur- inn mun halda áfram að hittast, við munum rifja upp og hlæja og hlæja en munum sakna gullkorn- anna og hlátursins hjá demant- inum okkar, henni mömmu. Dillonssystur, Guðbjörg, Sigurlín, Þórunn og Unnur. Elsku amma Sigga. Mikið vor- um við heppin að fá að kynnast þér svona vel og hafa þig hjá okk- ur til níræðisaldurs, það er ekki sjálfsagt. Við minnumst þín með hlýju og húmor í huga, þú varst fljót að svara fyrir þig og svo skemmti- lega hnyttin. Við erum þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér, öll jólin sem þið afi voruð hjá okkur, þótt okkur hafi fundist þið fulllengi að borða þegar pakkarn- ir biðu. Svo eru það allar ógleym- anlegu minningarnar þegar við komum í pössun í Norðurgarðinn og spiluðum, horfðum á myndina um Adam og Evu, þar sem það var eina spólan sem til var, feng- um fisk í hádeginu og lögðum okkur svo með ykkur afa, heim- sóknirnar á Kirkjuhvol til þín þar sem þú tókst alltaf á móti okkur með stút á vör og það var alltaf koss beint á munninn. Við munum sérstaklega eftir því, við systkinin, þegar við vor- um í matarboði hjá ykkur í Norð- urgarðinum að fara að borða dýr- indis lambalæri og þú, amma, ert að bogra yfir því þegar þú rekst í maltdós, sem hellist yfir allt lærið og þú ert ekki lengi að finna réttu orðin: „Þarf þetta ekki að vera í legi?!“ og við grenjuðum úr hlátri og gleymum þessu aldrei. Takk, elsku amma, fyrir að færa okkur þessa stóru og góðu fjölskyldu – það er þér að þakka að við eigum frábært stuðnings- net allt í kringum okkur. Við elskum þig. Minning stórmóður Hvolsvall- ar lifir. Þín barnabörn, Assa og Hjörvar Ágústarbörn. „Hvað ungur nemur, gamall temur“ var einhvern tímann sagt og í þeim orðum eru mikil sann- indi fólgin. Ég held raunar að kynslóðirnar, sem sífellt eru að koma og fara, brúi bilið sín á milli með því að reyna að læra hver af annarri. Móðuramma mín, Sigríður Halldórsdóttir sem nú hefur kvatt þessa jarðvist, var ekki langskólagengin kona. Amma var hinsvegar hluti af þeirri kynslóð sem upplifði þvílíka umbrotatíma í mannkynssögunni, að fátt gat komið henni úr jafnvægi og svo ótalmargt var hægt að læra af henni. Amma var hlédræg – bar ekki hugðarefni sín á torg eða kveinkaði sér undan því sem á daga hennar dreif. Hnyttni hennar, snögg tilsvör og vönduð kímnigáfan reið þó ekki við einteyming og þess urðu allir þeir varir sem umgengust hana. Óborganlegt dæmi um þessa eiginleika hennar var til að mynda þegar hún, fyrir slysni, rak olnbogann í opinn jólaöls- baukinn, með þeim afleiðingum að innihaldið helltist yfir sunnu- dagslærið: „Mér fannst steikin þurfa að liggja í legi!“ Sjötíu ára aldursmunur skildi okkur ömmu að en samt náðum við vel saman og sérstaklega þeg- ar ég loks sleit barnsskónum og öðlaðist aukinn þroska. Amma Sigga var nefnilega alltaf í hlut- verki uppalanda, frekar en ömmu sem spillti barnabörnunum með sælgæti og gjöfum. Hún var ákveðin og fylgin sér – áreiðan- leg, nákvæm með eindæmum og með afbragðsgott minni. Hún gaf af sér með því að muna það sem maður var að brasa hverju sinni – spurði frétta og leiðbeindi. Hlýjuna gaf hún síðan þúsundfalt frá sér með inni- legustu kossum og faðmlögum sem hægt er að hugsa sér. Haustið 2018 fór ég með aðal- hlutverk skólaleikrits sem við settum upp í MR. Ég nefndi þetta við ömmu og hún sýndi mikinn áhuga. Ég bauð hana vel- komna á sýningu, en gerði mér ekki miklar vonir um að hún myndi treysta sér í slíkt ferðalag. En sú gamla var ekki af baki dottin, brá sér í sparidragtina og brunaði suður til Reykjavíkur að fylgjast með dóttursyni sínum á fjölunum – þá gengin fast að ní- ræðu. Hún fékk auðvitað heiðurs- sæti í salnum og brosti allan tím- ann. Þessu mun ég aldrei gleyma. Árin líða og aukinn þroski fær- ir manni nýja sýn á veruleikann. Ég held að vinnuharka æskunnar og hörð lífsbaráttan hafi mótað ömmu á margan hátt. Það var síður en svo mulið undir hana og hún var alla tíð nægjusöm – veitti sjálfri sér afskaplega fátt sem ekki þótti bráðnauðsynlegt. Henni var þó alveg sérstaklega umhugað um eigið útlit og þar var ekkert til sparað – flíkurnar, sem hún valdi af kostgæfni, átti hún áratugum saman, fór reglu- lega í lagningu og bar ævinlega skartgripi af hinum ýmsu gerð- um, varalitinn og góðu lyktina. Að leiðarlokum vil ég þakka ömmu Siggu fyrir allt það sem hún gaf mér – þrautseigjuna, sjálfstæðið, húmorinn og þann ómetanlega eiginleika að vera læs á mannlegt eðli. Núna röltir hún eflaust hæg- um skrefum inn í sumarlandið – fáguð í fasi, stórglæsileg, ákveðin og hógvær – södd lífdaga og stolt af viðburðaríku lífshlaupi. Elsku amma – takk fyrir mig. Ég mun sakna þín sárt. Þinn dóttursonur, Dagur Ágústsson. Forréttindi og þakklæti eru mér efst í huga við að kveðja þig amma mín. Það eru forréttindi að fá að eiga glæsilega ömmu sem nær 91 árs aldri, ég þakka fyrir það að hafa í gegnum tíðina átt þennan stað að getað komið til ykkar afa, og síðar kíkt við þó ekki væri nema aðeins í smá spjall þegar ég eða við vorum á ferðinni. Það eru forréttindi að hafa al- ist upp við það að þið afi áttuð rútufyrirtæki, maður gat og fékk að ferðast á milli staða meira og oftar en margur á þeim tíma, tala nú ekki um að eiga sjoppu, draumurinn var alltaf að fá að vinna í sjoppunni þegar maður yrði aðeins eldri, setja á pulsu og gera ís í ísvélinni. Ég fékk þau forréttindi að koma oft í heimsókn til ykkar frá Hornafirði með og án foreldra. T.d. minningar um sumardvöl í hjólhýsinu með þér og tvíburun- um í Hveragerði, eins og fyrsta upplifun til útlanda. Já útlönd, ég fékk þau forrétt- indi að fara með ykkur afa til Kanaríeyja eftir 10 ára afmælið mitt á miðjum vetri, upplifun engri lík. Ég er afskaplega þakklát fyrir að börnin mín fengu að kynnast þér og forréttindi fyrir þau að upplifa að eiga langömmu og langafa. Ég dáðist að þér, kletturinn hans afa, ólst af þér átta yndisleg börn, falleg, glæsileg kona, eleg- ant í klæðaburði, mín íslenska Sophia Loren með mjúku kyssi- legu varirnar. Þið afi eruð sameinuð á ný og ferðist nú aftur um víðan völl. Hlýjar minningar lifa, hafið mína þökk fyrir allt og allt. Ég veit að vorið kemur og veturinn líður senn. Kvæðið er um konu, en hvorki um guð né menn. Hún minnti á kvæði og kossa og kvöldin björt og löng og hvíta, fleyga fugla og fjaðraþyt og söng. Og svipur hennar sýndi, hvað sál hennar var góð. Það hló af ást og æsku, hið unga villiblóð. Sigríður Halldórsdóttir Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG SIGURGEIRSDÓTTIR, lést 5. október á hjúkrunarheimilinu Grund. Í ljósi aðstæðna verður útförin ekki auglýst og mun hún fara fram með nánustu aðstandendum. Aðstandendur senda sérstakar þakkir til starfsfólks Vegamóta á Grund fyrir einstaka umönnun síðustu árin. Sigurgeir Sigmundsson Hildur Ásta Viggósdóttir Sigríður Sigmundsdóttir Hermann Ársælsson Guðrún Sigmundsdóttir Gylfi Óskarsson og fjölskyldur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELMA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Neskaupstað, lést fimmtudaginn 8. október á Droplaugarstöðum. Petrún Björg Jónsdóttir Sólrún Færseth Jóhann Freyr Jónsson Camilla Guðjónsdóttir Jón Einar Jóhannsson barnabörn, barnabarnabörn og systkini Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI HALLGRÍMSSON, fyrrv. vegamálastjóri, lést fimmtudaginn 8. október á líknardeild Landspítalans, Kópavogi. Útför fer fram fimmtudaginn 15. október. Margrét G. Schram Hallgrímur Helgason Þorgerður Agla Magnúsdóttir Nína Helgadóttir Kjartan Valgarðsson Ásmundur Helgason Elín G. Ragnarsdóttir Gunnar Helgason Björk Jakobsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR ADOLFSSON, Fellahvarfi 15, Kópavogi, verður jarðsunginn í Vídalínskirkju föstudaginn 16. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni og hægt að nálgast hlekkinn á mbl.is/andlat. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið. Nanna María Guðmundsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN THORBERG FRIÐÞJÓFSSON, Dofraborgum 42, Reykjavík, lést aðfaranótt 4. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 15. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Hanna María Tómasdóttir Kolbrún Elsa Jónsdóttir Guðlaugur Pálsson Friðþjófur Helgi Jónsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.